Dagur - 26.09.2000, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L. J
MiMð í húfi að
lýðræðið sigri
Þegar fyrstu tölur birtust adfararnótt mánudags hópuðust stjórnarand-
stæðingar saman í bænum Nis og fögnuðu sigri.
Þetta er dagrenning frelsis okk-
ar, sagði frambjóðandi Lýðræðis-
flokks Króatíu Vojislav Kostun-
ica þegar tölur fóru að berast frá
kjörstöðum, en kosið var til emb-
ættis forseta landsins, þingsins
og í sveitarstjórnir. En augu
flestra beindust að forsetakosn-
ingunum, sem skera úr um hvort
Milosevic heldur völdum eða
ekki. Ljóst þykir að kosninga-
svikum hafi verið beitt í stórum
stíl, því forsetinn, sem setið hef-
ur i 13 ár á líf sitt og frelsi und-
ir því að hann haldi völdunum.
Þá munu margir af fylgismönn-
um hans eiga sér dapra framtíð
ef foretinn fellur og Sósíalista-
flokkur hans Iendir í minnihluta
á þingi.
1 öllum skoðanakönnunum
hefur fylgi Kostunica verið mun
meira en Milosevic og hefur
þurft mikla hugarfarsbreytingu
kjósenda eða stórfellt kosninga-
svindl til að snúa þeim tölum
einræðisherranum í hag. Kost-
unica, sem er 56 ára að aldri og
pófessor í Iögum, er boðinn fram
af fleiri flokkum og samtökum
sem eru í andstöðu við Milosevic
og Sósíalistaflokk hans.
Samkvæmt kosningalögum í
Serbíu verður kosið á ný ef eng-
inn frambjóðandi nær hreinum
meirihluta. Verður kosið aftur á
milli þeirra sem flest hafa at-
kvæðin 8.október. Því hlýtur það
að vera keppikefli fyrir Milosevic
að koma í veg fyrir að Kostunica
nái 50% atkvæða í fyrri umferð
og svo má halda áfram að löðr-
unga lýðræðið fram yfir síðari
umferðina.
Slobodan Milosevic er skilget-
ið afkvæmi kommúnistaflokka
Austur-Evrópu. Hann skilur ekki
lýðræði og hefur aldrei Ieitt
Júgóslavíu í átt til lýðræðishátta.
Enda hafa fæðingarhríðir þeirra
lýðvelda á Balkanskaga, sem
áður tilheyrðu Júglóslavíu verið
harðar og er hvergi séð fýrir end-
ann á hvernig þeim lyktar. Fjöl-
mennar friðargæslusveitir freista
þess að vernda friðinn.
Vestræn ríki reyna leynt og
ljóst að styðja andstæðinga
Milosevic til að freista þess að
koma honum frá völdum. Evr-
ópusambandið heitir Júgóslavíu
ríflegum styrkjum og aðstoð til
að byggja upp efnahag landsins
ef lýðræðisöflin ná að hrósa sigri
í kosningunum. NATO sendir
öflugan flota að ströndum
Júgóslavíku, sem eru greinileg
skilaboð um að bolabrögð Milos-
evic verið ekki liðin og hótun um
að hervaldi verði beitt ef vald-
niðslunni linnir ekki.
Yfirmenn hers og lögreglu
Serbfu hafa lýst yfir fylgi við Sós-
íalistaflokkinn, en þegar þetta er
skrifað er ekki komið í ljós hvort
herinn er reiðubúinn að beita
valdi til að tryggja valdarán
Milosevic ef svo fer að bola-
brögðin og kosningasvindlið
takast ekki og andsstæðingar
forsetans hrósa sigri. Nærvera
flotans og æfingar hersveita á
Iandi eru áminning til serbneska
hersins um að ganga ekki of
langt í fylgisspekt við forsetann
ef í harðbakka slær milli fylgis-
manna og andstæðinga.
Evrópusamhandið og NATO
láta sig miklu varða hvernig
kosningarnar í Júgóslavíu fara og
hver eftirköstin verða. I gær
hrósuðu báðar fylkingar sigri, en
telja má líklegt fylgismenn
Milosevic stilli svo til að Kostun-
ica nái ekki helmingi atkvæða og
að kosið verði aftur að tveim vik-
um liðnum. Hvaða bolabrögð
verða höfð í frammi í millitíðinni
verður tíminn að skera úr um.
