Dagur - 17.01.2001, Síða 6

Dagur - 17.01.2001, Síða 6
6 - MIDVIKUDAGV R 17. JANÚAR 2001 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elIas snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði Lausasöluverð: iso kr. OG 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýs/ngadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Sfmar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-i615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir. Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Simbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRl) 551 6270 (REYKJAVÍK) Mikíar fylgissveifLiir í fyrsta lagi Niðurstöður skoðanakönnunar sem DV gerði fyrir helgina sýna miklar fylgissveiflur frá ríkisstjórnarflokkunum til Samfylkingar- innar og VG. Sérstaka athygli vekur að óánægja kjósenda bitnar nú í fyrsta sinn í langan tíma líka á Sjálfstæðisflokknum, en fylgi hans hrapar úr 44.2 prósentum atkvæða í síðustu könnun í 37.4 prósent nú. Ekki er að efa að þar geldur flokkurinn furðulegrar íramkomu forsætisráðherra í garð Oryrkjabandalagsins í kjölfar dóms Hæstaréttar. Þótt forsætisráðherra komist upp með að vera einræðisherra í eigin flokki, er verulegur hluti kjósenda ekki reiðubúinn að líða honum hvað sem er. í öðru lagi Önnur merkileg niðurstaða skoðanakönnunar DV er að Sam- fylkingin tekur forystu fyrir stjórnarandstöðunni og mælist með 27 prósenta fylgi, en VG fær 24.1 prósent atkvæða. Sam- anlagt eru þessir tveir flokkar með meirihluta fylgis í könnun- inni, en það eru mikil umskipti. Þótt mikil fylgisaukning Sam- fylkingarinnar skýrist vafalaust að hluta til af óánægju með viðbrögð ríkisstjórnarinnar við öryrkjadómi Hæstaréttar, kem- ur þar líka til árangur af skeleggri og hvassri stjórnarandstöðu Össurar Skarphéðinssonar að undanförnu. Hann hefur síð- ustu mánuðina tekist af fullri hörku á við forystumenn Sjálf- stæðisflokksins, bæði á þingi og í fjölmiðlum, og haft betur. Það er farið að skila sér í auknu fylgi Samfylkingarinnar. í þriöja lagi Fylgi Framsóknarflokksins mælist í fyrsta sinn innan við tíu prósent. Það hlýtur að valda forystumönnum flokksins alvar- legum áhyggjum þótt enn sé langt til næstu þingkosninga. Enginn þarf að efast um að undirrót fylgistapsins er vandasöm sambúð ráðherra Framsóknarflokksins við ofurfrekan for- mann Sjálfstæðisflokksins. Það telst vafalaust dyggð í stjórnar- samstarfi að láta allt líta fellt og slétt út á yfirborðinu og í íjöl- miðlum, er slík staða er áróðurslega séð afar veik fyrir minni flokkinn, í þessu tilviki Framsóknarflokkinn. Elías Snæland Jónsson Hæstaréttarsfysið Auðvitað hafði Davíð rétt íyrir sér. Eins og alltaf! Auðvitað var hæstaréttardómurinn slys. Hann var auðvitað meiriháttar pólitfskt umferðarslys. Dómur- inn hafði til að bera alla eigin- leika slyss, hann kom eftir að ÖBÍ hafði keyrt málið áfram af offorsi og ekki nokkur einasti maður ríkisstjórnarmegin var undirbúinn undir að hann gæti fallið á þennan hátt. Hann kom mönnum því gjörsamlega í opna skjöldu. Menn voru ekki einu sinni búnir að spenna sín pólitísku öryggisbelti og líknar- belgirnir blésu ekki upp við höggið. Þess vegna þurfti líka að kalla til tækjabíl slökkviliðsins og sér- sveit vaskra lögmanna til að klippa menn út úr flalánu. Öryrkjarnir sluppu hins vegar með skrekkinn, enda vel undirbúnir að mæta slysinu. Þótt fjúld í Davíö Og nú þegar lögfræðingar slökkviliðsins eru búnir að skila af sér frumvarpi til laga um hvernig best sé að bregð- ast við slysinu, þá virðist ætla að ganga illa að koma hinum slösuðu inn á Slysadeild Al- þingis. Þar sitja í fleti fyrir þrjóskir