Dagur - 09.03.2001, Síða 21

Dagur - 09.03.2001, Síða 21
Vagttr FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 - 21 Burtfarartónleikar í Salnum Á burtfarartónleikum í Salnum á morgun laugardaginn 10. mars kl. 14:00 leikur Gunnar Leó Leosson á flautu. Undirleikari hjá honum á píanó er Porsteinn Gauti Sigurðsson. Flutt verða verk eftir Hoffmeister, Reinecke, Hjálmar H. Ragnarsson, Gaubert, Ibert og Hindemith. Á burtfarartónleikum sunnudaginn 11. mars kl. 14:00 leikur Eva Þyri Hilmarsdóttir á píanó, verk eftir Bach, Beethoven, Messiaen, Albeniz og Chopin. Borg framtíöarinnar Opin borgarafundur verður fyrir ungt fólk í Tjarnarsal Ráð- húss Reykjavíkur laugardaginn 10. mars. Yfirskrift fundarins er: Borg framtíðarinnar - Vatnsmýrin og flugvöllurinn? - sjón- armið unga fólksins. Fundurinn hefst kl. 15.00. Að framsöguerindum loknum kl. 16.10 verður kaffihlé og að því loknu pallborð og umræður. Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir. Fundurinn er undirbúinn af Áhugsamtökum stúdenta um flugvallarmálið og skipulag Reykjavíkur og Félagi framhalds- skólanema í samvinnu við Reykjavíkurborg. Menntaskólinn í Þórshöfn í heimsókn Kór Menntaskólans í Þórshöfn endurgeldur heimsókn Kór MA til Færeyja fyrir tveimur árum og dvelur á Akureyri dagana 9. til 16. mars. Kórinn telur rúmlega 40 félaga og er hingað kominn meðal annar til að skemmta sér og öðrum og kynna færeyska tónlist og dans. Almenningi gefst kostur á að hlýða á og sjá sýningu kórsins mánudagskvöldið 12. mars kl. 20.30 á Gamla sal Menntaskólans og er aðgangur ókeypis. Kór MA mun einnig flytja fáein lög Færeyingum til samlætis. Áskriftarsíminn er 800-7080 TÓNLIST Tónleikar í Laugaborg Laugardaginn 10. mars rerða haldnir tónleikar í Laugarborg. Þar koma fram nemendur píanódeildar Tónlistarskól- ans á Akurevri og flytja íslenska og er- lenda samtímatónlist. Tónleikarnir hefjast kl. 14.00 og er aðgangur ókeyp- is. SÝNINfíAR Kakómuffinssleikjótrúðasýning í Deiglunni Leikfélag Akureyrar og Villausi leikhópurinn hefja sýningar á nýju barnaleikriti „Tveir misjafnlega vit- lausir" í Deiglunni, Listagili á sunnu- dag ] 1. mars og hefst sýningin kl. 15.00. Þar sem oft heyrist, að lítið sé gert fvrir börnin í bænum, ]tá fannst aðslandendum sýningarinnar Tveir misjafnlega vitlausir, alveg tilvalið að færa hluta Ieikhússins nær hjarta bæj- arins og búa til eitthvað öðruvísi og spennandi fyrir börnin. Nú verður sem sagt boðið upp á leiksýningu, kakó, muffins og sleikjó eða kakómuffins- sleikjótrúðasýningu og er allt innifalið í miðaverði sem er kr. 1000 fyrir alla. Linn heppinn áhorfandi fær óvæntan glaðning í Iok sýningarinnar. Miðasala verður eins og áður í leikhúsinu, nema sýningardaginn, þá verður hún í Deigl- unni frá kl. 13.30. Sírninn í leikhúsinu er 462-1400 og í Deiglunni 461-2609. Sem fvrr eru það trúðabræðurnir Aðal- steinn Bergdal og Skúli Gautason sent eru í hlutverkum Skralla og Lalla. Reykjavíkur aðstoðar félagsmenn við gerð einfaldra skattframtala þriðjudag- inn 20. mars, en eklú föstudaginn 9. rnars eins og áður hefur verið auglýst vinsamlegast pantið tíma á skrifstofu FEB í síma 588-2111. Laugardaginn 10. mars n.k verður haldiö annað fræðsluerindið á vegum Félags eldri borgar undir yfirskriftinni „Heilsa og hantingja": Svala Thorlacius