Dagur - Tíminn Akureyri - 26.07.1997, Side 11
i j r i fr í .* i i ím í rrj t: fjt
|Dagur-®tmtmt
fc?v i *• í ,b% i»v>»Vnnv»a»A - v>l
Laugardagur 26. júlí 1997 -11
PJÓÐMAL
Hvaða áhrif hefði svona bygging á íbúaþróun á svæðinu?
bótarstörfum vegna stóriðju.
Eins og sést á myndinni hér að
ofan þá má gera ráð fyrir því að
með einni slíkri framkvæmd þá
bættust við varanlega 650 störf
og með aíleiddum störfum væru
því viðbótarstörf tæplega 1500.
Með öðrum orðum, áhrif slíkrar
framkvæmdar gætu vegið upp
þann fjölda starfa sem tapast
hafa í iðnaði á svæðinu á und-
anförnum 10 árum.
Ég get vel skilið þá sem eru á
móti stóriðju ef ekki eru gerðar
fyllstu kröfur um mengunar-
varnir og setja eigi niður verk-
smiðju sem mengar allt um-
hverflð. Ég get líka vel skilið þá
sem eru á móti stóriðju á þeirri
forsendu að til þess að útvega
raforku til slíkra framkvæmda,
þá þarf að virkja stór vatnsföll
og þá fer ekki hjá því að fallegt
og dýrmætt land fari undir
vatn.
En það er nú einu sinni svo
að í þessu eins og öðru þá verð-
um við að velja og hafna, en til
þess að geta gert það þá verð-
um við að hafa góðar upplýs-
ingar til að byggja á okkar af-
stöðu.
Það er ekki bara stóriðja
sem mengar umhverfið. Við
komumst ekki hjá því að nánast
öll starfsemi í landinu hefur
einhver mengandi áhrif.
Það er sjónmengun af flest-
um byggingum í okkar fagra
landi
Það er loftmengun frá flest-
um stóriðjuverum
Það er öruggt að eitthvað
land fer undir vatn við virkjun-
arframkvæmdir
Það er sjónmengun af bygg-
ingu vega um hálendið
Það er sjónmengun af bygg-
ingu þjónustumannvirkja fyrir
ferðamenn
Það er loftmengun frá akstri
bíla.
Það er loftmengun frá flugi
flugvéla
Það er sjónmengun af loðnu-
bræðslu
Það er loftmengun frá loðnu-
bræðslu
Það er mengun af veiðum
fiskiskipaflotans
O.s.frv.
Þannig mætti áfram upp
telja. Við íslendingar eigum
meira undir því en flestar aðrar
þjóðir að halda mengun niðri
og verðum að gera allt sem í
okkar valdi stendur til að draga
úr henni. Við eigum að halda
vöku okkar í umhverfismálum,
gera ætíð fyllstu kröfur til
mengunarvarna sama hvort um
er að ræða mengun lands, lofts,
sjávar eða sjónmengun.
Ef til vill má segja að ekki sé
tímabært að eyða miklu púðri í
umræðuna um stóriðju í Eyja-
firði nú, þar sem mjög hæpið er
að máhð sé yfirleitt á dagskrá.
Ef stóriðja á að rísa í Eyjafirði
þá þarf það að vera hagstæðara
fyrir erlenda íjárfesta að byggja
stóriðjuverið í Eyjafirði, en á
suð-vestur horninu. í dag er
ekkert sem bendir til að svo sé.
Einu sinni var það stefna
stjórnvalda að nýta þá kosti
sem kynnu að vera í byggingu
stóriðjuvera á íslandi til þess að
hafa jákvæð áhrif á byggðaþyP;
un í landinu. Núverandi iðnað:
arráðherra hefur íýst þeirri
skoðun sinni að slíkt komi ekki
Túböb
á sérblandaðri
innimálningu
gljástig 10
Verð:
1 Iftri 499
4 lítrar 1996
10 lítrar 4990
Þúsundir lita í boði
KAUPLAND
KAURANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
til greina, þeir erlendu fjárfest-
ar sem vilja byggja stóriðjuver
á íslandi fá frjálst að volja hvar
þeir vilja byggja, og meðan svo
er, þá getum við Eyfirðingar og
reyndar aðrir landsbyggðar-
menn verið vissir um að um
langa framtíð verða allar slíkar
framkvæmdir á suð-vestur
horninu.
