Dagur


Dagur - 17.01.2001, Qupperneq 4

Dagur - 17.01.2001, Qupperneq 4
4 - MIÐVIKUDAGU R 17. JANÚAR 2001 Ð^ur FRÉTTIR Leiga tveggja herbergja íbúðar þarfað hækka um 16.300 kr. á mánuði við vaxtahækkun úr 1% upp í 4,9%, en um 7.800 kr. á mánuði hafi vextirnir verið 3,2% fyrir hækkunina. „Ráðimeytisleiga“ 53.000 á mánuði Leiga 2ja herbergja 60 fermetra íbúðar þarí að vera 52.700 kr. á mánuði skv. útreikningum í Félagsmálaráðuneyti. Leiga tveggja herbergja íbúðar þarf að hækka um 16.300 kr. á mánuði við vaxtahækkun úr 1% upp í 4,9%, en um 7.800 kr. á mánuði hafi vextirnir verið 3,2% fyrir hækkunina. Þessa útreikn- inga er að finna í riti frá Félagsmála- ráðuneytinu um húsnæðismál frá apríl 2000. Þar er komust menn að þeirri niðurstöðu að 2ja herbergja íbúð, sem kostar tæpar 7,7 milljónir, þurfi að Ieigja fyrir 52.700 kr. á mánuði til að standa undir kostnaði, miðað við 4,9% vexti í stað 36.400 kr., miðað við 1% vexti. Til að jafna þennan mun með stofnstyrk, það er niðurgreiðslu á bygg- ingakostnaði, þyrfti hann að vera um þrjár milljónir króna. 67.000 kr. á almeraium markaði A almennum markaði þyrfti leiga sömu íbúðar því að hæklía í allt að 67.000 FRÉTTAVIÐTALIÐ krónur til að standa þar á ofan undir fjármagnstekjuskatti af leigunni og eignaskatti, ætti eigandinn íbúðina skuldlausa, - þar af færi hátt í þriðj- ungur síðan í skatta til ríkisins, þar af tæpar 15 þús. kr., auk fasteigna- og brunabótaiðgjöld. Um 8,3% íbúðaverðsins á ári Athygliverðir útreikningar, meðal ann- ars um áhrif og samspil mismunandi vaxta, hugsanlegra stofnstyrkja og mögulegra húsaleigubóta, voru gerðir í Félagsmálaráðuneytinu í tengslum við störf nefndar sem falin var úttekt á Ieigumarkaðnum. Forsendur í dæminu eru 60 fermetra íbúð, 2ja herbergja, sem mátti að hámarki kosta 7.650 þús.kr. Viðhald var áætlað 2% á ári, fast- eignagjöldin 0,9% og vextir af 10% framlagi framkvæmdaaðila rúm 0,5% af íbúðaverðinu. Þetta þrennt þýddi um 21.800 krónur í húsaleigu á mán- uði. Heildarleigan veltur síðan fyrst og fremst á vöxtunum af 90% láninu. Við aðeins 1% vexti bættust við 14.600 kr. á mánuði, við 3,3% vexti 23.150 kr. og færu vextirnir í 4,9%, eins og gerðu núna um áramótin, fer upphæðin í rúmlega 30.900 krónur - og þar með leigan öll í nær 52.700 krónur á mán- uði sem lýrr segir. Arsleigan er þá rúm- ar 632 þús.kr., nær 200.000 kr. hærri en við 1% vexti, eða sem svarar 8,3% íbúðarverðsins á ári. Um 8 milljóna munur á 40 árum Þegar áhrif 18.750 kr. húsaleigubóta, sem eru I i.560 kr. eftir skatt, eru tek- in með í dæmið er nettóleiga íbúðar- innar 24.800 krónur miðað við 1% vexti, sem við 4,9% vexti hækkar upp í 41.100 krónur - eða um 66%. Þetta þýðir nær 8 milljóna mun á 40 árum. Þótt ríkissjóður legði fram 2ja milljóna stofnstyrk við byggingu íbúðarinnar mættu vextirnir aðeins hækka f 3,9% til að leigan héldist sú sama og með 1% vöxtum án styrks. En með 4,9% vöxtum verður Ieigan 30.000 