Dagur - 27.01.2001, Síða 16
16 - LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
Ðm^ut
Fluguveiðar að vetri (203)
Geta fiskar hugsað?
í vikunni barst
fróðleg grein
frá slyngum
veiðimanni á
vefinn flugur.is.
Þar segir Geir
Thorsteinsson
frá atviki sem
bendir sterklega
til að fiskar geti
hugsað. Hugs-
að skapandi,
dregið ályktanir
og brugðist við óorðnu og
óséðu atviki út frá því sem þeir
skynja á þeirri sömu stundu.
Fiskurinn í sögunni tók á sig
krók til að ná flugu! Sú saga
verður ekki rakin hér, en hún
bendir til vitsmunalífs sem
byggir á öðru og meiru en
þeirri einföldu tilveru sem við
kennum við fiska: Að lifa við
áreiti.
Það væri fróðlegt að heyra
sögur um slíkt. Að fiskar geti
„reiknað út“, til dæmis hvar
flugan kemur næst?
iá, var það ekki?
Og sem ég sit og skrifa þetta
með Goða kött nýkominn inn
úr kvöldmyrkrinu og búinn að
nudda sér upp við kattamatar-
skápinn til að sníkja kvöldskatt
riljast upp atvik sem ég var bú-
inn að gleyma.. Eg var í Alku,
sem er hliðará í Vatnsdalsá.
Þar rétt framan við brúna voru
fiskar, einn fremstur og stærst-
ur. Þeir höfðu verið þar í
nokkrar vikur og leiðsögumað-
urinn sagt okkur að margir
hefðu reynt en engum tekist að
sctja í. Þetta stóðst ég ekki.
Fór niður brattann og skaut
mér út á eyri til að kasta. Mjög
var ég óvanur laxveiðiskap. En
nú setti ég Blue Charm undir
og kastaði nokkur köst. Veiðifé-
laginn fór upp á brú og fylgdist
með löxunum. Ég áætlaði
lengd að þeim fremsta og
stærsta, og kastaði alla leið yfir
að steinsnös við bakkann hin-
um megin. Þar lét ég fluguna
aðeins sökkva og slá svo þvert
yfir ána. Laxinn var í henni
miðri. Þetta var svona fimm
metra ferðalag frá bakka að
miðju, þar sem laxinn lá, og
svo fór hún alveg yfir að bakk-
anum mín megin. Sem sagt: Ég
kastaði talsvert langt frá laxin-
um og lét fluguna koma á
rennsli fyrir hann. Margir
hefðu nú frekar kastað beint á
hann, en ég vissi ekki betur.
Nokkur köst.
Nokkur köst fóru svona. Fé-
laginn á brúnni sagði að ekkert
líf væri með fiskununi. Það var
eins og þeim kæmi ekki við,
þetta með fluguna. Svo ég
kastaði meira. Og þegar ég
ákvað að ég væri búinn að fá
nóg og ætlaði að gefast upp
(það myndi ég ekki gera svo
fljótt núna), kom kall frá
brúnni. „Vá maður! Hann elti
alveg yfir að bakkanum niður
undan þér!“ Heilagur kúlu-
haus! Hvað átti ég nú að gera?
Kasta sömu flugu? Ne, ja, ne..
ég vissi það ekki. Minnka?
Það segir í fræðunum, en ég
átti ekki minni Blue Charm.
Skipta um flugu? Já, ég skipti
um flugu. Og það gerði ég á 20
sekúndum. Kastaði rauðri
Franeis alveg út undir bakkann
hinum megin, rétt undir snös-
ina þar sem hún átti að fara
með straumi í fallegum bug
fyrir laxinn sem ég hafði séð
liggja í miðri ánni. Og flugan
fór út. Um leið og hún lenti og
fór í kaf var tekið í. Hann
hafði beðið við snösina!
Hugsaði hann?
Meðan ég hafði íhugað næstu
aðgerðir og skipt um flugu
halði laxinn fært sig aftur frá
bakkanum mín megin. En í
stað þess að leggjast þar
sem ég hafði séð hann, á
bóli sínu í miðri ánni,
hafði hann fært sig alveg
yfir að hinum bakkanum.
Tekið sér stöðu þar sem
llugurnar höfðu lent áður.
Og þar gómaði hann bráð-
ina eins og hann hafði
reiknað út að mögulegt
yrði. En það hafði hann
greinilega gert. Reiknað
dæmið. Skynugar skepnur
I vikunni birtist frétt
um að að rottur sem látn-
ar voru þræla og púla í
einhverjum hlaupagrind-
um allan liðlangan daginn
dreymdi það sama á nótt-
unni. Við mannfólk
könnumst við svona
vinnumartraðir á álags-
tímum. En rottur? Ætli
geti ekki verið að skyn-
lausar skepnurnar séu skynugri
en við höldum? Ég gluggaði
eitt sinn í bók umtilfinningalíf
dýra. Og þar benti höfundur á
þá merkilegu staðreynd að vís-
indamenn væru ekki mikið fyrir
að rannsaka hugarheim dýra.
