Dagur - 26.09.2000, Síða 17

Dagur - 26.09.2000, Síða 17
ÞRIOJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 - 17 X>^MT JML LANPlWM MENNINGAR LIFID Listileg samsuða Það er ekki létt að lýsa „óperuþykkn- inu“ Bíbí og Blakan sem Hugleikur frumsýndi sl. fóstudagskvöld í Kaffileikhúsinu. Söguþráður- inn er þvílíkt spil að eiginlega má ekkert um hann segja til að eyðileggja ekki fyrir vænt- anlegum sýningargestum. Þó er óhætt að uppljóstra því að ijallað er um ástir og örlög þriggja persóna, ungrar stúlku og tveggja vonbiðla hennar. Þótt verið sé að leika á há- dramatískum nótum er óbæri- legur léttleiki yfir öllu saman svo áhorfendur veltast um úr hlátri. Lögin eru listileg sam- suða úr einhverju sem oft hef- ur heyrst áður. Textinn er frumlegri en samsuða þó! Söngvararnir fara ágætlega með sín hlutverk og falla vel inn í heildarmyndina - óperu- grínið. Silja Björk Huldudóttir, Einar Þór Einarsson og Þorgeir Tryggvason eru í aðal- hlutverk- um, sá síð- asttaldi lakastur söngvari en lang fyndnast- ur! Lög- — reglukór setti hressilegan svip á „þykkniö" og í heild er Bibí og Blakan frábært skemmtiefni - en skilur Ktið eftir. Þorgeir Tryggvason, S//ja Björk Huldudótt- ir og Einar Þór Ein- arsson / h/utverkum sínum Ný þýðing á Heimsljósi Heimsljós eftir Halldór Lax- ness hefur verið gefið út í nýrri þýðingu prófessors Huberts Seelows. Steidl Verlag gefur bókina út, samkvæmt samningi við Vöku-IIelgafell og er þetta tólfta bókin í flokki innbundinna verka Halldórs hjá forlaginu. Nýverið gerði Vaka-Helgafell nýjan heildar- samning við Steidl Verlag um verk Halldórs Laxness til tíu ára og er það umfangsmesti samningur sem gerður hefur verið um verk Nóbelskáldsins á erlendum vettvangi. Létt, g'áskafull og SKrautlcg Bandamenn í samvinnu við Þjóðleikhúsið: EDDA.RIS EÐA SKÍRNIS- MÁL HIN NÝJU. Leikstjóri og höfundur: Sveinn Einarsson. Tónlist: Guðni Franzson. Búningar: Helga Björns- son. Leikmynd: Stelan Sturla Sigurjónsson. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Hreyfingar: Lára Stefánsdóttir. Sýnt á Smíðaverkstæðinu. Bandamenn eru enn komnir af stað, nú með sýningu unna upp úr Skírnismálum, sem rétt er að vekja athygli á, en einungis fáar sýningar verða á Smíðaverkstæðinu að þessu sinni. Síðan fer sýningin væntanlega á flakk, enda gerð til þess. Hér er ekki lagt upp úr leikmynd, heldur búningum og því auðvelt að setja sýninguna upp hvar sem er. Þetta er leikur um efni Skírnismála, þannig að fyrst eru leikarar kallaðir á svið og spurðir, eins og hverjir aðrir nútíma- menn, hvað þeir viti um Eddu - sem er auðvitað fátt. Síðan hefst leikurinn og hef- ur Sveinn spilað vel úr þeim möguleikum sem felast í Skírnismálum, en þau eru með eftirminnilegustu Eddukvæðum og leik- rænni en mörg önnur. Vísað er töluvert í Eddufræði, enda sannast mála að nokkurr- ar þekkingar er þörf til að átta sig á því sem hér er brugðið upp. Það er spurning hve vel þeir áhorfendur geta fylgst með sýningunni sem ekki hafa forþekkingu á efninu. GyHiboð og hótanir Skírnismál segja sem sagt frá því er Freyr frjósemisguð sér í Hliðskjálf úr Ásgarði til Gymisgarða og lýsir af handleggjum Gerð- ar um loft og lög, svo hann verður frávita af þrá til hennar. Nú er Skírnir, skósveinn Freys, sendur til jötnanna í Gymisgörðum að fá Gerðar. Verður hann að beita bæði gylliboðum og hótunum, uns þar kemur að Gerður lofast Frey. Sveinn Einarsson hefur sem fræðimaður fjallað um upphaf leiklistar, sem sjá má í fyrsta bindi leiklistarsögu hans, og skoðað samtalslist Eddukvæða