í okkar stöðu í Eyjafirði eins
og annarsstaðar í landinu verð-
um að kanna fordómalaust alla
kosti sem okkur kunna að bjóð-
ast í atvinnumálum og velja síð-
an og hafna á grundvelli bestu
fáanlegra upplýsinga.
Bullcraft
rafmagnsborvélar
Þýsk gæði
14.4 v hleðsluborvél
Stiglaus rofi
Sjálfherðandí patróna
M/bremsu
Fyrír íðnaðcirmcinnínn
Tílboð
Nú aðeíns kr. 16.900,-
Visa/Euro raðgrciðslur
Furuvölium 13 • Sími 462 7878
Eyjafjörður
Ársverk 1984 - 1994
1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 87/94
Landbúnaður 877 879 875 780 736 743 738 719 716 663 609 -171
Fiskvciðar 490 505 544 616 693 693 703 746 747 893 831 215
Fiskvinnsla 957 938 918 864 848 848 761 822 791 806 833 -31
Iðnaður 1.936 2.039 2.006 2.147 1.890 1.776 1.701 1.745 1.643 1.501 1.391 -756
Matvælaiðnaður 474 534 534 603 560 542 540 498 499 464 489 -114
Vcfiariðnaður 646 644 620 632 475 441 413 383 362 307 257 -375
M61m og skipasmíðar 409 446 441 460 410 369 336 368 322 291 231 -229
annað 407 415 411 452 445 424 412 496 460 439 414 -38
Byggingastarfscmi 825 779 768 791 840 864 850 670 766 738 680 -111
Verslun 1.112 1.124 1.148 1.233 1.267 1.215 1.196 1.224 1.195 1.165 1.158 -75
Samgöngur 413 436 433 409 447 469 500 467 460 453 436 27
Bankar o.fl. 342 390 412 460 466 482 477 464 498 517 479 19
Þjónusta 2.143 2.258 2.363 2.721 2.639 2.625 2.705 2.785 2.824 2.806 2.849 128
Samtali 9.095 9.348 9.467 10.021 9.826 9.715 9.631 9.642 9.640 9.542 9.266 -755
Ársverk
Tafla 3. Mannafli.
Eyjafjarðarsvæði.
ibúaþróun 1984 -1996
Ár 1 1964| 19651 19661 19671 19681 19691 1990| 19911 19921 19931 19941 19951 19961
IbúataU j | 19.5381 19.578| 19 483| 19.687| 19.9051 20.020| 20.1111 20.37S| 20.658[ 20.73g| 20.7681 20.706| 20.7461
íbúaþróun 1984 -1996
20.000
Í S 8 8
Tafla 4. Spá um íbúaþróun 1993 - 2003.
Hjón óskast til fram-
tíðarstarfa á alifugla-
búi á Suðurlandi
Óskað er eftir laghentu, traustu og reglu-
sömu fólki.
Góð laun í boði. Húsnæði er á staðnum.
Þeir sem hafa áhuga sendi inn umsóknir sínar merkt:
Reykjagarður hf., pósthólf 175, 270 Mosfellsbær.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
List á heimssýningunni í
Lissabon, EXPO ’98
Ákveðið hefur verið að ísland standi fyrir menningar-
kynningu á sérstökum þjóðardegi íslands hinn 27. júní
1998 á heimssýningunni í Lissabon, EXPO ’98.
Dagskráin fer fram á milli kl. 21.30 og 23.30 á mismun-
andi leiksviðum. Til greina koma verkefni á sviði tón-
listar, leiklistar, danslistar og annarra sviðslista.
Til að kanna áhuga listamanna á því að koma fram á
þessum degi er hér með óskað eftir umsóknum um
það bæði frá einstaklingum og hópum. Umsóknarfrest-
ur er til 1. september n.k. og skal umsóknum skiiað til
menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, merktum EXPO ’98. í umsókn þurfa að
koma fram ítarlegar upplýsingar um verkefnið og þátt-
takendur, svo og kostnaðaráætlun.
Ákvörðun um val á verkefnum og styrki til þeirra ræðst
meðal annars af umsóknum samkvæmt auglýsingu
þessari og verður hún tekin fyrir 1. október n.k.
Nánari upplýsingar veitir lista- og safnadeild ráðuneyt-
isins.
Menntamálaráðuneytið, 23. júlí 1997.