Dagur


Dagur - 09.03.2001, Qupperneq 16

Dagur - 09.03.2001, Qupperneq 16
16- FÖSTUDAGVR 9. MARS 200 1 Á hverfanda hveli í sænska skerágarðinum Laufin íToscana eftirLars Norén verðurfrumflutt í Þjóðleikhúsinu í kvöld í leik- stjóm Viðars Eggertssonar. I Toscana á Ítalíu er dalur sem nefnist Vallombrosa, en það mun þýða Skugga- dalur. I Paradísarmissi Miltons segir að laufin í Vallombrosa séu jafnmörg og sálir fordæmdra í Víti. Leikritið Laufin í Toscana eftir Lars Norén, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld, gerist þó ekki í Toscana heldur í sænska Skerjagarðinum. Þar segir frá borgaralegri stórfjölskyldu sem kemur saman á hverju sumri til þess að treysta böndin, en ýmsar blikur eru á lofti. Fjöl- skyldufaðirinn er að dauða kominn, dæt- urnar tvær standa frammi fyrir skilnaði og meiningin er að selja sumarhús Qöl- skyldunnar í Skerjagarðinum. Lars Norén er eitt afkastamesta leik- skáld Norðurlanda, hefur samið nálægt fimmtíu leikrit og nýtur bæði virðingar og vinsælda. Laufin í Toskana er íjórða leikritið eftir hann sem sýnt er hér á landi. Hin eru Seiður skugganna, Hræði- leg hamingja og Bros í djúpinu. Andi Tékovs Andi Tékovs svífur yfir vötnum í Laufun- um í Toscana, því mikið er um beinar og óbeinar tilvísanir í leikrit hans, og raunar fleiri leikritahöfunda. „Hann er alltaf að leika sér að því að líkja saman lífinu og leikhúsinu," segir Viðar. „Hann er í raun og veru að fást við spurninguna um það hvort hægt sé að leika lífið, er lífið eitthvað sem hægt er að pakka inn og setja inn í umgjörð á sviði?“ „Þarna heldur á penna maður sem er búinn að skrifa ótal verk um samskipti innan íjölskyldunnar," segir Viðar enn- fremur, „hinar sjúku myndir sem sam- skipti geta tekið á sig milli svo náinna manneskja sem myndað hafa ijölskyldu- tengsl. Þegar þarna er komið stendur Norén á ákveðnum tímamótum og ætlar sér að líta lengra í samfélaginu, skoða hvernig Ijölskyldan tengist út á við öðru hlutum." Leikritið er tímasett fáeinum árum eftir fall Berlínarmúrsins, þannig að þetta gerist á tíma mikilla umbyltinga og upplausnar bæði innan fjölskyidunnar og utan hennar. Pað er Erlingur Gíslason sem leikur íjölskyldul'ööurinn, sem er alvarlega veikur og á ekki langt eftir. Dætur hans eru þær Sonja, sem Ragnheiður Stein- dórsdóttir leikur og leikkonan Lena sem Guðrún S. Gísladóttir leikur, en bróðir þeirra er leikinn af Hjalta Rögnvalds- syni. Sigurður Skúlason leikur Friðrik, sem er læknir og eiginmaður Sonju, en Valdi- mar Örn Flygenring leikur Ólaf, leik- skáld sem hefur verið fáein ár í sambúð með Lenu. Báðir verða þeir ástfangnir af hinni fögru Klöru, sem Nanna Kristín Magnús- dóttir leikur. Klara er hins vegar ekki heil á geði, en hún er bróðurdóttir þeirra Sonju og Lenu. Atli Rafn Sigurð- arson leikur aftur á móti ungan rithöf- und, Samúel, sem telur sig vera sýktan af alnæmisveirunni, og Stefán Jónsson leikur íjölskylduvin sem hefur misst at- vinnuna. Þetta eru því heilmiklar og dramatískar ílækjur sem eiga sér stað í leikritinu. Talað í kross „Það cr gaman að því hvernig maður með svona þroskaða sýn heldur utan um þess- ar persónur þannig að þetta verði trú- verðug samskipti þrátt fyrir allar þessar tilvísanir í önnur leikrit," segir Viðar. „Skírskotanirnar mega aldrei yfirtaka verkið, þær verða að vera undiralda, og það ræður svolítið forminu á uppsetning- unni hjá okkur. Við leysum það svolítið upp, þannig að persónurnar Ieika ekki bara á sviðinu heldur leika þær út af svíð- inu og þær flæða ínn á svíðið og samein- ast áhorfendum nánast. Það er til þess að undirstrika svolítið þessa upplausn, en við reynum að halda alltaf sjóninni á þró- un persónanna." „Formið á samtölunum gefur líka þessa upplausn dálítið skemmtilega til kynna,“ segir Ragnheiður, „því fólk er oft að tala í kross á sviðinu. Það varpar ein- hver fram spurningu og síðan eru kannski sagðar fimm setningar urn allt annað efni og þá kemur svarið við spurningunni. Það er því mjög flókið að vinna þetta, þetta er eitthvað það flókn- asta sem maður hefur lent í í sambandi við textavinnu.