Dagur - 23.02.2001, Blaðsíða 5

Dagur - 23.02.2001, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2 OOQ - 5 FRÉTTIR Hæstíréttur ómcrkti Bláhvammsdómiim Hæstiréttur tætti í sig undirréttardómtnn í Bláhvammsmáliiiu. Sjálfsvígssaga hins ákærða tortryggileg. Blóðslettur mæla gegn frásögn hins ákærða. Undirréttar- dómari hlustaði ekki á lögregluna. Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli Þórðar Braga Jónssonar og vísað málinu á ný til héraðs til frekari gagnaöflunar og nýrrar dómsuppkvaðningar. I málinu var Þórður ákærður fyrir að hafa orðið föður sínum að hana á bænum Bláhvammi nærri Húsa- vík og í undirrétti var komist að þeirri niðurstöðu að um slysa- skot hafi verið að ræða sem ban- aði föðurnum og fékk Þórður að- eins fjögurra mánaða skilorðs- bundið fangelsi. Hæstiréttur sér ýmsa agnúa á dómi undirréttar. Hæstarétti þykir hafa skort á það við með- ferð málsins í héraði að öll atriði til sönnunarmats hafi verið at- huguð sérstaldega, eins og tilefni var til. Ekki hefði verið nægilega stuðst við myndir frá vettvangi, úr því ákærði hafði spillt vett- vangi. „Skýrslur og vætti lög- reglumanna, þar sem settar voru fram rökstuddar efasemdir um að frásögn ákærða stæðist, hlutu hér einnig að vega þungt". Frekari gagna sé aflað Héraðsdómur átti að hlutast til um, áður en dómur yrði lagður á málið, að afla frekari gagna „um ýmis þau atriði, sem fram höfðu komið og gátu varpað skýrara ljósi á málið. Er hér meðal ann- ars átt við rökstutt sérfræðilegt mat á því hvort eða hvernig ætl- aðar staðsetningar ákærða við rúm hins látna geta komið heim og saman við frásögn hans um slysaskot og við skotáverka á hin- um látna. I því sambandi þyrfti að gera sérstaka athugun á því, hvort unnt sé að meta út frá blóði á líkinu og umhverfis það, hver staða höfuðs hins látna hafi verið þegar skotum var hlevpt af‘. Einnig þykir Hæstarétti rétt „að kanna til þrautar, hvort unnt sé með tæknilegum rannsóknum að fá fram frekari vísbendingar af Ijósmyndum, sem teknarvoru á vettvangi 18. mars 2000. Þá er eðlilegt að rökstuddar niðurstöð- ur skýrslu Bjarna J. Bogasonar séu metnar sérstaklega af sér- fræðingum, svo sem frekast eru föng á. Eins og atvikum máls þessa er háttað þykir óhjákvæmi- legt að gögn sem þessi og önnur, er skipt gætu máli, komi fram áður en það er til lykta leitt'1. „ÓmöguleiM lýstrar frá- sagnar“ Hæstarétti þykir vitnisburðir sér- fræðinga og lögreglumanna benda eindregið gegn því að slysaskot hafi hlaupið í höfuð föðurins í átökum vegna fyrirætl- unar sonarins um að svipta sig lífi. Þvert á móti bendi öll verksummcrki til þess að faðir- inn hafi legið í rúminu með höf- uðið á koddanum þegar skotum var hleypt af. Þetta vill Hæsti- réttur að sé kannað gaumgæfi- lega og sættir sig ekki við það mat héraðsdómsins að vitnis- burður um „ómöguleika lýstrar atburðarásar" væri ekki byggður á óhrekjanlegum staðreyndum eða reynslu. Hæstiréttur fellst á það með ákæruvaldinu „að framferði ákærða gefi ákveðnar vísbend- ingar um sekt hans“. Frásagnir hans væru tortryggilegar um, í fvrsta lagi að hann hafi ákveðið að svipta sjálfan sig lífi við rúm- stokk föður síns, í öðru lagi að faðir hans hafi gripið í hlaup riff- ilsins með þeim afleiðingum að skot hljóp í höfuð hans, í þriðja lagi að hann hafi eftir þetta slysaskot „tvívegis hlaðið riffil- inn, sem nokkurt átak þarf til, og skotið tveimur skotum í enni föður síns, nær því á sama stað, í ljóslausu herbergi jafnframt því sem hann hafi samtímis litið undan". - FÞG Hæstiréttur staðfesti að mestu dóma undirréttar. Dópdómar staðfestir Hæstiréttur hefur að mestu staðfest þunga dóma yfir þeim hinum ákærðu í stóra fíkniefna- málinu svokallaða sem áfrýjuðu. Sverrir Þór Gunnarsson fær sjö ára og sex mánuða dóm sem fyrr og Gunnlaugur Ingibergsson 4 ár og sex mánuði. Dómurinn yfir Júltusi Kristófer Eggertsssyni er þyngdur um eitt ár upp í sex ár og átta mánuði. Dómur Valgarðs Heiðars Kjartanssonar er mild- aður úr þremur árum í átján mánuði vegna misræmis í gögn- um ákæruvaldsins, en dómur Ingvars Arna Ingvarssonar þvngdur úr tveimur og hálfu í þrjú ár. Upptökudómar eru að mest öllu leyti staðfestir. 