Dagur - 01.04.2000, Side 6
6 - LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
Thypir
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.ooo KR. Á mánuði
Lausasöiuverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Netföng augiýsingadeiidar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: creykjavík)563-1615 Ámundi Ámundason
CREYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Simbréf auglýsingadeiidar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRl) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Bankasameining
í fyrsta lagi
Hlutirnir gerast hratt á íslenskum fjármálamarkaði eins og
frumlegt sameiningarútspil íslandsbanka og Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins er til vitnis um. Þar er á ferðinni áhuga-
verður sameiningarkostur af allt öðru tagi en menn hafa verið
að ræða um til þessa, kostur sem byggir á nýjum sóknarfærum
frekar en hefðbundinni hagræðingu með sameiningu útibúa
og stórfelldri fækkun starfsfólks. En jafn afgerandi leikur og
hér um ræðir á taflborði fjármálaheimsins breytir að sjálf-
sögðu allri stöðunni og setur hana að mörgu leyti í uppnám.
í öðru lagi
Enda er þegar farið að skoða mögulega þess að sameina Bún-
aðarbanka og Landsbanka til mótvægis við hina sameining-
una. Það er augljósasti mótleikurinn í stöðunni og slík samein-
ing myndi hiklaust skila gríðarlegri hagræðingu, þó til sanns
vegar megi færa að hún verði ekki alveg eins mikil og hefði
orðið með sameiningu Islandsbanka og Landsbanka. Engu að
síður er sameining ríkisbankanna nú orðinn raunverulegur og
mjög áhugaverður kostur, sem stjórnvöld horfa sem betur fer
til með áhuga.
í þriðjalagi
Fullyrt hefur verið að þessar vendingar sýni yfirburði einka-
framtaksins fram yfir starfshætti hins opinbera þar sem póli-
tísk sjónarmið koma að. Sú krafa hefur líka verið reifuð í her-
búðum sjálfstæðismanna, m.a. í leiðara Morgunblaðsins, að
heppilegt kynni að vera að einkavæða ríkisbankana áður en
þeir eru seldir. Slíkt væri mikið glapræði - einkavinavæðing
verði til þess eins fallin að ríkið yrði af þeim gríðarlegu viðbót-
arverðmætum sem yrðu til við sameiningu bankanna. Þó það
sé sjaldgæft á þessum vettvangi nú í seinni tíð, að taka undir
orð Davíð Oddssonar, þá er full ástæða til þess nú. Hann hef-
ur einmitt bent á að hin breytta staða gefi svigrúm til að huga
að sameiningu ríkisbankanna og bíða með sölu þeirra, þannig
að samlegðaráhrif sameiningarinnar skili sér til skattborgar-
anna í gegnum ríldssjóð. Birgir Guðmimdsson
Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra er ör-
ugglega ekld mjög vinsæl hjá
tilteknum hópi manna þessa
dagana. Og þá er ekki átt við
Garra og þorra þjóðarinnar,
sem vita að Valgerður er valin-
kunn sómakona og dugnaðar-
forkur eins og þær Lómatjarn-
arsystur raunar allar. Nei, það
eru kollegar Valgerðar í ríkis-
stjórn sem vafalaust hugsa
henni þegandi þörfina lyrír að
gera þeim óvænta slnáveifu.
Og ekki síður munu þeir
stjórnmálamenn sem ganga
með ráðherrann í maganum
vera fúlir út í frú Valgerði.
Hún hefur sem sé tekið upp
á þeim fjanda að gera
það sem enginn ráð-
herra með sjálfsvirð-
ingu hefur gert í ára-
tugi, nefnilega að vilja
greiða eitthvað úr eigin
vasa! Og mun athæfi af
þessu tagi og raunar
hugtakið sjálft, vera
flestum íslenskum ráð-
herrum með öllu ókunnugt.
Siunarsjóður
Valgerður fagnaði sum sé
fimmtugsafmæli sínu á dög-
unum. Og sýndi kjósendum
sínum og dreifbýlinu þá virð-
ingu að halda veisluna t
heimabyggð, nánar tiltekið
norður í Grenivík, en ekki suð-
ur í Perlu. En þar sem vinnu-
staður Valgerðar, ráðuneytið,
er staðsett í Reykjavík, var
Ijóst að nokkur kostnaður væri
þvf samfara fyrir samstarfs-
mcnn hennar að komast í af-
mælið. Því var brugðið á það
ráð að breyta árlegri sumar-
ferð ráðuneytisfólks í afmælis-
ferð að vetri og sumarferðar-
sjóðurinn nýttur til að greiða
ferðakostnað starfsfólks norð-
ur og gistingu þar.
