Dagur


Dagur - 23.02.2001, Qupperneq 14

Dagur - 23.02.2001, Qupperneq 14
14- FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2001 Oufýu- SMflAUGLYSlNGflR Atvinna - Noregur - Danmörk Aðstoðum við búferlaflutninga? Fráb'ærir atvinnumöguleikar, mun hærri laun en á íslandi og betri lífsskilyrði. Seljum ítarleg upplýsingahefti á kr. 3500,-. Pönt.s. 4916179 - www.norice.com Til leigu _______________________ Vantar þig Ibúð til leigu á stór Reykja- víkursvæðinu, í viku eða yfir helgi. Hef eina fullbúna húsgögnum og helstu þægindum á mjög góðum stað, stutt í allt. Upplýsingar í síma 464 1138 eða 898 8305 Til sölu______________________________ Herbalife - Dermajetics - Color 3 ára starfsreynsla, þekking og þjónusta. Visa, Euro og póstkröfur. Edda Sigurjónsdóttir, sjálfst dreyfingaraðili sími 861 7513 og Fax 561 7523 Litla Kaffistofan Tryggvabraut 14 Sími 461 3000 Akureyri Venjulegur heimilismatur í hádeginu virka daga ■stjörnuspá Vatnsberinn Þú verður gagn- rýndur fyrir að lýsa yfir stuðningi við eitt varafor- mannsefni. Styddu alla, bæði kellingar og kalla. Fiskarnir Þú ert fórnarlamb okurlánara. Skiptu strax um við- skiptabanka, ef einhver skárri skyldi fyrirfinnast. Hrúturinn Það er ekki nóg að standa vörð um Vatnsmýrina og vanrækja um leið heimilið. Náðu fyrst lendingu í einkalífinu. Útfararskreytingar kistuskreytingar, krossar, kransar, blómaskreytingar, Býflugan Og blómið j blómvendir, Sími 461 5444 Glerárgata 28. Akureyri Nautið Það er mikið sætaframboð á boðstólum en ekki þau sem þú sæk- ist eftir. Ráðherra- stólar liggja ekki á lausu. Tvíburarnir Þú hefur ekki beinlínis þörf fyrir að fara til fleiri sál- fræðinga, en það er alltaf fyndið að kynnast nýjum Freud-fræsara. Akureyrarbær auglýsir: 3 deiliskipulagstillögur Með vísan til greínar 6.2.3 í skipulagsreglugerð auglýsir Akureyrarbær hér með eftirtaldar deiliskipulagstillögur: 1. Deiliskipulag lóðar Menntaskólans á Akureyri Tillagan felur m.a. í sér byggingu nemendagarða austan núverandi heimavistar og fjölgun bílastæða á vesturhluta lóðarinnar. 2. Deiliskipulag hesthúsahverfisins Breiðholts Tillagan felur m.a. í sér nokkrar breytingar á lóðamörkum og aðkomu að lóðum, auk aðgerða til úrbó- ta í umhverfis- og umferðarmálum. 3. Deiliskipulag hesthúsahverfisins Hlíðarholts Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggð verði 84 ný hes- thús í hverfinu, auk reiðhallar og annarra mannvirkja í þágu reiðsports og hestamennsku. Tillöguuppdrættir ásamt greinargerðum og frekari skýringargögnum liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 6. apríl 2001, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16.00 föstudaginn 6. apríl 2001 og skal athugasem- dum skilað til Umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Skipulags- og byggingafulltrúi Akureyrarbæjar Krabbinn Það eru pólitísk átök framundan í tilfinningalífinu. Tilkynning um það barst frá stóra Birni á net- inu. Ljónið Ekki flýja af hólmi við fyrsta nei. Það er stundum hægt að tala fólk til. Meyjan Jólasveinninn kemur ekki í nótt. Hann er á fundi með sendisveinin- um sem er alltaf einmana. Vogin Hættu að reyna að breyta fólkinu í kringum þig. Mundu hverning fór fyrir lækninum Frankenstein. Sporðdrekinn Þig dreymir að þú skorir sjálfsmark í úrslitaleik HM í fótbolta þar sem fsiand tapar 0-1 fyrir Brasilíu. Þeir sem halda með Arsenal fá gjarnan martraðir. Bogamaðurinn Tyggðu harðfisk- inn gaumgæfilega og kyngdu svo varlega. Vélinda- bakflæðið liggur í leyni. tSteingeitin Eldhjarta landsins brennur þér í æðum og fróð- leiksþorstinn fer vaxandi. Brjóttu ísinn og bræddu hann svo. ■ LÍf OG LIST Blár hnöttur og leiðtogar , « 'iiv-s. „Ég er nú nýkomin úr námi erlendis