Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Blaðsíða 11
piagxnr-®txttmrt Þriðjudagur 11. mars 1997 -11 Hörð barátta á toppi og botni FH-ingar urðu áttunda liðið til að tryggja sér þátttöku- réttinn í 8-liða úrslitakeppni i handknattleik, þegar liðið lagði Aftureldingu að velli í Mosfells- bænum. Þar með er ljóst hvaða lið keppa í úrshtakeppninni, en röðun liðanna kemur ekki í ljós fyrr en eftir lokaumferðina á fimmtudaginn. Þrjú neðstu lið deildarinnar sigruðu í leikjum sínum um helgina og baráttan um deildarmeistaratitilinn opn- aðist enn eina ferðina upp á gátt. UMFA-FH 24:26 Afturelding hafði unnið tvo stór- sigra í röð og með sigri hefði liðið tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Viljinn virtist hins vegar ekki standa til þess framan af og þeir brotlentu á heimavelli sínum gegn ákveðnum FH-ingum, sem náðu undirtökunum í byrjun leiks. Um tíma í fyrri hálfleik var níu marka munur á liðunum, 6:15, en heimamenn náðu að brúa bihð niður í íjögur mörk fyr- ir leikhlé. Lengst af í síðari hálf- leiknum var 2-3 marka munur á hðunum, en FH-ingar héldu haus. Fram-Haukar 24:27 Leikur liðanna var lengst af sveiflukenndur, en engu að síður mjög spennandi. Aron Kristjáns- son var með 11 mörk í leiknum fyrir Hauka sem þurfa nú ekki að treysta á neina aðra en sjálfa sig tii að vinna deildarmeistaratitil- inn. Til þess þarf hðið að sigra tvo erflða andstæðinga, ÍBV og FH. Staðan er nú þessi: Afturelding 21 16 0 5 543:492 32 Haukar 20 14 2 4 511:475 30 KA 21 13 1 7 551:537 27 ÍBV 20 11 2 7 495:458 24 Fram 21 9 4 8 497:468 22 Stjarnan 21 9 3 9 545:529 21 Valur 21 8 3 10 471:481 19 FH 21 9 1 11 539:557 19 ÍR 21 7 1 13 506:511 15 HK 21 6 2 13 479:517 14 Grótta 21 6 2 13 491:537 14 Selfoss 21 5 3 13 515:571 13 Leikir sem eftir eru: (11/3) ÍBV-Stjarnan (13/3) Lokaumferðin: Stjarnan-Grótta, Selfoss-ÍR, Fram- KA, Valur-UMFA, FH-Haukar og ÍBV-HK. Framarinn Daði Hafþórsson, reynir skot að marki Hauka. Mynd:BG Lemgo varð bikarmeistari Lemgo tryggði sér þýska bik- armeistaratitilinn í á sunnu- daginn, með því að sigra 2. deildarliðið Dutenhofen 28:23. Undanúrsht keppninnar fóru fram á laugardaginn. Dutenhof- en lagði Bad Schwartzau 22:20 og Lemgo lagði Grossvaldstadt 28:23. Patrekur með fjögur mörk Patrekur Jóhannesson, skoraði ijögur mörk fyrir Tusem Essen, sem mátti þola tap gegn Flens- borg Handewitt á útivelh í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 23:19. Leikurinn var sá eini sem fram fór í 1. deildinni um helg- ina. Jason Ólafsson og félagar hjá Leutershausen unnu Ossweil 34:22 á heimavelh sínum og hafa nú tveggja stiga forskot á næsta lið í suðurriðli 2. deildar- innar. Wupperthal, hð þeirra Ól- afs Stefánssonar og Dags Sigurð- arsonar, lék ekki um helgina. Liðið átti að leika við aðalkeppi- nauta sínum í norðurriðhnum, Bad Schwartzau, en leiknum var frestað th 20. þessa mánaðar. HB Þýskaland/fe KARFA • Úrslitakeppnin HANDBOLTI • 1. deild karla HANDBOLTI Suðumesjaliðin byija vei KA-ÍBV 17:26 Flest aht hefur gengið á afturfót- unum hjá KA-Uðinu á meðan að Eyjamenn hafa verið á uppleið eftir áramótin. KA-Uðið tapaði sínum þriðja leik af síðustu fjór- um í deUdinni og ef hðið fer ekki að leika betur má búast við því að leikmenn hðsins komist í sum- arfrí þegar í þessum mánuði. Áhorfendur eru aUavega ekki vanir því að sjá sitt hð tapa með níu marka mun á heimavelli, en svo virðist sem hið unga ÍBV- hð sé með gott tak á KA. Eyjamenn væru lfldega í 2. deUdinni, ef þeir hefðu ekki tekið þrjú af fjórum stigum af KA í fyrra og leikir lið- anna í vetur hafa verið hrein einstefna. Grótta-Selfoss 26:27 Hálfgerður úrshtaleikur í botn- baráttunni, þar sem Selfyssingar þurftu sigur tU að eiga möguleika á að halda sér uppi. Hjörtur Leví Pétursson skoraði sjálfsagt sitt mfldlvægasta mark á ferlinum þegar hann skoraði lokamark leiksins á síðustu mínútunni. HK-Stjarnan 26:25 Rétt eins og í síðasta leik HK-Uðs- ins, gegn Selfossi, virtist staða Uðsins vonlaus á lokakaflanum. Stjarnan leiddi leikinn nær