Dagur - 17.01.2001, Side 19
Samið iim ráðgjöf
í reykbindindi
Friðfinnur Hermannsson, framkvæmdastjóri Heilsustofnunar Þingeyinga og
Sigurður Guðmundsson landlæknir handsala samnlnginn. Aðrir á myndinni
eru Dagbjört Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur. Þorgrímur Þráinsson frá Tó-
baksvarnarnefnd og Ásgeir Helgason læknir.
Á dögimiun var geng-
ið frá samningi þess
efnis að Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga
inyiidi starfrækja fyr-
ir landið allt síma-
þjónustuna „Ráðgjöf
í reykbindindi - grænt
númer.“
Þetta er samningur milli Heil-
brigðisstofnunar Þingeyinga,
Landlæknisembættisins, beil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins og Tóbaksvarnarnefnd-
ar og voru fulltrúar frá þessum
aðilum mættir á Húsavík til að
undirrita samninginn.
Meðal þess sem fram kemur í
samningnum er að Tóbaksvarn-
arnefnd stendur straum af
kostnaði við þessa þjónustu, allt
að 250 þúsund krónur á mán-
uði, en frá þessari upphæð drag-
ast styrkir sem Heilbrigðisstofn-
un Þingeyinga leggur sig fram
við að afla fyrir verkefnið. Öll
stuðningsmeðferð og stuðnings-
efni eru ókeypis fyrir skjólstæð-
inga þjónustunnar. Og samning-
urinn gildir í eitt ár eða til loka
yfirstandandi árs.
Sænska módelið
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
starfrækti þessa símaþjónustu á
siðasta ári og byggði þá og bygg-
ir enn á ráðgjöf Asgeirs Helga-
sonar læknis sem unnið hefur að
skipulagningu sams konar þjón-
ustu á Norðurlöndunum, eink-
um í Svíþjóð. Þessari þjónustu
var komið á eftir að gerð var
könnun á framlagi heilsugæslu-
Iækna til reykingavarna og ráð-
gjafar, sem leiddi í ljós að slíkt
var á lágmarki. Og í framhaldinu
var þessi leið valin til að koma
þessum mikilvæga þætti í heil-
brigðisþjónustunni inn á sjúkra-
stofnanir, þ.e. að auka aðgengi
fíkla að sérfræðingum á þessum
sviðum í gegnum símaþjónustu.
Islenska módelið byggir á því
sænska og hefur Heilsugæslu-
stofnun Þingeyinga á að skipa
sjö hjúkrunarfræðingum með
sérþekkingu í tóbaksvörnum, en
auk þess tengjast þjónustunni
læknar, sálfræðingar og næring-
arfræðingar. Starfsfólk þjónust-
unnar er fært um að svara flest-
um spurningum um meðferð viö
tóbaksfíkn og hefur auk þess al-
menna þekkingu á sálfræðileg-
um og félagslegum stuðningi við
fólk sem vill hætta tóbaksnotk-
un.
400 inamis á ári
Starfsfólk „Ráðgjafar í reykbind-
indi - grænt númer" hringir í
skjólstæðinginn fjórum sinnum
með jöfnu millibili eftir fyrirfram
ákveðnu kerfi sem miðast við að-
stæður. Skjólstæðingurinn getur
sjálfur hringt eins oft og hann
hefur þörf lyrir. Miðað er við að
símaþjónustan verði opin frá 17-
19 alla virka daga.
Að sögn Dagbjartar Bjarna-
dóttur, hjúkrunarfræðings, sem
starfar við þetta verkefni, er ekki
tímabært að nefna neinar tölur
urn árangur af símaþjónustunni
á s.l. ári, þvf eiginle'gt árangurs-
mat lægi ekki fyrir. Asgeir Hclga-
son sagði að það væri viðurkennt
að engar aðferðir í tóbaksvörn-
um skiluðu meira en 40% ár-
angri eftir árið og það væri bara
plat að halda öðru fram. Hann
lagði áherslu á að símaþjónusta
af þessu tagi kæmi ekki í staðinn
fyrir námskeið eða persónuleg
viðtöl, heldur væri þarna um
ráðgjöf að ræða og fræðslu um
hvaða meðöl, aðferðir og hjálp
menn ættu kost á á þessu sviði.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir lýsti yfir ánægju með
þessa þjónustu og taldi þeim
peningum vel varið sem í þetta
færu. Hann minnti á að um 400
manns létust árlega vegna reyk-
inga eða af völdum reykinga-
tengdra sjúkdóma. „Þetta er eins
og tíu 40 manna rútur færu í
Jökulsá árlega og allir létu lífið“,
sagði landlæknir til að undir-
strika alvöru málsins. — JS
Fyrsti
Þingeying-
ur ársins
Fyrsta barnið á Sjúkrahúsi Þing-
eyinga á þessu ári fæddist 13.
