Dagur - 22.08.2000, Síða 20
20- ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
AKUREYRI NORÐURLAND
Tindastóll vann
Þrótt sannfærandi
Tindastóll vann Þrótt
sannfærandi í 1.
deildinni sl. laugar-
dag á Sauðár-
króksvelli 2-0.
Tindastóll er í 9. sæti deildarinn-
ar og berst fyrir lífi sínu í deild-
inni og tókst ekki að þokast upp
um sæti eftir þessa umferð því
Sindri, sem var í 8. sæti, vann
einnig sigur í umferðinni, vann
lið Dalvíkinga 1-0, sannfærandi
sigur í hrútleiðinlegum leik þar
sem Dalvikingar voru algjörlega á
hælunum.
Tindastóll virtist ekki líklegur í
upphafi leiks til að vinna sigur í
Ieiknum, þeir léku aftarlega, voru
fremur seinir fram og dekkun í
vörninni var ekki sem skildi.
Fyrra markið kom því fremur
óvænt er Mark C. Franck náði til
boltans á 11. mínútu eftir horn-
spyrnu, og hamraði hann í netið.
Það var eins og Sauðkrækingar
vöknuðu við markið til metvit-
undar um að þeir gætu unnið
leikinn, miðjan varð mun virkari
og samspil varð mun virkara.
I seinni hálfleik byrjuðu þeir af
miklum krafti og strax á annari
mínútu seinni hálfleiks barst
boltinn fyrir og Olafur ívar Jóns-
son skallaði hann í netið, óverj-
andi fyrir Axel Gomez í marki
Þróttar sem annars átti góðan
leik. Gunnar Ólafsson átti oft
góða spretti frammi, en datt þess
á milli niður og rétt eins og hann
nennti þessu ekki. Besti leikmað-
ur Tindastóls var Gísli Sveinsson
markvörður sem varði oft stór-
kostlega og hélt Tindastólsliðinu
á floti um tfma í síðari hálfleik
þegar Þróttarar gerðust ágengari
og virtust líklegir til að jafna leik-
inn. Vignir Sveinsson var einnig
mjög baráttuglaður. Það vekur
hins vegar athygli að lengst af
Ieiks var leikmönnum Tindastóls
fyrirmunað að skila boltanum í
fyrstu snertingu. Það kann ekki
góðri Iukku að stýra. Hjá vörn
Þróttar lék Kristján Jónsson, sá
gamli varnarjaxl, af yfirvegum og
gerði varla mistök en frammi átti
Björgólfur Takefusa góðan leik,
er mjög leikinn með boltann.
DalviMngar á hælimiun
Dalvfkingar voru á hælunum í
leiknum gegn Sindra á Dalvíkur-
velli. Þetta er annar tapleikur
þeirra í röð, í síðust umferð töp-
uðu þeir fyrir Þrótti, og virðast í
einhverri niðursveiflu. Þeir þurfa
greinilega að taka sig saman í
andlitinu. - GG
X^MT
SigLörð-
ingar eygja
von
Siglfirðingar eygja von um sæti í
1. deildinni í knattspyrnu eftir
sigur á HK um helgina, 2-1.
Siglfirðingar eru með 24 stig
eftir 14 umferðir af 18, tveimur
stigum meira en Afturelding
sem kemur í 3. sæti. Þórsarar
eru sem fyrr f efsta sætinu, eru
með fullt hús stiga eftir 14 um-
ferðir, 42 stig. - GG
Verkefnalið
sett i fót-
boltahúsið
Hreyfing er nú komin á málefni
yfirbyggðs knattspyrnuvallar á
Akureyri og hefur fram-
kvæmdaráð nú ákveðið hvaða
aðilar skuli skipa sérstakan sex
manna verkefnahóp eða „verk-
efnislið" eins og það er kallað,
sem halda á utan um málið. A
síðasta fundi framkvæmdaráðs
var samþykkit að verkefnislið
vegna byggingar hússins verði
skipað einum fulltrúa frá eftir-
farandi aðilum: Framkvæmda-
ráði, íþrótta- og tómstundaráði;
einn fulltrúi verði tilnefndur af
bæjarráði; einn tilnefndur af
Þór og annar af KA , og loks
einn frá UMFA. Akveðið var á
fundinum að fulltrúi fram-
kvæmdaráðs í þessu liði yrði
Asgeir Magnússon.