í því samhengi sem hinn elsta íslenska leikskáldskap. Sýning þessi er að nokkru sprottin af þeim athug- unum og tilraun til að raungera þessar hugmyndir að nútímahæfi. Hún er létt, gáskafull og skrautleg, ekki kannski bráð- fyndin eða djúp en lúnkin. Sérstaklega ber að lofa búninga jötnanna sem eru mikil- fenglegir á að sjá. Raunar er þetta ekki bara ástar- og frjósemisleikur, heldur er dregið sérstaklega fram það sjónarhorn að hér eigast við fulltrúar tveggja menningar- heima. Er ekki illa til fundið að undirstrika þann þátt á tímum nýbúa og fjölmenning- arsamfélags. Kjörin fyrir skólanemendur í heilu lagi var þetta sem sagt skemmtileg leiksýning þar sem mikið er lagt upp úr hreyílngum, dansi og látbragðsleik, án þess þó að textinn hverfi út í vindinn eins og hætta er á í sýningum af þessu tagi. Ég ætla að hún nái þeim tilgangi sínum að færa heim Eddukvæðanna nær nútímaá- horfendum og ætti að vera kjörin fyrir skólanemendur. Úrslitum um það gaman sem hafa má af sýningunni ræður áhuginn sem einkennir leikhópinn og er ástæðu- laust að taka hér einn fram yfir annan, all- ir gera vel: það er heildarmyndin sem gild- ir. Leikararnir eru hver um sig í tveimur hlutverkum, í Ásgarði og Gymisgörðum, nema sendiboðinn Skírnir sem Stefán Sturla Sigurjónsson leikur. Aðrir eru Þór- unn Magnea, Jakob Þór Einarsson, Felix Bergsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Borgar Garðarsson. - Sýningin er leikin í einni lotu, hæfilega löng og einkar vin- samlega var henni tekið í Smíðaverkstæð- inu á frumsýningu. áhorfendur sem gengu út og grettu sig; sennilega hefðu þeir fremur viljað vera á rokktónleikum. Baldm í HelsinM Á dögunum var í þeirri dásam- legu borg Helskinki. Þar blómstrar menningin, eins og í öllum góðum borgum. Ég sá frumsýningu á Baldri í höfuð- borg Finnlands en ég verð að viðurkenna að ég sýndi því verki lítinn áhuga þegar það var frumsýnt hér á landi. Stundum þarf maður að fara að heiman til að kunna að meta menningarstarfsemi í landi sínu. En smekkur manna er mis- munandi eins og sást á viðbrögðum okkar sem vorum í samfloti. Einn tók sýningunni af hlutleysi, sagði hana góða en sýndist samt ekki áberandi hrifinn. Annar sat með töluverðum þjáningarsvip undir sýningunni og stundi að henni lokinni: „Þetta hefði kannski verið þolanlegt ef tónlistin hefði ekki verið svona skelfileg!" Sá þriðji kaus að sitja meginhluta sýningarinnar með lokuð augu og gaf þessa skýringu: „Tónlist- in er stórkostleg en ég gat ekki horft á ballettinn, mér fínnst alltaf eins og fólk sé að verða sér til opinbers athlægis þegar það spriklar svona á sviði.“ Ég er engin áhugamanneskja um ballett, mér finnst nefnilega líka vandræðalegt að horfa á fólk sprikla á sviði. En þetta kvöld fannst mér enginn sprikla og tónlistin var svo voldug að ég skil ekki hvernig hægt er að kom- ast hjá að hrífast af henni. Sviðsmynd- in var einföld en áhrifamikil og eldur og ís léku stórt hlutverk og vegna inn- lifunar á verkinu skiptist manni á að vera heitt og kalt. Finnskir áhorfend- ur virtust hinir ánægðustu því fagnað- arlætin í sýningarlok voru mikil. Ég gekk út í leiðslu og hafði fullan skiln- MEIUIUiniGAR VAKTIN „Ég gekk út í leiðslu og hafði fullan skilning á tilfinningum þeirra sem séð höfðu sýninguna í Reykjavík og rætt um hana í hrifningarvímu dagana á eftir." ing á tilfinningum þeirra sem séð höfðu sýninguna í Reykjavík og rætt um hana í hrifningarvímu dagana á eftir. Reyndar varð ég vör við nokkra

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.