Dagur - Tíminn Akureyri - 19.06.1997, Page 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.06.1997, Page 2
14 - Fimmtudagur 19. júní 1997 |Dagur-'3Kntmn LIFIÐ I LANDINU Baráttan heldur áfram Kvennabaráttan hefur verið eins og lækur við hliðina á meginfljóti stjórnmálanna og baráttan hefur verið til hliðar, segja Kvennalistakonurnar Kristín Halldórsdóttir og Guðný Guðbjörnsdóttir. Myndir: EÓI Framtíð Kvennalist- ans er mikið rœdd þessa dagana. Kvennalistinn hefur dalað í skoðana- könnunum ogá dögunum birtist ný könnun í tímaritinu Allt þar semfram kemur að 83.5% þjóðarinnar telja hlutverki Kvenna- listans lokið. etta eru sláandi tölur fyrír kvennalistakonur. Lííið í Landinu heimsótti þær Krístínu Halldórsdóttur og Guð- nýju Guðbjörnsdóttur í tilefni dagsins. Það er ekki að sjá neinn bilbug á þingkonum Kvennalistans. Þær eru leitandi konur, leitandi stjórnmála- menn, jafnvel sjálfgagnrýnar sem er óvenjulegt fyrir stjórn- málamenn. Hvað finnst þeim um stöðu kvenréttindabarátt- unnar á 19. júní, 1997? Hvaö um þessa könnun, er ykkur brugðið? Kristín: Mér finnast þessar tölur ekkert vondar og ég er ósátt við hvernig þær eru túlk- aðar. Það felst ákveðin afstaða í því hvernig þær eru túlkaðar. Að nýtt kvennablað skuli fara svona af stað með árás á Kvennalistann. Á forsíðunni er sagt að tími Kvennalistans sé liðinn. Guðný: Og engin spurninga- merki sett við það. Kristín: Nei, nei. Mér finnst þetta ósanngjörn meðferð. Guðný: Gunnar Helgi Krist- insson er að túlka þessar tölur og hann segir að fyrir flokk með 5% fylgi þá sé þetta nokk- uð mikill stuðningur. Kristín: Tæp 17% segja að tími Kvennalistans sé ekki lið- inn. Við getum velt fyrir okkur hvernig við myndum bregðast við værum við spurð svona. Guðný: Er til dæmis tími Framsóknarflokksins liðinn? Ég myndi svara með já. En er ekki ástœðan fyrir þessu sú að mikið affólki í öðr- um flokkum finnur til ákveðinn- ar samkenndar með stefhumál- um Kvennalistans þó að það kjósi hann ekki? Það fólk sé einfaldlega ekki sammála hvernig Kvennalistinn leggur upp baráttuna? Það er í raun ekki hægt að leggja þessi 17% upp sem fylgi við Kvennalist- ann, finnst ykkur það? Guðný: Nei, nei, alls ekki. Það er kerfið sem er orðið úr- elt. Ef spurt hefði verið um Al- þýðubandalagið eða Al- þýðuflokkinn og þess vegna Framsóknarflokkinn ' myndu margir segja að þeir væru líka úreltir. Kristín: Hins vegar getum við ekkert horft framhjá því að kvennalistakonur hafa frá upp- hafi sagt að Kvennalistinn sé tímabundin aðgerð. Þess vegna höfum við á vissan hátt lagt fólki þetta svar í munn. Við er- um að velta þessu fyrir okkur eins og aðrir. Erum við búnar að ná þeim árangri sem stefnt var að? Þar að auki er ekkert óeðlilegt að það séu sterk við- brögð gagnvart Kvennalistan- um sem hefur frá upphafi verið óþægilegt og áreitið utangarðs- afl. Mjög margir hafa viljað Kvennalistann feigan frá upp- hafi og nánast beðið eftir tæki- færinu til að segja: Já, nú er þetta búið hjá þessum leið- indakellum þarna. Guðný: Við höfum verið óvelkomið afl inn í íjórflokka- kerfið. Alþing- ishúsið er t.d. ekki ennþá bú- ið að láta okkur fá herbergi en allir aðrir flokkar eru með þing- flokksherbergi og öll önnur framboð hafa bara lifað eitt kjörtímabil. Kristín: Það er að vísu ekki pláss. Guðný: Það er auðvitað við- kvæðið en þetta sýnir bara að það er alltaf verið að bíða eftir því að við hverfum. Að það taki því ekki að koma okkur fyrir. Kristín: Þetta er kannski eðlilegt viðbragð við óeðlilegu ástandi. Og Kvennalistinn er það. Guðný: Það er sagt að kvennabaráttan sé stöðnuð og að aðrir flokkar hafi tekið yfir okkar málefni og jafnframt er talað um óeiningu innan Kvennalistans. En hvað varðar hina flokkana þá er engin þungi í málunum samanber einkun- ina sem hinir flokkarnir fá í Allt. Við höfum alltaf verið með þessi mál á oddinum, reyndar ekki fengið tækifæri til að fylgja þeim eftir í ríkisstjórn. Og ég vil alls ekki viðurkenna stöðnun í kvennabaráttunni. Þegar við byrjum ‘82 þá tölum við um kvennamenningu, reynsluheim kvenna og þetta kallar á ákveðna samstöðu svipað og „black is beautiful,“ við segjum: það kvenlega