Dagur - 01.04.2000, Side 2
2 - LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
FRÉTTIR
L a
Guö víkur fyrir
fótboltanum
í Sjónvarpinu.
Úrslitaleíkurum á EM
í fótbolta. Skarast á
við kristnitökuhátíð-
ina á Þingvöllum.
Stærstu atriðin af-
staðin.
Forráðamenn Sjónvarpsins og
Kristnitökuhátíðar munu hafa
svitnað ofurlítið þegar ljóst var
að úrslitaleikurinn í Evrópu-
keppni landsliða í fótbolta í sum-
ar færi fram á sama tíma og bein
útsending stendur yfir frá
kristnitökuhátíðinni á Þingvöll-
um. Niðurstaða varð hinsvegar
sú að leikurinn verður sýndur
beint klukkan 18 sunnudaginn
2. júlí næstkomandi. Fyrir vikið
verður ekki um beina útsend-
ingu að ræða frá síðustu 90 mín-
útum kristnitökuhátfðar scm lýk-
ur klukkan 19:30 þá um kvöldið.
Aftur á móti er óvíst hvort leikur-
inn um þriðja sætið verður sýnd-
ur beint daginn áður vegna út-
sendinga frá Þingvöllum.
Gleymdu úrslitaleikniun
Þetta mál kom til umræðu á út-
varpsráðsfundi fyrir skömmu, en
þar var þó ekki tekin nein
ákvörðun. Mörður Árnason full-
trúi Samfylkingarinnar í útvarps-
ráði segist þó hafa á fundinum
lagt þunga áherslu á það að leik-
urinn yrði sýndur í beinni út-
sendingu. Hann segir að það sé
ekki Sjónvarpinu eða áhuga-
mönnum um knattspyrnu að
kenna þótt kristnihátíðarnefnd
og framkvæmdastjóri hennar
hafi gleymt úrslitaleiknum í Evr-
ópukeppni landsliða sem fram
fer í Belgíu og Hollandi í sumar.
Stærstu atriöin afstadin
Júlíus Hafstein framkvæmda-
stjóri kristnitökuhátíðarnefndar
segir að vissulega skarist þarna
útsendingin frá úrslitaleiknum í
Evrópukeppninni og frá hátíð-
inni á Þingvöllum. Hann segist
þó ekki hafa fengið það staðfest
bréflega frá Sjónvarpinu að út-
sending falli niður vegna úrslita-
Ieiksins. Flann bendir hinsvegar
á að þegar kemur að úrslitaleikn-
um séu öll stærstu atriðin á
Þingvallahátíðinni afstaðin.
Engu að síður gerir hann ráð fyr-
ir því að hátíðarnefndinni muni
falla það miður að útsending
hætti vegna fótboltans. Nefndin
hefur þó ekki fjallað um málið og
óvíst hvort hún gerir það, enda
hefur það ekki formlega verið
tekið á dagskrá að sögn Júlíusar.
1 nefndinni eru forseti Islands,
forsætisráðherra, biskup, forseti
Alþingis og forseti Hæstaréttar.
A þeim tíma sem úrslitaleikurinn
fer fram verða á Þingvöllum tón-
leikar yngri kynslóðarinnar þar
sem fram koma ýmsar af þekkt-
ari tónlistarstjörnum landsins.
Fram að úrslitaleiknum veröur
bein útsending frá hátíðinni frá
klukkan 9:30 á sunnudeginum
2. júlí og fram eftir degin. Að
sama skapi verður einnig bein
útsending frá hátíðinni laugar-
daginn 1. júlí sem endar með
tónleikum um kvöldið. — GRH
Leyndum
varðsldp
Smíðanefnd að nýju varðskipi
hefur afhent Sólveigu Péturs-
dóttur dóms- og kirkjumálaráð-
herra smíðalýsingu að skipinu.
Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar og for-
maður smíðanefndarinnar segir
að á þessu stigi málsins sé ekki
hægt að kynna tillögurnar í smá-
atriðum. Það sé vegna hættu á
að viðskiptahagsmunir geti
skaðast ef viðsemjendur um
smíðina hafa fengið upplýsingar
um hana sem þeir geta síðan
notað við tilboðsgerð.
Báðherra sagði á blaðamanna-
fundi í gær að næstu skref sé að
bjóða út smíðina á nýju 3 þús-
und tonna og 105 metra löngu
varðskipi. Áætlaður smíðatími
er um 3-5 ár. Hinsvegar er unn-
ið að því að leysa ágreining við
Eftirlitsstofnun EFTA vegna
þeirrar ákvörðunar að Iáta að
innlendar skipasmíðastöðvar sjá
um smíðina. Stofnunin telur að
það brjóti í bága við EES-samn-
inginn. A fundinum kom fram
að kostnaðaráætlun fyrir smíði
varðsldpsins sé um 2.423 milj-
ónir króna en heildarkostnaðar
með viðbótarbúnaði getur þó
orðið allt að 2.803 miljónum.
- GRH
Bjóða síma með
lægra fastagjaldi
Starfsmaður Radíónausts tekur hér utan af einum hinna nýju heimilissíma.
Þeir verda fboði í tvo tíma í dag, ki. 12-14 í Radíónausti á Akureyri og í
sérstöku sölutjaldi við Austurvöll I Reykjavík.
