Dagur - Tíminn Akureyri - 29.05.1997, Side 10
iþrótta-
POTTURINN
Betra að þegja?
Mikla athygli vakti þegar
Kristinn Jakobsson, knatt-
spyrnudómari hjá KR og einn
fremsti dómari landsins á
undanförnum árum, baðst af-
sökunar á vítaspyrnunni sem
hann dæmdi á Skagamenn í
Eyjum. Kristinn hefur fengið
lofí Ijölmiðlum fyrir að viður-
kenna mistök sín opinber-
lega, en það eru ekki allir á
sama máli. Aðrir knatt-
spyrnudómarar í deildinni
eru margir hverjir óánægðir
með þetta uppátæki Kristins.
Það hefur verið þegjandi
samkomulag á milli dómara
að viðurkenna ekki mistök
sín, enda gæti það ært óstöð-
ugan ef dómarar færu að tí-
unda öll sín mistök á knatt-
spyrnuvellinum.
Rautt og ekki
rautt...
Öðru máli gegnir hins vegar
um, þegar dómarar útskýra
aðgerðir sínar út frá knatt-
spyrnureglunum, eins og
Guðmundur Stefán Marías-
son, gerði í Morgunblaðinu í
gær. Guðmundur Stefán rak
markvörð Leifturs af velli fyr-
ir brot innan teigs, en gerði
það ekki þegar markvörður
IA braut á sóknarmanni
Fram. Guðmundur réttlætti
þessa tvo mismunandi dóma
á því að í síðara skiptið hefði
sóknarmaðurinn ekki verið
rændur marktækifæri, þar
sem hann hefði misst knött-
inn of langt frá sér.
Atli vill fá Vergendi
til KA
Atli Hilmarsson, þjálfari
handknattleiksliðs KA, hefur
ekki setið auðum höndum
síðan hann kom til Kumam-
oto í fyrradag. Leit að örv-
hentri skyttu í gegn um um-
boðsmenn hefur engan ár-
angur borið og því var lítið
annað að gera fyrir þjálfar-
ann, en að fara utan. Til-
raunir hans til þessa hafa
ekki borið árangur. Atli ræddi
við tvo tékklenska leikmenn
og Norðmanninn, Lauridsen
sem leikur með Viking frá
Stavangri. Pá kannaði Atli
stöðuna hjá landsliði Kúbu-
manna, en þar eru allir leik-
menn með tíu ára samning,
sem ekki fæst rift. Þjálfarinn
hefur hug á því að ræða við
Zoltan Vergendi, markahæsta
leikmann Ungverja, um að
koma til KA en sagðist fyrir-
fram ekki gera sér miklar
vonir um að af því verði.
Góður í 3. umferð!
Rastislav Lazorik, framherji
hjá knattspyrnuliði Leifturs-
manna, skoraði sex mörk fyr-
ir Leiftursmenn á íslands-
mótinu í fyrra, þar af var
helmingur þeirra skoraður í
3. umferðinni, þegar Leifturs-
menn unnu ÍA 4:3. Lazorik
hélt uppteknum hætti á þessu
íslandsmóti, því hann skoraði
þrennu gegn Val í 3. umferð
deildarinnar. Nú velta Ólafs-
firðingar því fyrir sér hvort
hann hafi hálfklárað kvótann
á þessu íslandsmóti. Því má
bæta við að Lazorik var
einnig á skotskónum 1995 í
3. umferðinni. Hann skoraði
þá tvö mörk fyrir Breiðablik í
2:3 sigri í Eyjum.
HANDBOLTI • HM í Kumamoto
Að duga eða drepast
ísland og Ungverja-
land leika um sæti á
meðal fjögurra bestu
þjóða veraldar
✓
sland leikur við Ungverjaland
klukkan níu í dag og sigurlið-
ið skipar sér í sæti á meðal
Ijiigurra bestu þjóða veraldar,
en ísland hefur aldrei átt lið svo
ofarlega í heimsmeistarakeppni.
