Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Blaðsíða 1
Fréttir og þjóðmál
TF-LÍF
'pS&i 'K'i
'' ; ’ ; ’S % t
B “'lWk \$Jf§ 1 v -" íæM 1$ iij . m
jjBm ■ ' ^
K&Ssgji
]W\ 1 m -
, ! | I • i |1
1 4 1 11
i ír i'
Heimtir úr helju!
Áhöfnin á Þorsteini GK ásamt félögum úr þyrlunni eftir björgunina í gær.
Þjóðin stendur í þakkarskuld
Hugrekki og hæfni
starfsmanna Landhelg-
isgæslunnar hrífa þjóð-
ina. TF-LÍF hefur borgið
39 sjómönnum úr sjáv-
arháska á örfáum dög-
um. 2 menn fórust með
Dísarfelli á sunnudag,
en 10 var bjargað; þyrl-
an bjargar 10 mönnum
af Þorsteini GK í gær.
Starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar unnu mikið björg-
unarafrek þegar Dísarfell-
ið sökk í hafinu djúpt suður og
austur af landinu aðfaranótt
sunnudags. Þyrla Gæslunnar
komst milli hríðarbylja að þar
sem áhöfnin var bundin saman
á floti innan um brak og olíu í
úfnum stórsjó í náttmyrkrinu.
Auðunn F. Kristinsson, sigmað-
ur þyrlunar, fór niður í taumi
og tókst að koma björgunarlínu
til mannanna: „Ég minnist þess
ekki að hafa sagt neitt, en þó
mun ég hafa kastað kveðju á
mannskapinn,“ segir Auðunn
um það augnablik þegar hann
kom að áhöfn Dísarfells, sem
þá hafði yfirgefið sökkvandi
skipið og barist fyrir lífi sínu
tvær klukkustundir í hafinu.
Benóný Ásgrímsson, skipstjóri
þyrlunnar, fylgdist með manni
sínum koma líftaug til áhafnar-
innar: „Mennirnir kastast til og
frá í öldurótinu eina tuttugu til
þrjátíu metra. Þegar aldan
skellur á þeim, þá þurfum við
að elta þá uppi.“ Benóný segir
að skömmu eftir björgun hafi
skollið á dimmt él sem hefði
gert björgun erfiða; Dísarfellið
sökk í djúpið skömmu síðar.
Þorsteinn GK upp í
Krýsuvíkurberg
„Þetta eru frábærir menn og
starfsmenn þyrlunnar eiga
heiður skilinn,“ sagði Þórarinn
Sigvaldason í áhöfn Þorsteins
þegar LÍF lenti með áhöfnina í
Reykjavík síðdegis í gær. Þá átti
skipið stutt í Krýsuvíkurbjarg
og skömmu síðar
lamdist það í grjótið.
Síðustu fjórir skipverj-
ar voru hífðir um borð
í LÍF þegar stutt var í
lokin: „Þarna skreið
báturinn með landinu
svona 150 metra frá
landi og það var stór-
hætta á ferðum,“
sagði Helgi Hallvarðs-
son, yfirmaður hjá
Gæslunni, í gærkvöld.
Páll Halldórsson flugstjóri hafði
þá tekið tvær atrenmu- að skip-
inu sem hraktist undan veðri og
vindum til að bjarga 10 manna
áhöfn. Skipið hafði fengið í
skrúfuna og þegar ankerisfest-
ar héldu ekki barst það að
berginu. Þórdunur LÍFAR óm-
uðu yfir nærstöddum skipum
sem áttu óhægt með vik, en
fylgust með framvindu mála.
Þyrlan sveif inn til Reykjavíkur
meðan skipið barst að bjarginu,
farmurinn að þessu sinni 10
skipbrotsmenn. Allt er þá
þrennt er; LÍF ber nafn með
rentu eftir frækin björgunaraf-
rek hðinna daga: Fyrst var 19
manns bjargað úr strandi Vik-
artinds í síðustu viku, þá 10 af
Dísarfelli um helgina og loks 10
af Þorsteini í gær. sjh
Sjá „39 bjargað" á bls. 6 og
7. Sjá leiðara, „Gæfa og gjörvi-
leiki" bls. 9; einnig Lífið í land-
inubls. 13-14-15.
Heigi Hallvarðsson
yfirmaður hjá Gæslunni
„Það var að lok-
um alveg stór-
hœtta á ferðum. “