frá og því hef ég nú ekki gefið mér mikinn tíma í lestur þessar fyrstu vikur ársins,“ segir Pálmi Guð- mundsson markaðssstjóri sjónvarpssviðs Norð- '———urljósa. „Reyndar las ég aftur bók Andra Snæs Magnasonar, Sagan af bláa hnettinum, sem vann íslensku bók- menntaverðlaunin í hitteðfyrra, eftir að hafa séð leikritið í Þjóðleik- húsinu. Sagan er frábær og leikritið svíkur engan. Lesendur og áhorf- endur fara ósjálfrátt inn í sögusviðið og taka þátt í ævintýrinu sem sldlur eftir sig spurningar um lífið og tilveruna og skemmtir börnum jafnt sem fullorðnum. Andri hefur alveg einstakt lag á að ná til barn- anna á uppbyggjandi hátt án þess að tala niður til þeirra. Fékk svo um daginn í hendurnar góða markaðsfræðibók sem beinir sjónum að samskiptum við viðskiptavini og fleiru í þeim dúr. Eg tek mér reynar frekar hók í hönd um viðskipti, markaðs- og fjölmiðlafræði heldur en fagurbókmenntir - ég verð að viðurkenna það. Eg ætla svo að kaupa bókina sem Asdís Halla gaf út um nýliðin jól, I hlutverki leiðtogans, en þar kallar hún til sögunnar marga góða leiðtoga úr viðsldptalífí og stjórnmálum." Steinliggja og svínrokka „Ég er nýbúinn að klára hring á flestar fslensku jólaplöturnar og hafði gaman af enda Iítið heyrt af því íslenska frá því á síðasta ári þar sem ég dvaldi í Ameríkunni allt síðasta ár. Sálin hans Jóns mín stendur alltaf fyrir sínu og Strákarnir á Borginni er líka fín afþreying og góð var sýning þeirra á Borginni. Nú skellir maður svo Buena Vista Social Club á fóninn enda skilst mér að þeir séu á leiðinni til íslands á vormánuðum og verður ekki spurning að maður kíkir á þá tónleika með betri helmingnum. Ég ætla líka að nefria hljómsveitina að norðan, 200 þúsund naglbíta, þeir steinliggja og svínrokka alltaf þegar til þeirra heyrist.“ Fylgist vel með keppinautiuiimi „Vinnu minnar vegna verð ég mikið að fylgjast með sjónvarpi, bæði því sem er á dagskrá okkar stöðva hér hjá Norðurljósum. En ekki síður er mikilvægt að fylgjast með því sem keppinautarnir eru að gera. Af einstaka þáttum þá missi ég aldrei af Friends og Villtu vinna milljón en þeir þætti eru báðir á dagskrá Stöðvar 2. Boltinn og boxið blífa síðan á Sýn og síðan eru einstaka þættir sem heilla mig bæði á Skjá einum og Sjónvarpinu. Þess á milli horfi ég síðan á Fjölvarpið, til að fylgjast meðgervihnattastöðvunum og því sem er að gerast erlendis. Almennt séð stendur íslenskt sjón- varp vel að vígi í samanburði við erlendar stöðvar og mjög spennandi tímar framundan." ■gengid Gengisskráning Seölabanka íslands 22. febrúar 2001 Dollari 86,65 87,07 86,86 Sterlp. 125,13 125,73 125,43 Kan.doll. 56,37 56,71 56,54 Dönsk kr. 10,538 10,6 10,569. isjorsk kr. 9,549 9,605 .9,577' Sænsk kr. 8,725 8,777.. . 8J51 Flnn.mark 13,2297 13,3037 13,2667 Fr. -franki 11,9917 12,0588 1-2,0252, Belg.frank 1,9499 1,9609 '1,9554 ‘Sv.franki 51,36 51,64 51,5. Höll.gyll. 35,6943 35,8941 35,7942 Þý. mark 40,2182 40,4432 40,3307 It.líra 0,04063 0,04085 0,04074 Aust.sch. 5,7164 5,7484 5,7324 Port.esc. 0,3924 0,3946 0,3935 Sp.peseti 0,4728 0,4754 0,4741 Jap.jen 0,7449 0,7493 0,7471 Irskt pund 99,8775 100,4363 100,1569 GRD 0,2309 0,2321 0,2315 XDR 111,42 112,08 111,75 EUR 78,66 79,1 78,88 IKROSSGÁTAN Lárétt: 1 bylgja 5 kúgaði 7 manneskjur 9 flökt 10 tré 12 rola 14 stefna 16 slóttug 17 algengir 18 tjara 19 tók Lóðrétt: 1 illgresi 2 rýtiná>3 ávinningur 4 látbragð 6 stárfið 8'deffjr 11 rispan ‘ 13 flytja 15 kvendýr . j Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 pass 5 túlka 7 skop 9 er 10 loðin 12 roku 14 ess 16 tær 17 úldin 18 hlý 19 rum Lóðrétt: 1 pisl 2 stoð 3 súpir 4 ske 6 argur 8 konsúl 11 notir 13 kænu 15 slý

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.