hrl. talar um erfðamál. Sigrún Þórarinsdóltir og Sigrún lngvarsdóttir félagsráðgjafar, hjá Félagsþjónustu Reykjavfkur, ræða um algengustu erfðamál sent berast féiagsþjónustunni. Fræðslufundirnir verða haldnir í Asgarði Glæsibæ og hefjasl kl. 13.30. Allir cru velkomnir. Ferðin til Jóníu og Istanbul Grikklandsvinafélagið Hellas hyggst standa fyrir tveggja vikna ferð um grískt sögusvið á Eyjahafsströnd Litlu- Asíu í vor. Af því tilefni \'erður efnt til kynningafundar um ferðina í Norræna húsinu laugardaginn 10. mars kl. 14.00, þar scm ferðaáætlun verður skýrð ýtarlega. Einnig verður sýnt stutt myndband úm Jóníu-sv'æði. A fundin- um fer svo fram endanleg skráning í ferðina. Allir velkomnir. LANDIÐ Listasafnið á Akureyri Laugardaginn 10. mars kl. 16 verða opnaðar sýningar á verkum Kristins G. Jóhannssonar og Jónasar Viðar í Lista- safninu á Akureyri. Sýning Kiistins ber yfirskriftina „Garðljóð“ en sýning Jón- asar „Portrait of lceland“. Kristinn (f. 1936) nam mvndlist á Akureyri, í Reykjavík og Edinborg og hélt sína fyrstu málverkasýningu 1954, aðeins sautján ára að aldri. Allar götur síðan hefur Kristinn verið \irkur á sýningar- \ettvangi jafnframt þvi að hafa starfað sem skólastjóri, ritstjóri og pistlahöf- undur. Hann leitar fanga í fíngerðar Iífæðar náttúrunnar milli þess sem hann dregur upp svipmiklar myndir af mannlífinu og húsunum í bænum. Sögusýning um ofsóknir nasista á hendur biblíunemendum A morgun verður opnuð í Iiáskólanum á Akurevri sýningin „Milli andspyrnu og píslarvættis - vottar Jehóva í ofsókn- um nasista." Sýningin verður opnuð í dag kl. 16:30 í húsnæði Háskólans á 1 Hvernig | verður skóli fram tíðarinnar? Vil taka áhættu -segir Guðjón Pedersen leikhússtjóri í helgarviðtali Bragðgóðar blöndur Bíladellan í blóðinu Tíska, dómsmál, kynlíf, krossgáta, bíó, bridge og fleira Sólborg. Stutt erindi verða flutt um ástand mála á Norðurlöndum á nas- istatímanum og um mikilvægi þess að sagan falli ekki í gleymsku. Sýnd verð- ur heimildarmynd sem nefnist Stað- festa votta Jehóva í ofsóknum nasista. Þorsteinn Gunnarsson, rektor, ræðir síðan um mannréttindi og trúfrelsi og opnar sýninguna að því búnu. Boðið verður upp á léttar veitingar að dag- skrá lokinni. Sýningin stendur til 18. mars 2001 og er opin frá kl. 8 til 22 á virkum dögum og frá kl. 10 til 17 um helgar. Aðgangur er ókeypis. OG SVQ HITT... Gjugg í sveit Laugardagskvöldið 10. mars ætlar Sögufélagið Sálubót að standa fyrir sjávarréttahlaðborði, skemmtun og dansleik í Stórutjarnaskóla. Uppistað- an eru um 30 óvenjulegir og sjaldséðir fiskréttir. Yfirkokkur er Gunnar Smári Björgvinsson. A meðan á borðhaldi stendur verður boðið upp á fjölda skemmtiatriða s.s. eistneskan þjóðlaga- söng, vísnaspjall, hugleiðingar og kór- söng. Veislustjóri er Steingrímur J. Sigfússon. Hljómsveitin Folk High- lights Orchestra kemur frá Eistlandi og leikur fyrir dansi ásamt Jaan Alavere. Miðaverð er kr. 3800. Nánari uppl. í s. 464-3327. Hvað er á seyöi? Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar o.s.frv... Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbrófi eða hringdu. ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100 Útvörður upplýsinga um aiit iand. cr Askriftarsíminn er 800-7080

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.