Ný tegund heimilissíma kemur á
markað í dag og verður fastagjald
fyrir þessa síma mun lægra en ver-
ið hefur. Það er Islandssími sem
flytur inn þessa síma og býður með
því verðbólgunni og hækkunum á
fastagjöldum hjá Landssímanum
byrginn. Símarnir munu vera
framleiddir með nýrri tækni sem
gerir það mögulegt að bjóða mjög
lágt fastagjald og standa jafnvel
vonir til þess í framtíðinni að gjöld
fyrir símnotkun verði mun lægri
en þau eru nú.
Með því að bjóða þessa síma til
sölu er Islandssími að svara þeim
hækkunum sem verða á fastagjaldi
hjá Landssímanum og um leið að
taka þátt í baráttu fyrirtækja gegn
verðbólgunni, eins og Bónus ákvað
á dögunum. „Með þessu vill ís-
landssími sýna fram á að hár sím-
kostnaður heimilana þarf ekki að
vera náttúrulögmál hér á landi. ís-
landssími mun ávallt leita hag-
kvæmustu leiða fyrir neytendur á
hverjum tíma,“ segir talsmaður
fyrirtækisins.
Vegna þess hve nýir þessir símar
eru á markaðnum hefur Islands-
sími takmarkað magn til sölu nú
en í fyrstu lotu verða símarnir til
sölu á Akureyri og í Beykjavík frá
ldukkan 12-14 í dag. A Akureyri
verða símamir seldir í Radíónaust
sem einmitt fagnar þrettán ára af-
mæli sínu í dag en í Reykjavík
verða símarnir boðnir til sölu í sér-
stöku sölutjaldi á Austurvelli,
skammt frá höfuðstöðvum Lands-
símans. — H1
Hagnaður hjá Norðurljósum
Hagnaður fjölmiðlasamstæðunnar
Norðurljósa nam 527 milljónum
króna árið 1999, en á árinu 1998
var tap á starfseminni 261 milljón.
Aíkoman er því 788 milljónum
króna betri árið 1999 en árið
1998. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði nam 884 milljónum
sem er 31,6% aukning frá fyrra ári.
Sem kunnugt er varð á síðasta
ári til öflugasta fyrirtæki Iandsins í
fjölmiðlun og afþreyingariðnaði
undir heitinu Norðurljós. Félagið
tók við eignarhaldi og rekstri ls-
lenska útvarpsfélagsins hf., Sýnar
hf. og Skífunnar hf., auk þess sem
það á ríflega þriðjungs hlut í fjar-
skiptafyrirtækinu Tal.
Stærsta olíusMpið sem lagst hefur að
Nú er lokið við að dæla úr stærsta
olíuskipi sem lagst hefur að hafn-
arbakka í Reykjavík til þessa. Und-
anfarin misseri hefur verið unnið
að því að lengja viðlegukant Eyja-
garðs í Orfirisey til að hægt sé að
losa þar olíu úr stórum flutninga-
skipum í stað þess að Iáta þau
liggja við legufæri og taka farminn
í land um neðansjávarleiðslur.
Þannig hefur verið staðið að losun
olíu úr flutningaskipum í Reykja-
vík í nær hálfa öld en í vikunni
urðu tímamót þegar hingað kom
flutningaskipið Lista frá Mongstad
í Noregi og lagðist að Eyjagarði. Skipið er nær 28 þúsund tonn, 1 70
metra langt og 24 metra breitt. Um borð voru 24 þúsund tonn af flota-
olíu og dísilolíu fyrir Olíufélagið hf. og Olíuverslun íslands hf. Þetta er
eitt stærsta skip sem lagst hefur að hafnarbakka í Reykjavík og stærsta
olíuskipið sem það hefur gert.
Lista, stærsta olíuflutningaskip sem
lagst hefur aö bryggju I Reykjavík
sést hér við Eyjagarð I Úrfirsey I vik-
unni. - mynd: e.ól.
Yfirlýsing iðnskólákeimara
Degi hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: „Við undirrituð kennarar við lðn-
skólann í Reykjavík hörmum þann féttafluttning af málefnum skólans
sem birtist í forsíðufrétt í Degi fimmtudaginn 30. mars. Ásakanir og full-
yrðingar um gerðir einstakra starfsmanna þjóna í engu hagsmunum skól-
ans eða kennara. Ekki hefur enn farið fram rannsókn á orsökum rangrar
gagnavinnslu og því ekki hægt að fullyrða neitt um þátt einstakra stjórn-
enda IR í Iaunauppgjöri kennara. Uppi hefur verið málefnalegur ágrein-
ingur innan skólans og ekki rétt að færa umræðuna inn á persónulegar
brautir. Skólastarfið er á viðkvæmum tímamótum og upphlaup og órök-
studdar ásakanir bæta síst úr fyrir skólann eins og málum er nú komið.
Við horfum full bjartsýni fram á komandi skólaár og vonum að alll starfs-
lið skólans leggist á eitt um að vinna að bættu skólastarfi." Undir þetta
rita Valgerður Þ.E. Guðjónsdóttir, EgiII Guðmundsson, Kolbrún
Kolbeinsdóttir, Valborg S. Ingólfsdóttir og Pétur I Guðniundsson kenn-
arar.