Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Qupperneq 15
Ílagur-Œonímt
Föstudagur 14. febrúar 1997 - 27
iJLppáhaCdA átucvtpó- ag tjéniuxxpöefiti
Leikritin og útvarpssagan
Agúst Þór
Árnason
Jramkvœmdastjóri
Mannréttindaskrifstofu
íslands
Það er engin spurning að
fréttir eru númer eitt og
kannski líka tvö hjá
mér,“ segir Ágúst Þór Árna-
son, framkvæmdastjóri Mann-
réttindaskrifstofu fslands. „Og
góðir fréttaskýringarþættir. í
vikulokin á rás eitt finnst mér
t.d. mjög góður þáttur. Samfé-
lagið í nærmynd er lika oft al-
veg ágætt, en þættir Ævars
Kjartanssonar, Víðsjá, eru þó
áberandi góðir. Hugmyndin
að baki þeim þáttinn er mjög
skemmtileg og gengur alltaf
vel upp. Og það liggur við að
segja að allt sem er á rás 1 sé
einfaldlega hið besta mál. Þar
er t.d. einn þáttur sem er
hrein perla: Ég man þá tíð í
umsjón Hermanns Ragnars
Stefánssonar. Leikritin og út-
varpssagan eru líka fastir
punktar sem gott er að hafa.
Eftir að maður frelsaðist frá
þeim misskilningi að íjöl-
miðlafrelsi hafl eitthvað með
ijölda tónlistarrása að gera
þá finnur maður hvað þessi
grundvallaratriði skipta miklu
máli. Ég nenni hreinlega ekk-
ert að vera að eltast við hinar
útvarpsrásirnar.
í sjónvarpinu er sumt ís-
lenskt efni sem mér fínnst
vera gott, þótt það sé nú ekki
allt nógu skemmtilega unnið.
En heimildarmyndir á borð
við þær sem Þorfinnur
Guðnason hefur gert um mús-
ina gætu
haldið orð-
spori hvaða
sjónvarps-
stöðvar sem
er á lofti.
Tvíhöfða
sakna ég, og
það kom
berlega í ljós
af viðbrögð-
um fólks að
Örninn er
sestur hitti
greinilega
mun frekar í
mark en
aðrir þættir
þar sem
gagnrýni er
sett fram í
gamanmál-
um.
Af er-
lendu efni
eru breskir
þættir áber-
andi góðir,
ekki síst þættir á borð við ráð-
herraþættina, The Final Cut,
sem verið var að sýna nýja
seríu af núna síðustu vikurn-
ar. Ég hef horft á alla þá
þætti. Og þættir eins og Öldin
okkar frá BBC eru afbragðs
þættir."
AHUGAVERT I ICVOTD
Sjónvarpið kl. 21.15
Gettu betur
Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, hefst í Sjónvarp-
inu föstudaginn 14. febrúar að lokinni undankeppni á Rás 2. Átta
liö taka að vanda þátt f sjónvarpshluta keppninnar sem er með út-
sláttarsniði. Keppt er um Hljóðnemann, verðlaunagrip sem Ríkisút-
varpið veitir, en að auki hljóta sigurvegararnir aðra veglega vinninga.
Davíð Þór Jónsson er spyrjandi, dómari og spurningasmiður er Ragn-
heiður Erla Bjarnadóttir en dagskrárgerð annast Andrés lndriðason.
Stöð 2 kl. 20.55
Johnny Depp og Marion Brando
Marlon Brando og Johnny Depp leika aðalhlutverkin í kvikmynd-
inni Don Juan de Marco sem er á dagskrá Stöðvar 2. í öðrum
helstu hlutverkum eru Faye Dunaway, Geraldine Pailhas og Rachel
Ticotin en leikstjóri er Jeremy Leven. Bæði Brando og Depp fara á
kostum enda fær myndin þrjár stjörnur hjá Maltin. Hér segir frá sál-
fræðingi að nafni Jack Luschsinger en hann er við það að komast á
eftirlaun. Einn daginn fær hann til meðferðar mann að nafni Johnny
De Marco en sá hefur talið sér trú um að hann sé mesti glaumgosi
allra tíma, Don Juan. Johnny þessi hefur alfarið snúið baki við fortíð
sinni og gerir nánast engan greinarmun á draumi og veruleika. Mynd-
in er frá árinu 1995.