ahan tímann og hafði yfir 20:24, nokkrum mínútum fyrir leikslok. Kópavogsmenn lögðu hins vegar ekki árar í bát og Hjálmar VU- hjálmsson skoraði sigurmark HK, remur sekúndum fyrir leikslok. haust héldu hinir ýmsu speking- ar því fram að það þyrfti krafta- verk tU að HK-hðið héldi sér uppi og kannski verða handknattleiks- áhugamenn vitni að einu slíku á fimmtudagskvöldið. ÍR-Valur 19:17 ÍR-ingar styrktu stöðu sína á hættusvæðinu með sigrinum. ÍR- ingar náðu undirtökunum á upp- hafsmínútum síðari hálfleUcsins og náðu að halda Valsmönnum í þokkalegri fjarlægð frá sér fram til loka. Magnús Þórðarson var sterkur á línunni og gerði sjö af mörkum ÍR. ✓ hætt er að segja að úrshta- keppni DHL-deUdarinnar hafl farið líflega af stað. Fyrstu leikirnir voru skemmtUeg- ir og greinflegt að menn ætla að selja sig dýrt. KR-ingar héldu í víking upp á Akranes og komu ekki tómhentir tU baka. Þá tóku Grindvíkingar á móti SkaUa- grímsmönnum úr Borgarnesi og væri synd og skömm að segja að þeir hafi sýnt gestrisni að þessu sinni. Þeir hreinlega kaffærðu gesti sína. ÍA - KR 67 - 81 KR-ingar tóku leik sinn við Skagamenn strax í sínar hendur og eftir tvær fyrstu mínúturnar kom í ljós hvert stefndi. Gestirnir tóku Ronald Bayless úr umferð og eftir það ráfuðu heimamenn um eins og höfuðlaus her og vissu aldrei hvort þeir voru að koma eða fara. Á meðan aht gekk upp hjá KR var heimamönnum fyrirmunað að leika körfubolta. Þeir voru hugmyndasnauðir og einstaklingsframtakið dugði ekki gegn sterkum KR-ingum. Þeir reyndu þó að klóra í bakkann í vörninni en aUt kom fyrir ekki. Það var ekki fyrr en vUluvand- ræði fóru að koma KR-ing- um í koll að Skagamenn náðu að kom- ast inn í leik- inn á ný. Ron- ey Eford var kominn með 4 vfllur í fyrri hálfleik og gat því ekki leikið vörnina sem skyldi. Strax í upphafi seinni hálfleiks nýttu heimamenn sér þennan veikleika og náðu að jafna leikinn með góðum leik Bayless sem nú lék lausum hala. Hrannar Hólm, þjálfari KR, setti þó fljót- lega fyrir þennan leka og síðustu mínúturnar notuðu Vesturbæing- arnir tU að tryggja sér sigurinn á slöppu Uði heimamanna. Maður leiksins: Roney Eford, KR. Grindavík - Skallagrímur 111 - 68 íslandsmeistararnir hófu úrsUta- keppnina að þessu sinni á sama hátt og á síðasta ári, með stórum sigri. Það voru Borgnesingar sem máttu þola nánast niðurlægingu af hálfu heimamanna í Grindavík. Þeir héldu heim með 43ja stiga tap á bakinu. Fyrstu mínútur þessa leiks stefndi í spennu, því eftir góða byrjun Grindvíkinga náðu SkaUagrímsmenn að jafna leikinn og komast yfir og þannig skiptust Uðin á forystunni um tíma í fyrri hálfleik. En um leið og tók að halla undan fæti hjá gest- unum brugðust þeir vitlaust við mótlætinu. Þeir héldu að einstak- Ungsframtakið fleytti þeim yfir þá hindrun sem íslandsmeistararnir eru. Skýring Tómasar Holton á þessu stóra tapi var nákvæmlega sú sama, að menn hefðu hætt að spUa hver fyrir annan og þar sem ekki væru neinar stórstjörnur í Uðinu gengi það aUs ekki upp. „Við höfum sýnt það í undanförn- um leikjum að Uðið er gott þegar það vinnur saman. Þess vegna er liðið í úrsUtakeppninni nú.“ Lið heimamanna lék geysivel í þessum leik. Hermann Myers fór á kostum og hafði skorað 30 stig þegar hann yfirgaf völUnn um miðjan seinni hálfleik. Hann hitti úr 13 af 15 skotum sínum utan af velU og setti ÖU vítaskot sín niður. Þá var hann með Joe Rhett alger- lega í vasanum og vann aUar við- ureignir þeirra bæði í vörn og sókn. Unndór Sigurðsson átti einnig fínan leik og það sama má reyndar segja um aUt Grinda- víkurUðið. Maður leiksins: Herman Myers UMFG Herman Myers átti stórleik með Grindavik. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Hótel Selfossi, föstudag- inn 4. apríi 1997 og hefst kl. 14. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta fé- lagsins. 2. Tillaga um útboð B-deildarhlutabréfa. 3. Önnur mál, löglega borin upp. Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Reykjavík, 7. mars 1997. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.