Dagur - 23.02.2001, Blaðsíða 2
2 - FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2001
Ða^ur
FRÉTTIR
Óþægindi og
rask í Kvosinni
Fornleifauppgröfturinn í Aðalstræti er medal þeirra framkvæmda sem
unnar eru í Kvosinni.
Umíangsiniklar end-
urbætur á nokknun
götum í vor og sumar.
Kostar 230 milljónir.
Hitalagnir í götur og
gönguleiðir. Malbik
og steinlagnir.
Miklar framkvæmdir eru áform-
aðar við endurgerð gatna í mið-
borgarkvosinni í ár, eða fvrir 230
milljónir króna. Þarna er um að
ræða nyrðri hluti Aðalstrætis,
Hafnarstræti, Pósthússtræti,
Ingólfstorg og vesturhluta Aust-
urstrætis. Reiknað er með því að
framkvæmdir geti hafist jafnvel í
næsta ntánuði eða í apríl en
verklok eru áætluð í október.
Fyrir vikið má búast við að þessi
hluti Kvosarinnar verði allur
upprifinn með tilheyrandi skurð-
um og göngubrúm í sumar.
Þörf á úrbótum
Hagsmunaðaðilar virðast já-
kvæðir fyrir þessum framkvæmd-
um eins og t.d. forráðamenn
Rammagerðarinnar og Hótels
Borgar þótt þeim muni fylgja
óþægindi og tímahundnir erfið-
Ieikar. Hins vegar þykir mönnum
tími kominn á úrbætur á svæð-
inu og að það verði fært til hetri
vegar. I það minnsta er það mat
Einars L. Nielsen hjá Ramma-
gerðinni og Olafs Helgasonar hjá
Hótel Borg. Þeir bfða þó kynn-
ingarfunda hjá borginni um mál-
ið.
Á fundi miðborgarstjórnar fyr-
ir skömmu kom fram að mönn-
um þótti framkvæmdatíminn
langur. Auk þess sem viðbúið sé
að Austurstræti verði allt upprif-
ið við hátíðarhöldin 1 7. júní n.k.
Erlidar aðstæður
Sigurður Skarphéðinsson gatna-
málastjóri segir að þessum fram-
kvæmdum muni óhjákvæmilega
fylgja rask og einhver óþægindi
fyrir íbúa, fyrirtæki og viðskipta-
vini þeirra, enda séu erfiðar að-
stæður til verka á þessu svæði.
Meðal annars verður að taka til-
lit til fornminja á þessum elsta
stað borgarinnar í samvinnu við
Arbæjarsafn. Hann segir að verið
sé að móta hugmyndir um hvað
þarna verður gert sem lagðar
verða innan tíðar fyrir sam-
göngunefnd og síðan borgarráð
til samþykktar. Einnig er verið að
huga að útboðsþætti þessara
lramkvæmda.
Hita- og steiulagnir
Gatnamálastjóri segir að sam-
kvæmt þeim tillögum sem verið
er að vinna að verður haldið
áfram með svipað útlit á Aðal-
stræti og gert var með syðri hluta
þess fyrir nokkrum árum, þ.e.
malbikað. Haldið verður áfram
með granítlögnina á Ingólfstorgi
í átt að Hafnarstræti sem verður
hellulagt með innlendum stein-
lögnum. Sömuleiðis verður vest-
urhluti Austurstrætis steinlagð-
ur. I Pósthústræti eru hugmynd-
ir um að færa bílastæðin yfir göt-
una að Austurvelli. Hann segir
að fyrir vikið fáist breiðari gagn-
stétt meðfram Hótel Borg og
Apótekinu sem skapar mögu-
leika á því að vera þar með borð
og stóla. Þessar götur og göngu-
Ieiðir á svæðinu verða allar með
hitalögnum. — GRll
Kristinn H. Gunnarsson
Kristiim H.
studdur
Framkvæmdastjórn SUF (Sam-
bands ungra framsóknarmanna)
fagnar frumkvæði Kristins H.
Gunnarssonar, formanns þing-
flokks Framsóknarflokksins, í
umræðum um sjávarútvegsmál-
in. „Hugmyndir hans bera vott
um djarfhug og fordómaleysi í
að öðru leyti staðnaðri umræðu
um stjórn fiskveiða, sem er búin
að vera föst í skotgröfum allt of
lengi,“ segir í ályktun frá SUF.
Framkvæmdastjórnin tekur
heilshugar undir áherslur Krist-
ins á bagsmuni byggðanna við
úthlutun veiðiheimilda og vísar
til ályktunar síðasta sambands-
þings SUF um þessi mál.
„Til að komast út úr þeim
Iangvarandi deilum sem hafa
ríkt urn framtíð kvótakerfisins er
nauðsynlegt að allir aðilar séu
tilbúnir að ræða málið með opn-
um huga og án hræðslu við nýj-
ar hugmyndir. Við verðum að
brúa gjána sem hefur myndast
meðal þjóðarinnar í þessum
málum." — bþ
Styrkir Háskólann
Þórleifur Stefán Björnsson og Þorsteinn Gunnarsson frá Háskóianum á
Akureyri og Kristján Þór Júlíusson frá Akureyrarbæ undirrita samninginn
um styrk til HA.
Akureyrarbær styrkti Háskólann á
Akureyri um eina milljón króna á
ári á tímabilinu 2001-2002. Styrk-
urinn kemur í stað fjölda smærri
styrkja sem Akureyrarbær hefur
veitt Háskólanum á Akure\TÍ á ári
hverju. Sjóðurinn veitir styrki til
smærri verkefna á ýmsum sviðum
Háskólans á Akurcyri, samstarfs-
stofnana hans og nemendafélaga.