Ljósi punkt-
urinn
Eins og staða mála er
núna, þá er ljósi punkt-
urinn í íslenskum Qölmiðla-
heimi tvímælalaust Rás 1,
gufan okkar allra. Þótt
manni hafi fundist hún
skelfilega einhæf á sínum
tíma og þjakandi og þrúg-
andi að hafa úr engu öðru
að velja en endalausum
kjaftavaðlinum, sinfóníu-
gaulinu og afdalamennsk-
unni sem þar tröllreið hús-
um, þá er nú svo komið að
hún skín eins og ljós í
myrkri flatneskjunnar sem
alls staðar er orðin ráðandi
annars staðar. Á Rás 1 er þó
enn hægt að heyra fólk
spjalla saman af sæmilegu
viti, jafnvel fiytja erindi og
gera grein fyrir pælingum
sínum um allt á milli himins
og jarðar. Slíkt er hvergi
annars staðar að finna svo
orð sé á gerandi, og er þá
alvég sama hvar gripið er
niður í íjölmiðlaflórunni.
Þar heyrist líka ennþá ein-
hver önnur tónlist en bara
vinsældarpoppið, þótt það
sé svo sem ágætt til síns
brúks. Fyrir utan hina hefð-
bundnu klassík og djass
heyrast þar líka framandi
tónar úr öllum heimshorn-
um ásamt nútímatónlist og
framúrstefnu af bara þó
nokkuð fjölbreyttu tagi. Það
þýðir varla að leita að slíku
annars staðar. Ekki er raun-
ar ólíklegt að þessi ljóstýra
heyri sögunni til innan fárra
ára ef svo fer fram sem
horfir. En þeir bjartsýnustu
gera sér vitaskuld grein fyr-
ir því að mannlífið getur
ekki þrifist án þess konar
„gufuafls“ sem enn er þrátt
fyrir allt að finna á Rás 1.
SJONVARP
Ú T V A R I?
ií
SJÓNVARPIÐ
16.20 Þlngsjá.
16.45 Leiðarljós
17.30 Fréttir.
17.35 Sjónvarpskringlan.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Höfri og vinir hans (8:26) (Del-
fy and Friends). Teiknimyndaflokkur
um lítinn höfrung og vini hans sem
synda um heimsins höf og berjast
gegn mengun.
18.25 Ungur uppfinningamaður.
18.50 Fjör á fjölbraut
19.50 Veður.
20.00 Fréttir.
20.35 Happ í hendl.
20.40 Dagsljós.
21.15 Gettu betur. Að þessu sinni
eigast við lið Menntaskólans við
Hamrahlíö og Menntaskólans aö Laug-
arvatni.
22.20 Hjónaleysln (6:9) (Mr and Mrs
Smith). Bandarískur sakamálaflokkur
meö Scott Bakula og Mariu Bello í aö-
alhlutverkum.
23.05 Excalibur. Bresk ævintýramynd
frá 1981 um valdaskeið Arthúrs kon-
ungs, forboðna ást Guinevere drottn-
ingar og sir Lancelots og leit riddara
hringborðsins aö hinum heilaga
kaleik. Leikstjóri er John Boorman.
Bönnuö börnum yngri en 16 ára.
01.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
STOÐ 2
09.00 Línurnar í lag.
09.15 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Crooklyn (e). Hinn virti leik-
stjóri, Spike Lee, gerði þessa mynd
strax á eftir Malcolm X en hér er fjall-
að á grátbroslegan en hjartnæman
hátt um fjölskyldulíf í Brooklyn í New
York á áttunda áratugnum.
14.50 Sjónvarpsmarkaðurinn.
15.10 Út í loftlö.
15.35 NBA-tilþrif.
16.00 Kóngulóarmaöurinn.
16.25 Sögur úr Andabæ.
16.50 Magöalena.
17.15 Giæstar vonir.
17.40 Línurnar í lag.
18.00 Fréttlr.
18.05 íslenski listinn.
19.00 19 20.
20.00 Lois og Clark.
20.55 Don Juan de Marco.
22.35 Baráttan gegn Gotti (Getting
Gotti). Sannsöguleg mynd um baráttu
bandariskra yfirvalda, en þó fyrst og
fremst einnar konu, gegn mafíuforingj-
anum John Gotti. Diane Giacalone
ólst upp í sama hverfi í New York og
John Gotti, en þau héldu hvort sína
leiðina. Stranglega bönnuð börnum.
00.10 Crooklyn. Sjá umfjöllun að
ofan.
