Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Page 1
 </61-3500 |Dagur-(Etmmtt <t61-3500 ~rc, LIFIÐ I LANDINU Þriðjudagur 27. maí 1997 - 80. og 81. árgangur - 96. tölublað Bla Grœni kjóllinn sló í gegn Pað fór ekki á milli mála hver var drottning dagsins á Hótel Borg á sunnu- daginn. Mónika Skarphéðinsdóttir, íklœdd grœnum og glœsilegum kjól, var ótvírœður sig- urvegari íflokki byrjenda í sauma- keppni Burda og Eymundsson og hún var einnig kosin saumakona ársins af gestum í sal. Fast á hœla Móniku fylgdi síðan Elín Björg Jóhannesdótt- ir sem sigraði í flokki lengra kom- inna með stíl- hreinni og klœði- legri gráröndóttri dragt. Um 200 gestir voru mættir á Hótel Borg til að fylgjast með sauma- keppninni. Tíu keppendur voru í byrjendaflokki og þar af einn strákur en í flokki lengra kom- inna kepptu níu konur. Dóm- nefndin lagði áherslu á vandað- an saumaskap og að flíkin hæfði viðkomandi en tók minna tillit til frumleika í hönnun, þar sem keppnin var auglýst sem saumakeppni en ekki hönnun- arkeppni. Gamli tíminn heillar Það var glaður og sæll sigur- vegari sem spjallaði við blaða- mann að lokinni keppni. „Mér líður vel en er samt aðeins skjálfandi," sagði Monika Skarphéðinsdóttir. Kjóllinn hennar var sá fyrsti sem kom fyrir augu dómnefndar og þá lét einn dómnefndarmaður þau Mónika Skarpéðinsdóttir var tvö- faldur sigurvegari. Hún varð hlut- skörpust í flokki byrjenda og var auk þess valin saumakona ársins af gestum i sal. Hún er því einni saumavél og tveimur flugmiðum til London ríkari. Myndir: Sæmundur Sævarsson orð falla að hér væri kominn sigurkjóllinn. Sá reyndist sann- spár því ekki ipinnkaði hrifn- ingin þegar Mónika var komin í kjólinn. „Gamli tímimr hciilar og mig hefur alltaf langað að eiga svona stóran kjól í gömlum stíl,“ sagði'V Mónika en hún hannaði kjólinn sjálf.' „Það voru > alveg þrjár vik- ur sem fóru í þró- unarvinnu," bætti hún við. Efnið sem hún not- aði í kjólinn er atlasilki og silkiflau- el sem þykja ekki auðveld efni að vinna úr, jafnvel fyrir reynd- ar saumakonur. „Ég hefði aldrei saumað úr þessum efn- um hefði ég vitað hvað það væri erfitt," sagði hún hlæjandi og upplýsti að hún hafi þurft að sauma prufuflík áður þar sem ekki sé hægt að rekja neitt upp þegar unnið er með silkiflauel. Þegar upp var staðið var hún hins vegar mjög ánægð með ár- angurinn. Og þeir voru fleiri sem voru ánægðir með kjólinn því yfirgnæfandi meirihluti gesta í sal kaus Móniku sauma- konu ársins. Mónika byrjaði fyrst að sauma í september þegar hún byrjaði í hönnun í skólan- um. Nú er áhuginn kviknaður og hana lang- ar að halda áfram og er jafnvel að hugsa um að fara til Danmerkur í skóla og læra búninga- hönnun. Réttan og rangan „Saumaskapur fyrsta klassa, einróma álit nefndar 1 ‘ var dóm- þegar framlag Elínar Bjargar Jóhann- esdóttir var til skoðunar. Og ekki spillti fyrir að fötin fóru einstaklega vel. „Ég er stressuð,“ sagði Elín eftir sigurinn og rétti fram titr- andi hendur því til sönnun- ar. Gaman þótti henni samt og var að sjálfsögðu himinlifandi með sigur- inn. „Erfið- ast var að koma fram því ég á ekki auðvelt með að vera inn- an um margt fólk.“ Elín var farin að sauma dúkkuföt strax sem stelpa en byrjaði að sauma á sjálfa sig í kring um fermingu en hún er 49 ára Elín Björg Jóhannsdóttir sigraði í flokki lengra kominna. Dragtin hennar þótti afburðarvel saumuð og hæfa vel manneskjunni sem hún klæddi. gömul. En hvað skyldi þessi snjalla saumakona helst hafa í huga þegar hún saumar? „Að flíkin fari vel og sé vel frágeng- in. Ég legg mikla áherslu á að hún sé jafnfalleg á röngunni og réttunni." Hugmyndina að sigurdragt- inni fékk Elín úr saumablaði en breytti sniðinu til að það hæfði henni. „Ég bjó til grunnsnið á sjálfa mig og útfærði það síðan eftir hugmyndinni í blaðinu." Einnig voru veitt verðlaun fyrir annað og þriðja sæti í hverjum flokki. í byrjendaflokki hreppti Arna Gunnarsdóttir annað sæti með ljólubláan jakka, sem hún bæði saumaði og hannaði og bjó meira að segja til efnið sjálf að hluta til. í þriðja sæti var Elín Jóhannes- dóttir með samsettan kjól úr brúnu pólyester og rósóttu silki. Þess má til gamans geta að stúlkurnar í þremur efstu sæt- unum hafa allar numið hönnun hjá Báru Kjartansdóttur í Fjöl- braut í Breiðholti. í flokki lengra kominna voru það mæðgur úr Skagafirði sem lentu í öðru og þriðja sæti. Dótt- irin, Anna Þórunn Egonsdóttir varð örlítið hlutskarpari með brúna buxnadragt en móðirin, Margrét Kristjánsdóttir, fylgdi henni fast á eftir og hreppti þriðja sætið fyrir tvískiptan rós- óttan kjól með stórum hvítum kraga. AI

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.