Dagur - 01.04.2000, Síða 5
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 - 5
T^mt-
[ FRÉTTIR
Eins og vUlidýr eftír
stj órmausa neyslu
Espigerði 4, þar sem voðaverkið átti sér stað. Eftir verknaðirm fór hinn ákærði í ríkið í Kringlunni og hélt sukki
sínu áfram. - mynd: teitur
Hinn ákærói ákvað að
myrða einhvem og
svipta sig svo lífi.
Fullfær um að stjóma
gerðiun síniun, segir
ákæmvaldið. „Þetta
var ekki hann, heldur
einhver allt annar per-
sónuleiM,“ sagði vitni
um ástand hans.
Dæmisaga um eyði-
leggjandi áhrif vímu-
efna.
Við aðalmeðferðina á Espigerðis-
morðmálinu, máli ákæruvaldsins
gegn EIísi Helga Ævarssyni, var
enginn efi uppi um sekt eða sak-
Ieysi hins ákærða. Játning lá fyrir
í smáatriðum, auk óhrekjandi
sönnunargagna og vitnisburða.
Ljóst lá fyrir að síðdegis föstudag-
inn 3. desember 1999 banaði Elís
hinni áttræðu Sigurbjörgu Ein-
arsdóttur á heimili hennar, fyrir-
vara- og tilefnislaust. Hann stakk
hana nokkrum sinnum, ein
stungan sem gekk á hol var sann-
anlega banamein konunnar. Og
þar sem hún lá á gólfinu taldi
hinn ákærði sig heyra hljóð frá
henni. Greip hann þá báðum
höndum Ijögurra kílóa styttu og
keyrði í enni hennar, til að ljúka
verkinu. Því næst rjátlaði hann
eitthvað um íbúð konunnar, þvoði
blóðið af hnífnum, faldi styttuna
og stal 2-3 þúsund krónum úr
veski hennar.
Þetta er framburður hins
ákærða, sem hefur játað verknað-
inn greiðlega. Við aðalmeðferðina
í gær var fyrst og fremst reynt að
leiða í ljós hvers vegna hann
framdi voðaverkið og þá einkum
hvort hann hafi verið með réttu
ráði og meðvitaður um gjörðir sín-
ar. Ákæruvaldið leitaðist við að
sanna að hinn ákærði hafi verið
að fullu meðvitaður um afleiðing-
ar gerða sinna og geðrannsókn
hefur leitt af sér þá niðurstöðu að
Elís Helgi er sakhæfur. Verjand-
inn, Örn Höskuldsson, leitaðist
við að sýna fram á að Elís hafi ver-
ið gjörsamlega stjórnlaus gerða
sinna vegna gífurlegrar áfengis-
og fíkniefnaneyslu. Einnig leiddi
hann vitnisburð að því að þótt
hinn ákærði hafi tekið fé úr veski
konunnar hafi rán alls ekki verið
undirlag manndrápsins.
Talaði tiuigum:
Ég var vitstola
Þegar gögn málsins og framburð-
ur vitna eru metin í heild kemur
fram órækur vitnisburður um
hvernig hörð áfengis- og fíkni-
efnaneysla getur leikið einstak-
ling grátt. Elís virðist edrú hafa
„Landssíminn er að nýta sér gríð-
arlega hækkun fastagjalda til að
lækka símagjöld þar sem um sam-
keppni er að ræða á sama tíma og
símgjöld almennra talsímanot-
enda stórhækka. Slíkt er óviðun-
verið ljúfur og þægilegur einstak-
lingur, þótt merkja hafi mátt und-
irliggjandi persónuleikaröskun.
En hann er fíkill sem byrjaði að
drekka 9-10 ára og nota fíkniefni
fyrst 12 ára og hefur margoft far-
ið í meðferð en jafnharðan fallið.
Þegar voðaverkið átti sér stað
hafði hann staðiö í mikilli neyslu
samfleytt í 7-8 daga á áfengi, e-
pillum, kókaíni, amfetamíni,
kannabis, Mogadon og Diazepan.
