Dagur - Tíminn Akureyri - 29.05.1997, Side 1
y
Fréttir og þjóðmál
Bftlatónleikar
Georg Martin
í Háskólabíó?
Töluverð líkindi eru talin
vera fyrir því að Georg
Martin, útsetjari og upptöku-
stjóri Bítlanna, komi hingað til
lands í tengslum við Bítlatón-
leikana í Háskólabíói í næstu
viku. Það skýrist hinsvegar ekki
fyrr en í lok vikunnar.
Gísli Örn, einn af aðstand-
endum tónleikanna, segir að
menn hafl öll spjót úti til að fá
einhvern af þremur eftirlifandi
Bítlum til landsins. Meðal ann-
ars hafi þetta verið rætt per-
sónulega við Ringo Starr hvort
hann sé ekki tilkippilegur að
koma aftur til íslands.
Jafnframt hafa menn notið
liðveislu íslendinga í námi í tón-
listarskóla Paul McCartney’s í
Liverpool til að komast í sam-
band við þennan fyrrum bassa-
leikara í hljómsveit John Lenn-
ons. Hinsvegar hefur verið
dýpra á Georg Harrison þótt
skrifstofa hans hafi tekið vel í
óskir íslendinganna. Þetta skýr-
ist frekar á blaðamannafundi
sem haldinn verður í dag á
Hótel Sögu. Þegar er búið að
selja 2000 af 3700 miðum sem í
boði eru. -grh
Sauðárkrókur
Verkfalisvörðum frá Vestfjörðum tókst að koma í veg fyrir að landað yrði úr rækjuskipinu Aldey ÍS í gær. Myndin er tekin þegar skipið lét úr höfn á
Sauðárkróki í gær. Sjá itarumfjöllun á bls. 6-7.
Akureyri
Víking að yfirtaka Sól
Önnur stóra
breytingin á skömm-
um tíma sem Víking
stendur að.
Víking hf. á Akureyri hefur
gert kauptilboð í öll
hlutabréf Sólar hf. í
Reykjavík. Búið er að sam-
þykkja tilboðið með fyrirvörum
lánastofnana en kaupsamning-
ur hefur ekki verið undirritað-
ur. Mjög miklar líkur eru þó að
af samrunanum verði. Baldvin
Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Víking, mun verða fram-
kvæmdastjóri hins nýja félags
en Páll Kr. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Sólar hf., mun
láta af störfum.
Baldvin sagði í gær að kaup-
verð væri ekki gefið upp en það
væri ásættanlegt fyrir báða að-
ila. Tilgangurinn með samein-
ingunni væri að stofna öflugra
fyrirtæki á drykkjar- og olíu-
vörumarkaði og væri hagræðið
augljóst. „Einingin verður
stærri og hagkvæmari og betur
í stakk búin að mæta aukinni
samkeppni. Það hefur verið
nokkur uppgangur hjá Sól und-
anfarið og sama má segja um
Viking, t.d. með samstarfinu við
Vífilfell og yfirtöku á bjórsölu
þeirra.”
Baldvin sagði starfsmanna-
hald verða óbreytt að mestu
leyti fyrir utan ofangreint að
Páll Kr. lætur af störfum. Held-
ur yrði þó aukning í heildina og
spilaði þar helst inn í að Víking
væri að yfirtaka eigin sölustarf-
semi í Reykjavík sem umboðs-
aðilar sinntu áður.
Húsnæði undir skrifstofur og
lagerhald verður samnýtt jafnt
Baldvin Valdimarsson verður framkvæmdastjóri hins nýja félags: „Einingin
verður stærri og hagkvæmari og betur í stakk búin að mæta aukinni sam-
keppni." Mynd: GS
á Akureyri og í Reykjavík og
dreifing verður sameiginleg.
Stefnt er að því að hlutfall sölu-,
stjórnunar- og markaðskostnað-
ar lækki verulega frá því sem
var í fyrirtækjunum tveimur.
Ætlunin er að opna hið nýja fé-
lag ef kaupsamningur verður
samþykktur og bjóða hluta þess
á almennum markaði. BÞ
Tíu ára
fangelsi
fyrir
manndráp
Sigurgeir Bergsson, 20
ára gamall, var í gær
dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness í 10 ára óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir
að bana sambýlismanni
móður sinnar á nýársnótt í
Sandgerði. Sigurgeir stakk
manninn í brjóstið á heim-
ili þeirra með byssusting
og blæddi honum út. í við-
tali við Dag-Tímann fyrir
skömmu, þegar Sigurgeir
sat í gæsluvarðhaldi í
Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg, sagði hann
sína sögu og bjóst þá við að
fá þungan dóm.
BÞ
l690919ll000014l