Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Blaðsíða 2
Frá Akureyri
essa daga voru skráð 162 mál í
dagbók lögreglunnar. Mesti erillinn
var um helgina eins og oftast er
og var laugardagskvöldið og aðfaranótt
sunnudags nokkuð annasamur tími hjá
lögreglumönnum og þá oftast vegna af-
skipta af ölvuðu fólki.
Svo byrjað sé á umferðarmálunum
þá voru meðal bókaðra umferðarlaga-
brota 23 kærðir fyrir of hraðai. akstur
og ók sá er hraðast fór á 123 km/klst
hraða þar sem leyfður hámarkshraði er
90 km/klst. Á götu þar sem leyfður
hámarkshraði var 50 km/klst ók sá sem
hraðast fór á 90 km/klst. Viljum við enn
minna ökumenn á að virða reglur um
hámarkshraða.
Klippt af óskoðuðum
Skráningarnúmer voru tekin af 38 bif-
reiðum vegna vanrækslu á að fara með
bifreiðarinar í skoðun eða greiðslu
skatta af þeim. 13 voru kærðir fyrir að
nota ekki öryggisbelti og 5 fyrir að virða
ekki stöðvunarskyldu. Pað má enn og
aftur ítreka að fljótvirkasta og ódýrasta
ráðið til að fækka slysum á fólki í um-
ferðaróhöppum er að bæði ökumenn og
farþegar noti ávallt bílbelti utan bæjar
sem innan. Lögreglan mun áfram
fylgjast grannt með því að bílbelti séu
notuð.
Af öðrum bókunum má nefna: þjófn-
aði, innbrot, eignaspjöll, minniháttar
líkamsárásir o.il. sem ekkert var þó
stórvægilegt.
Vélsleðaslys
Mánudaginn 19. maí laust fyrir kl. 18:00
var tilkynnt um vélsleðaslys á Glerárdal
sunnan Lamba. Þar hafði ökumaður vél-
sleða ekið fram af snjóhengju og lent
undir sleðanum. Tilkynnandi taldi hann
mikið slasaðan. Ekki var talið að hægt
yrði að flytja hann á sjúkrahús landleið-
ina. Kallaðar voru út hjálparsveitir og
sjúkraþyrla Landhelgisgæslunnar, sem
lenti með hinn slasaða við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri rétt rúmlega kl.
20:00. Hinn slasaði reyndist illa brotinn
á ökkla og brotinn á framhandlegg.
Línuskautaferð
Rétt fyrir kl. 01:00 aðfaranótt þriðju-
dagsins var tilkynnt um reyk er kæmi frá
Síðuskóla. Þar var eldur í ruslageymslu
og var slökkviliðið fljótt að ráða niður-
lögum hans. Skemmdir urðu á hurð og
einhverjar skemmdir hlutust af reyk.
Á föstudagskvöldið slapp maður á
línuskautum naumlega frá því að lenda
á bifreið. Maðurinn kom á mikilli ferð
niður Kaupvangsstrætið og náði ekki að
stöðva sig og lenti nærri á bifreið sem
kom inn á Kaupvangsstrætið af Skipa-
götu. Skautamaðurinn tók það til bragðs
að láta sig falla í götuna en rann þá
nokkurn spöl á þurru malbikinu og
skrámaðist við það á fótum ásamt því
að föt hans skemmdust. Hann taldi sig
þó óslasaðan. Viljum við brýna fyrir
hjólaskauta- og brettafólki að fara var-
lega.
Sjósókn
Á sjötta tímanum aðfaranótt sunnudags-
ins var tilkynnt um stúlku sem væri að
fara í sjóinn við Strandgötu. Er lögreglu-
menn komu að var hún nær komin á kaf
en þverneitaði að koma til lands. Óð þá
einn lögreglumaðurinn út og sótti stúlk-
una sem síðan var færð á Fjórðungs-
sjúkrahúsið. Skömmu síðar var hringt
frá Sjúkrahúsinu og tilkynnt um að
stúlkan væri á brott. Lögreglumenn
urðu hennar fljótlega varir f íjörunni
neðan við Sjúkrahúsið þar sem hún var
enn á ný komin nær á bólakaf. Fór sem
áður að lögreglan mátti vaða út í sjó og
sækja stúlkuna. Var hún flutt á sjúkra-
húsið til aðhlynningar en mun ekki hafa
orðið meint af volkinu. S.U.S.