stjórnarandstöðu- þingmenn sem koma í veg fyr- ir að hægt sé að hefja viðeig- andi læknis- og hjúkrunar- meðferð. Og Garra þykir það ekki skrýtið þótt fjúki dálítið í Davíð þegar menn blokkera með þessum hætti innganginn á Slysadeildina og í því ljósi er bara eðlilegt að hann sýni Ingibjörgu Pálmadóttur lítils- virðingu með því að ryðjast fram fyrir hana og afturkalla óskina um að málið verði tek- ið á dagskrá með afbrigðum. V Auðvitað hefði verið eðlilegra að Ingibjörg gerði þetta sjálf, enda mun hún hafa verið á leiðinni til jiess, en Davíð er nú einu sinni vanur að hafa þetta svona í sínum flokki þannig að menn hljóta að sjá í gegnum fingur við hann þótt hann geri þetta líka gagnvart samstarfsflokkn u m. Bílstjórfnn Baunar er það líka eðlilegt að Davíö sé í aðalhlutverki í þessu mikla pólitíska umferð- arslysi, því hann var í rauninni ökumaðurinn sem mestu réði um það hversu harður þessi árekstur varð. Hins vegar virðist, nú þeg- ar fyrstu sjúkraskýrsl- ur berast frá DV, sem ökumaðurinn sé ekki sá sem hafi slasast mest. Það gerði sam- starfsflokkurinn, sem sat í framsætinu hjá Davíð. Framsóknarflokkurinn mælist nú með minna en 10 prósent atkvæða, minna cn helming af eðlilegu kjörfylgi, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er þó enn í rúmum 37%. Póli- tískt séð þýðir þetta þó ekkert annað en skipbrot hjá báðum flokkum, sérstaklega þó fram- sókn. Miðað við örorkumatið sem kemur fram í DV sýnist Garra að hæstaréttarslysið sé að skilja stjórnarflokkana eftir sem hálfgerða pólitíska ör- yrkja. Það er svo kaldhæðni örfaganna, að sem pólitískir öryrkjaflokkar eiga stjórnar- flokkarnir og Davíð Oddsson auðvitað beina samleið með Öryrkjabandalaginu og hinum baráttuglaða formanni þess, Garðari Sverrissyni. GARRI aODDUR ÓLAFSSON Lengi vel var rekinn öflugur áróð- ur fyrir því að leyfður yrði tak- markalaus innflutningur á land- búnaðarvörum, myndi það bæta lífskjör þjóðarinnar með ómetan- legum verðlældmnum. Bann við innflutningi var sagt vera til að halda uppi úreltum búrekstri á Is- landi, sem væri af náttúrulegum orsökum óhæft til neins konar búvöruframleiðslu. Enda væru lagasetningar um allar takmark- anir á innflutningi hvers kyns matvæla sem framleiddar eru hérlendis einvörðungu til þess gerðar að hygla bændum og halda uppi háu vöruverði á kostn- að neytenda. Skjótt skipast veður í lofti. Framkvæmdastjóri Neytendasam- takanna sem lengi hefur verið einn háværasti talsmaður frjáls innflutnings búvara heimtar allt f einu að yfirdýralæknir og land- búnaðarráðherra segir af sér. Astæðan er að þeir leyfðu inn- flutning á kjöti, samkvæmt kröf- Lífskjarabót eða glapræði? unni miklu um að ekld eigi að líða einokun íslenskra bænda á framleiðsluvör- um sfnum hér á landi. Svo glymja ótaf raddir úr ótrúlegustu áttum um hví- líkt glapræði það sé að leyfa innflutning á út- Iendu kjöti til að keppa við hreinræktaðan bústofn á ísa köldu landi. Nýstárleg sjúkdómaheiti A síðari árum hafa menn verið að kynnast sjúkdómaheitum sem áður voru óþekkt í málinu, en eru talin til sýkinga úr fiðurfé og öðr- um búfénaði sem alinn er í verk- smiðjum. Nú hefur enn eitt sjúk- dómsheitið bæst við og er kennt við kúariðu og vekur mikinn óhug f flestum eða öllum Evrópulönd- um. Hefur hvert landið af öðru bannað allan nautakjötsinnflutn- ing, þvert ofan í alla samninga um alfrjáls viðskipti sín á milli. Bændur og dýralæknar hafa þurft að berjast við Ijárkláða og mæðiveiki, sem við lá að útrýmdi fjárstofninum, og enn er barist við riðu í sauðfé, sem er af öðrum toga en kúariðan illræmda sem hefur aldrei náð til landsins. Páll A. Pálsson