Dagur


Dagur - 23.02.2001, Qupperneq 20

Dagur - 23.02.2001, Qupperneq 20
20 - FÖSTUDAGUR 2 3. F E II R Ú A R 2001 Ð^ur Gamla Kína Unnur Guðjónsdóttir kynnir einu ferð Kínaklúbbs Unnar á þessu ári, mánudaginn 26. febrúar á Njélsgötu 33. Ferðin mun standa frá 15. maí til 5. júní næstkomandi og verður sú yfirgripsmesta af þeim 15 ferðum sem Kínaklúbburinn hefur staðið fyrir á þessar slóðir. Farið verður til Beijing, Xian, Kunming, Steinskóg- arins, Dali, Lijiang, Shanghæ og Kínamúrsins og sex sinnum verður flogið innanlands í Kína. Á kynningunni verða sýndar lit- skyggnur úr fyrri ferðum Kínaklúbbs- ins. Menningin í Kína breytist ört og Gamla Kína er óðum að hverfa. Á myndinni sem hér fylgir með má sjá hvar feðgar eru að fara með barn til að láta gefa því nafn. Drengurinn heldur á barninu en faðirinn á svíninu sem á að hafa í veisl- una. Sigrún Eldjárn meö sýningu Sigrún Eldjárn opnar sýningu í Listasafni ASf í Ásmundarsal við Freyjugötu laugardaginn 24. febrúar kl. 15.00. Þar verða sýnd bæði málverk og bókverk. Málverkin fjalla um gróðursnauða og hrjóstruga náttúru íslands, fjöll, eld- stöðvar, sanda og vötn. í þessu eyðilega landslagi eru ör- smáar mannverur á ferli sem sýna smæð mannsins gagnvart náttúrunni. Þetta eru ekki myndir frá ákveðnum stöðum á landinu en eflaust munu margir finna þar sitt fjall og sitt vatn. Bókverkin í Gryfjunni eru fremur myndlistarverk en bók- menntir. Þau eru gerð úr japönskum pappír, leðri, roði, vír og öðru tilfallandi efni. Hver bók hefur sitt eigið efni og inntak og það er aðeins til eitt eintak af hverri. Sýningin stendur frá 24. febrúar til 11. mars og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. íslenskir stólar Stólar sem rugga, stólar sem braka Vandaðir stólar, stólar úr gulli stólar á hjólum til þess, að aka. stólar með alls kornar blettum og sulli. Stólar svo hraustir, stólar svo slappir Örlitlir stólar og stólar sem passa stólar með rókókókókflöskulappir. fyrir stóra og breiða og níðþunga rassa. (Þórarínn Eldjárn) Sýningin Islenskir stólar verður opnuð í Menningarmiðstöðinnni Gerðubergi laug- ardaginn 24. feb. kl. 15.00. Á sýningunni verða sýnishorn af íslenskri stólahönnun frá upphafi síðustu aldar til dagsins í dag. Þar má sjá Ráðherrastól Guðjóns Sam- úelssonar, Apollóstól Gunnars Magnússonar og Fellistól eftir Óla Jó- hann Ásmundsson sem vakti mikla athygli í (slenska skálanum á heimssýningunni í Hannover. Auk þess eru stólar eftir Svein Kjarval, Erlu Óskars- dóttur og fleirí af helstu húsgagnahönnuðum [slands. Dean Ferrel kontra- bassaleikari leikur við oþnun. Pflfl ER KOMIN HELGI Hvað ætlar þú að gera? Einar Bárðarson. Nema Áslaug í mötuneytinu „Á föstudagskvöldið er ég gestur þáttarins í þættinum Björn og félagar á Skjá einum. Þar ætla ég að ræða víð Björn Jörund Friðbjörnsson um sjálfan mig og lagið mitt, Birtu,“ segir Einar Bárðarson markaðsstjóri og höfundur Birtu - framlags íslands í Eurovision þetta árið. „Á laugardagskvöldið verð ég veislustjóri á árshátíð Frjálsrar fjölmiðlunar sem að þessu sinni er haldin á Hótel Sögu. Eg er einn af fjölmörgum starfsmönnum þessa risastóra fvrirtækis, þegar ég tók að mér fyrir svona mánuði að stjórna árshátfðinni var ég mest hræddur um að cng- inn þekkti mig en það hefur heldur betur breyst eftir allt þetta Júró-rugl. Eina konan í fyrirtækinu sem þekkti mig með nafni fyrir keppnina var Áslaug í mötuneytinu. Sunnudag- urinn verður til sælu og reynt að slappa af eftir strangar tarnir síðustu dægrin.