Dagur - 17.01.2001, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 200 1 - 9
Dagur.
ÍÞRÓTTIR
KRí
Keppni í 1. deild
kveima hófst aftur um
helgina eftir rúmlega
mánaðarfrí ylir jól og
áramót. KR-stelpur
koma vel undirbunar til
leiks og hoppuðu strax í
toppsæti deildarínnar
eftir góðan sigur á
Stúdínum í fyrrakvöld.
KR-stelpur komust í toppsæti 1.
deildar kvenna í körfuknattleik,
eftir átta stiga sigur á Stúdínum,
40-48, í köflóttum leik sem fram
fór í íþróttahúsi Kennaraháskólans
í lyrrakvöld. Leikurinn var jafn og
spennandi og eftir fyrsta leikhluta
var staðan jöfn 13-13, eftir að lið-
in höfðu skipst á forystunni, en í
hálfleik hafði KR forystuna 12-23.
Stúdínur léku án þeirra Hafdísar
Helgadóttur, sem er meidd og
Kristjönu Magnúsdóttur, sem er
ófrísk og munar um minna, þar
sem þær hafa.veriö helstu máttar-
stólpar liðsins að undanförnu og
Kristjana stigahæsti Ieikmaðurinn
í vetur. Þær stöllur spiluðu aðal-
hlutverkin hjá Iiðinu, þegar IS
vann KR, 60-50, í fyrstu umferð
Islandsmótsins og var því frekar
búist við auðveldum sigri Vestur-
bæjarliðsins að þessu sinni. En
Stúdínur, með Stellu Rún Krist-
jánsdóttur í broddi fylkingar,
mættu grimmar til leiks og höfðu
þær í fullu tré við KR-inga og
höfðu á tímabili náð fimm stiga
forystu í þriðja leikhluta, en eftir
hann var staðan 32-31 fyrir ÍS. En
lengra komust þær ekki gegn
reyndum KR-stelpunum, sem nú
tóku til sinna ráða og skoruðu þær
fyrstu tíu stigin í fjórða leikhluta
og breyttu stöðunni þar með í 32-
41, sem var meira en Stúdínur
réðu við á lokakaflanum. Þar lék
Gréta Grétarsdóttir stórt hlutverk
hjá KR-ingum, en hún var besti
leikmaður Iiðsins og stigahæst
meðl3 stig, tók 11 fráköst, átti 4
stoðsendingar, fiskaði 4 bolta og
varði 3 skot. Þær Hanna Kjartans-
dóttir og Hildur Sigurðardóttir
áttu einnig góðan leik og voru þær
næststigahæstar með 12 stig hvor,
auk þess sem þær voru grimmar
undir körfunni og tók Hildur alls 9
fráköst en Hanna 8.
Hjá Stúdínum var Stella Rún
best í sókninni og var bún stiga-
toppsætið
|M|| ! . >
Úr leik IS og KR í fyrrakvöld.
hæst með 13 stig, en langbestan
leik átti þó Lovísa Guðmundsdótt-
ir, sem varð næststigahæst með 11
stig, en hún tók 9 fráköst, átti 5
stoðsendingar, fiskaði 3 bolta og
varði alls 10 skot.
Það vakti athygli hjá KR-ingum
að Guðbjörg IVoröfjörð, fyrirliði
liðsins til margra ára, var kominn á
bekkinn, en hún hefur verið í
barneignarfríi og mun nýbyrjuð að
æfa aftur.
Stórsigur Keflvíkinga í
Grindavík
Fyrsti leikurinn í deildinni eftir
áramót fór fram á sunnudaginn,
en þá tóku Grindavíkurstelpurnar
á móti Keflavík í íþróttahúsinu í
Grindavík. Þar fór fram leikur
kattarins að músinni og unnu Is-
lands- og bikarmeistarar Keflvík-
inga þar 53ja stiga stórsigur, 34-
87. Heimaliðið átti aldrei mögu-
leika í leiknum og var staðan í hálf-
leik, 5-43, eftir að Grindavíkurlið-
ið hafði ckki skorað eitt einasta
stig í öðrum leikhluta.
