Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 9
ÞRIDJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 - 9
Tkypr'.
ÍÞRÓTTIR
Vala vann bronsið
Vala F/osadóttir fagnar frábærum árangri í Sydney.
Vala Flosadóttir, stang-
axstökkvari úr ÍR, náði
þeiin frábæra árangri í
gær að vinna brons-
verðlaun í úrslita-
keppni stangarstökks-
ins á ólympíuleikuniun
í Sydney, eftir hörku-
spennandi keppni. Vala
setti nýtt glæsilegt ís-
lands- og Norðurlanda-
met, þegar hún stökk
4,50 in og hætti þar
með eigið met um fjórt-
án sentimetra. Guðrún
Amardóttir komst í úr-
slit 400 ni grinda-
hlaupsins.
Vala Flosadóttir vann í gærmorgun
bronsverðlaun á ólympíuleikunum
í Sydney, eftir að hafa stokkiö 4,50
m í æsispennandi úrslitakeppni
stangarstökksins og er þessi glæsi-
legi árangur hennar nýtt Islands-
og Norðurlandamet. Vala fór létt í
gegnum byrjunarhæðirnar með
bros á vör og hafði notað langfæst-
ar tilraunir þegar kom að 4,55 m.
Byrjunarhæðin í keppninni var
4,00 m og síðan var hækkað 4,14,
4,25, 4,35, 4,40, 4,45, 4,50 og síð-
an 4,55. Vala hafði þá stokkið allar
hæðirnar í fyrstu tilraun og var til
alls líkleg. Þegar kom að 4,55 voru
fimm keppendur eftir, sem voru
auk Völu þær Stacy Dragila frá
Bandaríkjunum, Tatjana Grigori-
eva frá Astralíu, Daniela Bartova
frá Tékklandi og Nicole Humbert
frá Þýskalandi. Þrjár fyrst nefndu
höfðu náð 4,45 m í fyrstu tilraun,
en þær Bartova og Humbert í
þriðju tilraun. Þær Vala og Bartova
voru síðan þær einu sem náðu
4,50 m í fyrstu tilraun, en Grigori-
eva í annari. Það var því mikil
spenna hjá þeim Dragilu og Hum-
bert fýrir síðustu tilraunina, en
Dragila fór vel yfir hæðina á með-
an Humbert felldi og þar með voru
fjórar eftir í keppninni þegar kom
að næstu hæð sem var 4,55 m.
Grigorieva fór yfir hana í fyrstu til-
raun og Dragila í annari, en þær
Vala og Bartova felldu í öllum til-
raunum. Þar sem Vala hafði notað
færri tilraunir en Bartova í fýrri
umferðum, hlaut hún bronsið og
var vel að því komin eltir frábæra
keppni. Þær Dragila og Grigorieva
voru nú aðeins tvær eftir í keppn-
inni um gullið og fór svo að
Dragila fór yfir 4,60 m í fyrstu til-
raun á meðan Grigorieva felldi.
Þjálfari Grigorievu tók því þá
ákvörðun að hækka strax í 4,65 og
þá hæð felldu báðar þannig að
Dragila hlaut gullið eftirsótta og
Grigorieva silfrið.
Fyrsta íslcnska konan sem
kemst á pall
Þrettán keppendur hófu keppni í
úrslitum stangarstökksins í gær og
kont nokkuð á óvart að þær El-
marie Gerryts frá Suður-Afríku og
Anzhela Balakhonova frá Ukraínu
skildu báðar fella byrjunarhæðir.
Gerryts 4,00 m og Balakhonova
4,25 m, en Balakhonova á best
4,56 m. Einnig bar búist við betri
árangri Kellie Suttle frá Bandaríkj-
unum, en hún á best 4,53 m, en
náði aðeins að stökkva 4,00 m í
gær.
Vala sannaði það nú enn einu
sinni að hún nýtur sín best þegar
spennan er mest og það kom
skemmtilega í Ijós í gær, þegar hún
fór brosandi og yfirveguð í gegnum
alla keppnina fýrir framan meira
en 100 þúsund áhorfendur. Hún
virtist eiga þó nokkuð inni í lokin,
þegar aðeins vantaði herslumun-
inn á að henni tækist að að stökk-
va yfir 4,55 m og Ijóst að hún á eft-
ir að gera enn betur í framtíðinni.