Þarna var sem sé ekki um að
ræða aukaútgjöld ráðuneytis-
V
ins, heldur tilfærslu á útgjöld-
um. Eftir að DV vakti athygli á
málinu lagðist Valgerður hins-
vegar undir feld (minkafeld?)
og komst að þeirri niðurstöðu
að hugsanlega orkaði þetta tví-
mælis og lýsti því síðan yfir, að
hún myndi greiða kostnaðinn
úr eigin vasa!
Afturvirkt ?
Og nú er auðvitað spurning
hvort fordæmi ráðherrans er
afturvirkt. Hvað um veisluna
sem Friðrik Sófussson hélt
gömlum skólafélögum um árið
og lét ráðuneytið borga? Og
hvað um ríkiskjaravínið sem
Jón Baldvin reddaði vini sín-
um fyrir margt löngu?
Og hvað um allar
veislurnar og partíin
og veiðiferðirnar sem
DV hefur ekki þefað
uppi, en ráðherrar
hafa haldið fyrir vini
og vildarmenn gegn-
um tíðina, án þess að
borga úr eigin vasa?
Er tími endurgreiðslunnar að
renna upp? Og allt Valgerði að
kenna?
Ymsir hafa haldið því fram
að Davíð Oddsson hafi alla
ráðherra rfkisstjórnarinnar í
vasanum. Atburðir síðustu
daga hafa ekki beinlínis af-
sannað það. En það er alltént
ljóst að Valgerður Sverrisdóttir
er eini ráðherrann í marga
áratugi sem er með eigin vasa.
Og Garri sér því ekki eftir
því að hafa kosið hana síðast
og hann mun gera það aftur
næst. Því ráðherra, jafnvel þó
hann/hún sé sannfærður um
réttmæti eigin gerða, sem er
tilbúinn til að viðurkenna að
þær geti orkað tvímælis og
brugðist við samkvæmt því, er
fáheyrt fyrirbæri á Islandi.
GARRI
Valgerður
Sverrisdóttir.
Samtímis því að verkalýðurinn
passar upp á stöðugleikann í
efnahagsmálunum er allt á ferð
og flugi í stjórnsýslu og peninga-
viðskiptum. Ríkisendurskoðandi
átelur bruðlið í ráðuneytum við-
skipta og iðnaðar, sem splæstu
300 þúsundum í afmælisboð
norður í land, en segir ekki orð
um nokkurra milljarða rann-
sóknarverkefni sem farið er í
súginn, þar sem búið er að
ákveða að gæsin ein skuli ríkja á
Eyjabökkum.
En þetta eru smámunir einir f
umsvifunum. Nú á að skella
Kárahnúkavirkjun í löggilt um-
hverfismat og óbyggðavinir sem
sigruðu í síðustu orrustu búa sig
undir að sigra ríkisstjórnina,
Landsvirkjun, Austfirðinga og
Norsk Hydro í þeirri næstu. Þeir
munu aldrei líða að fljótin fyrir
austan verði sameinuð af hag-
kvæmnisástæðum eins og bank-
ar og matvöruverslanir og nú síð-
Órói í stöðugleikanimi
ast kúabúin í Eyjafirðinum, sem
orðin eru að stóriðju.
Reitum ruglað
Sömu daga og virkjanir og álver
fyrir austan eru slegin af eru
bankaeigendur á þeysispretti að
sundra og sameina. Um
miðja viku ætluðu
Landsbanki og FBA að
ganga saman í eina
sæng, en trúlofunin
varð endaslepp þegar
parið fór að kynnast. En
strax á eftir urðu Fram-
kvæmdabankinn og Is-
Iandsbanki par og gang-
ast fjármálaveldin nú
undir skemmriskírn og
sameinast um að græða
meira en nokkru sinni fýrr. Og
svo ætla gömlu hróin, Lands-
banki og Búnaðarbanki að rugla
saman reitunum til að mæta
ímyndaðri sanikeppni hinnar
samsteyptunnar, og allt ætlar
þetta að æða út á alþjóðamark-
aðinn þar sem íslenskt efnahags-
lff býður ekki upp á starfsemi
slíkra peningarisa, sem samein-
aðir bankar verða, að sögn þeirra
sem þar ráða rfkjum.