Leiftursmeim
heillmn horfnir
Staða Leiftursmanna er orðin erfið og þeir standa nú frammi
fyrir faiibaráttu.
Heiöar Ingi, markaðsdeild íslandsbanka [t.h.J afhendir Gunnari Bragasyni,
forseta GSI, [t.vj fyrsta Golfkortið á Landsmótinu ígolfi á Akureyri nýver-
ið. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ stendur fyrir miðju.
MYND.'BRINK.
Íslandsbanlá-FBA
með sérkort fyrir
kylftnga
HeiHadísirnar virðast
ekki ætla að snúast á
sveif með Leifturs-
inöimuiii ogeftirenn
einn ósigurinn í Land-
símadeildinni um
helgina er staða fé-
lagsins orðin erfið og
faU hlasir við.
Heilladísirnar virðast ekki ætla
að snúast á sveif með Leifturs-
mönnum og eftir enn einn ósig-
urinn í Landsimadeildinni um
helgina er staða félagsins orðin
erfið og fall blasir við. Ólafsfirð-
ingar léku við Vestmannaeyinga í
blíðskaparveðri i Ólafsfirði og
þrátt fyrir að Ólafsfirðingar væru
áberandi sprækari, sérstaklega
framan af tókst þeim ekki að
skora. Það var Santos sem var
einna atkvæðamestur Leifturs-
manna og í íyrri hálfleik átti
hann nokkur ágæt skot, þar á
meðal eitt hörkugott eftir send-
ingu frá John Petersen, en Birkir
Kristinsson náði að verja í horn.
Birkir var svo sannarlega betri en
enginn í marki Eyjamanna.
Það kom hins vegar x hlut Eyja-
manna að opna markareikning-
inn og það gerði Goran Aleksic á
38. mínútu. Goran fylgdi þar
fast á eftir skoti frá Steingrími
Jóhannessyni. Það að lenda
undir virðist hafa slökkt nokkuð
baráttueldinn í Ólafsfirðingum
sem voru það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks að ná sér eftir áfallið.
I seinni hálfleik voru menn þó
komnir í ham og sóttu Leifturs-
menn talsvert en án árangurs.
Þetta virtist fara í skapið á þeim
sem og dómgæslan hjá Garðari
Arnari Hinrikssyni. Undir Iok
leiksins fékk síðan Steinn Viðar
Gunnarsson rautt spjald fyrir
brot á Jóhanni Möller. Lokatöl-
ur leiksins urður því 0-1 og gátu
Eyjamenn hrósað happi yfir að
fara suður með öll stigin. Eftir
leikinn voru flestir sammála um
að niðurstaðan hafi ekki verið í
samræmi við gang leiksins, en
svona er boltinn.
Utlitið er því orðið nokkuð
svart íyrir Leiftur sem nú vermir
botnsætið í deildinni með 9 stig í
14 leikjum. Leiftursmenn eiga
einn leik til góða á næstu Iið sem
eru Stjarnan sem er með 13 stig
og Fram sem er með 16 stig. Sá
leikur er gegn KR.
Íslandsbanki-FBA hefur í sam-
vinnu við Golfsamband Islands
og Samvinnuferðir-Landsýn gef-
ið út greiðslukort sem er sérstak-
lega sniðið að þörfum kylfinga.
Golfkortið er fullgilt kreditkort
en er auk þess aðildarkort að
golfklúbbum innan Golfsam-
bandsins. Goifkortinu lylgja ým-
iss fríðindi, s.s. afsláttur af vall-
argjöldum hjá golfklúbbum inn-
an GSI og í helstu golfverslun-
um landsins. Auk þess fá kort-
hafar sértilboð á vörum og þjón-
ustu sem tengjast golfíþróttinni.
Fyrstu tilboðin eru m.a. golfferð-
ir til Spánar og Englands og af-
sláttarverð af golfkylfum, boltum
og kerrum. Jafnframt er golfkort-
ið tengt frípunktakerfi Fríkorts-
ins og fá notendur kortsins þvf
frfpunkta í hvert sinn sem þeir
nota það við kaup á vörum og
þjónustu. - GG