Dagur - 09.03.2001, Page 5

Dagur - 09.03.2001, Page 5
FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 - S VgfUT. FRÉTTIR Hlíf endurfj árfesti 70% sjóðsins í fyrra Lífeyrissjóðurinn Hlíí gerði upp árið 2000 með 3,9% hreiimi raunávöxtuu. Öðrum sjóðum tekst ekki öll- um að ná yfir núllið. Á sama tíma og stórir lífeyris- sjóðir neyðast til að gera upp árið 2000 með raunávöxtun jafnvel neðan við núllið getur Lífeyris- sjóðurinn Hlíf sent út tilkynn- ingu um 3,9% hreina raunávöxt- un í fyrra. Mesta athygli vekur 19% raunávöxtun innlendra hlutahréfa. En margir væru lík- lega nokkuð ánægðir með 7,4% raunávöxtun á öllu verðbréfa- safni lífeyrissjóðsins, þó tap af vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamn- ingum hafi síðan minnkað það í 3,9% sem áður segir. Lífeyris- sjóðurinn Framsýn, sem er nær 15 sinnum stærri, neyddist til dæmis til að senda frá sér árs- uppgjör með raunávöxtun 0,6% í mínus núna í vikunni. Út úr sjávarútveginum „Þetta er bara val á fyrirtækjum sem eru að gera það gott,“ svar- aði Valdimar Tómasson fram- kvæmdastjóri sjóðsins, spurður hvernig honum hafi takist að ná 19% raunávöxtun á innlendum hlutabréfum í fyrra þegar mark- aðurinn virtist aðallega á niður- leið. „Almennt fórum við út úr sjávarútveginum og yfir í tækni. Það sem gaf okkur best var Is- lenski hugbúnaðarsjóðurinn." Valdimar telur virka stýringu aðalatriðið. „Við vorum mikið á vaktinni, bæði hérlendis og er- lendis. Ef við höldum að eitt- hvað fari að lækka þá förum við út og leitum að öðru sem gefur ekki bara á næstu árum heldur á næstu mánuðum. Við endurfjár- festum 70% af sjóðnum í fyrra, vegna þess að við erum alltaf að Ieita að bestu bréfunum fyrir næstu 2-3 mánuði, en ekki bara að kaupa bréf til að liggja á þeim." Valdimar segir þetta spurningu um tímasetningar á sölum og endurfjárfestingu. Og líka uppsafnaða reynslu, eftir 18 ára stjórn sjóðsins. Fljótir að hirða hagnaðinn Margir fóru líka flatt á erlenda markaðnum í fyrra, þar sem Hlíf kemur þó ágætlega út. ,/Etli það sé ekki vegna þess að við erum svo fljótir að hirða hagnað og fara í eitthvað annað. Þótt lífeyr- issjóðir séu langtíma fjárfestar þá gerir maður meira af því, þeg- ar markaðurinn er eins og í fyrra, að hlaupa út þegar hagnaðurinn var kominn í svona 5 til 10% og leita að næsta tækifæri. Höldum að eitthvað fari að lækka þá för- um við út og leitum að öðru sem gefur von um betra, ekki bara á næstu árum heldur á næstu mánuðum. Þetta er öðruvísi en aðrir vinna og skilar okkur kannski betri árangri," segir Valdimar. Tveir í plús - jirír í mrnus Heildareignir Lífeyrissjóðsins Hlífar voru um 3,3 milljarðar í lok síðasta árs, eftir rúmlega 300 milljóna hækkun á árinu. Eins og hjá flestum öðrum sjóðum var 1999 metár hjá Hlíf, með 22% raunávöxtum, sem þá var um 5% yfir meðalávöxtun lífeyrissjóð- anna, samkvæmt ársskýrslu Fjár- málaeftirlitsins. Raunar segir Valdimar Hlíf hafa verið með hæstu raunávöxtun lífeyrissjóða síðustu tíu árin. Af ársuppgjör- um fimm annarra sjóða sem hann hefur frétt af í ár væru 2 aðeins í plús en 3 í mínus. — HEI Rekstarleyfi í tiskeldis