“ „Stundum eru samtölin höfð skýrt að- skilin en stundum lýstur þeim saman,“ segir Viðar. „Þetta er mjög spennandi vinna, að reyna að halda þræðinum í þessum sam- tvinnuðu samtölum og „stilla fókusinn" rétt. Svona gerist oft í lífinu sjálfu, en það er flóknara mál aftur á móti að færa það upp á sviðið og koma því þannig fyr- ir að áhorfandinn geti fylgst með á öllum vígstöðvum," segir Ragnheiður. Á ystu nöf „Hann er líka alveg ósmeykur að leita í smiðju Tékovs,'1 bætir Viðar við. „Persón- urnar í þessu leikriti minntu mig strax þegar ég las það mjög á Mávinn, aðstæð- urnar eru úr Kirsuberjagarðinum en strúktúrinn er svipaður og í Sumargest- um eftir Gorkí. En kannski nær Lars Norén að sýna okkur þetta fólk á sama hátt og Tékov sýndi fólkið sitt sínum áhorfendum fyrir einni öld. Hjá Tékov var fólk líka, einni öld áður, á sams konar upplausnartíma. Lars Norén ýtir persón- unum svolítið lengra fram á brúnina, en það er af því að við þurfum þess kannski. Mér finnst það svo makalaust að þurfa ekki að taka Tékov-leikrit og setja það í nútímabúning heldur að eiga höfund sem getur skrifað með þessum hætti um okk- ur. Fyrir vikið verður þetta ennþá áhuga- verðara vegna þess að þetta erum við." Ástin og draiunuxinn uin ástina „Hjá Tékov dreymir fólk gjarnan um Moskvu, því finnst að lífið vrði betra ein- hvers staðar annarsstaðar - grasið er alltaf grænna hinum megin við girðing- una," segir Ragnheiður. „Þess vegna missir fólk sjónar á gild- unurn sem eru fyrir framan á augunum á þeirn. Það missir sjónar á þeim sem það raunverulega elskar. Það getur aldrei notið þess sem það hefur vegna þess að það hefur alltaf búið sér til aðra mynd af lífinu," segir Viðar. „Ég hef t.d. lúmskan grun um, að Friðrik, sem Sigurður Skúlason leikur, sé í raun og veru alls ekki ástfanginn af þessari ungu stúlku, Klöru, heldur hrífist hann af draumsýninni um ástina," segir Ragnheiður. „Hann er á miðjum aldri, og þá leita oft ýmsar spurningar á fólk um eigið líf, tilgang þess og lífsfyllingu. Sig- urður er sjálfsagt ekki sammála mér, enda hef ég oft strítt honurn á því að hann hefði betur haldið sig við hana Sonju sína. En ég ætla ekki að kvarta, því allt verður þetta Sonju til góðs, hún verður sjálfstæðari og sjálfsmynd henn- ar styrkist eftir þessi miklu straumhvörf í lífi þeirra beggja." Blóð úr sjúltri æsku „Margt er þarna líka svolítið kaldhæðnis- legt. Tveir miðaldra menn verða ást- fangnir af þessari ungu stúlku, það er eins og þeir sækist eftir því að fá að spegla sig í æsku hennar, að fá nýtt hlóð. En þetta blóð er sjúkt því hún er veik. Eins er það með Ieikkonuna sem Guðrún Gísladóttir leikur og er komin að enda- stöð í sínum ferli og þarf að finna eitt- hvað nýtt. Hún þráir að vinna með þess- um unga rithöfundi sem gæti géfið henni eitthvað nýtt og bitastætt. En hann er líka sjúkur, með sjúkt blóð. Þetta er svo- lítið kaldhæðnislegt að fólkið sem ætlar að sjúga æskuna og blóðið úr unga fólk- inu er að sjúga það úr sjúkri æsku," segir Viðar. „Já, þetta er kannski dekksti tónninn í þessu verki, að æskan skuli vera sjúk," segir Ragnheiður. „Og allir virðast óttast það að eldast. En í nútíma neysluþjóðfé- lagi þar sem allir vilja vera ungir, ríkir og frægir þá er hollt að vera minntur á, að kannski felst hamingjan bara í því að einhver skuli vilja „smíða handa manni hilluskáp". Ef einhver elskar þig og þú elskar á móti, hvað þarftu þá fleira?" „Sonja er sú eina sem að lokum nær því að koma auga á þetta," segir Viðar. „Já, en ég held að það sé samt alls ekki meðvitað hjá henni, hún streitist ekki á móti heldur tekur bara þeim breytingum, sem verða í lífi hennar," segir Ragnheiður. - gb

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.