Dagur


Dagur - 04.01.2001, Qupperneq 2

Dagur - 04.01.2001, Qupperneq 2
2 - PIMMTVDA GUK 4 . JANÚAK 2 00 1 Da^ttr ; FRÉTTIR Brot á sjilkra- fLugssamnmgi Mjög alvarlegt mál að mati heilbrigðis- ráðimeytis að sjúkra- flugi skyldi ekki siimt á Vestfjörðum á nýársnótt. Tildrög málsins rannsökuð og Mýflug kraflð svara. um samningsbundna sjúkra- flugsþjónustu fyrir Vestfirði án þess að hafa flugrekstrarleyfi. „Við gerðum samkomulag fýrir áramót um að Mýflug myndi halda þessu áfram og litum svo á þegar áramótin gengu í garð að sjúkraflugið á Vestfjörðum væri tryggt. Síðan fengum við þessar upplýsingar og erum nú að skoða þetta mál. Við lítum það mjög alvarlegum augum," segir Dag- ný. Davíð Árni Guðmundsson brenndist illa á nýársnótt fyrir vestan og hefur mál hans dregið diik á eftir sér. Heilbrigðisráðuneytið hefur haf- ið rannsókn á sjúkraflugsmálinu svokallaða á Vestfjörðum á nýársnótt, enda telur ráðuneytið að brot hafi verið framið á samn- ingum. Eins og Dagur greindi frá í gær, reyndist ekki unnt að sinna sjúkraflugi þegar 8 ára drengur brenndist í andliti eftir flugeldasprengingu á Patreks- firði. Flugfélagið Mýflug sér um þjónustuna samkvæmt samningi við ráðuneytið en gat ekki sinnt fluginu. Eftir árangurslausar símhringingar við önnur flugfé- lög var þyrla Landhelgisgæsl- unnar ræst út en fyrir vikið seinkaði för drengsins til Reykja- víkur. Augljóst brot Dagný Brynjólfsdóttir, deildar- stjóri í fjármálaskrifstofu heil- brigðisráðuneytisins, segir að þegar sc búið að krefja Mýflug skriflegra svara vegna málsins. Ráðuneytið verði að fá tryggingu fyrir því að athurður sem þessi endurtaki sig ekki. „Samkvæmt samningnum sem við gerðum var Mýflug skuldhundið til að. hafa vél og mann á staðnum all-- an sólarhringinn yfir vetrartím- ann á Isafirði. Þarna var því aug- Ijóslega verið að hrjóta samning- inn. Meðal annars munum við fá skýrslu frá heilbrigðisstofnun- inni fyrir vestan um ferilinn. Allt frá því að útkall barst þangað til sjúklingurinn fór í þyrluna," seg- ir Dagný. Flýgur án leyfis Annað sem vakið hefur athygli er að flugrekstrarleyfi Mýflugs rann út um áramótin en hvorki fram- kvæmdastjóri Mýflugs né ráðu- neytið vissu af því samkvæmt samtölum Dags við aðila. Ráðu- neytið var nýbúið að gera fram- haldssamning um sjúkraflugið við Mýflug þegar þetta kom upp og er boltinn nú í höndum Loft- ferðaeftirlitsins. Sú einkennilega staða er því uppi að félag sér eitt Eiustætt mál? Aðspurð hvort mörg dæmi hafi komið upp þar sem samnings- bundinn aðili hafi ekki getað veitt sjúkraflugsþjónustu, segir Dagný að fyrir komi að vélar hafi ekki getað flogið vegna veðurs en hún minnist þess ekki að ráðu- neytið hafi fengið kvartanir um að félög stæðu ekki við samn- inga. Nú er unnið að því í ráðuneyt- inu að hnýta samninga við ein- stök félög um sjúkraflug á lands- vísu. Dagný segir þess skammt að bíða að samningsgerðinni ljúki. I gær var fundað með Flug- félagi Islands og er talið að sá samningur muni leggja línurnar fyrir hin félögin. „Við erum frek- ar að tala um daga eða vikur,“ segir Dagný aðspurð um tíma- mörk. - BÞ 8% fólksf/ölgun i Biskupstungum. Fjölgaði mestí Timgimum „Ihúafjölgun í Biskupstungum er hlutfallslega meiri en í nokkru öðru sveitarfélagi á ís- landi á árinu 2000 eftir þeim upplýsingum sem Hagstofa ís- lands hefur sent frá sér, eða 8,06%,“ segir í nýárskveðju sem sveitarstjóri Tungnamanna, Ragnar Sær Ragnarsson, sendi út til að vekja athygli á þessu ís- landsmeti þeirra, sem virðist hafa farið framhjá flestum. Arið 2000 fjölgaði íbúum Biskupstungnahrepps um 41, úr 509 upp í 550, sem flestir búa í Reykholti og Laugarási. Þessi