“ Bíó og sminkuvakt „Eg er á sminkuvakt alla helgina," segir Eva Sól- an sjónvarpsþula. „Er þá að farða fréttamenn, táknmálstúlk og aðra sem fram koma í útsend- ingum Sjónvarpsins og þessar vaktir standa frá því ldukkan tólf á hádegi og jafnvel fram til klukkan hálftíu um kvöldið. Þegar vinnu lýkur ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt og það er ofarlega á blaði hjá mér að fara í bíó, hef sett stefnuna að fara í Háskólabíó að sjá myndina Billy Elliot sem hefur verið tilefnd til tólf Bafta- verðlauna og þriggja Oskarsverðlauna. Svo má líka vel vera að ég fari niður í bæ til þess eins að heyra lifandi tónlist, því þessa dagana er ég hreint ekki spennt frrir diskótekum." Koma og kíkja á karlinn „Helgarnar eru ekkert öðruvísi hjá mér en aðrir dagar,“ segir Páll Arason frömuður og reður- gjafi á Bugi í Hörgárdal. „Um helgina tek ég á móti gestum, hingað koma á milli 300 og 400 manns á ári og kíka á karlinn og kofann. Eg hlusta mikið á útvarp um helgar, mér finnst besti útvarpsmaðurinn vera Finnbogi Her- mannsson á ísafirði en Jónas Jónasson er leið- inlegur. Hvað kemur okkur alltaf við hver er maðurinn á bak við glerið, eins og hann er að reyna að fá fram hjá viðmælendum sínum. Besta sjónvarpskonan er svo vinkona mín hún Eva María Jónsdóttir. Annars er ég von bráðar á leiðinni suður til Reykjavíkur og ætla þar að vera í svo sem vikutíma en megintilgangur ferð- arinnar er að bregða mér á aðalfund Eimskip." HVAD ER Á SEYDI? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Kawal-kvartettinn í Hafharborg Sunnudaginn 25. febrúar mun Kawal- kvartettinn halda tónleika í Hafnarborg kl. 20.00. Kvartettinn skipa þau Björn Davíð Kristjánsson, Kristrún H. Bjöms- dóttir, Petrea Oskarsdóttir og María Cederborg á þverflautu. A tónleikunum verða leikin verk eftir Kuhlau, Bozza, Berthomieu, von Koch, Chance og JeanJean. Tónleikamir eru styrktir af Menningarmálanefnd Hafnarfjarðar. AðgangsevTÍr er kr. 1200, en fvrir börn, nemendur og eldri borgara kr. 800. Slökun frá amstri dagsins Sunnudagskvöldið 25. febrúar KL 20:30 verða haldnir tónleikar í Kristskirkju við Landakot. Þar koma fram Kuran Kompaní-hópurinn, en að honum standa Sz\Tnon Kuran fiðluleikari og Hafdís Bjarnadóttir rafgítarleikari. Tón- leikunum er ætlað að vera slökun frá amstri hversdagsins án þess að vera trú- arlegs eðlis, tónlistin er undir áhrifum frá miðalda- og endurreisnartónlist. Efn- isskráin er blönduð frumsömdum verk- um, spuna og lögum eftir aðra. Asamt Szymon og Hafdísi leika þeir Grímur Helgason á klarinett, Albert Oskarsson á saxófón og söngkvartett skipaður þeim Ingiríði Olgeirsdóttur, Guðlaugu Krist- jánsdóttur, Kristjáni Helgasyni og Gesti Svavarssyni. