Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Side 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Side 9
JDítgur-®ítithm Þriðjudagur 14. janúar 1997 - 9 Þ J Ó Ð M Á L Framtíð landvinnslu Birgir Guðmundsson skrifar Fjölmennur hádeg- isverðarfundur á Akureyri í gær ræddi grundvallar- atriði í sjávarútvegi. Það er til marks um áhuga manna á möguleikum landvinnslu í sjávarútvegi að hádegisverðarfundur um málefnið, sem haldinn var á Akureyri í gær, sprengdi utan af sér húsnæðið í sal á efstu hæð veitingahússins Fiðlarans. Flytja þurfti fundinn milli hæða, í stærri sal til að rúma þá rúm- lega 100 gesti sem mættu til að heyra hvað Guðbrandur Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Út- gerðarfélags Akureyringa, hafði um málið að segja. Framtak fundarboðenda, sem voru at- vinnumálanefnd Akureyrar, Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, Dagur-Tíminn og Rannsóknar- stofnun Háskólans á Akureyri, var greinilega tímabært. Taprekstur Rekstrarerfiðleikar í vinnslu á botnfiski í landi hafa birst landsmönnum með ýmsum hætti að undanförnu og í frétta- tímum ljósvakans og á síðum dagblaðanna hafa dæmin talað: Þingeyri, Hofsós, Ólafsfjörður. Þrátt fyrir heldur ókræsilega al- menna stöðu botnfiskvinnsl- unnar í landi og erfiðleika sem þessi grein sjávarútvegs stend- ur frammi fyrir er fram- kvæmdastjóri ÚA bjartsýnn á framtíðina á þessu sviði. í erindi sínu fór Guðbrandur yfir stöðu landvinnslunnar eins og hún er í dag og hvernig hún stendur í samanburði við aðrar greinar sjávarútvegs. Taprekst- ur er verulegur á botnfisk- vinnslu þó hann sé miklu minni í ár en í fyrra. Landfrysting hef- ur á síðustu tveimur árum heldur verið að dragast saman sem hlutfall af heildarverðmæti útflutts botnfisks á meðan hlut- deild sjófrysts fisks hefur tekið kipp. Söltun hefur verið á svip- uðu róli undanfarin ár á meðan útflutningur ísfisks hefur dreg- ist mjög verulega saman. Asíumarkaður Fram kom í máli Guðbrands að vöxtur sjófrystingar hefur hald- ist í hendur við vaxandi mark- aðssókn fyrir sjávarafurðir í As- íu og að þessi tegund vinnslu henti afar vel á Asíumarkað. Landfrystingin hins vegar sé að framleiða afurðir á hefðbundn- ari markaði í Bandaríkjunum og Evrópu, þar sem vöxturinn hafi ekki orðið með neinum hætti sambærilegur. Raunar taldi Guðbrandur það sérstakt áhyggjuefni fyrir landfrysting- una að hún skuli ekki eiga stærri hlutdeild í sókninni inn á Asíumarkað en raun ber vitni. Hagræðing er lykilorð til að fyrirtækin í landfrystingu tryggi viðunandi framlegð. Guðbrand- ur nefndi á fundinum í gær eitt og annað úr þeirri deildinni: Hagkvæmni í innkaupum og bætta nýtingu á hráefni. Hann talaði um afköstin og þörfina á Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, segist bjartsýnn á möguleika landvinnslunnar. MyntsnGs um landfræðilega markaði heldur líka hvar menn hugsa sér að staðsetja sig gagnvart hinum ýmsu markhópum. Ólík- ir hópar hafa ólíkar þarfir og breytingarnar á þörfum hinna ýmsu hópa eru orðnar hraðari en áður var. Allt kallar þetta á framhaldsvinnslu á aflanum, t.d. „bitun og brauðun" og stór- tæka og stöðuga vöruþróun, sem eykur framleiðsluverðmæt- ið. Styttri líftími afurða en áður var undirstrikar enn þörfina á sívakandi vöruþróun. Það er í þessu sem möguleikar land- vinnslunnar umfram sjófryst- ingu felast fyrst og