Frá Reykjavík
Um helgina eru skráð 18 innbrot,
12 þjófnaðir, 20 eignarspjöll, 3
nytjastuldir, 1 nauðgun og 8 fíkni-
efnatengd mál. Afskipti þurfti að hafa af
34 vegna ósæmilegrar ölvunarháttsemi
og vista þurfti 24 í fangageymslunum af
ýmsum ástæðum. Tuttugu og þrjú um-
ferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunn-
ar, en á sama tímabili voru 30 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur og 8 öku-
menn, sem stöðvaðir voru, eru grunaðir
um ölvunarakstur. Lítið var um kvartan-
ir yfir ónæði og hávaða í ijöleignahúsum,
eða „einungis" 12 talsins.
Bjór í
stykkjatali í miðborginni
Um hádegi á föstudag lenti hjólreiða-
maður á bifreið á Grensásvegi. Hann
kvartaði yfir meiðslum í baki og í hálsi
og var því fluttur með sjúkrabifreið á
slysadeild. Um svipað leyti var tilkynnt
um tvö önnur slys. Maður féll niður í
gegnum sviðið í íslensku óperunni og
fótbrotnaði og herðatré stóð fast í koki
barns í húsi í Gerðunum. Tókst að losa
það áður en sjúkralið og lögregla komu
á vettvang. Þrennt þurfti að leita læknis
eftir harða aftanákeyrslu á Kringlumýr-
arbraut sunnan Háaleitisbrautar. Kvart-
að var yfir því að ungt fólk í miðborginni
fengi „útigangsmenn“ og aðra fullorðna
til að fara í áfengisverslunina fyrir sig og
kaupa bjór í stykkjatali. Unga fólkið sæti
síðan vítt og breitt um miðborgina og
drykki bjór.
Miklubrautaróeirðir
Síðdegis á föstudag stöðvuðu íbúar í
Hlíðunum umferð um Miklubraut við
Lönguhlíð til að leggja áherslu á nauð-
syn úrbóta að þeirra mati. Umferð
stöðvaðist þar um tíma.
Aðfaranótt laugardags var tilkynnt
um mann sem var að reyna að fara inn í
bifreiðir við Nýlendugötu. Hann var
handtekinn skömmu síðar. í fórum hans
fundust nokkrar kvenmannsnærbuxur.
Grunur er um að sami aðili hafi skömmu
áður farið inn í hús í Vesturbænum og
ætlað að leggjast þar til svefns. Þegar sá,
sem fyrir var í rúminu, varð hans var,
rak hann upp óp, en maðurinn sá sitt
óvænna og flúði af hólmi.
Ökuskírteinislaus mæðgin
Á laugardag var farþegi fluttur á slysa-
deild eftir árekstur tveggja bifreiða á
gatnamótum Miklubrautar og Löngu-
hlíðar. Ökumaður, sem stöðvaður var á
Laugavegi, var sektaður fyrir að nota
ekki öryggisbelti, auk þess sem hann var
sektaður fyrir að fimm börn, sem í bif-
reið hans voru, notuðu heldur ekki ör-
yggisbelti. Um nóttina var tilkynnt um
eld í risi húss við Brautarholt. Miklar
skemmdir hlutust af. Brotist var inn í
verslun í Seljahverfi og þaðan stolið tals-
verðri peningaupphæð, ávísunum og
kreditnótum.
Á sunnudag brenndist maður h'tillega
þegar logi í gasgrilli fór víðar, en von var
á. Brotist var inn í íbúð í Gerðunum og
þaðan stolið myndbandsupptökuvél,
myndbandstæki, rafmagnsgítar, leikja-
tölvu, geislaspilara og skanna. Um mið-
nætti voru höfð afskipti af réttindalaus-
um ökumanni, en móðir hans var í fram-
sæti farþegamegin. Engin æfingaakst-
ursmerki voru á bifreiðinni og engir
pappírar þess efnis f bifreiðinni. Þá var
móðirin ekki með ökuskírteini meðferð-
is.
Ökuhraðadagur
Ökumenn virtu almennt tilmæli lögregl-
unnar á Suðvesturlandi og ýmissa fé-
laga, ráða, nefnda og samtaka bifreiða-
eigenda s.l. mánudag um að taka þátt
með sér í að aka þann dag innan leyfi-
legra hámarkshraðamarka á hverjum
stað, þ.e. að hver og einn gerði sig með-
vitaðan um leyfðan hámarkshraða og
legði sig fram um að aka í samræmi við
það. Þetta sýnir hvað hægt er að gera
góðri einbeitingu. Ó.
Það margborgar sig að láta skoða bílinn, annars gerist þetta!
íbúar í Hlíðunum stöðvuðu umferð á Miklubraut á föstudaginn til að mótmæla mikilli mengun
og umferðarþunga. Myn&.E.óL.