Veiðimálastjóri skrifaði í gær uppá rekstrarleyfi til Salar ls- landica hf., sem hvggst setja á Iaggirnar fiskeldi í Berufirði. Áður hafði fyrirtækið fengið starfsleyfi lrá umhverfisráð- herra. Leyfi þessi eru ýmsum skilyrðum háð og ekki framselj- anleg. Með þessa pappíra uppá vasann hyggjast forráðamenn fyrirtæksins fara í kaup á meðal annars kvíum og seyðum, en áætlanir þeirra gera ráð fyrir alls að 8.000 tonna framleiðslu á laxi á ári - sem eða á milli 30 og 40 tonn á dag. — SBS Metgróði hjá SPRON Rekstur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis gekk vel á síðasta ári og nam hagnaður fy'rir skatta 1150,2 milljónum króna, en 813,4 milljónum þegar tekið hefur verið tillit til skatta. Er það hærri fjárhæð en áður hefur þekkst hjá fyrirtækinu. Hefðhundin starfsemi gekk mjög vel og fjölgaði viðskiptavin- um mikið. Á móti kom að tals- vert gengistap var á ýmsum teg- undum markaðsverðhréfa eins og hjá fleiri fyrirtækjum á fjár- magnsmarkaði. Það sem eink- um skapar þann mikla hagnað sem áður er getið er gengishagn- aður af hlutahréfaeign í Kaup- þingi, en helmingur hlutabréfa- eignar SPRON f félaginu hefur verið færður til markaðsvirðis. Á SPRON því enn óinnleystan verulegan hagnað af þessari hlutabréfaeign. Nú er unnið hördum höndum við vinnu við mislæg gatnamót á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar. í gær unnu þessir tveir brúarsmiðir að því að taka niður mót sem búið var að setja upp en gleymst hafði að húða þau með sérstöku efni. Sannaðist þar hið fornkveðna að kapp er best með forsjá! - mynd: hilli Eftirlitskerfið verði styrkt Borgaryfirvöld telja að það þurfi að styrkja eftirlitskerfi borgarinn- ar og m.a. með verklegum fram- kvæmdum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri telur að skýrsla Borgarendurskoöunar um framkvæmdir við tengibyggingu Borgarleikshúss og Kringlu og Listasafns Reykjavíkur í Hafnar- húsinu renni stoöum undir þá skoöun. I skýrslu Borgarendur- skoðunar eru lagðar fram ýmsar tillögur til betri stjórnsýslu og ábyrgðar með vcrklegum fram- kvæmdum. I skýrslunni kemur m.a. fram að heildarkostnaður borgarsjóðs vegna tengibyggingar Borgarleik- húss og Kringlu hafi hækkað um 89% frá því sem gert hafði verið ráð fyrir, eða úr 106,5 milljónum króna í 205 milljónir. Þá hefði kostnaður vegna Hafnarhússins aukist um 28%, eða úr 580 millj- ónum króna í 740 milljónir. Borgarendurskoöun telur aö stærsta hluta frávikanna vegna tcngibyggingarinnar megi rekja til ntagnaukningar og þensluáhrifa. I skýrslunni er gagnrýnt að upplýs- ingar um kostnaðarhækkanir hafi skilað sér seint og illa til borgar- ráðs. Þá hafi ótvírætt óhagræði hlotist af því að hönnun og fram- kvæmd lutu ekki sömu stjórn. Þá hefðu boðleiðir verið llóknar og ábyrgð með kostnaði ekki verið fyllilega ljós vegna þess að Eignar- haldsfélag Kringlunnar sá um framkvæmdina. Ennfremur hefði sá flýtir sem var á framkvæmdinni komið sér illa (ýrir borgarsjóð. Um Hafnarhúsið telur Borgar- endurskoðun aö helstu ástæðuna fyrir framúrkeyrslunni þar megi rekja til þess að hönnun átti sér stað samtímis framkvæmdum. Þá