Arangur hennar í gær er ekki
síður glæsilegur fyrir það að hún
bætti sig um heila fjórtán senti-
metra frá því hún setti gamla Is-
landsmetið sitt, 4,36 m, í Sopot í
Póllandi sumarið 1998, en í ár
hafði hún stokkið best 4,30 m,
þannig að bætingin á árinu er heil-
ir tuttugu sentímetrar.
Vala er fýrsta íslenska konan
sem kemst á verðlaunapall á
ólympíulcikum, en áður hafa tveir
karlar, þeir Vilhjálmur Einarsson,
þrístökkvari og Bjarni Friðriksson,
júdómaður, náð þeim árangri. Vil-
hjálmur vann silfrið í Melbourne
árið 1956 og Bjarni bronsið í Los
Angeles árið 1984.
Heillaóskir streymdu til Völu
Þegar eftir keppnina í gær
streymdu heillaóskirnar til Völu og
sendi forseti Islands, Olafur Ragn-
ar Grímsson, henni eftirfarandi
skeyti: „Þjóðin fagnar stolt og glöð
glæsilegum árangri þínum. Enn á
ný hefur þú skráð nýjan kafla í
íþróttasögu Islendinga. Við óskum
þér öll til hamingju og biðjum fyr-
ir bestu kveðjur til félaga þinna í
íslensku sveitinni."
Þá hafa þeir Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra, Halldór As-
grímsson, utanríkisráðherra og
Gísli Halldórsson, heiðursforseti
ISI, einnig sent Völu heillaóska-
skeyti.
Úrslit í staugarstökkiuu
I. Stacy Dragila, Bandar. 4.60
2. Tatiana Grigorieva, Astralíu 4.55
3. Vala Flosadóttir, íslandi 4.50
4. Daniela Bartova, Tékklandi 4.50
5. Nicole Humbert, Þýskal. 4.45
6. Yvonne Buschbaum, Þýskal. 4.40
7. Monika Pyrek, Póllandi 4.40
8. Marie B. Rasmussen, Danm. N 4.35
9. Doris Auer, Austurríki 4.25
10. Shuying Gao, Kína 4.15
11. Kellie Suttle, Bandar. 4.00
Anzhela Balakhonova, Ukraínu 0
Elmarie Gerryts, S.-Afríku 0
(Árangur Grigorieva var hennar
besti, eins og Völu. Pyrek setti pól-
skt met og Rasmussen danskt.
Balakhonova og Gerryts, náðu
ekki að stökkva byrjunarhæð.
Dragila á heimsmetið í greininni
og er það 4,63 m.)
Guðrún í úrslitin
Guðrún Arnardóttir náði þeim frá-
bæra árangri í undanúrslitum 400
m grindahlaupsins í gærmorgun, á
29 ára afmælisdegi sínum, að
tryggja sér sæti í úrslitum hlaups-
ins, sem fram fara á miðvikudags-
mogun. Guðrún náði fimmta sæt-
inu í seinni undanúrslitariðlinum
á 54,82 sek. og það dugði hcnni til
að tryggja áttunda og síðasta sætið
inn í úrslitin. Þrjár fyrstu í hvorum
riðli komust beint í úrslitin og síð-
an tveir bestu tímar þar fyrir utan.
Sem dæmi um árangur Guðrúnar
má geta þess að sjálfur heims-
metahafinn í greininni, Kim Batt-
en, sem hljóp í fýrri riðlinum
komst ekki áfram og heldur ckki
bandaríska stúlkan Sandra Glover,
sem á best 53,33 sek, en hún hljóp
í sama riðli og Guðrún. Islandsmet
Guðrúnar er 54,37 sek., sett í
London í ágúst sl.
Þær komust í úrslitin:
Deon Hemmings, Jamaíka 54.00
Irina Privalova, Rússlandi 54.02
Nouzha Bidouane, Marokkó 54.19
Tetyana Antipova, Úkraínu 54.25
lonela l irlea, Rúmeníu 54.70
Guðrún Arnardóttir, Islandi 54.82
Daimi Pernia, Kúbu 54.92
Natasha Danvers, Bretlandi 54.95
(Þær Daimi Pernia og Natasha
Danvers sem báðar eru með lakari
tíma en Guðrún í undanúrslitun-
um urðu í 2. og 3. sæti fyrri riðils-
ins.)