krónur á mánuði þrátt fyrir tveggja milljóna styrkinn. Allt eru þetta glögg dæmi um hve gífurleg áhrif hvert vaxtaprósent hefur á greiðslubyrði lána og leigu. Auðvitað einnig um hvað það kostar ríkið að taka lán á 5-6% vöxtum og endurlána á l-3%vöxtum. - HEl Þórunn Valdimars- dóttir. Skammt er í að dóm- nefnd bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs taki ákvörðun um hver liljóti þessi cftirsóttustu norrænu verðlaun í ár, en það cr vcnjulega tilkynnt í hyrjun febrú- ar. Það hefur ekki farið fram lijá pottverjum að frændur okkar Norðinenn fara mikinn í fjölmiðl- um þessa dagana og telja liggja við samnorrænu hneyksli ef þeirra maður verði ekki hinn útvaldi í ár. Þar er um að ræða Jan Kjærstad og þá fyrir skáld- sögu sem lieitir Oppdageren og kom út árið 1999. Hann hcfur að sögn norskra blaða mikinn stuðning bókmcnntafólks í Danmörku og Sví- jijóð. íslensku tilnefningaraar sem nú koma til álita hjá norrænu dómnefndinni cru Stúlka með fingur eftir Þórunni Valdimarsdóttur og Sumariö hakvið hrckkuna cftir Jón Kalman Stcfánsson... 1 heita pottinum á Akureyri hafa menn rætt þaö nokkuö hver komi til með að taka við scm fréttamað- ur Stöðvar 2 á Norðurlandi, en sem kunnugt er mun Óskar Þór Hall- dórsson hætta því starfi fljótlega og fara að snúa sér að PR störfum hjá upplýsingafyrirtækinu Athygli. Tvær kenn- ingar hafa einkum heyrst. Annars vegar er að það muni koma maður af fréttastofunni í Reykjavík norður til að taka við starfinu. Hins vcgar að gerð- ur verói samstarfssamningur við Aksjón, staó- hundna sjónvarpið á Akureyri, um að sinna frétta- þjónustu fyrir Stöð 2 á Norðurlandi. Aksjón er með tvo frétta- og dagskrárgerðarmenn í fullu starfi, þá Þráin Brjánsson og Ilarald Ingólfsson... í heita pottinum kom ákvörðun Sighvats Björg- vinssonar uin að hætta í pólitík ekki á óvart, en Sighvatur hefur sem kunnugt er sótt um starf for- stjóra Þróunarsamvinnustofnunar. Baráttufélag- ar hans úr Alþýðuflokknum eru allir horfnir á vit cmbættismennskunnar og Sighvatur orðinn síö- asti móhikaninn eða síðasti pólitíkusinn - Eiður Guöna, Karl Steinar, Jón Sigurðsson, Jón Baldvin, allir orðnir embættisinenn... Úskar Þór Halldórsson. Sjöfn Sigurgísla- dóttir forstöðumaðurheilbrigðissviðs hjá Hollustuvemd ríkisins. Fleirí ogfleirí virðastsnð- ganga nautakjötþessa dag- ana til að tryggja siggegn smiti afkúaríðu. Eftirlitskerfið margflókið - Dctgur varð vitni að þvt' úti í búð að irntð- ttr henti pylsupakka aflur t liæliborðið eft- ir að lesa innihaldslýsinguna þar setn fram hom nautahjöi. Er kúariðuhræðslan kutinski að gatiga út í öfgar? „Vonandi er óþarft að óttast íslenskar pylsur. OII matvara getur svo sem verið stórhættuleg ef út í það er farið, en þetta er ámóta og komið hefur upp með alifugla öðru hverju." - En er ekki fullt af öðru innfluttu tiautakjöti í búðum; hrátt i spægipylsum og siðan i pissutn, fylltu pasta, kjötkrafti ogfleiru? „Það eru önnur lög sem