Hans nánustu voru orðin hrædd
við hann og um hann, því hann
talaði um sjálfsvíg, þegar hann
ekki beinlínis „talaði tungum"
með óskiljanlegum ruglanda. Sól-
arhringinn sem voðaverkið var
framið hringdi hann 150 sinnum
úr farsíma sínum.
„Eg var reiður og stjórnlaus,“
sagði hinn ákærði um aðdragand-
ann. Æddi af stað og tilviljun réði
hver yrði á vegi hans. Sú hugsun
kviknaði hjá honum að fremja
morð og svipta sig síðan lífi. „Eg
vildi refsa mér með því að gera
eitthvað illt. Mér fannst þetta
vera leið til að öskra út. Eg var vit-
stola," sagði Elís og taldi að hann
hafi viljað gera eitthvað til að eiga
skilið þá refsingu sem honum
fannst að hann væri þegar byrjað-
ur að taka út. Hann bankaði uppá
í íbúðinni beint á móti og fékk að
hringja þar, en þar var gestkvæmt
og hann fór. Með hanska á hönd-
andi“ segja Neytendasamtökin,
sem telja að Landssíminn fari
ekki að tilmælum um Póst- og
Fjarskiptastofnunar uni að lækka
önnur símgjöld á móti hækkun
fastagjaldsins. Á móti alnrennri
um fór hann á hæðina fyrir neðan
og fékk inngöngu hjá gömlu kon-
unni undir því yfirskini að fá að
hringja. Þegar hún rétti honum
símann tók hann upp hníf sinn og
hóf sína fyrirvara- og tilefnislausu
árás.
Stjómlaus eða fær uui að
meta gerðir sínar?
Eftir árásina fór hinn ákærði í
leigubíl til kunningja sína að
halda sukkinu áfram. Fékk þar að
setja blóðugar gallabuxur sínar í
þvottavél.
Ljóst er að Elís hefur verið
rnjög langt leiddur þegar hann
framdi verknaðinn. Hann talaði
linnulaust en samhengislítið í far-
síma og æsti sig upp út af litlu til-
efni. Um kvöldið hitti hann tvær
stúlkur, óvirka alkóhólista sem
vissu af falli hans og vildu reyna
að hjálpa honurn. Sögðu þær að
hann hafi verið óþekkjanlegur og
þær beinlínis hræddar við hann.
„Eg var gersamlega stjórnlaus og
alls ekki sjálfráða," segir hinn
ákærði og hafnar alfarið fullyrð-
ingu ákæruvaldsins um að hann
hafi verið fullfær um að stjórna
gerðum sínum.
Sigurður Pálsson geðlæknir
kvað það sína niðurstöðu að Elís
væri sakhæfur og ekki haldinn
neinum geðsjúkdómum, þótt per-
sónuleikaraskanir væru fyrir
hækkun á alla Ifnutengda sínta
ætti að konta alinenn lækkun sím-
gjalda. En ekki sértækar lækkan-
ir sem erfitt er að sjá hvorl hafi
rnikla þýðingu fyrir almenning.
Neytendasamtökin krefjast því að
hendi. Ýmis vitni báru aftur á
móti um annarlegt ástand hans
þennan örlagaríka dag. „Hann var
uppdópaður og í mjög annarlegu
ástandi," sagði nágranni. „Greini-
Iega mjög ruglaöur,“ sagði leigu-
bílstjóri, fjölskyldukunningi sem
ók hinum ákærða þennan sama
dag og trúði ekki óljósum orðum
hans um að hafa „drepið kerl-
ingu“. „Eg var hálf skelkaður. Það
var svakalegt að sjá hann,“ sagði
sukkfélagi hans. „Mér brá. Eg hef
aldrei séð jafn dópaða mann-
eskju," sagði vitni. „Þetta var ekki
hann, heldur einhver allt annar
persónuleiki," sagði vinkona.
„Ástandið á honum var sorglegt.