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis. Föstudagsbræðingur Föstudagskvöldið 23. febrúar verður hinn vikulegi föstudagsbræðingur hald- inn á Geysi Kakóbar. Þar munu koma fram hljómsveitimar Lúna, Kaktus og Dögun. Þær ætla að leika Iágstemmda, flæðandi rokktónlist íyrir strönduð ung- menni. Tónleikamir heQast upp úr átta og allir 16 ára og eldri velkomnir og auðvitað er aðgangur ókeypis. Kammertónleikar í Bústaðarkirkju Camerarctica heldur tónleika í Bústaða- kirkju sunnudaginn 25. febrúar kl. 20.00 á vegum Kammermússíkklúbbs- ins. A efnisskránni eru tvö verk: Strengjakvartett nr. 9 í Es-dúr op 117 eftir Dmitri Shostakovich og Strengja- kvartett nr. 8 í e-moll op. 59.2 eftir Lud- vvig van Beethoven. I Camerarctica eru þau Hildigunnur Halldórsdóttir 1. fiðla, Sigurlaug Eðvaldsdóttir 2. fiðla, Guð- mundur Kristmundsson lágfiðla og Sig- urður Halldórsson knéfiðla. Dagur tónlistarskólanna 24. feb. Opið hús og hljóðfærakynning verður í Tónskóla Sigursveins að Hraunbergi 2 frá 13-15. Gefst þar tækifæri til að skoða og prófa flest þau hljóðfæri sem kennt er á í skólanum. Nemendur og kennarar muriu einnig kynna hljóðfærin á stuttum tónleikum kl. 13.40. Letta er skemmtilegt tækifæri f^TÍr nemendur forskólans sem eru að velja sér hljóðfæri fyrir framtíðina en einnig tilvalið fyrir þá sem vilja kynna sér hljóðfæri og hljóð- færanám. A efri hæð skólans í Café Risi verður boðið upp á góðgjörðir. Allir eru velkomnir að heimsækja skólann af þessu tilefni. Tónskóli Eddu Borg verður með þrenna nemendatónleika í Seljakirkju. Hefð- bundnir tónleikar eru kl. 11.00 og 12.00. Kl. 14. verða svo tónleikar sem bera yfirskriftina „Popptónlist“ Forskóla- deild skólans mun koma fram og leika ineð undirleik hljómsveitar. petta er tólfta starfsár Tónskóla Eddu Borg og eru nú um 200 nemendur sem stunda nám við skólann. Allir eru velkomnir. SÝNINGAR Gallerí Geysir GuiIIermo Martinez frá heimsborginni Madrid á Spáni opnar einkasýningu í Gallerí Geysi laugardaginn 24.02. kl: 16:00.-18:00. Sýningin er ljós- myndainnsetning ásamt pcrforinance (bodv art) þar sem Iistamaðurinn er hluti af sýningunni og er hægt að leigja hann út í Iistrænum tilgangi dagana: 26, 28 feb, 2,5,6,8, og 9 mars á milli kl: 10:00.-17:00. Guillermo hefur verið með sýningar á Spáni og Portugal. Sýn- ingin stendur til 11.03. Allir v elkomnir á opnun. Asgeir Lárusson í Listhúsi Ofeigs Laugardaginn 24 febrúar kl. 15.00 opn- ar Ásgeir Lárusson sýningu á verkum sinum í Listhúsi Ofeigs, Skólavörðustíg 5. Verkin á sýningunni eru öll máluð með olíulitum á MDF-plötur og nefnir Ásgeir sýninguna „Tvalitir". Auk þessara verka er á sýningunni ein ávaxtarenna til augnayndis. Samspil litanna og tilvísanir þeirra í náttúru og tungumálið hafa ver- ið meðal viðfangsefna Ásgeirs á undan- förnum sýningum en nú athugar hann samspil tveggja lita á hreinum flötum. Sýningin er opin á verslunartíma og stendur til 14. mars. Úr einkasafni Sverris í Gerðarsafni Laugardaginn 24. febrúar kl. 16:00 opn- ar í Listasafni Kópavogs Gerðarsafni sýningin