Dagur - 11.10.2000, Qupperneq 16
16- MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000
Thgur
(AMPlHM
Gítarinn hefur fylgt Eyþóri gegn um tíðina. mynd: gva.
Hljómsveit Hauks Morthens: Guðmundur Emilsson píanó, Sverrir Sveinsson
bassi, Eyþór Þorláksson gítar og Haukur Morthens söngur.
EyþórÞorláksson gítar-
leikari hejurveríð at-
kvæðamikill í íslensku
tónlistarlífi um áratuga
skeið bæði sem liðsmað-
urdans- og djasshljóm-
sveita og tónlistarkenn-
arí. Núerkappinnorð-
inn sjötugurog í tilefhi
þess eru haldnirtvennir
tónleikarog Ijósmynda-
sýning.
„Eyþór er mikUl örlagavaldur í
lífi mínu og margra annarra sem
hann hefur smitað af gítardell-
unni,“ segir Pétur Jónasson gít-
arleikari en hann er einn þeirra
sem koma fram á gítartónleikun-
xnn sem haldnir verða Eyþóri til
heiðurs í kvöld, 11. október í Há-
sölum. Fleiri þekkt nöfn eru á
prógramminu, til dæmis Rúnar
Þórisson, Símon H. ívarsson og
Arnaldur Arnarson. Sjálfur ætlar
Eyþór að spara kraftana en
kveðst hlakka mikið til. „Þetta
eru hressir strákar sem ætla að
spila þarna, þetta verður
skemmtilegt." Eyþór ætlar hins
vegar að koma fram á síðari tón-
leikunum sem verða í Hafnar-
borg eftir viku, þann 18. október.
„Þar verða margir sem ég hef
spilað með gegnum árin,“ segir
hann og nefnir sem dæmi Ólaf
Gauk og Árna ísleifsson. „Þetta
verður jam session," segir Eyþór
og er kampakátur.
Byrjaði á harmóniku
Ilann kveðst hafa byrjað að spila
á harmómku á unglingsárunum
en fljótlega skipt yfir í kontra-
bassann. „Kontrabassinn var
mitt uppáhaldshljóðfæri um tíma
og ég fór til Bretlands til að læra
á það, í Royal College of Music í
Manchester. Þar kynntist ég fyrst
klassískum gítar og heillaðist af
honum.“
Eyþór hafði mikinn áhuga á
að komast til Spánar þar sem
mekka gítartónlistarinnar. „Mað-
ur hafði á tilfinningunni að þar
væri eitthvað að flnna sem ekki
væri annars staðar og það
stóðst." Eyþór hóf nám hjá Dani-
el Fortea, virtum spænskum gít-
arleikara og fékk að búa hjá hon-
um um tíma innan um ókjör af
nótum og gíturum. Reyndar fór
það svo að Fortea veiktist alvar-
lega áður en veturinn var úti en
Eyþór var kominn á skrið í nám-
inu og lét ekkert aftra sér. Meðal
kennara hans síðar var tónskáld-
ið og gítarsnillingurmn Graciano
Tarragó. „Hann var mjög elsku-
legur og tók mig oft með sér á
fyrirlestra sem hann hélt í skól-
anum en hann var prófessor við
Conservatorio de Liceo í
Barcelona."
Eyþórs Combo
Eyþór einskorðaði sig ekki við
klassíska gítarinn heldur spilaði
jöfnum höndum á rafmagnsgítar.
Hann var í hinum ýmsu liljóm-
sveitum, hvort sem hann bjó hér
heima eða erlendis og ljós-
myndasýningin sem opnuð verð-
ur í Hafnarborg á laugardaginn,
14. október vitnar einmitt um
feril hans sem hljómsveitar-
manns. Þar birtast myndir af ótal
sveitum sem hann var í. Sumar
eru kenndar við hann sjálfan, svo
sem Hljómsveit Eyþórs Þorláks-
sonar og Eyþórs Combo. í öðrum
er hann „óbreyttur" liðsmaður.
Hawaii kvartett, KK sextett,
Orion-kvintett, Hljómsveit Svar-
vars Gests og Hljómsveit Hauks
Morthens. Einnig getur þar að
h'ta hljómsveitir sem Eyþór spil-
aði með á Spáni, Hljómsveit Jose
Matas og Hljómsveit Pedro
Sanchez.