Sigríður A. Olafsdóttir var best
og stigahæst í liði Grindvíkinga
með 11 stig, en hjá Kellvíkingum
bar mest á þeim Birnu Valgarðs-
dóttir og Erlu Þorsteinsdóttur og
varð Birna stigahæst með 17 stig
og Erla næst með 16, auk þess
sem hún tók 12 fráköst. Sigríður
Guðjónsdóttir átti einnig góðan
leik og skoraði 10 stig, tók 12 frá-
köst og átti 4 stoðsendingar.
Lið Keflvíkinga mætti nú til
leiks með nýjan þjálfara, sem er
Kristinn Óskarsson, betur þekktur
sem köruknattleiksdómari eftir að
hafa dæmt um 900 leiki á ferlin-
um, en hann hefur þjálfað stúlkna-
flokka í Keflavík undanfarin tvö ár
með góðum árangri og mun leiða
meistaraflokkinn það sem eftir lit-
ir þessarar leiktíðar. Forvcri hans,
Kristinn Einarsson, sem náði mjög
góðum árangri með liðið í fyrra, er
hættur vegna ágreinings innan
liðsins og kaus hann því sjálfur að
láta af störfum, en skilur þó við fé-
lagið í fullu bróðerni.
Staðan:
KR 9 7 2 567:448 14
Keflavík 9 6 3 590:478 12
KFÍ 8 5 3 483:421 10
ÍS 9 4 5 510:484 8
Grindavík 9 0 9 359:678 0
Næstu leikir:
Föstud. 19. jan.
Kl. 20.00 KFÍ - KR
Lauganl. 20. jan.
Kl. 13.30 KFÍ - KR
Sunnud. 21. jan.
Kl. 20.00 Keflavík - ÍS
GSÍ flytiLr inn stóra tjaldhvelfingu
Þegar forystumenn íþróttahreyf-
ingarinnar voru á Olympíuleik-
unum í Sydney í Astralíu í haust,
var þeim boðin að gjöf stór tjald-
hvelfing sem þarlendir notuðu til
að tjalda yfir æfingalaug þá sem
sundfólkið okkar fékk til afnota,
þegar það dvaldi í æfingabúðum í
bænum Wollongong dagana fyrir
leikana. Sú kvöð fylgdi þó gjöf-
inni að þiggjandi skyldi flytja
hana á eigin vegum til íslands og
með þeim formerkjum var málið
kynnt á Golfþingi í nóvember sl.
I framhaldi af því tók Golfsam-
bandið þá ákvörðum að skoða málið nánar og hefur nú verið ákveð-
ið að vel skoðuðu máli að sambandið þiggi gjöfina.
Á vefsíðu GSI kemur fram að sambandið muni standa straum af
flutningskostnaði við innflutning hvelfingarinnar, sem Ástralir kalla
„The Bubble", eða sápukúluna, en ætlunin mun að nota hana sem
þak yfir aðstöðu til inniæfinga. „Boðið var þegið og hefur GSf ákveð-
ið að nýta það til að koma upp langþráðri aðstöðu til vetraræfinga,
þar sem hægt verður að stunda fjölbreyttari æfingar en verið hefur.
Samhandið er vongott um að þetta framtak rnuni valda straumhvörf-
um í þróun vetraræfingaaðstöðu á Islandi og að það skili sér í fleiri
frambærilegum kylfingum innan skamms," segir í frétt á vefsíðunni.
Umrædd hvelfing mun þekja svæði sem er 20 x 66 m, eða um 1320
fermetrar að flatarmáli og er lofthæð þess um 8 metrar. Hvelfingunni
er síðan haldið uppi með loftþrýstingi, sem myndast með hjálp þar til
gerðra mótora. Fyrirbæri þessi munu þekkt víða á Norðurlöndunum
og eiga að þola allt að 42 m vind á sekúndu, sem mun flokkast und-
ir fárviðri.
Edu loksins til Arsenal
Brasilíumaðurinn Edu er nú loksins kominn til Arsenal frá brasilíska
félaginu Corinthians, eftir að Lundúnafélaginu mistókst að kaupa
kappann fyrr í sumar. Þá voru kaupin nær í höfn, en gengu til baka
eftir að Edu hafði komið til Englands með falsað vegabréf og var því
vísað úr landi. Nú munu vegabréfsmálin aftur á móti komin í lag og
er kappinn, sem er 23ja ára, þegar mættur á Highbury, þar sem hon-
um er ætlað að fylla skarð Emmanuel Petit á miðjunni.