janúar s.l. Þetta var hraustur og
öflugur 17 marka snáði, og
annað barn þeirra Þuríðar Þrá-
insdóttur og Guðmundar Sig-
tryggsonar, en fyrir eiga þau
soninn Alikael Arnar. Mæðgin-
unum heilsaðist vel þcgar Víkur-
blaðið Ieit til þeirra í gær og
pabbi og stóri bróðir voru stoltir
og himinlifandi með þennan
nýjasta fjölskyldumeðlim.
Það er ekki nema um þrír
mánuðir frá því Þuríður eignað-
ist fyrsta ömmubarnið þegar
Óskar elsti sonur hennar eign-
aðist sitt fyrsta barn, þannig að
Þura verður mamma og amma
nánast á sama tíma og kvaðst
bara vera mjög ánægð með það.
-JS
Guðmundur Sigtryggsson og Þuriður Þráinsdóttir með fyrsta Þingeying ársins og eldri son sinn, Mikael Arnar.
Enn lóðan
við höfnina
Lóðamál við Húsavíkurhöfn
hafa lengi verið uppspretta deil-
na og síðast þegar lóðum var þar
úthlutað var lögð Iram stjórn-
sýslukæra vegna málsins. Ein-
hver órói virðist vera í gangi þar
neðra nú (lóðarí?), því bygginga-
nefnd hefur Iagt til við bæjar-
stjórn að bús sem þar stendur
verði rifið fyrir 31. janúar á
kostnað húseiganda ef hann
verður ekki við tilmælum nefnd-
arinnar um breytingar á hús-
eigninni til viðunandi horfs og
réttindi bans til lóðarinnar jafn-
framt látin niöur l’alla.
Bygginganefnd hafði farið
fram á það við Öðinn Sigurðs-
son að hann gerði tilteknar
breytingar á húsinu eða rifi það
fyrir 31. desember s.l. A fundi
nefndarinnar 9. janúar kom
fram að ekkert hefði verið gert
til endurbóta á húsinu og þá lagt
til að gefinn yrði frestur til úr-
bóta til loka þessa mánaðar.
Víurblaðið mun fýlgjast með
framvindu þessa máls. — JS
Stuttfréttir
• Staðan í frárennslismálum á
Húsavík er sú að í dag er búið að
framkvæma allt sem hannað
hefur verið. Nauðsynlegt er að
hefja sem fyrst hönnunarvinnu
á útrásinni norðan við hafnar-
garðinn vegna fyrirhugaðra
hafnarframkvæmda.
• Fræðslunefnd Húsavíkur
fjallaði fyrir skömmu um erindi
frá Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga vegna varðveislu á
skjölum Sambandsins. Fræðslu-
nefnd fagnar þvf að skjalasafn
SIS verði varðveitt hér heima í
héraði. Og bendir jafnframt á að
rekstur héraðsskjalasafns og
Safnahúss er á vegum Héraðs-
nefndar Þingeyinga.
• Sorpsamlag Þingeyinga hefur
óskað eftir úthlutun iðnaðarlóð-
ar fyrir fy'rirhugaða sorpmóttöku
og sorpbrennslu. Lóðin þarf að
vera um 3000 m2 að stærð og
þannig staðsett að afhending á
heitu vatni til Orkuveitu Húsa-
víkur sé auðveld. Bygginganefnd
hefur lagt til að við bæjarstjórn
að Sorpsamlagi Þingeyinga verði
boðin lóðin að Hrísmóum 5.
• Bygginganefnd Húsavíkur
hefur samþykkt að fá Landvist
ehf. til að kanna möguleg svæði
í landi Húsavíkur sem nýst gætu
undir sumarhúsabyggð. Þessi
samþykkt kemur í framhaldi af
tillögu Sigurjóns Benediktsson-
ar um sumarhúsabyggð við fyrir-
hugað lón sunnan við bæinn.
• Vegagerðin og Náttúruvernd
ríkisins hafa sent bæjaryfirvöld-
um á Húsavík bréf og lýst
áhyggjum sínum af uppsetningu
auglýsingaskilta við vegi og vilja
að sveitarféiögin taki þátt í að
sporna við óæskilegri þróun í
þeim efnum.