fremst. Vöruþróunin og framhalds- vinnslan getur ekki flust út á sjó með auðveldum hætti. Menntun og mjólkin Guðbrandur minntist á það í máli sínu að menntun skipti miklu máli í þessu sambandi og að menntun í sjávarútvegi væri almennt of h'tU. Hann sagðist alltaf hafa litið öfundaraugum til mjólkuriðnaðarins sem hefði nánast eingöngu fagmenntað fólk í vinnu. Sú tilvísan ÚA framkvæmdastjórans fékk ef- laust marga til að hugsa til endalausra raða nýrra mjólkur- afurða sem berast á borð neyt- enda með sífellt minna millibili. í svari við fyrirspurn frá Tómasi Inga Olrich alþingis- manni taldi Guðbrandur það ótrúlegt að frystiskip gætu nema í undantekningartilfellum farið út í framhaldsvinnslu sem eitthvað kvæði að. Aðstæður allar og möguleikar í landi væru einfaldlega miklu betri til þess. Sölusamtök Nánari tengsl framleiðenda sjálfra við markaðinn voru Guð- brandi afar hugleikin í þessu sambandi. Það vekur athygli að á sama tíma og hann telur brýnt að koma upp vöruþróun- ardeildum hjá framleiðendum sjálfum og að framleiðendur verði í sem bestum tengslum við markaðinn, þá telur hann það síður en svo trufla eða minnka gildi stóru sölusamtak- anna. Þvert á móti telur hann hlutverk þeirra mikilvægt og svaraði m.a. spurningu Stefáns Jóns Hafsteins fundarstjóra um efnið þannig að ef samkomulag framleiðanda og sölusamtaka væri á annað borð gott, væri gildi sölusamtakanna ótvírætt. Þegar Guðbrandur dró upp framtíðarsýn sína sá hann fyrir sér að hvort tveggja gerðist samtímis að í landfrystingunni, byggðust upp stórar og afkasta- miklar einingar sem byggðu á framhaldsframleiðslu en sam- tímis yrðu til litlar og ákaflega sérhæfðar einingar sem hefðu yfir að ráða miklum sveigjan- leika. Dæmi um það síðar- nefnda er þá framleiðsla á ferskum fiskafurðum sem flutt- ar eru út með flugi. Framtíðin Framtíð landfrystingarinnar og möguleikar hennar felast því í að framleiða sérgreinda vöru, vöru sem kallar á ákveðna þekkingu, vöruþróun, vinnuafl og markaðsrannsóknir. Slík framleiðsla kæmi í staðinn fyrir einfaldari vinnslu, sem býður jafnvel upp á framhalds- eða fullvinnslu annars staðar. f því liggja einmitt takmarkanir sjó- frystingarinnar, sem margt bendir til að sé komin að endi- mörkum síns vaxtar. Blikur eru þar á lofti í markaðsmálum og trúlega lag að landvinnslan hasli sér völl við að vinna áfram sjófrystan fisk. Kjarninn í bjartsýni Guð- brands á framtíð landvinnsl- unnar virðist manni því felast í möguleikunum á framhalds- vinnslu fiskafurða. Sé skynsam- lega staðið að rekstri, fundnar leiðir til hagræðingar og rækt lögð við markaðsstarf og vöru- þróun, er fyrir hendi það svig- rúm sem þarf til þess að hægt sé að reka fiskvinnslu með hagnaði í landi. aukinni sjálfvirkni til að stórlækka hlutfall launa í fram- leiðslukostnaði, sem auðvitað þýðir þá fækkun starfsfólks. Og Guðbrandur talaði um nauðsyn þess að nýta þá fjárfestingu sem menn hafa lagt út í, svo eitthvað sé nefnt. Framleiðsluverð- mætið En það sem kannski er áhuga- verðara en aðhald og hagræð- ing er hin hliðin á málinu, hvernig framleiðsluverðmætið er hægt að auka. Þar hafði Guð- brandur ýmsu að miðla. Hann benti t.d. á mikilvægi þess að hugsa um staðsetningu á mark- aðnum. Ekki einvörðungu hin- Mikið fjölmenni var á fundinum á Fiðlaranum - og ekki bara karlar!

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.