Dagur - 12.08.2000, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
Stórsöngvari
með bams-
Kolbrún
skrifar
Fáir óperu-
söngvarar hafa
notið jafn mik-
illar lýðhylli og
Luciano
Pavarotti. Hann
er sagður
barnslegur, tilfinningaríkur
og hjátrúarfullur.
Luciano Pavarotti er einn vinsælasti
óperusöngvari heims. Hann er fædd-
ur árið 1935 í Modena á Italíu. Faðir
hans var bakari og móðirin vann í tó-
haksverksmiðju. Lífsbaráttan var
hörð og þegar yngri systir Pavarotti
fæddist, svaf hann á járnbedda sem
komið var fyrir bak við ofninn í eld-
húsinu. Pavarotti, sem er enn fullur
af barnslegu hugarflugi, minnist þessa
tíma með hrifningu og hefur sagt að
ef hann fyndi þetta járnrúm aftur
myndi hann borga þyngd þess í gulli.
Sem lítill drengur söng Pavarotti í
kirkjukórnum í dómkirkjunni í
Modena ásamt föður sínum. Faðirinn
átti safn af hljómplötum með frægustu
söngvurum Itala, Enrico Caruso og
Beniamino Gigli sem Pavarotti hlustaði
á tímunum saman. Þegar Pavarotti sá
Gigli fyrir tilviljun tólf ára gamall ákvað
hann að hann vildi verða söngvari. Fað-
ir hans reyndi að draga úr honum
kjarkinn. Hann taldi litlar líkur á að son-
ur sinn myndi öðlast velgengni á
söngsviðinu og vildi ekki að hann Iegði á
sig mikla vinnu til að verða einungis fyrir
vonbrigðum. Móðir Pavarottis hvatti hins
vegar son sinn og hún fékk að ráða.
Pavarotti hóf söngnám.
Páfadauði skapar stjörnu
Vatnaskil urðu á ferli hans þegar hann
söng árið 196.3 í litlu óperuhúsi í Dublin.
Sama dag og hann átti að syngja þar í
Rigoletto lá Jóhannes páfi XXIII fyrir
dauðanum. Það er siður á Irlandi að öll-
um sýningum í leikhúsum og tónleika-
húsum er aflýst þann dag sem páfi deyr.
En ef sýning er hafinn þegar tilkynnt er
um dauða páfa má ekki stöðva sýning-
una. Óperustjóri sýningarinnar frétti af
dauða páfa áður en sýningin hófst. Hann
var ekki of vel stæður fjárhagslega og ef
hann aflýsti sýningu yrði hann að endur-
greiða sýningargestum en samt sem áður
borga listamönnunum stórfé. Hann
ákvað að halda dauða páfa leyndum og
sýningin hófst.
Meðal áhorfenda var kona sem var í
áhrifastöðu í Covent Garden óperuhús-
.íqu- Hún yar_aðJp.itæað yaxasögpyara fyr-
ir hinn fræga tenór Giuseppe Di Stefano.
Hún réð Pavarotti eftir sýninguna. Eftir
að Di Stefano hafði sungið í La Boheme
á tveimur sýningum í Covent Garden
þótti Di Stefano hann hafa gert nóg og
neitaði að syngja í fleiri sýningum.
Pavarotti tók við af honum og áhorfendur
kolféllu fyrir honum. Það gerði líka söng-
konan Joan Suthertland sem bauð hon-
um að syngja með sér á tónleikum í Sid-
ney. Tveimur árum eftir að hafa stigið á
svið í litlu óperuhúsi í Dublin hafði
Pavarotti sungið á La Scala og öllum
helstu óperuhúsum Evrópu. Framhaldið
var samfelld sigurganga.
Luciano Pavarotti. Hann
segir sönginn vera hfsitt og yndi.
Sviðsótti hefur hrjáð Pavarotti en þegar hann er kominn á svið er
Sviðsotti helurn^ hann vlljl hvergi annars staðarver^
Barnslegur
og hjátruarfullur
Pavarotti er lýst sem hjartahlýjum, einlæg-
um og barnslegum. Hann er afar hjátrúar-
fuliur maður sem ber á sér verndargripi og
er í öngum sínum ef þeir týnast og sendir
þá fjölda aðstoðarmanna til að leita þeirra.
Hann er haldinn ákafri dauðahræðslu
sem á rætur að rekja til æskuára þegar
hann sá á stríðsárunum þúsundir Itala
liggja dauða á götum. En ekki síst stafar
dauðahræðsla hans af atburði í æsku þegar
hann tólf ára veiktist alvarlega, var rúm-
fastur og heyrði lækni segja við móður
hans að hann myndi deyja. Móðir hans
sótti prest sem sagði við Pavarotti: „Litli,
drengur nú skaltu undirbúa þig undir að
fara til himna." Sjúkdómurinn hvarf jafn
skyndilega og hann kom en Pavarotti hefur
aldrei gleymt þeirri skelfilegu stund
þegar presturinn sagði honum að
kveðja lífið.