er gott og fallegt. Á þessum tíma hafði þetta mikinn hljóm- grunn. Síðan kemur þessi áhersla kvennafræð- anna á marg- breytileika kvenna. Við getum ekki bara sagt að af því við erum allar konur þá eigum við eitt- hvað sameigin- legt. Með þessu er hætta á eðl- ishyggju. Það hlaut að koma að því að þetta springi; við erum menntaðar og ómenntaðar, litlar, feitar og mjóar og allavega. Fyrir kosn- ingarnar ‘91 þá héldum við okkur við samstöðuna og að konur séu eins á grundvelli reynslunnar, sem er að mörgu leyti rétt og við segjum það ennþá. Það sem við höfum verið að fjalla um á okkar fundum núna úti á landi eru svokallað- ar „mainstreaming“ hugmyndir. Það þarf meirihlutafl Hvað eru „mainstreaming" hugmyndir? Kristín: Ég hef kallað þetta samþættingu. Kvennabaráttan hefur verið eins og lækur við hliðina á meginfljóti stjórnmál- anna og baráttan hefur verið til hliðar, stundum eins og straum- þungur lækur í vorleysingum og stundum lygn og lítið áberandi. Samþættingin felst í því að veita þessum læk inn í meginstraum- inn. Þannig að jafnréttismál séu fléttuð inn í allt, séu ekki bara sérmál sem er lokað inni í ákveðnum hópum eins og Kvennalistanum, jafnréttisráði, kvennréttindafélögum o.s.frv. Að þetta sé eins og talað er um umhverfismálin þannig að hver ákvörðun sé skoðuð út kvenna- sjónarmiði. Guðný: Þessi umræða er búin að vera í gangi á Norðurlönd- unum í 3-4 ár og hefur haft pól- itískt vægi bæði hjá Brundtland og Monu Salin. Þær byrja á því að segja að þær vilji að konur komist í ráðherrastóla og við viljum að þessi mál komi í gegnum allt. Jafnréttissjónar- mið eiga að vera ráðandi alls- staðar. Við höfum hér pólitískt apparat sem er samkeppnislög og samkeppnisráð og svo jafn- réttislög og jafnréttisráð. Það er pólitískur vilji fyrir þessu fyrra þannig að það má ekki breyta bönkunum, það má ekkert gera hér sem stríðir gegn samkeppn- islögum. Það er ekki þessi póht- íski stuðningur hér fyrir jafn- réttisráði og jafnréttislögum. Þess vegna er alltaf verið að brjóta jafnréttislög og það ger- ist ekkert. í Noregi var þessi pólitíski vilji og þar gerist eitt- hvað. í þeim umræðum sem eru núna framundan hvort sem er við aðra flokka eða í Kvenna- listanum einum sér, munum við leggja mjög mikla áherslu á þetta. Til þess að þessar hug- myndir um samþættingu virki vel þá þarf meirihlutaafl. Við höfum aldrei verið í þeirri stöðu að geta fylgt þessu eftir í reynd. Þarf að setja refsiákvœði inn í jafnréttislög? Guðný: Það getur vel verið að það sé nauðsynlegt. Það er óviðunandi að það sé eilíflega hægt að brjóta þau án þess að nokkuð gerist. Kristín: Það er ekki nægilegt valdboð í jafnréttislögunum. Það eru ákvæði um að stuðla skuli að o.s.frv. Það er talað um að tilmælum sé beint til fyrir- tækja um að þau bæti konum upp það misrétti sem þær kunna að hafa orðið fyrir. Kannski ætti að sekta fyrirtæki og stofnanir fyrir að brjóta þessi lög. Töpuðum fjölmiðlastríðinu 1987 Voru það mistök að fara ekki í ríkisstjórn 1987? Kristín: Því getur maður í raun ekki svarað vegna þess að við höfum bara aðra leiðina. Eftir á að hyggja og í Ijósi stöðu Kvennalistans í dag, voru það mistök? Kristín: Ég veit það ekki. Stundum finnst mér að það hafi verið mistök, að við hefðum getað náð ýmsu fram en þó var það okkar mat á þessum tíma að göinlu flokkarnir væru ekki tilbúnir. Nei, þetta voru ekki mistök en við töpuðum íjöl- miðlastríðinu. Þrátt fyrir sigur- inn ‘87 þá vorum við minnstar, við vorum þó bara sex og við vorum að ræða við Sjálfstæð- isflokkinn sem var með rúmlega tuttugu þingmenn og Alþýðuflokkinn sem var með 10. Við vorum ákveðnar að við færum ekki í stjórn með þess- um sterku öflum án þess að setja verulegan mikinn lit á þá ríkisstjórn. Við settum fram ákveðnar kröfur sem voru byggðar á þeim áherslum sem við lögðum upp með í kosninga- baráttunni. Þegar ekki var gengið að því, þá sögðum við bara: Sorrý Stína, þið eruð ekki tilbúnir. Þessa staðfestu og Við hófum gagn- rýnt verkalýðs- hreyfinguna í gegnum tíðina. Okkur hefur ekki fundist vera nœgi- legur vilji til að taka á þessum rnálum þar.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.