Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Qupperneq 1
Seðlabankastjóri
Leggstgegn
álveri í Hvalfirði
Steingrímur Hermannsson,
seðlabankastjóri og fyrr-
verandi forsætisráðherra,
Ieggst gegn fyrirhuguðum ál-
versframkvæmdum í Hvalfirði.
Hann hefur lýst því yfir við odd-
vitann í Kjós að
hann sé sam-
mála athuga-
semdum hans
og heima-
manna. „Já,
þetta er út af
fyrir sig rétt. Ég tel að svona ál-
bræðsla sé miklu betur staðsett
úti á Keilisnesi. Það á ekki að
staðsetja stóriðjur inni í íjörð-
um, það er liðin tíð að mínu
mati. Þótt byggja þyrfti ein-
hverja höfn ætti tvímælalaust
frekar að ráðast í framkvæmdir
á Keilisnesi," sagði Steingrímur
í samtali við Dag-Tímann í gær-
kvöld.
En hefur
hann einhverj-
ar athuga-
semdir um
framgöngu rík-
isstjórnar og
iðnaðarráðherra í málinu?
„Nei, ég hef ekki sagt orð um
það og skipti mér ekki af slíkum
hlutum.“ BÞ
„Það á ekki að stað-
setja stóriðjur inni í
fjörðum.“
Miðgarðsmálið
18 mánaða fangelsi
Pilturinn sem sló skagfirsk-
an pilt með hafnabolta-
kylfu á dansleik í Miðgarði
í desembermánuði sl. hefur
verið dæmdur í 18 mánaða
fangelsi og til greiðslu sakar-
kostnaðar að upphæð 190 þús-
und krónur af Héraðsdómi
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki. Pilturinn segist hafa náð
í hafnaboltakylfuna til að hræða
Skagfirðinginn en þrátt fyrir
það greiddi hann honum mikið
högg með kylfunni. Hann segist
enga skýringu geta gefið á ár-
ásinni en hann var undir áhrif-
um áfengis.
Sá sem fyrir árásinni varð
hlaut alvarleg höfuðmeiðsl,
m.a. brot á hnakkabeini og
blæðingu milli heilahimna og
heilayfirborðs. Hann var fluttur
á Sjúkrahús Reykjavíkur þar
sem hann gekkst undir aðgerð.
GG
Akureyri
Kroppað í selkóp
Krummarnir á myndinni
gæddu sér á dauðum kóp á
Pollinum á Akureyri í gær.
Vakna upp spurningar hvort
um sé að ræða selkópinn sem
flatmagaði um hríð fyrir fram-
an veitingahúsið Við Pollinn í
vetrarbyrjun, en sneri svo aftur
til sjávar. Burtséð frá því er
ljóst að eitthvað annað en
óregla hefur dregið kópinn á
myndinni til dauða.
BÞ/mynd GS
Akureyri
Ekki voru margir í Hlíðarfjalli við Akureyri í gær þegar Ijósmyndari Dags-Tímans átti leið um, en vertíðin er þó
byrjuð og útlit fyrir ofankomu á næstu dögum. Börnin á myndinni biðu óþreyjufull eftir að komast í brekkurnar og
eru ekki ein um að hlakka til útrásarinnar sem skíðaiðkun fylgir. MyndGs.
Saka'má!
Heilt ár í dönsku
gæsluvarðhaldi
íslensk stúlka um
tvítugt, Valdís Ósk
Hauksdóttir, hefur nú
setið í gæsluvarð-
haldi í dönsku fang-
elsi síðan í febrúar í
fyrra, grunuð um að-
ild að stórfelldu al-
þjóðlegu fíkniefna-
máli.
Að sögn Pauls Gadagaard,
saksóknara ríkisins í
málinu, er hann nú að
leggja lokahönd á ákærima og
munu réttarhöld heijast þann
10. febrúar, n.k. „Ég treysti mér
ekki til að fara út í efnisatriði
sem stendur, en ákæruatriðin
eru ijölmörg, enda er þetta um vafasama félagsskap og
stórt mál og teygir anga sína
víða um lönd,“ sagði Gadegaard
í samtali við Dag-Tímann í gær.
Karlmaður frá Gambíu situr
einnig inni í Danmörku vegna
þessa máls, sem snýst um viða-
mikið smygl á heróíni og kóka-
íni og nær, auk fslands og Dan-
merkur, til Hollands, Þýska-
lands, Englands, Spánar, Suð-
ur-Ameríku og Bandaríkjanna.
Meintur höfuðpaur hrings-
ins er Nígeríumaður, sem enn
leikur lausum hala, enda lifir
hann, samkvæmt heimildum
Dags-Tímans, „eins og tatari,"
er á sífelldu flakki um heiminn
og hefur skamma viðdvöl á
hverjum stað.
Talið er að íslenska stúlkan
hafi þekkt höfuðpaurinn og ver-
ið í slagtogi með nánustu vin-
um hans, en hún mun ekki hafa
dvalið lengi í Danmörku áður
en hún virðist hafa lent í þess-
talið er að hún verði ákærð
bæði fyrir smygl og að hafa
fengið aðra til liðs við smygl-
hringinn.
Þegar þetta mál kom upp
voru nokkrir einstaklingar
handteknir vegna þess á ís-
landi, en þeim var íljótlega
sleppt og hefur enginn þeirra
verið ákærður. Margt bendir þó
til að ísland hafi verið hlekkur í
þessu alþjóðlega neti fíkniefna-
smyglara og mun það hafa ver-
ið þetta mál, sem sænski Inter-
pol lögregluforinginn Christer
Bannerud vísaði til í heimsókn
sinni hingað fyrr í vetur. En þá
sagði Bannerud m.a. að ísland
gæti orðið æ fýsilegri kostur
fyrir fíkniefnasmyglara og að
þess væru nú þegar dæmi að
íslendingar væru mun hærra
settir í alþjóðlegu smyglhringj-
unum en í hlutverki „burðar-
dýra“. H.H.S.
Bls. 9
V>, " '%.t N. | Framtíð \
land-
vinnsiu 11§ |
Lífið í landinu
Fjarnámið
sækir á
SÍMANÚMER
Á RITSTJÚRN ER
460 6100