Dagur - 17.01.2001, Qupperneq 20
20- MIDVIKUDAGVR 17. JANÚAR 2 001
^KUJ^HB^ÐIÐ
Fyrsta þorrablót ársins
Kvenfélag Húsavíkur stendur
jafnan í ársbyrjun fyrir fyrsta
þorrablóti í Þingeyjarsýslu og
hugsanlega á landinu, enda er
um þjófstart að ræða því blótið er
haldið nokkuð áður en þorri
gengur í garð. Þorrablót Kvenfé-
lagsins var haldið á Hótel Húsa-
vík s.l. laugardagskvöld og var
metaðsókn, en um 370 manns
mættu á staðinn með trog sín
troðfull af súrmeti og öðru góð-
gæti.
Og það ríkti gríðarleg stemning
á staðnum. Veislustjóri var hinn
Iandskunni húmoristi Einar Ge-
org Einarsson, bctur þekktur
sem Dengsi á heimaslóðum og
fór á firna kostum og reitti af sér
brandara og skarplegar athuga-
semdir og stundum samtímis.
Stjórnandi fjöldasöngs var lækn-
irinn Asgeir Böðvarsson, sér-
fræðingur í meltingarsjúkdómum
og þurfti ekki að hafa nokkur af-
skipti af gestum á því sviði, þrátt
fyrir að margir tækju hraustlega
til matar síns. En Asgeir hafði
þann háttinn á að láta menn ekki
éta uppstyttulaust, heldur gera
reglulega hlé á átinu til að syngja
og hefur áreiðanlega verið hollt
fyrir meltingarfærin. Eistinn Val-
mar Valjaots Iék undir fjöldasöng
af alkunnri snilld og hakkaði í sig
súrsuð hrútseistu á milli laga.
Kvenfélagskonur fluttu gaman-
bragi, sérstaklega samda fyrir
blótið af landsþekktum hagyrð-
íngum og var gerður góður róm-
ur að. Og fluttur var Ieikþáttur
eftir norðlenskan blaðamann þar
sem kvenfélagskvenfólk og ýmsir
nafntogaðir Þingeyingar voru
sproksettir nokkuð. Þáttinn flút-
tu stórleikararnir Friðfinnur Her-
mannsson og hjónin Sigurður
Hallmarsson og Herdís Birgis-
dóttir. Var þctta fyrsta hlutverk
Sigurðar eftir fálkaorðu.
Að skemmtiatriðum og áti af-
loknu dunaði dansinn og þar
Iéku Jósi hróðir og synir Dóra og
dætur Steina og Emmu sungu
við raust. Var þetta mikill fagnað-
ur sem lengi verður í minnum
hafður. JS
Þeir bíða spenntir eftir að sagt verði: Gjöriði þið svo veli
Dísa og Diddi fóru á kostum á sviðinu eins og s.i. 50 ár.
Þórunn Birna nartar í kjammann.
Þorrablótsnefndin hvetur menn tii stuðs.
Dóra, Gulli og Ármann gera harða hríð að trogunum.
Bæjarstjóri glottir en frúin gæðir sér á laufabrauði.