02.00 Dagskrárlok.
STÖÐ
STOÐ 3
08.30 Heimskaup.
18.15 Barnastund.
19.00 Borgarbragur.
19.30 Alf.
19.55 Brimrót
20.40 Murphy Brown.
21.05 Engu að tapa (Everything to
Gain). Eiginmaður Malloryar og tvö
ung börn þeirra eru myrt. Aö auki
missir hún fóstur og lífslöngun hennar
þverr. Mallory þiggur boö tengdamóð-
ur sinnar um aö dvelja á sveitasetri
hennar. Myndin er gerð eftir sam-
nefndri metsölubók Barböru Taylor
Bradford.
22.35 Reimleikar. Lítil stúlka er myrt í
almenningsgarði og lögreglan stendur
ráöþrota þar til Lisa Downey kemur til
sögunnar. Lisa sækir mjög I skúr í
garðinum og þar birtist henni kona
sem grátbænir hana um að finna gröf
dóttur sinnar, annars veröi framin fleiri
morö. Móðir Lisu kemst aö því að
þrjátiu árum áöur urðu skelfilegir at-
burðir þar sem skúrinn stendur. Mynd-
In er bönnuð börnum.
24.00 Smákrimmar (T Bone'n’Wea-
sel). Ærslafull mynd meö Gregory
Hines og Christopher Lloyd i hlutverk-
um fyrrverandi fanga sem takast á
hendur ævintýralega ferð.
01.30 Dagskrárlok Stöðvar 3.
SVÍl
©
SYN
17.00 Spítalalff (MASH).
17.30 Taumlaus tónlist.
19.00 Jörð 2 (e) (Earth II).
20.00 Tímaflakkarar (Sliders).
21.00 Melstarlnn (The Boy in Blue).
Óskarsverðlaunahafinn Nicolas Cage
leikur Ned Hanlan, kanadískan íþrótta-
mann sem var ósigrandi í kappróöri á
sínum tíma. Hanlan var einstakur af-
reksmaöur en í myndinni sjáum viö
m.a. hvernig hann einokaöi fyrrnefnda
íþróttagrein árum saman. 1986.
Bönnuð börnum.
22.35 Undirhetmar Miami (e) (Miami
Vice).
23.25 Harður flótti 2 (e) (Fast
Getaway 2). Gamansöm spennumynd
um afbrotafeðga. Sam er nýsloppinn
úr fangelsi þar sem hann hóf andlega
ræktun og er nú orðinn mjög nýaldar-
sinnaöur. En á meöan hefur Nelson
haft lifibrauð sitt af bankaránum og
efnast mikið á þann vafasama hátt.
1993. Bönnuð börnum.
00.55 Spítalalíf (e) (MASH).
01.20 Dagskrárlok.
RÁSl
09.00 Fréttir. 09.03 „Ég man þá tíð“
09.50 Morgunleikfimi 10.00 Fréttir.
10.03 Veðurfregnir. 10.15 Sagnaslóð.
11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í
nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á há-
degi. 12.20 Hádegisfréttlr. 12.45
Veðurfregnir. 12.50 Auðlind. 12.57
Dánarfregnir og auglýslngar. 13.05
Hádegistónleikar. 14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, Á Snæfellsnesi.
14.30 Miðdegistónar. 15.00 Fréttir.
15.03 fsskápur með öðrum. Þáttur
um íslenskar fjölskyldur í öllum sínum
fjölbreytileika. Fyrsti þáttur. 15.53
Dagbók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm
fjórðu. 17.00 Fréttir. 17.03 Víösjá.
18.00 Fréttlr. 18.03 Þlngmál. 18.30
Leslð fyrir þjóöina: Gerpla. 18.45 Ljóð
dagsins endurflutt frá morgni. 18.48
Dánarfregnir og auglýsingar. 19.00
Kvöldfréttir. 19.30 Augtýsingar og
veðurfregnir. 19.40 Saltfiskur meö
sultu. Blandaður þáttur fyrir börn og
annað forvitiö fólk. 20.40 Hvað segir
kirkjan? (2). 21.15 Kvöldtónar. 22.00
Fréttir. 22.10 Veöurfregnir. 22.15
Lestur Passíusálma. Frú Vigdís Finn-
bogadóttir les (17). 22.25 Norrænt. Af
músík og manneskjum á Norðurlönd-
um. Umsjón: Guöni Rúnar Agnarsson.
23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jón-
assonar. 24.00 Fréttir.