„Við eigum ágætis tækifæri á
sigri, en við þurfum að spila
Þorbjörn Jensson er búinn að skila góðu dagsverki í Japan en mikið vill
meira og vissulega væri sætt að sigra Ungverjana í dag.
skynsamlega. Ungverjar eru
með sterkar skyttur fyrir utan
og þeir eru mjög hættulegir í
hraðaupphlaupum," sagði Þor-
björn Jensson, landsliðsþjálfari,
í gær, en hann hefur undanfarna
daga legið yfir myndböndum af
viðureignum Ungverja við
Tékka, Rússa og Króata á
heimsmeistaramótinu.
Ungverska liðið er að mestu
skipað leikmönnum frá Fotex
Vészprém, en tólf leikmenn frá
þessu félagsliði eru í landsliðs-
hópnum, þar af útiskytturnar
þrjár, Joséph Elés, Zoltan Verg-
endi og Lazslo Sotonyi, og Þor-
björn sagðist ekki vera í vafa um
að ungverska liðið væri sterkara
en norska liðið, sem ísland lagði
að velli í 16-liða úrslitum móts-
ins.
Spáir Svíum sigri
Sex önnur Uð verða í eldlínunni
á heimsmeistaramótinu í dag og
Þorbjörn spáir Svíum, Egyptum
og Rússum áfram í undanúrslit-
in og ef sú spá gengur eftir þá
mun sigurliðið úr íslandsleikn-
um mæta Svíum í undanúrslit-
unum á laugardaginn. „Svíar
hafa alltaf verið með gott tak á
Spánverjum. Mér finnst spánska
liðið liafa verið að dala í síðustu
leikjum og það kann að vera að
þeir séu uppi á vitlausum tíma,“
sagði Þorbjörn.
Þorbjörn taldi Egyptaland og
Rússland eiga nokkuð greiða
leið í undanúrslitin. „Frakkar
hafa verið afburðaslakir á þessu
móti og ég held að það hafi verið
dómaramistök, sem tryggðu
þeim sigurinn gegn Japan. Eg-
yptar hljóta því að verða mun
sigurstranglegri og ég spái því
að þeir leiki gegn Rússum í und-
anúrslitunum. Mér finnst Rúss-
arnir vera með jafnasta liðið í
mótinu, af þeim liðum sem ég
hef séð og mér finnst líklegt að
þeir slái Suður-Kóreu út úr
keppninni," sagði Þorbjörn.
HANDBOLTI • HM í Kumamoto
Fimmtánþús. kr. fyrir markið
Eimskipafélagið hefur
ákveðið að heita á ís-
lenska liðið í leiknum gegn
Ungverjum. Eimskip hyggst
greiða HSÍ 15 þúsund krón-
ur fyrir hvert mark sem lið-
ið skorar og 200 þúsund
krónur til viðbótar, ef liðð
fer með sigur af hólmi.
Visa ísland mun einnig
styrkja HSI um 5.000,- kr. á
hvert mark í leiknum í dag.
Spáir íslenskum sigri
Atli Hilmarsson, þjálfari
KA-manna, er nú staddur í
Kumamoto og hann segist
vera sannfærður um ís-
lenskan sigur í dag. „Ég
held við vinnum Ungverja.
Þeir voru heppnir að vinna
Tékka og ég held að liðið
geti hentað okkur ágætlega.
Þetta er vissulega hörkulið,
en ég hef trú á íslenskum
sigri. Mótið hefur verið
mjög gott og það þarf ekki
mikið að bæta til þess að
þetta verði frábært."
KNATTSPYRNA
Ný Keflavikurhraðlest?
Fjórða umferð Sjóvá-Al-
mennra deildarinnar verð-
ur leikin í kvöld og góð
staða Keílvíkinga kemur eflaust
mest á óvart á íslandsmótinu og
þá er döpur staða Fram aldeilis
ekki það sem við var búist. Dag-
ur-Tíminn ræddi við Gunnar
Oddsson, þjálfara Kefivíkinga, og
Ásgeir Elíasson, þjálfara Fram,
um stöðu liðanna.
„Við settum okkur það mark-
mið að ná níu til tíu stigum út úr
fyrstu fimm umferðunum. Nú má
segja að því sé náð,“ sagði Gunn-
ar Oddsson. „Ég átti alveg eins
von á þessu eins og hverju öðru.