gilda um þessar vörur heldur en innflutning á kjöti. Eftirlits- kerfið hjá okkur er margflókið og vefst víst fyrir ýmsum. Samkvæmt lögum og reglu- gerðum heyrir innflutningur á kjöti undir yfirdýralækni, á fiski undir Fiskistofu en eft- irlit með öllum öðrum matvælum, m.a. þeim unnu vörum sem þú nefndir, hér hjá okkur. Heilbrigðiseftirlitið fer svo með aílt dreifingareftirlitið, á öllum þessum vörum í verslunum og víðar. „Um þessar unnu vörur gilda sam-evr- ópskar reglur, um hvað megi fara í slíkar vörur og hvernig þær skuli meðhöndla, al- veg eins og hér á landi. Við fórum þess vegna í að gera úttekt á þessu s.l. haust, al- veg ótengt þessu írska kjöti. Og í framhaldi af því að krefja innflytjendur um uppruna- vottorð, til að gera okkur grein fvrir hvað cr í þessum vörum, hver framleiddi þær og aö tryggt sé að þær séu í lagi. Við hlýðum auð- vitað Evrópureglunum, en ef við getum sýnt fram á að heilsu fólks geti stafað hætta af vörum sem eru á markaðnum þá höfum við lögin með okkur og getum þess vegna inn- kallað hana.“ - Hvað getur almenningur gert til að var- ast innflutt nautakjöt? „Lesið innihaldslýsingar á matvælum. Sé nautakjöt þar á meðal verður fólk bara að meta það sjálft hvort það telur hættulegt að neita þeirra.“ - Eflir aðfylgjast tneð hvernig staðið er að útrýmingu kindariðu hér á lattdi, þar sem hundraða kinda hjörð er útrýmt og allt brennt og grafið finnist ein riðurolla er þá ekki tortryggilegt að erlendis virðist talið nóg að slátra bara elstu gripunum til að útrýtna kúariðu? „Þetta er í sjálfu sér dýralæknaspursmál sem ég hef ekki tekiö afstöðu til. En við vilj- um tryggja það að matvæli séu f lagi hér á iandi og vinna að því að allt sé í lagi með þessi innfluttu matvæli." - Kom írska kjötið hingað án vilundar Hollustuveriidar? ,„Já, það var yfirdýralæknir alfarið. Nema að það er sett hér á markað með því skilyrði að farið sé eftir settum reglum um merking- ar.“ - Getur eklii hugsast að einhverjir (s- lenskir framleiðendur, t.d. pissugerðar- menn, hafiflutt inn ódýrl nautakjöt í sín- ar „íslettsku“ fratnleiðsluvörur, þótl það hafi ekki komist (fréttimar eins og það írska? - Það er hugsanlegt. En það væri þá allt með Ieyfi og vottorðum frá yfirdýralækni ef svo væri og hann ætti að gera svarað fyrir það. Allt sem heitir tilbúin matvara á að vera merkt samkvæmt áðurnefnum Evr- ópureglum sem eru yfirfærðar til Islands. Og þar þarf alltaf að koma fram hver er framleiðslu- og dreifingaraðili.“ - En þarf nokliuð að kotnafratn hvaðan nautakjötið er upprunnið? „Nei, það er einmitt það sem menn eru að vekja athygli á og veldur vandamálum, að nautakjötið á pissum getur komið hvaðan sem er úr Evrópu, af því það er frítt flæði innan Evrópu." - Fjölgar fólki sem leit- ar til ykkar? „Það er alltaf mikið hringt. En fólk getur Iíka fundið ýmsar upplýsingar á matvæla- sviði heimasíðunnar okkar.“ - HEI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.