Dagur - 28.10.2000, Blaðsíða 2

Dagur - 28.10.2000, Blaðsíða 2
26 —LAUGARDAGUR 2 8. OKTÓBER 2000 FRÉTTIR Rafmagniðí hesthúsiun í mst Frágangur rafmagns í íslenskum hesthúsum er ekki í nægjanlega góðu lagi samkvæmt úttekt Löggildingarstofu. Raflögniun virðist verulega ábótavant í flestum hesthúsum landsins sem hefur mikla brunahættu í för með sér að mati Löggildingarstofu. „Athygli vekur að athugasemdir eru gerðar við töfluskáp (98%), merkingu töflubúnaðar (97%) og spennujöfnun (92%) í nær öllum skoðunum. Því má leiða sterkar líkur að því að þessa ágalla sé að finna í flestum hesthúsum landsins," segir í niðurstöðu Löggildingarstofu, sem skoðað hefur raflagnir í 107 hesthúsum, á mismunandi aldri og í öllum landshlutum, þar af 58 á höfuð- borgarsvæðinu, á síðustu þrem árum. „Hið slæma ástand töflu- skápa, sem niðurstöðurnar gefa til kynna að sé mjög almennt, er mikið áhyggjuefni þar sem það getur haft í för með sér mikla brunahættu." Hættulegir lampar og tengl- ar Annar rafbúnaður reyndist líka í miklu ólagi, svo sem lampar (74%) og tenglar (70%). Bent er á að rekja megi marga bruna af völdum rafmagns til þeirra hluta. Veruleg þörf sé líka á úrbótum varðandi spennujöfnun og merk- ingar í rafmagnstöflum. Að- gæsluleysi ásamt gömlum biluð- um rafbúnaði sé helsta ástæða rafmagnsbruna svo afar mikil- vægt sé að sá rafbúnaður sem notaður sé í hesthúsum sé ávallt valinn með tilliti til staðsetning- ar og notkunar. Úr sumum ágöllum megi bæta með betri umgengni en flestar athuga- semdir kalli á fagþekkingu. Ómerkt, rangmerkt, brotið og laust Hundruðum athugasemda sem gerðar voru um töfluskápa og innihald þeirra: Margir voru óþéttir gagnvart vatni og ryki, að- gengi að töflum óviðunandi og mikið um óhreinindi og ryk. Mjög mikið var um ómerktan eða ranglega merktan búnað í rafmagnstöflum, eða að spennu- kefli vatnaði. Raftaugar voru lausar, skemmdar af bruna eða ranglega Iitamerktar. Hlífar í töflum voru götóttar, illa festar, lausar eða vantaði alveg. Varðandi lagnirnar voru gífur- legir annmarkar á spennujöfn- unartengingum. Mikið um brot- na, lausa og/eða loklausa tengla. Lampar voru margir með engu eða brotnu hlífðargleri og óvirk- um jarðtengingum. Strengir voru mjög oft lausir, hh'fðarkápa hafði dregist úr úr tengidósum og endar voru óvarðir. Flest í 2. áliættuílokki Skoðanirnar voru gerðar af óháðum löggiltum skoðunar- stofum. Athugasemdir þeirra skiptast í þrjá áhættuflokka: Fáar voru í 1. flokki en langsam- lega flestar athugasemdirnar falla undir 2. flokk: „Frávik frá öryggisákvæðum sem talið er geta valdið snerti- eða bruna- hættu.“ Fremur fáar lentu í 3. flokki, sem spannar alvarleg frá- vik frá öryggisákvæðum sem geta valdið bráðri hættu. Þó lentu um 20 ábendingar um greinivör og 10 um töflutaugar í þennan flokk. -HEI Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra. Samið við Samskip Ekkert hefur komið fram um að framkvæmd útboðs á rekstri Vestmannaeyjaferju 2001-2003 hafi verið háð annmörkum eða val útboðs hafi verið ólögmætt. Þetta er mat kærunefndar út- boðsmála og með hliðsjón af þessu undirritaði Vegagerðin í gær samning við Samskip hf. um rekstur feijunnar. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra kynnti á ríkisstjórnar- fundi í gær málalyktir í útboði á rekstri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Rekstur Herjólfs var boðinn út í júlí sl. og bárust tvö tilboð, annað frá Herjólfi hf. og hitt frá Samskipum. Mismunur tilboðanna var verulegur eða 133 m.kr. en kostnaðarmat Vegagerð- arinnar hljóðaði upp á 222 millj- ónir og var það 10 milljónum hærra á ári en tilboð Samskipa hf. Miklar og harkalegar athuga- semdir bárust frá stjórn Herjólfs hf. en kærunefnd telur sem fyrr segir að ekkert hafi verið athuga- vert við boðið. -BÞ S veitarstj ómar- menn til vamar Guðmundur Ami Stef- ánsson segir sveitar- stjómarmenn æfa vegna boðaðrar út- svarshækkunar án þess að skattar lækki á móti. Alþingismenn hafa verið á kjör- dæmaferðalögum í nýliðinni viku og þeir hafa flestir orðið varir við að sveitarstjórnarmenn eru allt annað en ánægðir með þær til- Iögur nefndar um íjármál sveitar- félaganna að láta sveitarfélögin hækka útsvarið 2002 án þess að ríkið lækki skatta á móti. „Það var aiveg sama hvar mað- ur kom, það mætti manni alls staðar andstaða við þessar hug- myndir. Sveitarstjórnarmenn segja að ríkið sé í raun með þessu að hækka skatta en iáta aðra framkvæma það. Eg veit að ttestir ef ekki allir alþingismenn hafa heyrt þessar raddir á ferðum Guðmundur Árni Stéfánsson: Alls staðar andstaða við hugmyndirnar. sínum um kjördæmin í vikunni," segir Guðmundur Arni Stefáns- son alþingismaður. Hann átti sæti í nefndinni um fjármál sveitarfélaga og greiddi þar at- kvæði gegn tillögum nefndarinn- ar. Snúist til vamar Hann segir að þarna liggi líka annað undir. Það þurfi ekki mik- inn speking til að átta sig á því þarna sé verið að veifa gulrót fyr- ir framan Reykjavíkurlistann, vonast til að hann gleypi við henni. Síðan eigi að kenna R- listanum um að standa að skatta- hækkunum. „Það er ljóst að sveitarstjórnar- menn gera harða kröfu til þess að útsvarshækkuninni 2002 verði mætt með sambærilegri lækkun skatta hjá ríkinu. Þetta er krafa sem sveitarstjórnarmenn munu ekki kvika frá. Eg hef lýst því yfir að Samfylkingin mun fly- tja breytingartillögur við þetta þegar málið kemur til kasta Al- þingis í næsta mánuði. Eg trúi ekki örðu en að þessi kúrs sem þarna hefur verið tekin verði Íeiðréttur þegar Alþingi fjallar um máliö. Ríkissjóður er aflögu- fær og hann á að lækka skatta jafnmikið og sveitarfélögin fá að hækka útsvarið," sagði Guð- mundurArni. -S.DÓR Sjávarútvegsráðherra tíl Kína Ami M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, fer til Kína í lok októbermánaðar þar sem hann verður einn þriggja aðalíyrirlesara á þriðju alheimsráðstefnu sjávarútvegs- ins sem haldin verður í Peldng. Þátttakendur eru um 600 frá 50 löndum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur sjávarútvegsráðherra fer í opinbera heimsókn til Kína. Sjávarútvegsráðherra flytur einnig flytja ávarp við opnun alþjóðlegrar, árlegrar