Nótur á Netrnu
Þess má geta að Tríó Eyþórs leik-
ur við opnun sýningarinnar kl.
16. á laugardaginn. Hann kveðst
þó að mestu hættur að spila x
hljómsveitum. Hans helstu við-
fangsefxú nú er útgáfa nótna á
netinu. „Ég byrjað að gefa út nót-
ur í smáum stíl, einkum fyrir
xm'na nemendur en það jókst
með túkomu tölvunnar," segir
hann. Hann segir Svein son sinn
hafa verið ötiúan við að setja
kennsluefiú og nótur inn á Netið
á undanförnum árum. Þar er
meðal annars um að ræða verk
og útsetningar eftir Eyþór sjálfan
og einnig verk eftir aðra höf-
unda. „Þetta hefur fengið rosa-
lega góðar viðtökur úti um aúan
heim. Við erum búnir að fá yfir
40.000 heimsóknir á síðuna og
ég fæ svo mikið af þakkarbréfum
að ég kemst ekki yfir að svara
þeim öllum.“ Aðspurður segist
hann ekki hagnast á þessu pen-
ingalega en hann lætur sér það í
léttu rúmi liggja. „Ef við hefðum
ekki gert þetta hefði þetta bara
legið ofan í kössum, engum tú
gagns,“ segir hann.
GUN.
Spakstundir í Hlaðvarpanum
Heimspekinemarefna
vikulega til urnræðu-
fundaríKajfileikhús-
inu. Þema októbermán-
aðar er „Þríðji heimur-
inn ogíslendingurí
góðærí“.
Ekkert lát virðist vera á þeim
vinsældum sem heimspekin hef-
ur notið hér á landi undanfarin
ár. Félag heimspekinema við Há-
skóla íslands, Sofíi'a, hefur frá
því í byrjun september staðið
fyrir svonefndum spakstundum í
Hlaðvarpanum, þar sem áhuga-
menn um heimspeki hafa komið
saman tU þess að ræða þetta
áhugamál sitt.
„Kvöldin eru þannig upp-
byggð að klukkan átta hefjast
þau með fyrirlestri og eftir ca.
hálftúna er gert hlé og það er
opinn bar og eftir hléið eru síðan
umræður og fyrirspurnir. Þetta
hafa yfirleitt orðið u.þ.b. tveggja
klukkutíma uppákomur,“ segir
Haukur Már Helgason, heim-
spekinemi og formaður Soffi'u.
„Við reynum að fá bæði kennara
og nema og fólk utan háskólans
tU þess að halda erindin.“
Meiningin er að halda þessu
áfram í aUan vetur, og reyna að
vera með eina spakstund á viku.
Hver mánuður hefur ákveðna
þemayfirskrift. í september voru
bókmenntir teknar fyrir, en yfir-
skrift októbermánaðar er „Þriðji
heimurinn og íslendingur í góð-
æri“. Þar verður athyglinni beint
að þriðja heiminum sem sið-
fræðUegu vandamáli.
Hugmyndin að þessum Spak-
stundum er komin frá Hauki Má.
Hann segist hafa boðið sig fram
tU formanns SoflTu gagngert tU
þess að hrinda þessari hugmynd
í framkvæmd. Með því að halda
þessar spakstundir í Hlaðvarp-
anum frekar en á háskólasvæð-
inu er vonast tU þess að fleira
fólk utan Háskólans mæti.
Haukur Már segir að vel hafi
verið mætt á þær ijórar spak-
stundir, sem þegar hafa verið
haldnar. Þrír heimspekinemar
hafa haldið erindi, og svo Róbert
Haraldsson prófessor í heim-
speki. „Það var íjölmennast á
Róbert eins og gefur að skUja,“
segir Haukur Már. „En það hafa
komið frá 20 og upp í 60 tU 70
manns.“
f kvöld verður Þórunn Svein-
bjarnardóttir stjórnmálafræðing-
ur með fyrirlestur, sem hefst kl.
átta í Hlaðvarpanum og fjallar
um þriðja heiminn. Ásamt Þór-
unni verður Þóra Arnórsdóttir
með stutta framsögu, og þær
svara síðan sameiginlega spurn-
ingum utan úr sal.
-GB