mikla fjölgun er m.a. athygliverð í ljósi þess að næstu fjögur ár á undan (1995-1999) fækkaði um 10 manns í hreppnum. Þar sem mörg íbúðarhús eru nú í bygg- ingu húast Tungnamenn við áframhaldandi fjölgun á árinu 2001. Grunnskóli í toppklassa er meðal þess sem Biskupstung- urnar urðu Iandsfrægar fyrir, fyrir fáum misserum. - HEI Tryggingastofmin þarf nýtt tölvufomt Svo miklar breytingar þarf að gera á tölvu- forriti Trygginga- stofnunar ríkisins að það nálgast það að bua þurfi til nýtt for- rit. Vegna þeirra fyrirsjáanlegu brevt- inga sem verða á greiðslum til ör- yrkja, og jafnvel fleiri hópa, vegna dóms Hæstaréttar á dög- unum, er fyrir séð að svo miklar breytingar þarf að gera á tölvu- forriti Tryggingastofnunar ríkis- ins að það nálgast það að búa þurfi til nýtt forrit. Ef takast á að greiða öryrkjum óskertar bætur, eins og dómur Hæstaréttar segir til um, þá þarf Tryggingastofnun að vera húin að fá sín gögn í hendur ekki síð- ar en 20. janúar. Og þá þarf stofnunin líka að hafa fengið að vita með nokkrum fyrirvara hvernig frumvarp ríkisstjórnar- innar verður svo hægt sé að laga nýtt tölvuforrit að því. Fá engin svör „Það virðist enginn vita neitt um framhaldið. Stjórnarherrarnir halda kortunum mjög fast að sér þannig að enginn sér á spilin. Eg er farinn að hallast að þeirri skoðun að þing verði ekkert kall- að saman fyrr en 22. janúar sem er samkomudagur þess sam- kvæmt starfsáætlun. Við f stjórn- arandstöðunni erum tilhúin til að koma til þings nú þegar eins og ég tel vera nauðsvnlegt," segir Guðmundur Arni Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis. „Eg hef aðeins verið að spyrjast fjTÍr um hvenær þing verði kallað saman en engin svör fengið. Þeir aðilar sem ég hef rætt við full- yrða að Try'ggingastofnun verði að vera búin að fá sín gögn f hendur ekki síðar en 20. janúar ef henni á að takast að reikna út og greiða öryrkjum út fullar bæt- ur 1. fcbrúar. I þessu sambandi má benda á að samkomudagur Alþingis er samkvæmt starfsá- ætlun 22. janúar. Það er þvf ljóst að ef greiða á út óskertar bætur 1. febrúar verður að flýta sam- komudegi þingsins töluvert mik- ið,“ segir Steingrímur J. Sigfús- son, formaður VG. Heyrúllur í Færu einhveijir ís- lenskir bændur að fyrirmynd sænskra starfsbræðra sinna sýnist fátt því til fyrirstöðu að hesta- fólk gæti keypt hey- tuggu handa hest- inum sfnum um leið og það gerir helgarinnkaupin f stórmarkaðnum. Nokkrum sænskum bændum datt það snjallræði í hug að skapa sér aukabú- grein með því að framleiða litlar plastbúðaðar heyrúllur, sem aðeins eru um 55 cm að þvermáli og vega um 40 kíló. Rúllurnar.selja þeir fyrir allt að 1.000 kr. stykkið. Eigendum eins eða fárra hesta þyldr þetta góður kostur. Því hinar hefðbundnu heyrúll- ur eru of stórar fý'rir þá og fóðrið getur skemmst áður en tekst að nýta það að fullu, segir í Frey, sem vitnar til fréttar í sænska blaðinu Land. - HEI Umsóknartímabil NORDJOBB hafið NORDJOBB er samnorrænt verkefni ætlað 18-26 ára ungmennum. Það miðlar sumarvinnu og húsnæði á Norðurlöndum og býður auk þess upp á fjölbreytta menningar- og tómstundadagskrá . Ár hvert fer hátt á annað hundrað íslenskra ungmenna utan á vegum NOR- DJOBB. Umsóknartímabil NORDJOBB lýrir sumarið 2001 er hafið. Um- sóknareyðublöð og upplýsingar (innast á www.nordjobb.net en einnig hjá Norræna félaginu, Bröttugötu 3B, 101 Reykjavík, sími 551 0165, netfang nordjobb@norden.is og Norrænu upplýsingaskrifstofunni, Glerárgötu 26, 600 Akureyri, sími 460 1462. Netto og Bónus? S.r.....,Z-------------------------------------- Heytugga í tækifærispakningum?

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.