Hann er haldinn áköfum svið-
sótta, talar við sjálfan sig fyrir sýn-
ingu og hefur lýst eintali sínu við
sjálfan sig fyrir sýningu á eftirfar-
andi hátt: „Þú hefur gert allt sem
þú átt að gera en það eru ennþá
— tuttugu mínútur þar til tjaldið er
dregið upp. Nú gcturðu bara setið
kyrr og velt því fyrir þér hvernig þú komst
þér í þetta starf, þar sem þú, fullorðinn
maðurinn, klæðist furðulegum búningum
og gengur inn á svið fram fyrir þúsundir
manna og átt á hættu að gera þig að fífli
eða verða valdur að listrænu hneyksli."
Stjömustundir og ósigrar
Pavarotti er sá ópcrusöngvari seinni ára
sem mestrar alþýðuhylli nýtur. Arið 1990
komst hann í fýrsta sæti popplista með
flutningi sínum á Nesun Dorma, og bæði
Madonna og Elton John urðu að þoka fýrir
honum. Óperulag varð skyndilega vin-
sælasta dægurlag heims. Lýðhylli Pavarott-
is og sá siður hans að syngja á tónleikum
með poppstjörnum hefur farið mjög í taug-
arnar á gagnrýnendum og hreintrúarmönn-
um í óperuheiminum. Þeir saka Pavarotti
Með vinkonu sinni Díönu prinsessu. Þegar þessi tilfinningaríki söngvari frétti lát hennar sagði hann: „i
hjarta mínu er nú einungis sársauki og sorg.“
og umboðsmann hans um að hafa breytt
óperustjörnum í poppstjörnur og reynt að
aðlaga sig að kröfum fjöldans. Umboðs-
maður Pavarottis hefur svarað þessari
gagnrýni með að benda á að óperan hafi í
upphafi verið ætluð sem skemmtun fýrir
fjöldann.
Pavarotti hefur mistekist. Hann hefur
verið kallaður konungur háu C-ana en þeg-
ar hann náði ekki háa C-inu í Don Carlo á
La Scala púuðu áhorfendur á hann og allir
gagnrýnendur rifu hann í sig. Annar erfiður
tími var eftir tónleika í Modena þegar upp-
götvaðist að söngvarinn hafði hreyft varirn-
ar en ekki sungið sjálfur. BBC scm hafði
styrkt tónleikana hótaði málsókn. Pavarotti
baðst afsökunar og sagði sér til málsbóta
að tónleikarnir hefðu verið undirbúnir með
svo litlum fyrirvara að hann hefði ekki haft
tíma til að æfa sig. Þriðja hneykslið tengd-
ist nýju áhugamáli hans, myndlist. Myndir
hans voru sýndar í sýningarsölum vfða unt
heim en svo uppgötvaðist að þær voru
stælingar úr bókinni Hvernig á að teikna
sem var eftir 87 ára gamla konu frá
Colorado. Pavarotti sagðist aldrei hafa
reynt að leyna því hvaðan hann hefði feng-
ið hugmyndirnar að myndunum.
Mestu mistök hans voru að taka að sér
hlutverk í kvikmyndinni Yes, Giorgio þar
sem hann fór með hlutverk óperusöngvara
sem er átvagl. Myndin var rækilega auglýst
en fékk skelfilega dóma. Verst féllu
Pavarotti orð framkvæmdastjóra
Metropolitan óperunnar sem hafði á orði
þegar myndin var auglýst sem mest: „Ég
verð að segja eins og er að það er farið að
fara í taugarnar á mér að sjá þetta
heimskulega, Ijóta andlit hvert sem ég fer.“
Pavarotti giftist árið 1967 eftir að hafa
verið trúlofaður konuefni sínu í sjö ár.
Hjónin eignuðust þrjár dætur. Eiginkona
Pavarottis hélt því stöðugt fram við blaða-
menn að Pavarotti yrði frekar ástfanginn af
pastarétti en annarri konu. Þar Iaug hún
hressilega því Pavarotti er mikill kvenna-
maður. Eftir þrjátíu ára hjónaband yfirgaf
hann eiginkonu sína til að fýlgja aðstoðar-
stúlku sinni, Nicolettu. Nicoletta er ára-
tugum yngri en söngvarinn og cr sögð
ákveðin, dómhörð og hreinskilin. Nicoletta
sér um sinn mann og hefur sett hann í
stranga megrunarkúra en helsta áhyggju-
efni Pavarottis síðustu árin hafa verið tugir
aukakílóa. Það er enn heilntikið lff í
Pavarotti gamla.