21,4. millj- ónir eru hirtar af Sverri Þór og tæpar 12 milljónir af Gunn- laugi, 8 milljónir af Júlíusi og 3,2 milljónir af Ingvari Arna. Júlíus neitaði allri sök, en með hliðsjón af framburöi annarra dómfelldra og gagna málsins þótti sannað að hann hefði verið viðriðinn málið. Hann naut þess þó í einhverju að símhleranir Iögreglu hefðu hafist áður en liðinn var sá tími sem reynslu- lausn hans skyldi vara. Alls voru það 9 sem voru ákærðir í stóra fíkniefnamálinu, en þessir 5 áfrýjuðu. - FÞG Ekkert tóbak uitdir 18 „Ekkert tóbak undir 18“ er yfir- skrift á öllugri fræðsluhcrferð sem hleyjrt var af stokkunum í gær, en þetta er átak gegn sölu á tóbaki til ungmenna undir 18 ára aldri. Markmið herferðarinn- ar er að hrýna fyrir fólki að sam- kvæmt landslögum er bannað að selja og afhenda ungmcnnum 18 ára og yngri tóbak. Að fræðslu- átakinu standa ýmsir hagsmuna- aðilar sem hafa það sameiginlega markmið að það beri að fara að lögum og að það sé engum til góðs að unglingar undir 18 ára aldri geti keypt tóbaksvörur í smásöluverslunum. Verslanir og söluturnar, sem selja tóbak, verða heimsótt af félögum í Lionshreyfingunni. Eigendum og/eða verslunarstjórum verður afhent bréf þar sem þeir eru hvattir til virkrar þátttöku í átak- inu. Með bréfinu fylgja límmiðar sem á er Ietrað „Ekkert tóbak undir 18“. Tóbaksframleiðendur og fulltrúar þeirra hérlendis ásamt SVÞ, LÍV, ÁTVR, um- hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar og Lions- hreyfingunni á lslandi hafa tekið höndum saman og standa að herferðinni. Mefhagnaður hjá Bakkavör Hagnaður hjá Bakkavör Group af reglulegri starfsemi árið 2000 var 246 milljónir króna fyrir skatta en var 183 milljónir króna árið áður og jókst því um 35% á milli ára. Þetta er lang- besta afkoma félagsins frá upp- hafi. Rekstrartekjur félagsins jukust um 59% og fóru úr 2.104 milljónum króna í 3.352 milljónir króna. Veltufé frá rek- stri jókst úr 150 milljónum króna 1999 í 375 milljönir króna á síðasta ári eða yja*- 148%. Áhrif sölu fastafjár- muna og hlutabréfa á rekstur félagsins var innan við^TffiiIljón króna á árinu 2000. Efnahagsreikningur félagsins tók verulegum breytingum á ár- inu og jukust heildareignir úr 2.808 milljónum króna í 5.290 milljónir króna. Eigið fé eykst úr 801 milljón króna í 1.255 milljónir en eiginfjárhlutfall lækkar úr 28,5% í 23,8% í lok síðasta árs. Arðsemi eiginfjár var rúm 18% á árinu 2000 og veltufjárhlutfallið var 1,10. -RÞ INNLENT Merniingarverðlaim DV Menningarverðlaun DV voru afhent við hátíð- lega athölh í gær. Þeir sem fengu verðlaun voru þessir: bókmenntaverðlaunin fékk Vigdís Grímsdóttir íyrir skáldsöguna Þögnin; tónlist- arverðlaunin fékk Raf- og tölvutónlistarhátíðin ART 2000; byggingarlistarverðlaunin fékk Elín Kjartansdóttir, Haraldur Om Jónsson og Helga Benediktsdóttir fýrir safnaðarheimili við Keflaríkurkirkju; leiklistaiverðlauiiin fékk Hallgrímur Helgason íyrir Skáldanótt; mynd- listarverðlaunin fékk Guðjón Ketilsson fyrir sýninguna Brot; k\ikmynda- verðlaunin fékk kvikmyndin 101 Reykajvík; og listhönnunarverðlaunin fékk Guðbjörg Kristín Ing\'arsdóttir fyrir skartgripahönnun. Hátæknin léttvæg í útflutningi „Utflutningur hátækniafurða er \issulega í vexti, en er samt sem áður létt- vægur í heildarútflutningi. Árið 1999 var útflutningur hátækniafurða rúm 3% útflutningsins eða tæp 1% Iandsframleiðslunnar. Það þarf því afar hraðan vöxt ef útflutningur hugbúnaðar, erfðaþekkingar o.fl. á að loka 9% viðskiptahalla (9% af landsframleiðslu) sem myndast hefur á síðustu árurn." Það er Seðlabankahagífæðingurinn Arnór Sighvatsson sem bend- ir á þetta í ársfjóröungsriti bankans vegna þess álits ýmissa að ör vöxtur ný- búskaparins geri það að verkum að mikill viðskiptahalli sé ekki áhyggjuefni hér fremur en í Bandaríkjunum. -hei Byggt verður við bókasafii Á bæjarráðs fundi á Akurc\ri í gær var tekið íyrir erindi Húsfélags verslun- armiðstöðvarinnar í Sunnuhlíð þar sem óskað er eftir viðræðum við Ak- ureyrarbæ um framtíð húsnæðisins í verslunarmiðstöðinni og hugsanleg kaup á hluta húsnæðisins - jafnvel undir starfsemi Amtsbókasafns. í bók- un bæjarráðs kemur fram að ekki eru uppi áform um að breyta þeirri ákvörðun að byggja við Amtsbókasafnið þar sem það nú er. Bæjarráð lýsir sig hins vegar reiðubúið til viðræðna við eigendur Sunnuhlíðar, en telur nauðsynlegt að fyrir Iiggi nákvæmari upplýsingar um áform þeirra. Verðlaunahafarnir i gær

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.