Ég sá mikia vanlíðan," sagði vin-
ur. „Eg var mjög hrædd um
hann,“ sagði móðir hans og bar að
hann hefði sífellt talað um sjálfs-
víg dagana á undan. Þennan dag
talaði hann tungum, sat á gólfinu
og talaði í sífellu einhvern rugl-
anda í farsíma sinn. „Ég hef oft
séð hann í neyslu, en aldrei séð
neitt í líkingu við þetta," sagði
hún.
En andstætt þessu liggur fyrir
það mat geðlæknisins að þrátt fyr-
ir áhrif vímuefna með tilheyrandi
dómgreindarbrest þá hafi hinn
ákærði verið það skýr í hugsun að
hann var lullfær um að stjórna
gerðum sínum.
Landssíminn felli niður upphafs-
gjald símtala (kr. 3.20) og lækki
mínútugjaldið í almennum tal-
símum. Ella verði ríkisstjórnin að
knýja fyrirtæki sitt til lækkunar al-
mennra símgjalda. — HEl
Eiríkur S. Jóhannsson.
Hagnaður
hjáKEA
Hagnaður varð af rekstri Kaup-
félags Eyfirðinga og dótturfélaga
á síðasta ári og nam hann 383
milljónum króna að teknu tilliti
til skatta og annarra tekna.
Þetta er mun betri afkoma en
árið 1998 þegar félagið var gert
upp með 528 milljón króna tapi.
Tap varð af rcglulegri starfsemi
KEA samstæðunnar að fjárhæð
271 milljón króna, samanborið
við 788 milljónir árið áður.
„1 öllum aðalatriðum er ég
sáttur við útkomuna á liðnu ári.
Við gengum í gegnum einhverja
mestu breytingatíma í sögu fé-
lagsins og náðum samtímis að
snúa rekstrinum til betri vegar.
Þegar menn skoða ársreikning-
inn verður að sjálfsögðu að hafa
í huga allar þær breytingar sem
urðu á árinu og valda því að ekki
er allt sem sýnist. Sumir kunna
t.d. að setja spurningamerki við
þá útkomu að tap móðurfélags-
ins fyrir fjármagnsgjöld eykst á
milli ára. Þessi niðurstöðutala
ein og sér gefur ekki rétta mynd
af rekstrinum og á sínar eðlilegu
skýringar. Þessar miklu breyt-
ingar sem félagið er nú að ganga
í gegnum kosta töluverð fjárút-
lát í dag sem við teljum að muni
skila sér í bættum rekstri í fram-
tíðinni," segir Eiríkur S. Jó-
hannsson, kaupfélagsstjóri.
Níu sækja
UIIl
þjóðminja-
vordinn
Umsóknarfrestur um embætti
þjóðminjavarðar rann út í gær
og bárust menntamálaráðuneyt-
inu níu umsóknir um embættið.
Umsækjendur eru: Adolf Frið-
riksson, Dr. Bjarni F. Einarsson,
Gísli Sigurðsson, Dr. Kristín
Huld Sigurðardóttir, Hjörleifur
Stefánsson, Dr. Margrét Her-
manns Auðardóttir, Margrét
Hallgrímsdóttir, Ólína Þorvarð-
ardóttir og Steinunn Kristjáns-
dóttir. Menntamálaráðuneytið
mun senda umsóknirnar til um-
sagnar þjóðminjaráðs í samræmi
við ákvæði þjóðminjalaga.
Eldurá
Amamesi
Einbýlis hús við Mávanes f
Garðabæ gjöreyðilagðist af völd-
um elds í fy'rrinótt. Eldurinn
kom upp um klukkan hálffimm.
Þegar slökkvilið Hafnarfjarðar
kom á brunastað var húsið al-
elda og voru reykkafarar sendir
inn í húsið að leita fólki en hús-
ið reyndist mannlaust. Slökkvi-
starfi lauk á áttunda tímanum í
gærmorgun en nærliggjandi hús
ntunu ekki hafa verið í hættu.
Óvidimandi hækkim