fyrrum yfirdýralæknir varði íslenska bú- stofninn af miklum skörungsskap á löngum og farsælum starfsferli og þar með heilsufar mannfólks- ins. Hann lét ekki ámæli um íhaldssemi að þessu leyti á sig fá, þótt fast væri sótt að losa um allar innflutningshömlur á erlendum búvörum eða kynbótaefnum. En nú heimtar einn ákafasti talsmaður ótakmarkaðs innflutn- ings, að núverandi yfirdýralæknir segi af sér fyrir að verða við kröf- um sem hann og hans skoðana- bræður hafa barið fram af miklum móð. Miklar búsiíjar Það er ekkert áhlaupaverk að halda faraldri smitsjúkdóma í skefjum, hvort sem þeir herja á menn cða skepnur. Fyrir nokkrum árum voru milljónir kjúklinga drepnir í Hong Kong til að koma í veg íýrir að úr þeim bærist smit- andi og mannskæð inflúensa. Til að varna gin- og klaufaveiki er gripið til svipaðra ráða. Núna verða bændur í Evrópu fyrir mikl- um búsifjum vegna kúariðu, þar sem allur nautpeningur á stórum svæðum er aflífaður. Og enginn veit hvar og hvenær þau ósköp enda. Því er vert að halda vöku sinni og rjúka ekki til að verða við öllum kröfum um útlendar búvörur eða erlend búfjárkyn, sem eiga að vera svo miklu betri en þau íslensku. Sfst skal gleyma að íslenskir bændur framleiða meiri landbún- aðarafurðir en þjóðin nær að torga. Til hvers á þá að tefla á tvær hættur? Margt skrýtið í kýrhausnum. Mun almenningurbreyta neysluvenjum sínum vegnafrétta um húariðu? (Fluttarvom til landsins nantalnndir frá íriandi, en þarí landi hefnrknariða geisað. Þetta hefnrskapað ttiiJda um- ræðuhérheima.) Eiður Guiuilaugsson framkv.stj. KjamafæðisáAkureyri. „Fólk er að verða meðvitaðra um hvað það lætur ofán í sig - og ger- ir sér æ betur ljóst hver gæði og hreinleiki ís- lenskrar landbúnaðarframleiðslu er. Sá hugsunarháttur hefur verið við lýði að allt sé best sem kemur erlendis frá, á sama tíma og fjöldi fslendinga hefur veikst erlcndis af matarsýkingum. Kúariðan hefur skapað umræðu og greinilegt er að fólk vill hafa vaðið fyrir neðan sig.“ Laufey Steingrímsdóttir framkvæmdastjðri Manneldisráðs. „Fréttir af sýking- um í matvælum verða oft til |iess að neysluvenjur breytast. Slíkt er þó oftast tíma- bundið nema að vandamálið vari um lcngri tíma og því gæti umræða um kúariðuna breytt neyslumynstrinu hér. Hins vegar vil ég minna á að íslenskt kjöt er ósýkt og innflutningsreglur skýrar. Hins vegar geta afurðir úr kúariðukjöti verið í verslunum hér og þar nefni ég svo sem prótein- duftið sem margir neyta í tengsl- um við íþróttaæfingar." Þurfður Badunan þingmaðiirVG. „Fólk mun gaum- gæfa betur hvað það borðar. Ekki svo að fólk hætti alfarið að borða kjöt og fari yfir í grænmeti, heldur verði vandlátara á hvaðan kjötið kemur. Ef fólk hugsar um upp- runa vöru þá verður það til hags- bóta fyrir íslenska bændur; hér er ekki kúariða og íslenska lamba- kjötið er hreint og sama má segja um nautakjöt. Flollusta vörunnar verður neytendum ofar í huga en hefur ef til vill verið fram til þessa og það mun gilda um fleiri land- búnaðarvörur en kjöt og þá cru líf- rænt ræktaðar landbúnaðarvörur góður kostur." Úlfar Eysteinsson veitingam. á Þremurfrökkum i Reylijavík. „Engin spurning og fólk mun spyr- ja sig spurninga um allar innflutt- ar matvörur sem hér sjást í verslun- um. Eg prísa mig sælan að vera ekki með nautakjöt nema í óverulegum mæli á mínum matseðli og er raunar að spá í að sldpta því út fyr- ir íslenskt Iambakjöt. Sjálfur legg ég mesta áherslu á fiskrétti, svo og hvalkjötið sem ég tel vera hrein- asta kjöt í heimi og að kúariðuum- ræðan þrýsti á um að hvalveiðar verði hafnar að nýju.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.