hefði borgarráð ekki verið nægi- lega upplýst um árlega kostnaðar- stöðu og líklegan heildarkostnað. Auk þess hefði vfirferð og greiðsla reikninga ekki farið fram með nægilega reglubundnum hætti. - GRH HÆSTIRÉTTUR Siininn sýknaóur í Vatnsendamáli Hæstiréttur hefur sýknað Lands- símann af kröfum Þorsteins Hjaltested, en Þorsteinn krafðist þess að fellt yrði úr gildi eignar- nám á 70 hcktara spildu úr landi jarðarinnar Vatnsenda, sem fram fór árið 1947. Þorsteinn taldi að lagaheimild hefði skort til þess að eignamámið færi fram, en ef full- nægjandi lagaheimild hefði verið lýTÍr hendi bæri eigi að síður að ógilda það nú, „enda hcfði fvrir- huguð nýting þess eignarnumda ekki gengið eftir". Þorsteinn hélt því l’ram að Landssíminn hefði nú í hyggju að selja hið eignarnumda land undir íbúðabyggð í stað þess að nýta það í samræmi við eignarnámsheim- ild. Hæstiréttur taldi hins vegar að fram hefði farið skilyrðislaus eign- aryfirfærsla á landinu, sem hefði verið „tekið til notkunar í eðlilegu samræmi við tilgang eignarnáms- ins“. Þorsteinn tók við aðild máls- ins af föður sínum Magnúsi, sem lést í desember 1999. — FÞG Fauti fékk 6 mánuði Hæstiréttur hefur staðfest 6 mán- aða fangelsisdóm undirréttar yfir Sigurði Stefáni Almarssyni, en honum var gefið að sök að hafa veist að manni með þeim afleið- ingum að hann varð fyrir talsverð- um áverkum og hlaut meðal ann- ars beinbrot á kjálka og fingri. Sig- urður neitaði staðfastlega sakar- giftum, en með hliðsjón af fram- burði vitna og gögnum sem lágu fýrir þótti sannað að hann hefði valdið manninum þeim áverkum sem hann varð fyrir. Lengd fangelsisdómsins skýrist af því að um hegningarauka er að ræða vegna umferöarlagabrots í apríl í fýrra, en þess utan á Sigurð- ur langan afljrotaferil að baki. 1 þessu líkamsárásarmáli þótli sannað að Sigurður hefði í íbúð við Baldursgötu veist að manni, „slegið hann hnefahögg í andlitið, snúið upp á hendur hans og er [maðurinn] gekk niður stiga að útidyrum hússins, hrint honum niður stigann með þeim alleiðing- um að [maðurinn] hrasaði niður stigann og loks slegið [manninn] mörg hnefahögg í andlitið þar sem hann lá við útidyr". — FÞG Slapp með hassmolann Hæstirétlur hcfur dæmt smá- krimma nokkurn í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fvrir þjófnaði, en hann slapp mcð dóm f\TÍr að hafa átt tæpt eitt gramm af hassi sem fannst í bíl hans, vegna slakra vinnubragða lögregl- unnar. Maðurinn var í samræmi við játningu sakfelldur fyrir að hafa stolið samtals 183 þúsund krón- um í sex tilvikum, úr söluuppgjöri í afgreiðslu Sundlaugar Árbæjar. 1 lögregluskýrslu gekkst ákærði við að eiga hassmolann sem fannst í bíl hans, en hann dró þá játningu til baka. Engin vitni komu fram nema lögreglumenn, þótt farþegi hafi verið í bílnum, og ekki var afl- að gagna til að staðrevna hvort ákærði hefði handleikið fíkniefnið eða fá vísbcndingar um hvenær eða hvernig það gæli hafa komist á þann stað, sem það fannst. Hæstiréttur taldi sögu ákærða um að einhver annar ætti efnið ekki (jarstæðukennda. — fþg

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.