„Þetta eru bara taugahnoð"
segja þeir um hinar óæðri teg-
undir, og eiga við hugbúnað-
inn. Ætli svo sé? Víst hefur
kötturinn sem nú liggur við tær
mér tilfinningar. Það hef ég
svo oft séð og útsmoginn er
hann stundum. En hvað með
fiska? Heimskir fiskar? Hafa
veiðimenn sögur af því aðfiskar
kunni að reikna, spá fyrir um
óorðna hluti, „hugsa" framfyrir
sig? Gaman væri að fá frekari
heimildir um slíkt. Sendið raf-
línu á vefinn, flugur.is, net-
fangið er flugur@flugur.is, eða
bara með venjulegum pósti á
SJH, pósthólf 79, 101 Rvík.
Vonandi meira síðar!
FLUGUR
Stelán Jón
Hafstein
skrifar
TVÆR FLIKUR
IEINNL.
HEflUR
0G
ÞURR
THERMO varmanærfötin eru í
raun tvær flíkur í einni.
Tveggja laga spunatækni flytur
rakann frá líkamanum og heldur
þér heitum og þurrum.
Notaöu Thermo nærfötin í
næsta ferðalag,
þú sérö ekki eftir þvi.
www.sportveidi.is
Sportvörugerðin
Heildsala-smásala
Mávahlíd 41, Rvík, sími 562-8383
KAST- LYKKM l TAP T HkAÐfi V OFfJ V~ FUW- l£ 4 HÆÐA Fubm þRÖNd F'IFL
RFJð- VER RMA
í ( FUGL REI-B SKAfíl
N. ÉiÉi’Éi-ÍÍ W$m ■ýWWs ; |(!| lýÉÍÉíí 1111 S'Að- LANOS
XiXXXX ÍSÍiíiíxí
PÍLUflrí Pj'PiTuP . H FMAIS FLAS
SPiL HRvrn
T LVFTI V LEIFTRf 8 Mð\ LÉLEGI FÝTUR
HR'OP- A-Ðl FÖLSK
/?EKU pii FJ OUk- ufiw FÆð- IINN.i ... HYöCcjA FRAM- Arfoi
'HLA-ÐI MáÖG
r- þRAm BLAm W* ÆXLUN- AíÍF/tutiA þ/FTTI
&ELTI ÆST mð- MQ.L SYEFH Fóðri (O /?YK
StiF-Mm ÖHUéB BÖRti KALL
k TMiT idáuR HAF A 10 YOTAR ONllO KIHO- iNftt
5KJÓLS ' ST'IA L00ð- ARA KtÆALO ER£ UTAH
tl/V6- Hl?0S5 HULfíit- mrW mahhs- flAFH
SHO61 Kfjfar 1 ödúófi
/V7JUT ýtim SÍR
»5 H-.xýáxTv:'-:;: • •:. tilTA &AT STúR F-LSKAR 'oLm
ÆVI- SKEIð HÆð TbiA
KLítta- N BF | "i HLJPÐl bitma 0FH KUFRA 'A6ÆT- LFRA fyÚF-
TR't TOK
5 SKAUTS bSTÓ'fi- U&T ÖRAP EiRl ttM
KbVkl HfLði
1111 iviÉiýÉ-ýl ' wtim karl- MfíuR í OV30A EKKl
YlTRl H£F- T'OhAK l J TOGA 61 q MÆT
Helgarkrossgáta 222
I krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til
Dags (Helgarkrossgáta
222) Strandgötu 31 600
Akureyri, eða í faxsíma
sem er 460 6171. Lausn-
arorð í krossgátu 221 var
ÞORRABLÓT og vinnings-
hafi er Helga Reinalds sem
býr á Írabakka 30 í Reykja-
vík. Hún fær senda bókina
Sögur úr týndu landi eftir
Ásgeir Jakobsson.
Ásgeir Jakobs^on
Vinningshafi fær
senda bókina
Sögur úr týndu
landi eftir Ásgeir
Jakobsson.
.vAOjfö
j yö'/9 x /iWjjwl U.yAfsXy/jf tú
fj)9& ftOjftgt:. S> ! glf&OW, 0S 0).7A‘> l,:.q2 JU’JJiJUlJJ'J gO ZOID /J/Jí/Oj/i )
T/w/J/tIbj •jjjty/ óiií/l t> í/tqíjyýl