Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Blaðsíða 9
þriðjudagur 27. maí 1997 - 21 ÆfirmeðJóniAmaii HSK met Vigdís Guðjónsdóttir spjót- kastari úr Ungmennafélagi Skeiðamanna bætti HSK metið í spjótkasti kvenna verulega um helgina. Hún kastaði 53,44 metra á svæðismóti háskólanna á austurströnd Bandaríkjanna um helgina, hún átti gamla metið sem var 51,96 metri. Vigdís sigraði á mótinu og þessi árangur gefur henni rétt til þátttöku á Evrópumeistaramóti 20-22 ára sem fram fer í Aþenu í sumar. Óli og Jón Arnar Ólafur Guðmundsson tug- þrautarmaður úr Ungmenna- félagi Selfoss hefur verið við æfingar og keppni í Bandaríkjunum síðustu vikurnar. Hann hefur æft að kappi með frænda sínum Jóni Arnari Magnússyni og Gísla Sigurðssyni þjálfara. Ólafur keppti á dögunum í tugþraut og náði góðum árangri og var alveg við sinn besta árangur. Ilann hlaut 7348 stig sem verður að teljast mjög gott. |Dagur-®mróm 1997 4. Landsmót 1940 í Haukadal Landsmót UMFÍ voru endurvakin með þessu móti í Haukadal. Sigurður Greipsson átti heiðurinn af þeirri endurreisn, sem reyndist afgerandi fyrir eflingu og viðgang ung- mennafélagshreyfingarinnar Sigurður hafði einnig mesta veg og vanda af undirbúningi mótsins og hann stjórnaði því. Mótið var haldið dagana 22. og 23. júní og sóttu það á annað þúsund gestir. Keppendur voru 73 frá fimm sambandsaðilum: UMSB, USD, HSK, HSH og UMSK. Keppt var í sjö frjálsíþróttagreinum. karla, í glímu, í sundi karla og einnig í 50 metra sundi kvenna, og var það í fyrsta sinn sem stúlkur kepptu á landsmóti. Þá voru fimleikar- og glímusýningar. UMSK vann stigakeppnina með 27 stigum, en stigahæsti íþróttamaðurinn var 18 ára piltur úr UMSK, Axel Jónsson, síður alþingismaður. Með þessu móti var lagður grund- völlurinn að framtíðar- skipulagi landsmótanna, sem haldin skyldu þriðja hvert ár í hinum ýmsu landsíjórðungum á víxl. Framkvæmdum vegna Landsmóts að ljúka 3. Landsmót 1914 í Reykjavík Petta leikmót UMFÍ var haldið dagana 12.-14. júní. Þetta ár voru mikil vorharðindi og olli það m.a. því að aðeins einn utanbæjarmaður var meðal þátttakenda. Þessi eini stóð sig hins vegar afburða vel, sigraði í tveim greinum og var annar í þeirri þriðju. Það var Skúli Ágústsson frá Birtingarholti. Keppt var í 15 frjálsíþróttagreinum, reipitogi, glímu og knatt- spyrnu. Fimleikar voru sýndir, en ekki fékkst næg þátttaka í sundi. Guðmundur Kr. Guðmunds- son, UMFR sigraði í sex frjálsíþróttagreinum og varð annar í tveimur, auk þess varð hann nr. 2 í glímu á eftir Sigurjóni Péturssyni. Árangur í einstökum frjálsíþróttagreinum verður að teljast góður. Ung- mennafélag Reykjavíkur hlaut flest verðlaun eða 44 talsins. verkþætti að ljúka seinni part júní. Að sögn Sigurðar Páls Harðarsonar bæjarverkfræð- ings, sem borið hefur hitann og þungann af skipulagningunni, verður laugin tilbúin í tæka tíð fyrir Landsmót. Skólar flölmenna íþróttamiðstöð íslands hefur nú haílð starfsemi sína. Fyrstu hópar þessa sumars eru skólar sem koma í dagsferðir eða lengri ferðir á Laugarvatn. Þessir hópar fara í ratleik undir stjórn íþróttakennara, fara á báta og kajaka á vatninu, taka sundsprett í sundlauginni og grilla undir berum himni. Þessar ferðir hafa notið mikilla vinsælda og komast færri að en vilja, áætlað er að um 1000 nemendur heimsæki íþróttamiðstöðina á tíu daga tímabili nú í lok maí. Dagsferðirnar standa hópum áfram til boða í sumar en undanfarin sumur hafa þær meðal annars verið vinsælar hjá vinnuskólum á suður- og vesturlandi. Sömu sögu er að segja af Litla íþróttaskólanum, þar eru öll námskeið að fyllast en hægt er að koma örfáum að til viðbótar. Eins og greint hefur verið frá áður er í byggingu útisundlaug í Borgarnesi. Sundlaugin verður hin glæsilegasta með þremur vatnsrennibrautum tveimur heitum pottum og- iðulaug. Fjöldi iðnaðarmanna nótt við dag til að mannvirkið verði tilbúið í tíma. Nokkrar tafir urðu á byggingunni vegna áhagstæðra veðurskilyrða í vetur en nú er vinna við sundlaugina í fullum gangi. Laugarkarið sem er innflutt stálkar, það kemur frá Ítalíu kom til landsins nú fyrir stuttu og byrjað er að setja það saman en vatnsrennibrautir koma frá Hollandi. Uppsteypa, sem Loftorka annast, er að mestu lokið og samkvæmt útboði á vinnu við alla Tæp vika í Smáþjóðaleika Erlendir íþróttamenn, þjálfarar og blaðamenn fara nú að koma til landsins vegna Smáþjóðaleikanna en þeir heíjast mánudaginn 2. júní næstkomándi. Mikill undirbúningur hefur verið í gangi vegna leikanna en nú er aðaltörnin framundan. Um 500 manns munu vinna sjálfboðavinnu vegna leikanna sem verða þeir íjölmennustu sem haldnir hafa verið. Talið er að um 80 fréttamenn muni komi til landsins til að miðla fréttum af leikunum til síns heimalands. Kyndillinn aftur til Reykjavíkur Eins og greint hefur verið frá hér í Degi/Tímanum hefur staðið yflr kyndilhlaup um landið. Lagt var af stað frá Reykjavík þann 1. maí en í lok þessarar viku mun kyndillinn koma aftur til Reykjavíkur þann 2. júní næstkomandi. Samkvæmt heimildum Brynhildar Barðadóttur munu um 2000 manns hafa hlaupið með eldinn sem síðan mun loga meðan á Smáþjóðaleikunum stendur. Umsjón Jóhann Ingi Árnason s: 568-2929

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.