Aroní 21. sæti
Magnús Aron Hallgrímsson,
kringlukastari úr HSK, lenti í 21.
sæti af 41 í undankeppni kringlu-
kastsins á ólympíuleikunum í
Sydney í fyrrinótt. Hann kastaði
Iengst 60,95 m og hafnaði þar með
í 9.sæti af 23 keppendum í sínum
keppnishópi, en eins og áður sagði
21. sæti í heildina. Magnús náði
lengsta kastinu strax í fyrstu til-
raun og átti síðan 58,79 m í annar-
ri tilraun og 60,03 m í þriðju.
Hann er þar með úr keppni og
vantaði 2,70 m til að komast upp
fýrir þann sem var síðastur inn í
úrslitahópinn. Þessi árangur
Magnúsar, sem er 24 ára gamall,
er besti árangur íslendings í
kringlukastkeppni ólympíuleika til
þessa, cn þetta var fyrsta stórmót
scm hann tekur þátt í, þannig að
framhaldið lofar góðu.
Martlia hætti keppni
Martha Ernstdóttir, sem hóf
keppni í maraþonhlaupinu í Sydn-
ey í fyrrakvöld, þurfti að hætta
keppni vegna meiðsla í læri, eftir
að hafa lagt um 30 km að baki.
Hlaupaleiðin var nokkuð erfið og
mun Martha hafi fundið fyrir
eymslum í læri strax eftir 16-17
km.
Naoko Takahashi frá Japan sigr-
aði í hlaupinu á glæsilegu ólymp-
íumeti, 2:23,14 klst. og varð þar
með fyrst japanskra kvenna til að
vinna ólympíugull í frjálsum
íþróttum, en áður hafa japanskar
stúlkur unnið þrjú gull í sundi og
tvö í blaki og tvö í judo á ólympíu-
leikum, en aldrei í frjálsum íþrótt-
um. Gamla ólympíumetið, sem var
orðið 16 ára, átti Joan Benoit frá
Bandaríkjunum.
Aftureldingu spád sigri
Samkvæmt árlegri spá þjálfara og
forráðamanna félaganna í efstu
deild karla í handknattleik er Aft-
ureldingu spáð sigri á íslandsmót-
inu í vetur. Samkvæmt spánni
hafna bikarmeistarar Fram í öðru
sæti og Islandsmeistarar Hauka í
þriðja sæti. HK og nýliðum
Breiðabliks er síðan spáð fallinu.
Spáin: Stig
1. Afturelding 284
2. Fram 279
3. Haukar 256
4. FH 246
5. KA 231
6. Valur 202
7. Stjarnan 201
8. Grótta/KR 151
9. ÍBV 142
10. ÍR 133
11. HK 99
12. Breiðablik 38
Keppnin í efstu deild karla hefst
á morgun, miðvikudag, og þá fara
fram eftirtaldir leikir:
Kl. 20.00 ÍR - HK
Kl. 20.00 Stjarnan - UMFA
Kl. 20.00 FH - Fram
Kl. 20.00 Breiðablik - Haukar
Kl. 20.00 Valur - Grótta KR
Kl. 20.00 ÍBV - KA
Haukiun spá sigri í
kvennaflokM
í kvennaflokki er Haukum spáð
sigri, en skammt á eftir koma
Framarar á undan Víkingi og
Stjörnunni. KA og IR er spáð
botnsætunum.
Spáin:
1. Haukar 157
2. Fram 149
3.-4. Víkingur 147
3.-4. Stjarnan 147
5. ÍBV 141
6. Grótta/KR 134
7. Valur 132
8. FH 119
9. KA 99
10. ÍR 93
Keppnin í efstu deild kvenna
hefst í kvöld og fara þá fram eftir-
taldir leikir:
KJ. 20.00 Fram - FH
Kl. 18.30 KA - Haukar
Kl. 20.00 Valur - Grótta KR
Kl. 20.00 ÍBV - ÍR
Kl. 20.00 Víkingur - Stjarnan
Skagamenn
bikanneistararar
Skagamenn
urðu um
helgina bikar-
meistarar í
knattspyrnu
karla þegar
þeir sigruðu
Eyjamenn 1 -
2 í úrslitaleik
á Laugardals-
velli. Eftir
markalausan
fyrri hállleik
skoraði Bald-
ur Aðalsteins-
son fyrra
mark Skaga-
manna á 55.
mín. áður en
Bjarna Geir
Viðarssyni
tókst að jafna
fyrir Eyja-
menn á 60.
mínútu. Það var síðan Kári Steinn
Reynisson sem skoraði sigurmark
Skagamanna á 87. mínútu. Sjá
nánari umfjöllun í blaðinu á
morgun.