Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Page 8
8 - Laugardagur 26. júlí 1997 * jDagur-XEímtrat PJÓÐMÁL ,®agur- (Límmn Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171 Tölvuterror í fyrsta lagi í frystihúsi Bakka í Bolungarvík er fullkomið tölvu- kerfi flæðilínunnar notað til að skrá hvert handar- vik og snúning starfsKVENNA (ekki karla) og listi um frammistöðu hengdur upp tvisvar á dag. Þar má sjá nöfn og númer kvennanna, hvort þær mættu á réttum tíma, vinnsluhraða, nýtingu og fjölda galla. Einnig hangs og slugs eins og til dæm- is hvort mætt er mínútu of seint í vinnu eða úr kaffi og ábendingar stjórnenda látnar fylgja með. Þær neituðu samt að hafa auga störa bróðurs á sér á salerninu eins og þó stóð til. Nú biðjum við starfsfólk Flughafnarinnar, íslandsbanka við Suð- urlandsbraut og Byggingavörudeildar KEA að ímynda sér eitt andartak hvor það tæki svona meðferð í mál? Hver tæki svona í mál? öðru lagi Viðbrögð Sigrúnar Jóhannesdóttur hjá Tölvunefnd eru hárrétt: það er ómanneskjulegt að bjóða fólki upp á þetta. Viðbrögð stjórnenda Bakka í Bolungar- vík eru að hrúga inn yfirlýsingum um að starfsand- inn sé frábær. Gott hjá þeim. Það hefur líklega verið auðvelt fyrir starfsfólkið að segja nei þegar það var beðið að skrifa undir? Svarið hér er einfalt: éttu’ann sjálfur. Við stöndum við frásögn innan úr Bakka sem segir um þetta kerfi: „Algjör hryllingur". y í þriðja lagi V. í frétt blaðsins rekur Sigrún Jóhannesdóttir hjá Tölvunefnd að hæpið sé að birting svo persónu- legra upplýsinga samrýmist almennum sjónarmið- um um friðhelgi einkalífs og lögum um meðferð persónuupplýsinga. Tölvunefnd hefur til dæmis bannað birtingu forfalia- og veikindalista í fram- haldsskólum. Nú myndi maður ætla að verkalýðs- félaginu á staðnum þætti þetta merkilegar upplýs- ingar. Hvað gerir það? Lætur nota sig eins og snýtuklút til að harma „æsifréttastfl" í staðinn fyrir að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna. Eins og maðurinn sagði: „Þetta eru asnar Guðjón”. V Stefán Jón Hafstein. _______________________J Sp inqj Utó Finnst þér eðlilegt að birta lista yfir frammistöðu starfsfólks á vinnustað? Sighvatur Bjarnason framkvœmdastjóri Vinnslustöðvarinnar Mér finnst það~ eðlilegt og þá sórstaklega í hóplaunakerfi vegna þess að í því skiptir máli að hitt fólkið sjái afköst hjá hvert öðru. Við gerum þetta nú ekki hér. í einstakl- ingsbónus horfir þetta allt öðruvísi við vegna þess að þá eru afköst- in prívatmál hvers og eins. Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista Það er verið að ala á óánægju með því að birta tölur um afköst, mæt- ingar og slíkt. Miðað við stefnu fyrirtækja erlendis þar sem allt gengur út á það að skapa vinsamlegt og gott umhverfi og ánægt starfsfólk, þá eru svona vinnubrögð íslenskra fyrirtækja aftan úr fornöld. Eggert Magnússon forstjóri kexverk- smiðjunnar Frón Eg hef nú h'tið hugsað þetta mál. f fljótu bragði h'st mér nú illa á að vera með ein- hvern vinsældarlista hangandi uppá vegg þar sem fram kemur hvaða starfsmaður er bestur og hver sé verstur. Eg held að það sé ekki vænlegt