Dagur - Tíminn Akureyri - 03.05.1997, Side 2
14- Laugardagur 3. maí 1997
Jlagur-'SmTtm-t
LIFIÐ I LANDINU
Bamahomid
Kannski skiptir ekki mestu máli
hvað er gert heldur hitt að eyða
saman Ijúfum stundum með
börnunum. Hér koma samt
nokkrar tillögur .
Fimm ára og eldri
Kvikmyndasýningar fyrir börn
og unglinga halda áfram í Nor-
ræna húsinu. Á sunnudaginn
verður sýnd norska myndin „I
begynnelsen pa en historie".
Sögusviðið er í lok ílmmta ára-
tugarins. Marin er lítil stelpa
sem býr á eyju og segir frá síð-
asta sumrinu hennar heima áð-
ur en hún er send í heimavist-
arskóla. Myndin er ætluð börn-
um fimm ára og eldri og eru
allir velkomnir. Aðgangur er
ókeypis.
Anna Mjöll Ólafsdóttir syngur með
Julio Iglesias í Las Vegas í næstu
viku. Hún segir að hann sé mjög
aðlaðandi og hafi mikið vit á tón-
list. Hann hafi mikla þörf fyrir
snertingu og hafi kysst sig eftir að
þau hafi sungið saman dúett í
fyrsta skipti.
Heilsar upp á bra bra
Gönguferð að Tjörninni í
Reykjavík eða að Andapollinum
á Akureyri stendur alltaf fyrir
sínu. Fínasta líkamsrækt og
börnin hafa gaman af áð heilsa
upp á endurnar og jafnvel gefa
þeim svolítið brauð séu þær
svangar.
Sunnudagsbíltúr
Hér er eitthvað sem allir geta
gert, hvar sem er á landinu.
Eftir tilbreytingarleysið í miðri
viku lífgar það heilmikið upp á
tilveruna að stökkva upp í bfl
og bregða sér af bæ - bara eitt-
hvað út í bláinn. Ef börnin eru
treg í taumi þarf ekki annað en
að lofa að stoppa í ísbúð og þá
eru allir með!
Tölvuleikir og videó
Er einhver búinn að fá nóg af
öllum þessum „úti“ uppástung-
um? Þó vorið sé komið er allt í
lagi að vera stundum inni. Spila
t.d. tölvuleiki og horfa á video.
„Jú, og tala við börnin, það er
best,“ sagði pabbi einn þegar
barnahornið leitaði til hans
eftir hugmyndum.
Ath! Barnahornið þiggur með
þökkum ábendingar frá öllum
þeim sem eru að skipuleggja
eitthvað sniðugt og skemmtilegt
fyrir litla fólkið. Endilega sendið
okkur fax og látið okkur vita
(númer 460 6171).
að er svolítið fyndið að
sýngja með honum dúett
því að hann vill koma við
mann á meðan við erum að
syngja, halda utan um mann og
láta halda utan um sig. Það get-
ur verið ruglandi þegar maður
er að reyna að gera allt rétt en
hann var voða ánægður og
kyssti mig þegar við vorum bú-
in að syngja dúett saman í
fyrsta skiptið. Það var ágætis
merki,“ segir Anna Mjöll Olafs-
dóttir, söngkona í Bandaríkjun-
um.
Fyrir tveimur vikum var
hringt í Önnu Mjöll og hún beð-
in um að koma í áheyrn fyrir
Julio Iglesias, hjartaknúsarann
fræga, því að hann væri að leita
að ljóshærðri söngkonu í sýn-
ingu hjá sér. Hún fékk sent efni
og lærði það á einni viku, fór í
áheyrnina ásamt fjórum öðrum
og sló í gegn. Hún fékk sendan
flugmiða til Los Angeles og
flaug svo til Miami fyrir viku til
að æfa. Æfingarnar hafa farið
fram með Iglesias eins og um
alvöru sýningu væri að ræða. í
næstu viku fer svo hópurinn til
Las Vegas. Þar verða sýning-
arnar fimm að þessu sinni.
Anna Mjöll ber hjartaknús-
aranum Iglesias vel söguna,
segir að hann sé mjög fyndinn
og skrýtinn, „hoppandi og
skoppandi um allt“ og hafi mik-
ið vit á músíkinni. „Hann veit
hvað hver einasti maður er að
spila - er ekki bara að þykjast
vera einhver stjarna. Hann er
alltaf brosandi og almennilegur
og voðalega viðkunnanlegur
náungi. Hann er mjög léttur og
heillar allar konur upp úr skón-
um,“ segir hún.
Starfsmenn Iglesias eru um
30. Æfingarnar hafa verið tekn-
ar upp og verður sýnt frá þeim
á vídeóskérmum sitt hvoru
megin við sviðið í Vegas. Sýn-
ingarnar sjálfar verða á hótel-
inu Cesar’s Palace og standa í
tvær klukkustundir hverju
sinni. Nýjasta plata Iglesias
heitir Tango og mun par sýna
tangódans auk þess sem tvær
magadansmeyjar leika listir
sínar. -GHS
Jón Laxdal sýnir
Myndlistarmaðurinn Jón
Laxdal Halldórsson opnar í dag
sýningu á Café Karólínu á Ak-
ureyri.
Jón hefur einungis fengist
við svonefnt „Collage" (klippi-
myndir) og jafnan leitað fanga í
prentuðu máli, dagblöðum,
bókum og því um líku. Sýningin
á Café Karólínu er 17. einka-
sýning hans og er að mestu
handunnir dúkar. AI
Jón Laxdal Halldórsson.
Opið hús
í Bifröst
Opið hús verður í Samvinnu-
háskólanum á Bifröst í dag
frá klukkan 13 til 16. Kenn-
arar og nemendur taka á móti
gestum, leiða þá um húsakynni og
kynna starfsemina. Kaffisala verð-
úr í höndum nemendafélagsins.
Sýning verður á hugmyndum sem
bárust í samkeppni að nýju merki
skólans. Hátíðarsamkoma hefst
klukkan 16 og þar verða flutt
ávörp og tónlist.
Leiðrétting
Eins og sagt var frá í blaðinu
á fimmtudag (í grein undir
fyrirsögninni „Holtin hittast")
ætla árgangar sem fæddir eru
milli 1940-1960 og bjuggu sem
börn í Holtahverfinu að hittast í
dag. Rétt er að taka fram að
ætlunin er að hittast klukkan
21 en ekki níu um morguninn
eins og sagt var í greininni.
Fundarstaður er Iðnaðar-
mannahúsið og verða miðar
seldir við innganginn.
Vantar þig íbúðarhús?
Við byggjum ódýr
og vönduð hús
sem eru flytjanleg
í heilu lagi.
Mjög hagkvæmur kostur
því húsin halda verðgildi
sínu hvar sem þau eru staðsett á landinu.
Höfum hús til afhendingar í vor.
Yfir 20 ára reynsla í smíði flytjanlegra húsa.
■“-'V'
. f l nr1
, !*•-«» T,- |- f
,TRÉSMIÐJAN
MOGIL SF. rm
SVALBARÐSSTRÖND • 601 AKUREYRI lU
SlMI 462 1 570
Grunnmynd neðri hceðar