En erfitt verður fyrir vestræn ríki
að sætta sig við að Milosevic sitji
áfram á valdastóli og að
Balkanskagi verði áfram sú púð-
urtunna sem ógnar friði í Evr-
ópu ogjafnvel vfðar um heim.
NATO sýnir nú vígtennurnar
og Evrópusambandið veifar stór-
tækri efnahagsaðstoð og Banda-
rfkin munu sömuleiðs vera fús
að Ieggja sitt af mörkum til að
styðja og styrkja Iýðræðisþróun
Júgóslavíu ef Milosevic og hyski
hans verður hrakið frá völdum.
Næstu dagar og vikur geta því
orðið afdrifaríkar fyrir framtíð
Evrópu. Það hefur margsýnt sig
að aldrei er friðvænlegt í álfunni
þegar óbilgjarnir einræðisseggir
ráða ríkjum í einhverju Evrópu-
landa.
Hvort Milosevic mun játa sig
sigraðan eða verður hrakinn frá
völdum með vopnavaldi skiptir
sköpum um friðarvonir á
Balkanskaga og þar með í Evr-
ópu. - OÓ
ísmaöuriim þíddur
BOLZANO, Ítalíu - Elsta múmfa í
heimi, ítalski ísmaðurinn sem þekktur er
undir nafninu Otzi var í gær þíddur upp
að hluta svo vísindamenn gætu tekið úr
honum sýni sem þeir vonast til að geti
varpað meira ljósi á líf hans og lífsskilyrði
þegar hann ráfaði um Alpana fyrir 5.300
árum. Ismaðurinn fannst þar sem hann
stóð að hluta til út úr jökli þar sem tveir
(jallgöngumenn áttu leið um í Otzaler í
Olpunum við landamæri Ítalíu og Austur-
ríkis. Þar hafði hann frostþomað um
10.000 fetum yfir sjávarmáli. Múmían,
sem er brúnleit á hörund er geymd við skilyrði sem eru sem líkust
þessu umhverfi sem hún hefur geymst svo vel í.
Hér má sjá múmiu ís-
mannsins Otzi sem í gær
var að hluta þíddur upp til
að hægt væri að taka úr
honum sýni.
Reyna til þrautar
JERUSALEM - Enud Barak forsætisráðherra Israel og Yasser Arafat
forseti Palestínumanna ætluðu í gær að reyna að brjótast út úr víta-
hringnum sem friðarviðræður þeirra hafa verið í en þá hittust þeir í
fyrsta sinn augliti til auglitis frá því þeir voru í Camp David fyrir um
2 mánuðum. Ekkert hafði í gærkvöldi verið gefið upp um niðurstöðu
fundarins en aðstoðarmenn leiðtoganna sögðu einsýnt að með fund-
inum væri verið að draga úr spennu og róa aftur niður þær ófriðar-
öldur sem ristið hafa upp á síðkastið.
Almenn reiði á Möltu
VALLETTA, Möltu — Almenn hneyksl-
un og reiði hefur gripið um sig á Möltu
vegna ákvörðunar bresks dómstóls um að
aðskilja skuli síamstvíbura, gegn vilja for-
eldranna. Eins og fram kom í Degi á
laugardag ákvað breski dómstóllinn að
tvíburarnir skildu aðskildir þrátt fyrir að
ljóst væri að annar þeirra, sá veikari
myndi deyja. Læknar höfðu hins vegar
úrskurðað að ef þeir yrðu ekki aðskildir
myndu þeir báðir deyja en þeir deila einu
hjarta og einu pari af lungum. Foreldr-
arnir eru rómversk kaþólskir og telja sig ekki mega taka ákvörðun
sem þessa, það sé mikil synd. Foreldrarnir undirbúa sig nú undir að
áfrýja málinu til Lávarðadeildar breska þingsins eða á til Mannrétt-
indadómstólsins í Strasbourg til að fá aðra niðurstöðu í þessa óvenju-
legu siðferðilegu spurningu. Blöð, stjórnmálamenn, dálkahöfundar
og almenningu á Möltu, heimalandi foreldranna, eru nær undan-
tekningarlaust á bandi foreldranna og telja að tvíburarnir, Mary og
Jodie, eigi að vera áfram samvaxnar þar til náttúran grípur í taumana.