Ur einkasafni Sverris Sigurðs- sonar. I þessu mcrka einkasafni eru verk eftir 68 listmenn, allt frá frumheijum ís- lenskrar málaralistar til myndlistar- manna samtímans. Að þessu sinni eru um 130 listaverk til sýnis úr einkasafn- inu, málverk, teikningar, vatnslitamvmdir og þrívið verk eftir marga fremstu mynd- listarmenn þjóðarinnar. Einstakt safn af verkum Þorvaldar Skúlasonar og fleiri myndlistarmanna af abstraktkynslóð- inni, einnig úrvalsverk eftir helstu myndhöggvara okkar. Þótt Sverris sé kominn á tíræðisaldur heldur hann ótrauður áfram að kaupa listaverk og yngsta verkið á sýningunni er frá árinu 2001. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá 11:00 - 17:00 og hún stendur til og með 31. mars. Fjórar njjar í Nýló Laugardaginn 24. febrúar kl. 16 verður opnuð sýning fjögurra listamanna í Ný- listasafninu við Vatnsstíg. I Gryfju sýnir Steingrímur Eyfjörð innsetningu undir yfirskriftinni „Breitt ástand“, ásamt 9 öðrum listamönnum. I forsal sýnir Ragna Hermannsdóttir bókverk og myndir unnar í tölvu. Á palli sýnir Finnur Amar Arnarsson innsetningu sem samanstendur af 5 ljósmyndum og vídeóverki og í SUM-sal sýnir Hulda Stefánsdóttir 7 ljósmyndaverk sem unn- in eru beint á veggi safnsins. Sýningin stendur )íir til 25. mars og er safnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 til 17. Sunnudaginn 25. febrúar verða allir listamennirnir á staðnum á milli kl. 14 og 16. Kjartan í Gallerí Fold Kjartan Guðjónsson opnar málverkasvTi- ingu í baksalnum í Gallerí Fold, Rauðar- árstíg 14-16 laugardaginn 24. febrúar kl. 15.00. Kjartan er einn úr upphaflega Septemberhópnum svokallaða sem sýndi fyrst saman 1947 í Listamanna- skálanum. Sú sýning vakti mjög mikla athvgli og hafði viðtæk áhrif á myndlist hér á landi um langt árabil. Síðasta sýning Eyðibýlanna Síðsta sjmingarhelgi sýningarinnar Eyði- býli í Ljósmyndasafni Revkjavikur Tryggvagötu 15 er nú um helgina. Um er að ræða samsýningu ljósmvmdaranna Nökkva Elíassonar og Brian Svveeney, sem samanstendur af á Qórða tug ljós- mynda, svart hvitum og litmyndum, teknum af eyðibýlum víðs vegar á Is- landi. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 10-16 og um helgar frá kl: 13-17 og stendur til 1. mars. Aðgangur ókeypis. Sýningalok í Hafnarborg Sýning Rutar Rebekku Siguijónsdóttir á málverkum í Sverrissal lýkur mánudag- inn 26. febrúar. Hennar viðfangsefni eru mannslíkaminn, línur og hreyfing eins og það birtist í dansinum. I aðalsal stendur yfir yfirlitssýning á Krísuvíkur- myndum Sveins Björnssonar. Krísuvíkin mín heitir sýningin og er haldin í sam- vinnu Hafnarborgar og Sveinssafns. Sýning Sveins Bjömssonar stendur til 5. mars. Hafnarborg er opinn frá kl. 11 - 17 alla daga nema þriðjudaga. Fávitinn í MÍR Kvikmynd byggð á fyrri hluta skáldsögu Fjodors Dostojevskí, Fávitanum verður sýnd í bíósal MÍR, Vantsstíg 10, næst- komandi sunnudag, 25. febrúar kl. 15.00. Myndin er frá árinu 1958. Leik- stjóri er ívan Pyriev sem var þekktur fyr- ir söngleikjamyndir sínar en síðustu árín

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.