1. deild kvenna - Úrslit og leikir
Island í 8-liða úrslit á Indkmdi
íslenska karlalandslið-
ið í knattspymu er
komiö í 8-liða úrslit á
„Millennium Cup“ á
Indlandi. Ekki er enn
vitað hverjir mótherj-
amir verða, en líkleg-
ast að það verði Chile,
sem leika um toppsæt-
ið í 4. riðli gegn Úz-
bekistan í dag
Eftir 1-2 tap íslenska karlalands-
Iiðsins í knattspyrnu gegn
Urúgvæum í fyrsta leik liðsins á
„Millennium Cup" á lndlandi á
fimmtudaginn, gerði liðið sér lítið
lýrir og sigraði gestgjafana, Ind-
verja með þremur mörkum gegn
engu á laugardaginn. Leikurinn
fór fram á Nehru-leikvanginum í
Cochin að viðstöddum 23 þúsund
áhorfendum og skoraði Eyjamað-
urinn Tryggvi Guðmundsson öll
mörkin. Það fyrsta skoraði hann á
41. mínútu, eftir aukaspyrnu
Guðmundar Benediktssonar og
var það nokkuð gegn gangi leiks-
ins, því Indverjar hölðu fram að
því haft nokkra yfirburði í leikn-
um.
Islenska liðið mætti ákveðið til
leiks í seinni hálfleik og bætti
Tryggvi öðru markinu við á 53.
mínútu, aftur eftir sendingu frá
Guðmundi Benediktssyni, en
Tryggvi fékk boltann rétt utan
vítateigs og lét vaða á markið í
hornið fjær. Tíu mínútum seinna
fullkomnaði liygg\i svo þrenn-
una, þegar hann komst inn í send-
ingu sem var ætluð markverði
Indverja og skoraði hann örugg-
lega í autt markið, sitt sjötta
landsliðsmark á ferlinum og ör-
ugglega ekki það síðasta. íslenska
Tryggvi Guðmundsson skoraði
þrennu gegn Indverjum.
liöið sótti stíft það sem eftir lifði
leiksins og voru þeir Hreiðar
Bjarnason og Gylfi Þór Einarsson
þá nálægt því að bæta við mörk-
um, en markvörður Indverja sá
um að þau urðu ekki fleiri.
Með sigrinum tryggði íslenska
liðið sér annað sætið í 2. riðli á
eftir Urúgvæum, sem unnu Ind-
verja 3-0 í síðasta leik riðilsins í
gær og eru Urúgvæ og ísland því
komin áfram í 8-liða úrslit móts-
ins. Þar mætir íslenska liðið sigur-
vegurum 4. riðils, en þar er Chile
í efsta sætinu með 6 stig fvrir síð-
ustu umferöina, en Uzbekistan og
Japan með 3 stig. Chile mætir
Uzbekistan í síðustu umferðinni í
dag og dugar þar jafntefli til sigurs
í riðlinum, en fari svo að Uzbekist-
an sigri , þá eru þeir komnir upp
fyrir Chile og þá eiga Japanir líka
möguleika ef þeir vinna Bahrein
með nógu miklurn mun.
Lokastaðan í 2. riðli:
Úrúgvæ 2 2 0 0 5-1 6
ísland 2 10 14-23
Indland 2 0 0 2 0-6 0
Auk Úrúgvæ og Islands, hafa
Bosnía/Hersegóvína, Júgóslavía og
Rúmenía einnig try'ggt sér sæti í 8-
Iiða úrslitum.
Byrjunarlið íslands gegn Ind-
verjum:
Markvörður: Fjalar Þorgeirsson.
Aðrir leikmenn: Gunnlaugur
Jónsson, Bjarni Þorsteinsson,
Sverrir Sverrisson, Indriði Sig-
urðsson, Gylfi Einarsson, Þórhall-
ur Hinriksson, Olafur Orn Bjarna-
son, Sigurvin Olafsson, Try'ggvi
Guðmundsson og Guðmundur
Benediktsson. Varamennirnir Val-
ur F. Gíslason, Helgi V. Daníels-
son og Hreiðar Bjarnason komu
einnig við sögu í leiknum.