Meðal þeirra sem lýst hefur þessari skoðun er forsætisráðherrann á
Möltu, Eddie Fenech Adami.
Tala látinna hækkar
KALKUTTA, Indlandi - Opinberar tölur um fjölda látinna vegna
flóða af völdum monsúnrigninga í Vestur Bengal á Indlandi voru í
gær komnar upp í 355. Enn er um 217 manns saknað að því er fram
kemur hjá talsmanni hjálparstarfsins. A sunnudag var tala Iátinna
hins vegar 208 þannig að þeim fjölgar hratt sem taldir eru af á þessu
hörmungasvæði. Lögreglan staðfestir enda að rétt sé að reikna með
að tala látinna muni hækka ört næstu daga en enn eru mörg héruð
fylkisins þar sem flóðin hafa gert mestan usla Iokuð af og Iítið hefur
verið af fréttum þaðan.
FRA DEGI TIL DAGS
ÞRIÐJUDAGURINN 26. SEPTEMBER
270. dagur ársins, 96 dagar eftir.
Sólris kl. 7.23, sólarlag kl. 19.14.
Þau fæddust 26. sept-
ember
• 1838 Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi.
• 1870 Kristján tíundi, konungur Dana
(1912-47) og síðasti konungur íslendinga.
• 1889 Martin Heidegger, þýskur heimspek-
ingur.
• 1897 Páll VI. páfi, sem ríkti 1963-78.
• 1898 George Gershwin, bandarískt tón-
skáld.
• 1916 Halldór Pétursson listmálari.
• 1918 Ólafur Jóhann Sigurðsson rithöfund-
ur.
• 1948 Olivia Newton-John, áströlsk dægur-
lagasöngkona.
Þetta gerðist 26. sept-
ember
• 1939 neyddist bresk Catalina-sjóflugvél til
að lenda við Raufarhöfn vegna þoku.
• 1942 var Bifreiðaeinkasala ríkisins Iögð
niður.
• 1950 náðu hersveitir Sameinuðu þjóðanna
Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu aftur á sitt
vald.
• 1950 var mjög dimmt hér á Iandi fram eft-
ir öllum degi og sólin var bláleit. Orsökin
var talin vera loftmengun vegna eldgoss á
Filippsseyjum eða skógarelda í Norður-
Ameríku.
• 1957 var söngleikurinn „West Side Story“
frumsýnd á Broadway í New York.
• 1960 háðu bandarísku forsetaframbjóð-
endurnir Richard M. Nixon og John F.
Kennedy fyrsta einvígi sitt í sjónvarpi.
• 1970 fórst Fokker Friendship frá Flugfé-
lagi fslands í Færeyjum, og létust átta
manns, þar af einn íslendingur.
Vísa dagsins
Það var eins og himnarnir
hefðu fært sig nær.
Iivaðan komu fuglamir,
sem flugu hjá i gær?
Davfð Stefánsson
Afmælisbam dagsins
Ólafur Jóhann Ólafsson ritnöfundur
og forstjóri stórra fyrirtækja í útlönd-
um er 38 ára í dag. Ólafur er raunar
eðlisfræðingur að mennt, en hefur
sent frá sér bæði skáldsögur, smásögur
og leikrit. Síðasta skáldsaga hans, Slóð
fiðrildanna, hlaut nánast einróma lof
og virðist svo sannarlega hafa hitt
ýmsa beint í hjartastað. Svo skemmti-
iega vill til að faðir hans, rithöfundur-
inn Ólafur Jóhann Sigurðsson, átti af-
mæli sama dag, því hann var fæddur
26. september árið 1918.
Leyndardómur hamingjunnar er frels-
ið, og Ieyndardómur frelsisins er hug-
rekki.
Þúkídídes
Heilabrot
A.m.k. þrjú íslensk orð eru þannig gerð,
að ef þrír stafir eru teknir burt þá verða
eftir fimm. Hvaða orð eru þetta?
Lausn á síðustu gátu: Frímerki.
Veffang dagsins
Bók danska stærðrræðingsins Björns
Lomborgs um „hið sanna ástand heims-
ins“ hefur verið umdeild. Um bókina má
m.a. lesa á heimasíðu höfundar:
www.ps.au.dk/vip/Iomborg/vst.html