sjávarútvegssýningar sem haldin er í Peking sömu daga og ráðstefnan stendur yfir. Sex íslensk fyrirtæki munu ásamt Útflutningsráði Islands taka þátt í sýn- ingunni en það eru Sæplast, Marel, SH, íslenska útflutningsmiðstöðin, E. Ólafsson og Sameinaðir útflytjendur. í kjölfarið mun sjávarútvegsráð- herra svo þiggja opinbert heimboð kínverskra stjórnvalda. -GG Skjár einn á Vestíjöröuin Vestfirðingar munu ná útsendingum Skjás Eins innan tíðar með milli- göngu Snerpu og Skjávarpsins. Snerpa verður umboös- og þjónustuaðili SkjáVarps á ísafirði og mun sjá um rekstur á tækjabúnaði SkjáVarps og móttöku sjónvarpsefnis á stafrænu formi um ATM-samband. Snerpa mun einnig annast markaðs- og sölustörf fyrir Skjávarp á Isafirði. Aform- að er að útsendingar Skjás Eins muni hefjist í nóvember á Vestíjörðum. Skjávarpið hefur nú lokið uppsetningu á tuttugu og tveimur sjónvarps- sendum í öllum landsljórðungum og er uppsetningu á Faxaflóasvæðinu brátt lokið. Veruleg aukning hefur orðið á starfseminni í kjölfar kaupa Skjás Eins á helmingshlut í fyrirtækinu. Dagskrá Skjás Eins er nú send út á um þriðjungi drcifikerfis Skjávarps og er unnið að frekari útbreiðslu Skjás Eins um landið. Landshyggöarflótti rénar Landsbyggðin tapaði helmingi færra fólki á tímabilinu janúar-til september 2000 heldur en í fyrra, eða tæplega 670 í ár sam- anborðið við rúmlega 1.320 í fyrra. Þjóðhagsstofnun bendir á að búferlaflutningar fyrstu níu mánuði ársins staðfesti að þær brcytingar sem fyrst hafi orðið vart á 2. ársfjórðungi ársins hafi fest sig í sessi, a.m.k. um sinn. Enn dragi úr búfcrlaflutningum af landsbyggðinni til höfuðborg- arsvæðisins og flulningar þaðan út á land aukist. A Suðurnesj- um og Vesturlandi séu aðfluttir nú fleiri en brottfluttir og mun- urinn sé IítiII á Suðurlandi. Fyrstu níu mánuði ársins fluttu um 2.460 af höfuðborgarsvæð- inu og út á land en um 3.130 þaðan, svo landsbyggðin tapaði um 670 íbúum í þessum flutn- ingum, sem fyrr segir. A sama tíma í fyrra fluttu um 390 fleiri suður til höfuðborgarsvæðisins og nær færri 270 þaðan út á land, svo „tap“ landsbyggðarinn- ar var þá tvöfalt meira en í ár. -HEI Tölvuhaupastyrkir tíl rfldsforstíóra Tölvukaupastyrkir til yfirmanna ríkisstofnana og sjóða skylai þó ekki vera leið til að verða sér úti um „duldar" kjarabætur. Við endurskoðun hjá rík- isfyrirtækjum og sjóðum segir Ríkisendurskoðun hafa komið fram dæmi um að ríkisstarfsmcnn, einkum yfirmenn, fái styrki til kaupa á tölvum á þeirri forsendu að þeir þurfi starfs síns vegna að vinna heima eftir venju- Íegan vinnutíma og þurfi þá að gcta tengst tölvukerfum fyrirtækja sinna. í einhverjum tilvikum séu starfsmenn líka með tölvur í eigu fyrirtækja sinna. Og uppsetning búnaðar heima hjá viðkomandi er jafnframt á kostnað fyrirtækjanna. Rikisendurskoðun segist hafa gert athugasemdir við þessi atriði og tel- ur nauðsyn þess að fjármálaráðuneytið setji almcnnar reglur um kaup á tölvum sem ætlaðar séu til notkunar á heimilum starfsmanna. -HF.l

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.