Samstarfsstofnanir HA er t.d.
Orkustofnun, Hafrannsóknastofn-
un, Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins og Stofnun Vilhjálms Stef-
ánssonar. Styrknum er m.a. ætlað
að styðja ráðstefnur eða meiri hátt-
ar samkomur, útgáfu- og kynning-
arstarfsemi og kynnis- og náms-
ferðir sem skipulagðar eru af skól-
anum eða einstaka deildum. Ut-
hlutun er í höndum þriggja manna
stjórnar sem skipuð er af háskóla-
ráði til tveggja ára. Styrkir verða
ekki veittir þar sem ljóst er að aðrir
sjóðir eru betur fallnir til að styrkja
viðkomandi verkefni, s.s. rann-
sóknir þar scm Rannsóknasjóður
HA er bctur fallinn til að styrkja
slík verkefni.
Sigríður Stefánsdóttir, sviðsstjóri
upplýsingasviðs Akureyrarbæjar,
sagði af þessu tilefni að á undan-
fömum árum hefði oft verið leitað
til bæjarins til styrktar atburðum
eins og ráðstefnum og kynnisferð-
um ncmenda, svo í stað þcss að
styrkja þetta á tilviljunarkcnndan
hátt hefði verið ákveðið að styrkja
HA með þessum hætli. Vonir
stæðu til að þetta styrkti ímynd há-
skólans og bæjarfélagsins.
Þorsteinn Gunnarsson, háskóla-
rektor, sagðist þakklátur fyrir þenn-
an veglega styrk sem muni nýtast
vel í starfseminni. „Það er ýmiss
kynningarstarfsemi og ráðstefnur
sem háskólinn stendur fyrir og
mjög mikilvægar fyrir starfsemi há-
skólans. Þetta er líka mikilvægt fyr-
ir Akureyrarbæ, vekur athygli á
bæjarfélaginu og dregur til sín fólk
og fjármagn þannig að hér er um
gagnkvæma hagsmuni að ræða. I
opnu húsi næsta laugardag hafa
nemendur unnið mikið starf til
kynningar skólanum og þar gefst
öllum Akureyringum sem og ná-
grönnum kostur á að skoða það
sem fram fer. Þetta opna hús mun
sýna styrk háskólans sem og Akur-
eyrarbæjar. Þessir peningar hafa
ekki verið eyrnamerktir neinu sér-
stöku,“ sagði Þorsteinn Gunnars-
son. — GG
Kosið í Ráðhúsinu
Þeir sem ekki geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu um Reykjavíkurflug-
völl og framtíðarnýtingu Vatnsmýrinnar 17. mars n.k. geta kosið utan
kjörfundar í Ráðhúsinu frá og með fimmtudeginum 8. mars n.k. Þar
verður hægt að kjósa alla virka daga frá klukkan 8.20 - 16.1 5 fram að
kjördegi. Þetta var samþykkt í borgaráði að fenginni tillögu yfirkjör-
stjórnar sem studdist við ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna
og sveitarstjórnarlög. - grh
Eftirlit með ökumönnum á Norður-
landi
Lögreglan á Norður-
landi mun frá há-
degi í dag, föstudag
til hádegis á morgun
laugardag efna til
sérstaks átaks í eftir-
liti með ástandi öku-
manna á svæðinu.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögregl-
unni er hér um sam-
hæft átak að ræða
hjá norðlenskum
lögreglumönnum og
þó athyglinni sé
fyrst og fremst beint að ökumönnunum sjálfum verður í leiðinni
kannað ástand og búnaður bifreiðanna.
RiMð selur Eiðaskóla
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra og Björn Hafþór Guðmunds-
son, bæjarstjóri Austur-Héraðs,
undirrituðu í gær á Hótel Héraði,
Egilsstöðum, afsal þar sem sveitar-
félaginu Austur-Héraði eru seldar
fasteignir Alþýðuskólans fyrrrver-
andi að Eiðum, ásamt jörðum
Eiðastóls sem eru Hóll, Hólshjá-
leiga, Eiðar, Ormsstaðir, Gröf og
Þuríðarstaðir.
Með samningi, dags. 7. maí
1999, tók sveitarfélagið Austur-
Hérað framangreindar eignir á
leigu og hafði leigusamningurinn
að geyma kauprétt á þessum eign-
um til handa sveitarfélaginu.
Akvað sveitarfélagið að nýta sér
kaupréttinn, en söluverð eignanna
var f\TÍrfram ákveðið í kaupréttar-
ákvæðinu kr. 25.000.000.- sem
greiðast með skuldabréfi til 25 ára.
- BÞ
15 sýningar á Nitoudie
Sýningum Leikfélags Húsavíkur á Nitouche er lokið. Að sögn Svavars
Jónssonar, formanns Leikfélagsins, urðu sýningar alls 1 5 og um i 500
manns sáu verkið, sem er aðsókn í þokkalegu meðallagi bjá LH.
Verkið var frumsýnt í byrjun desember og aðsókn fremur íýr fram-
an af en jókst verulega á nýju ári og þá uppselt á margar sýningar.
Svavar segir það alveg ljóst að það gangi ekki upp að ætla sér að vera
með sýningar svo skömmu fyrir jól. Það sé skynsamlegra að nota des-
ember til æfinga og frumsýna milli jóla og nýárs.
Hjá Leikfélaginu eru menn að velta fyrir sér næstu verkefnum, m.a.
hvort það sé fýsilegur koslur að æfa og setja upp einþáttung á næst-
unni. — js