Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Síða 7
|Dagux-®tmhttt Þriðjudagur 14. janúar 1997 - 7 FRETTASKYRING Auðiindin Um 19.000 tonna aflakvóti hefur skipt um kjördæmi Tæp 7% botn- fiskskvótans eða 18-19 þúsund tonn hafa skipt um kjördæmi á áratugnum, aðal- lega til Reykjavík- ur og Akureyrar frá Suðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum. Tæplega 7% botnfiskskvót- ans tilheyra nú öðrum landshlutum heldur en í upphafi þessa áratugar, eða sem svarar 18-19 þús. tonnum miðað við botnfiskskvóta yfir- standandi árs. Mestir hafa þessir kvótaflutningar verið til Reykjavíkur (eins og hjá man- fólkinu). Norðurland-eystra (Akureyri) hefur einnig aukið sinn hlut jafnt og þétt og Vest- urland líka náð í sæmilega sneið. Sunnlendingar hafa mátt horfa á eftir flestum tonnum og Austfirðingar litlu færri. Vest- firðingar hafa nú þegar misst meira en eina Guggu og Reykjanesið hálfan togara. Botnfiskkvótinn var nánast sá sami fiskveiðiárið 1990/91 eins og nú 1996/97 eða kring- um 280 þúsund tonn, þannig að hver hundraðshluti (%) hans sem einstakir staðir hafa misst eða aflað sér til viðbótar þýðir sama tonnafjölda og í upphafi áratugarins. Kvóti Akureyrar auk- ist um 43% Höfuðborgin hefur verið „feng- sælust" hvernig sem á það er litið; aukið hlut sinn um hátt í 40% úr 22.100 tonnum upp í 34.400 tonn frá upphafi áratug- arins. Kvóti Norðlendinga eystri Sjávarútvegur Tfu stærstu útgerðirnar ráða þriðjungi kvótans Haraldur Böðvars- son hf. ræður yfir 10,7% loðnukvót- ans en vægi upp- sjávarfiskakvóta eykst stöðugt í heildarmagninu Fiskveiðiheimiidir 10 stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja landsins hefur aukist um 25% á milli fiskveiðiáranna 1995/1996 og 1996/1997, eða úr 27% af heildinni í 34%. Samkvæmt úttekt í nýjasta tbl. FISKIFRÉTTA er Samherji hf. á Akureyri með 26.300 þorskígildistonn eftir kaupin á Hrönn hf. á ísafirði og er fyrir- tækið með mestar fiskveiði- heimildir allra útgerðarfyrir- tækja hérlendis, eða 5,8% af heildinni sem er 456 þúsund þorskígildistonn. Næst kemur Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi með 24.600 tonn en fyrirtækið ræður yfir 10,7% loðnukvótans en Miðnes hf. í Sandgerði sameinaðist HB á sl. ári. Vinnslustöðin hf. í Vest- mannaeyjum er næst með 16.500 tonn eftir kaupin á Meitlinum hf. í Þorlákshöfn. Síðan koma Grandi hf. með 16.200 tonn og Útgerðarfélag Akureyringa hf. með 15.800 tonn en hvorugt þessara fyrir- tækja ræður yfir umtalsverðum uppsjávarfiskakvóta, þ.e. sfld eða loðnu en það eiga hins veg- ar fyrirtæki sem þau eiga stór- an hlut í, t.d. Faxamjöl hf. í Reykjavík og Tangi hf. á Vopna- firði. Sfldarvinnslan hf. er með 12.800 tonna þorskígildiskvóta og á 7,5% hlut í loðnukvótanum og íshúsfélag Vestmannaeyja með sama magn, 12.800 tonn, en íshúsfélagið ræður yfir 10% loðnukvótans. f 8. til 10. sæti eru Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. með 11.500 tonn, Fiskiðjan- Skagfirðingur hf. með 9.700 tonna kvóta en því sameinaðist Hraðfrystihús Grundarljarðar hf. á sl. ári með tvo togara og síðast kemur nýja, ísfirska út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Básafell hf. með 9.100 þorsk- ígildistonn. Til sanns vegar má því færa að kvótinn sé stöðugt að færast á færri hendur. í upp- hafi fiskveiðiársins voru Sam- herji hf., Grandi hf. og ÚA með mesta aflamark en aðeins á 4 mánuðum hefur sá listi riðlast verulega, bæði vegna aukning- ar loðnukvóta um 70% og vegna sameiningar fyrirtækja í sjávarútvegi. GG hefur aukist um 1/6 en samt litlu minna í tonnum talið. Öll viðbótin hefur farið til Akureyr- ar og raunar meira til, enda Akureyrarkvóti aukist um 43% á þessum árum (í 28.000 tonn). Vesturland hefur aukið hlut sinn um 8% eða um 2.200 tonn sem flest hafa farið á Akranes. Norðlendingar vestri hafa aukið hlut sinn lítillega, en þar hafa þó fyrst og fremst orðið veru- legir tilflutningar milli ein- stakra staða, frá Blönduósi og Siglufirði til Sauðárkróks og Skagastrandar. Árborgarsvæðið misst 1/4.... Flest tonnin hafa verið flutt frá Suðurlandi, um 6.200 tonn eða meira en 7. hver fiskur. Nærri helmingur þeirra hefur horfið frá Vestmannaeyjum. Stokks- eyri hefur misst 3/4 af sínum kvóta, Eyrarbakki helminginn og Þorlákshöfn þúsund tonn. Árborgarsvæðið hefur þannig misst fjórðunginn af kvótanum sínum á þessum árum eða rúm 3.300 tonn. ....og Stöðfirðingar og Breiðdælingar mega varla veiða í soðið..... Þróunin hefur verið áþekk á Austurlandi þar sem 5.700 tonn hafa kvatt kjördæmið. Kvóti er allur horfinn frá Stöðvarfirði og Breiðdalsvík, eða úr 3.000 tonnum niður í 130 tonn. Um 40% af kvóta Seyðfirðinga er farinn sömu leiðina, 1/3 kvóta Fáskrúðsfirðinga og fjórðungur kvótans (2.200 t.) frá Horna- firði. Missir Vestfirðinga er einnig mikill, um 4.200 tonn frá upp- hafi áratugarins. ísfirðingar og Bolvíkingar mega að vísu veiða meira en áður. En kvótinn hef- ur hrunið á flestum öðrum stöðum í kjördæminu. Reyknesingar hafa séð á eftir um 1.600 tonnum á þessum áratug. Kópavogur hefur misst allan sinn kvóta, kvóti Sand- gerðinga hefur minnkað um fjórðung, Hafnfirðinga um 1/6 (1.900 tonn) og Grindvíkinga umtalsvert. Þar á móti hafa menn bætt verulega sinn hlut í Garðinum og Keflavík og í Vog- um mega menn nú veiða þrisv- ar sinnum meiri bolfisk en í byrjun áratugarins. Bolfiskaflamark fiskiskipa tonn: Kjördæmi: Reykjavík Vesturland Vestfirðir Nl.-vestra Nl.-eystra Austurland Suðurland Reykjanes 1990/91 22.100 26.100 38.800 22.000 49.300 34.700 41.100 44.000 1996/97 30.400 28.300 34.600 22.900 57.200 29.100 34.900 42.400 AIls 278.100 279.800

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.