tif árangurs í framtíð- inni. Sigurður Ingvarsson formaður Alþýðu- sambands Austjjarða Mér finnst það ekkert eðlilegt nema það sé vilji starfsfólksins. Ég tel að menn hafi enga heimild til þess í and- stöðu við starfsmenn. va?u~ Slakir varnarmenn „Með sama hætti er ekki hægt að hrósa þeim sem halda á málum fyrir hinn almenna launamann. Þeir eru löngu hættir að leika sóknarleik og enn og aftur sannast að þeir eru afar slakir varnarmenn." - Leiðarahöfundur Alþýðubiaðsins í gær. íslensk rök „í stuttu máli voru rónarnir svo stórir í sér að þeir höfðu ákveð- ið að láta ekki renna af sér, það hefði runnið nógu mikið af okk- ur íslendingum síðustu áratug- ina.“ - Guðbergur Bergsson í DV í gær. Ógeð „í heita pottinum í sundlaugun- um í Laugardal var maður að segja frá því að útlendingur hefði kastað af sér þvagi í drykkjarskál sem er á vegg.“ - Víkverji í Mbl. í gær. Ofvirkur „Mér finnst forsetinn reyndar stundum vera of duglegur. Þannig herjaði hann út viðtal við Clinton, og ef ég þekki hann rétt þá hefur Clinton örugglega verið í vörn í því samtali." - Kjartan Helgason í Alþýðublaðinu í gær. Nema hvað „Því er ekki að neita að lottó- vinningur sem við fengum stuttu eftir að við fluttum til Ak- ureyrar reyndist vel.“ - Aðalbjörg Hafsteinsdóttir í Mbl. í gær. Heimalningar * lafur Ragnar Grímsson er að sýna heimsbyggðinni að hann er forseti með frumkvæði. Fundir hans með for- seta og varaforseta Bandaríkjanna eru for- máli að mestu landkynningu allra tíma og hana verður að nýta og gjörnýta. Ólafur Ragnar hefur staðfest að forseti íslands þarf ekki að bera kinnroða fyrir öðrum þjóðhölð- ingjum heimsins. Hvort sem löndin eru stór eða smá. Engum manni þarf að koma í opna skjöldu að forseli landsins vcrði seinna kall- aður til starfa á alþjóðlegum vettvangi. f starfi forseta nýtur Ólafur Ragnar Grímsson meðal annars að hafa hlotið eld- skírn við nám í öðrum löndum. Sama máli gegnir um tvo aðra fyrrum formenn stjórn- málaflokka: Steingrím Hermannson og Jón Baldvin llannibalsson. Framganga þeirra þriggja í stjórnmálum var með allt öðrum hætti en heimaöldnu lögfræðinganna hjá Sjálfstæðisílokknum. En því er þessa getið hér að síðasta laugardag drap pistlahöfund- ur á vankanta réttarkerfisins og hér verður lopinn teygður um stund. Fyrsta ógæfa réttarkerfisins dundi yfir þeg- ar Háskóli íslands var stofnaður og hætt var að senda laganema til náms í Kaupmanna- höfn. Fyrir bragðið hafa lögfræðingar og dóm- arar á hverjum tíma hlotið sömu konnslu hjá sömu prófessorum í sama skóla. Læra jafnvel að hugsa eins og haga sér eins. Nýir straumar í lögfræði og nýjar víddir í heiminum hafa ekki náð til dómstóla landsins í jafn ríkum mæli og hjá þjóðum með fleiri kosti í laganámi. ís- lenska lögfræðinga og dómara skortir oft vi'ð- sýni hins siglda og veraldarsýni heimsborgar- ans. Ilættan eykst á að fagidjótar ráði ferðinni í dómskerfinu. Og fleiri hættur liggja í leyni. í draumi sérhvers lögfræðings blundar von um að setjast í Hæsta- rétt. Ekki bara hjá dóm- urum lægri dómstiga og fulltrúum þeirra við dómstólana. Heldur líka hjá mörgum starfandi