Liðið er mjög efnilegt og sam-
stætt. Strákarnir eru allir hérna
af svæðinu og þeir standa vel
saman. Þeir voru í tómu basli í
fyrra og eru ekki tilbúnir til þess
aftur. Þeir vita hvað það er að
V(;ra í kjallaranum. Þess vegna
leggja þeir mikið á sig til að
losna við þá reynslu aftur.“ Um
Ieikinn við Skallagrím í kvöld
sagði Gunnar: „Við mætum í
þann leik eins og alla aðra. Við
getum ekkert vanmetið þá. Við
getum gert góða hluti ef við berj-
umst fyrir því og tökum almenni-
lega á en ef við föllum í þá gryfju
að halda að þeir séu ineð lélegt
lið þá er voðinn vís.“
Asgeir
Elíasson.
Ásgeir Elías-
son var ekki
síður brattur
þó hans lið
vermi nú ann-
að botnsæti
deildarinnar.
„Við hefðum
náttúrulega
gjarnan viljað
vera með fleiri
en eitt stig eftir 3 umferðir. Við
vissum reyndar að þetta yrði erf-
itt prógram hjá okkur þessir
fyrstu leikir og alveg hugsanlegt
að við yrðum ekki með mjög
mörg stig.“ Um liðið sagði Ásgeir:
„Við höfum verið sjálfum okkur
verstir. Það vantaði svolítið upp á
sóknarleikinn í fyrsta leiknum í
Keflavík. Þótt við værum talsvert
með boltann sköpuðum við okk-
ur ekki færi og við vorum ekki að
spila alveg rétt. Vestmannaeyja-
leikurinn var náttúrulega erfiður,
sórstaklega seinni hálfleikurinn.
En fyrri hálfleikurinn var góður
og við gátum hugsanlega verið
yfir í leikhléi en við máttum svo
reyndar þakka fyrir að tapa ekki
leiknum. Skagaleikurinn er sér
kapítuli. Við vorum stanslaust í
því að setja upp fyrir þá færin
allan fyrri hálfleikinn. Við lékum
betur í seinni hálfleik og hættum
'
Oddsson. þokkalegu lagi
þó hlutirnir
hafi ekki gengið eftir eins og við
vildum. Nú erum við búnir að
tapa 8 stigum sem er a.m.k 4
stigum meira en við liefðum vilj-
að.“
Leiftursmenn koma örugglega
til með að hugsa Frömurum
þegjandi þörfina á Dalvík í kvöld.
„Vafalaust gera þeir það. Við
erum búnir að vera spila undir
miklu álagi núna. Þegar um það
var að ræða að byrja mótið fyrr,
sem við vildum gjarnan til þess
að hlífa leikmönnum við álagi, þá
voru lið eins og Leiftur sem hent-
aði ekki að byrja þá vegna þess
að þeir höfðu ekki haft leikmenn-
ina nógu mikið saman. Þeir vildu
byrja eins seint og mögulegt var.
Við teljum það henta okkur að
spila þennan útileik núna en ekki
heima. Þannig liggur í því.“ gþö
Staðan
1 Keflavík Fj U J T M S 3 0 0 0 5-09
2 ÍBV 3 110 9-27
3 KR 3 1 2 0 5-1 5
4 Leiftur 3 1115-34
5 ÍA 3 1114-54
6 Valur 3 1112-54
7 Skallag. 3 1 0 2 3-6 3
8 Grindavík 3 0 111-32
9 Fram 3 0 1 2 3-5 1
10 Stjarnan 3 00 1 1-8 1
Leikir kvöldsins
Skallagrímur-Kellavík
í Borgarnesi
Valur-KR á Valsvelli
Grindavík-ÍBV í Grindavík
Stjarnan-ÍA í Garðabæ
Leiftur-Fram á Dalvík*
Ólafsljarðarvöllur er ekki
kominn í leikhæft ástand
ennþá. Þess vegna fóru for-
ráðamenn Leifturs þess á
leit við Fram að víxla heima-
leikjum liðanna. Því neituðu
Framarar og KSÍ neitaði
Leiftri einnig um frestun á
leiknum. Því brugðu Ólafs-
firðingar á það ráð að færa
leikinn til Dalvíkur þó svo að
völlurinn þar sé vart boðleg-
ur í efstu deild.