Um leið og virkjanir og stóriðja
fyrir austan eru blásin
af, tilkynna stjórnvöld-
in, að upp sé runnin
tími hinna miklu jarð-
gangnagerða. Sem
vænta mátti verða for-
gangsverkefni þar fjalla-
göt sem tengja eiga
stóriðjuna við aust-
firskar byggðir.
Síðan þarf nokkur
göng fyrir vestan til að
styrkja samgöngur milli
kvótalausra sjávarþorpa, sem eru
að kikna undan oki félagslegra
íbúðabygginga. Svo þarf að
greiða fyrir Siglfirðingum sem
eiga erindi í Hagstofuna eftir að
hún flytur til Olafsfjarðar.
Þenslulausar framkvæmdir
Það ríkir því síst af öllu stöðnun
í þjóðfélaginu í þeirri viku sem er
að líða þótt verkalýðurinn sjái
um stöðugleikann. Eina merkið
um að hið opinbera reyni að slá
á þensluna er að moka yfir ný-
grafnar bílageymslur Alþingis og
slá byggingu nýja þinghússins á
frest. Það á að koma í veg fyrir
þenslu íverktaka- og vinnumark-
aði í Reykjavík.
Samtímis er hafin lagning nýs
Miðbæjarflugvallar, sem kosta
mun nokkra milljarða á ári fram
eftir öldinni en öll sú ofboðs-
þensla sem sú framkvæmd veld-
ur er eldd talin með,enda er litið
á hana sem samgöngubót fyrir
hinar dreifðu byggðir.
Allt er þetta gott og blessað
meðan ríkið græðir á viðskipta-
hallanum og bankarnir cru færir
um að stórauka skuldir fyrir-
tækja og heimila.
Allt á útopnu hjá
iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
Erþað réttákvörðun hjá
Válgerði Sverrisdótturað
endurgreiðaferðakostn-
aðinn?
(Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
ið greiddi ferðakostnað starfs-
manna vegna „sumarferðar" þar
sem meðal annars var farið í af-
mælisveislu ráðherrans á Greni-
vík. Valgerður hefur ákveðið að
endurgreiða þennan kostnað úr
eigin vasa.)
Kolbrún Halldórsdóttir
þingmaðurVinstri hreyfingarinnar -
græns jramboðs.
„Ég hef ekki
myndað mér
neina skoðun á
því vegna þess
að mér finnst
það vera stærri
mál sem við
erum að fást
við þessa dag-
ana. A hinn bóginn er auðvitað
fyrsta viðbragð manns þegar
maður heyrir svona: Er ekki ver-
ið að misnota aðstöðu. Það er
alltaf fyrsta viðbragðið án þess
að ég hafi farið ofan í saumana á
þessu sérstaka máli. Mér finnst
skipta afskaplega mildu máli að
ráðherrar séu ráðdeildarsamir og
fari vel með fé þjóðarinnar,
þannig að þeir geti alltaf staðið
klárir og réttlætt hlutina af sann-
færingu fýrir þeim sem eiga fjár-
munina, og það er þjóðin sem á
þá.“
Þóruim Sveinbjamardóttir
þingmaðnrSamJylkingarinnar.
„Ekki spurn-
ing. Það má
segja að iðnað-
ar- og við-
skiptaráðherra
hafi bjargað í
horn í þessu
máli. Það er
gott að vita til
þess að hún er ekki höll undir
hina spilltu íslensku stjórnmála-
hefð sem hefði þýtt það að hún
hefði reynt að þæfa málið um
lengri tíma áður en hún sneri af
villu síns vegar."
Vilborg Gimnarsdóttir
bæjarfiilltníi Sjálfstæðisflokksins áAk-
ureyri.
„Já, ég held að
það sé alveg
rétt hjá henni
að gera það.
Hún sagði sjálf
að þetta væri
óþægileg um-
ræða og ég
held að það
hljóti að vera einhver ástæða lýr-
ir því að henni þótti umræðan
óþægileg."
Jón Kristjánsson
þingmaðnrFramsóknaiflokksins.
„Já. Ég tek
undir hennar
rökstuðning í
þessu máli.
Hún hefur sagt
að hún vilji
ekki blanda
slíkum málum
saman við sín-
ar minningar um afmælisdaginn.
Ég hef ekkert meira um það að
segja og tel að þetta sé rétt
ákvörðun hjá henni."