málflutningsmönnum og löglræðingum við önnur störf úti í bæ og óskyld dómskorfínu. Jafnvel þingmenn og ráðherrar hugsa sór gott til glóðarinnar í Hæstarótti að loknum pólitísk- um ferli ekki síður en í biinkum. Margir lög- fræðingar telja Hæstarétt vera hámark lög- fræðinnar og stefna vitaskuld á toppinn. Fólk með Hæstarétt í maganum veigrar sér við að rugga bátnum og hættir til að hlaða undir kerfið sem á að brauðfæða það. forðast að styggja skipunarvaldið og reyndar allt opin- bera valdakerfið eins og það leggur sig. Önnur ógæfa réttarkerfisins er að dómar- arnir úr lagadeild Háskólans eru of tengdir málflytjendum úr lagadeild Háskólans. Bæði í námi, hugsun og félagslegri umgengni utan vinnutíma. Lögin gera því miður aðeins ráð fyrir lögfræðingum í fastar stöður dómara og er hluti af gömlu bábiljunni að engir geti dæmt í dómstólum nema lögfræðingarnir. Nú eru vel samin lög fyrst og fremst heilbrigð skynsemi færð í letur og því vandalaust fyrir fólk með aðra menntun að fletta þeim upp og lesa. Lögfræðin er þjónustu- grein eins og tannlækn- ingar og pípulagningar og dómstólar skipaðir dómurum úr öðrum áttum ráða sér lögfræð- inga til aðstoðar oins og annað starfsfólk. Vísir að þessu nýja kerfi er þegar fyrir hendi í skipun faglegra meðdómara í dómsmálum. Munurinn á hugsun lögfræðings og til dæmis verkfræðings er að verkfræðingurinn neglir hugsun sína niður rökrétt í beina frá- sögn á meðan lögfræðingurinn hefur varann á. Verkfræðingurinn getur hiklaust kveðið upp jafn skýra dóma og lögfræðingurinn og jafnvel ennþá faglegri ef því er að skipta. Eins er sjálfsagt að velja kviðdóma í sem flestum málum, og færa dómsvaldið nær þjóðinni. Fólkið sjálft á að kveða upp dóma í nafni þjóðarinnar en ekki bara, ein stétt manna. Málflytjendur sækja mál og verja og hreinasti óþarfi að þeir dæmi líka. Þriðja ógæfa róttarkerfisins er hin póli- tíska skipun dómara í Hæstarétt. Aðferðin hefur löngu gengið sér til húðar og dómara- sæti mega ekki lengur vera bitlingar fyrir flokkshesta. Stjórnmálaflokkarnir hafa jafn- an farið eftir flokkskírteinum og Borgara- flokkurinn einn þorði að velja dómara í Ilæstarétt að verðleikum. Þjóðin á að kjósa dómara og fleiri helstu embættismenn sína í almennum kosningum samfara kjöri til Al- þingis eða byggðastjórna og eðlilegt að allir landsmenn séu kjörgengir. Fjórða ógæfa réttarkerfisins eru óljós skil á milli dóms- og stjórnvalds eins og kom glöggt fram í tilraun Sævars Marinós Cieci- elski að taka aftur upp Guðmundar- og Geir- finnsmál. Fólk f lýðræðisríki á ekki að þurfa að leita á náðir dómara þegar það sættir sig ekki við niðurstöður sama dómara. Víta- hringur af því tagi er hluti af deyjandi Sowj- eti austur í Evrópu og í engu samræmi við andann á bakvið mannréttindi Vesturlanda. Staðfesting á þessum óljósu mörkum birt- ist fyrir nokkrum dögum í ákvörðun kjara- dóms sem Ila'.stiréttur skipar að meginhluta. Dómurinn bregst ekki skapara sínum og sýn- ir átakanlega leyniþráðinn á milli handarinn- ar sem skalTar og handarinnar sem þiggur. Clðífeix Mututeð

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.