Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Blaðsíða 5
,®agur-(Eímimt Laugardagur 28. júní 1997 -17 „...og var tiltölu- lega btiinn að gleyma því að hann vœri að leika í mynd.(( heimsmarkaðurinn segir þetta bara lókal myndir," segir Böðv- ar en hann hefur fylgt stutt- myndinni sinni Glímu á nokkrar kvikmyndahátíðir og á þeim „hef ég ennþá betur áttað mig á því hvursu aftarlega á merinni við erum í þessum flokki mynda.“ Frelsisþrá vs. tilbreytingaleysi - Manni virðist myndin vera einskonar skáldskapur með re- alísku ívafi. Af hverju viltu halda þig við að kalla þetta heimildamynd? „Lykillinn á bak við heirn- Siggi Valli var á sínum yngri árum svalur gaur, spilaði í hljómsveitum og átti mótorhjól. Siggi Valli er á átt- rœðisaldri og býr einn. Situr og spilar djassplötur á milli þess sem hann bíð- ur örlaga sinna. Og nú er Böðvar Bjarki búinn að gera heimildamynd um Sigga Valla á mótorhjóli... Siggi Valli trommari Böðvar gerði raunar sína fyrstu heimildamynd um Sigga Valla trommara og segist aðallega hafa verið skammaður fyrir þá mynd hér heima. „Fólki þótti hún svo skrýtin og einkennileg. Hins vegar hefur myndin vakið gríðarlega athygli alls staðar þar sem ég hef sýnt hana á há- tíðum erlendis. En þetta er svo- lítið sérstæð nálgun. Menn eru svo vanir því að það sé verið að gera próffla af fólki og öll skrif um myndina fóru út í að skrifa um Sigga Valla og hans bak- grunn sem er út af fyrir sig ekki málið. Siggi Valli er bara eins og hvert annað gamalmenni." manns, só sótt til raunveruleik- ans. „Hann hittir óvænt mótor- hjólamenn niðrá Hallærisplani sem bjóða honum í ferð. Hann fer og sú sena er, fyrir mína parta, óborganleg. Hún er alveg natúral. Það hefði ekki verið hægt að leika þetta. Siggi Valli er enginn vitleysingur - mjög skýr og sniðugur maður en svo- lítið kalkaður - og dettur inní það sem er að gerast hverju sinni. Þarna datt hann inní að það væri verið að bjóða honum í ferð og var tiltölulega búinn að gleyma því að hann væri að leika í mynd.“ ildamyndina er að hún setur fram ákveðna fullyrðingu eða stemmningu eða upplifun. Það er eitthvað sem kvikmynda- gerðarmaðurinn vill segja og út í gegnum alla myndina þarf hann að rökstyðja það, með þeim meðulum og aðferðum sem honum dettur í hug. Hann þarf ekki að fá allar hliðar á málum, hann er bara að gera persónulegan hlut. Það er sú regla sem ég er að vinna með í þessu. Þarna tek ég gamlan mann, sem er fallega fótógen- ískur, býr einn, er einangraður. Ég teikna upp ákveðna einangr- aða mynd af honum og er í raun og veru að vinna með ein- hvers konar frelsisþrá gamla mannsins vs. tilbreytingaleysi tilveru hans.“ Heimildamyndir þar sem dregin eru saman ólík sjónarhorn til að gefa ákveðna heildarmynd er bara ein teg- undin segir Böðvar, en tegund sem nær því yfirleitt ekki að kallast heimildamynd. „Oftast nær eru slíkar myndir svokall- aðar reportage. Þær fjalla um málefni líðandi stundar og eru bundnar ákveðnum tíma. Ef hins vegar tekst að gera svona heimildamynd (þar sem kvik- myndagerðarmaðurinn ætlar að fá einhvern endanlegan sannleik fyrir alla) þá verður hann að gæta þess að sá sann- leikur sé tímalaus. Sá sannleik- ur verður eiginlega að vera dá- lítið svipaður eftir 10 ár. Það er afstaðan til tímans sem er kannski stóri munurinn milli fréttaskýringaþátts og heim- ildamyndar." lóa Böðvar Bjarki Pétursson, kvikmyndagerðarmaður, er að klára 10 mínútna mótorhjóla-heimildamynd um Sigurð Valgarð Jónsson, gaml- an mann sem hann hefur þekkt árum saman. „Þetta er nokkuð sérstæð heimildamynd að því leyti að hún er tekin eins og leikin mynd. Hún er lýst, það er stillt upp í hvert skot en það er enginn að leika annan en sjálf- an sig og samtöl eru ekki lögð upp í menn nema að mjög litlu leyti,“ segir Böðvar. Siggi Valli er gamall sjómað- ur, spilaði í mörgum hljómsveit- um á stríðsárunum seinni og var mótorhjólagæi á sínum tíma. „En hans ævi er ekki endilega það sem skiptir máli í þessari mynd, ég nota hann meira sem fulltrúa ellinnar. Svo er hann frábært myndefni, hann er svo fótógenískur. Það er liægt að setja hann í stól, kveikja á vélinni og myndin lif- ir.“ Böðvar Bjarki segir heimildamyndir eiga að vera tímalausar, þ.e. setja fram sannleik sem er nánast sá sami frá áratugi til áratugar. Kalkaður en sniðugur Trúr sínum hugmyndum um heimildamyndir býr Böðvar sjálfur til atburðarásina þótt meginefnið, tilvera gamals Engin hefð á íslandi Myndin um Sigga Valla er tekin á 35 nim filmu og verður sýnd í júli/ágúst á undan einhverri af íslensku myndunum sem kom- „íslendingar halda að heimildamyndir séu bara einhverjir fréttaskýringa- þcettir og það er hcegt að kenna RUV um ýmislegt þar...<( Útblásnir fréttaskýringaþættir „Ég held að fslendingar hafi því miður mjög litla þekkingu á heimildamyndum og þeim möguleikum sem þær bjóða upp á. Ég segi að heimilda- myndin sé að mörgu leyti hið frjálsa form kvikmyndagerðar- innar þar sem menn geti leyft sér nánast allt. fslendingar lialda að heimildamyndir séu bara einhverjir fréttaskýringa- þættir og það er hægt að kenna RÚV um ýmislegt þar því gegn- um tíðina hafa þeir dælt út myndum sem þeir kalla heim- ildamyndir en eru fyrst og fremst fréttaskýringaþættir. Þessar myndir fara hvergi því ast á hvíta tjaldið í sumar. Markaður fyrir stuttmjmdir hér á landi er afar lítill og hefur þessi leið aðeins verið farin af Ingu Lísu Middleton og Gus Gus-hópnum, þ.e. að sýna á undan lengri myndum. „Það er gömul og gróin hefð í Noregi að sýna svona stuttmyndir á und- an lengri myndum. Þeir líta á þetta sem krydd í sýningarhald- ið hjá sér. Hér á íslandi er nán- ast engin hefð fyrir þessu og fátt sem kallar á að menn séu að gera svona myndir því það eru ekki miklir tekjumöguleikar í þeim.“ ÞJOÐLFIKHIJSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 FIÐLAR- INNÁ ÞAKINU eftir Boch/Stein/Harnick 24. sýn. í kvöld laugard. 28. júní. Örfá sæti laus. Síðasta sýning leikársins Miðasalan er opin í dag, laugardag frá kl. 13-20. Lokað verður í sumar frá 29. júní til 31. ágúst. Opnað aftur með venjulegum hætti 1. september. MOTORHJÓLALIFIÐ I LANDINU

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.