Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.03.1997, Blaðsíða 11
iDagur-'3Itnrám
Þriðjudagur 25. mars 1997-23
gjajakprt
ft5Eö«AUSt
Smakkað á ástarsorginni
Alvörugefna skynsemisbuddan í unglingaþátt-
unum Lífið kallar (unaðslegir þœttir, hann Jord-
an Catalano er frábœr persóna eins og skrifaður
upp úr dagbókum unglingsstelpna) er á bull-
andi uppleið, búin að fá sinn fyrsta skammt af
ástarsorg og virðist ekki œtla að brenna út á
skjánum fyrir tvítugt...
Stjarna hinnar sautján ára
gömlu Claire Danes er enn
ekki farin að blikna þótt
sjónvarpsáhorfendur hafi all-
lengi horft upp á stelpulegt
andlitið. Menn í kvikmynda-
bransanum hafa m.a.s. leyft
henni að halda skólastelpu-
ímyndinni, eru ekki farnir að
reyna að umbreyta henni í
beib, en hún birtist nýlega sem
Júh'a í Rómeó og Júlíu og leikur
þar á móti Leonardo DiCaprio.
Að skólatelpna sið er hún nú
búin að fá sinn fyrsta skammt
af ástarsorg. Andrew Dorff
(bróðir leikarans Stephen
Dorffs) sagði henni upp fyrir
skömmu og leið henni að sjálf-
sögðu ekki vel með það. „Ég
smakkaði þá í fyrsta sinn á ást-
arsorg og það var hræðilegt,“
segir hún og andvarpar. „Ein af
mínum uppáhaldsstundum er
að vakna upp í örmum kærast-
ans, finna fyrir líkama hans við
hlið mér. Ég hlakka mikið til
þess næsta...“
Hún virðist því til allrar
lukku hafa náð sér elskan litla
fyrst hún hefur ekki útilokað
hina fiskana í sjónum. Hún býr
nú í New York með eldri bróður
sínum (24ra ára) og birtist næst
í bíómyndinni To Gillian On Her
37th Birthday með Michelle
Pfeiffer þar sem Claire leikur
táning sem er að reyna að
halda íjölskyldu sinni saman.
Síðar á árinu tekur hún svo
þátt í alvöru þungavigtarmynd
með Francis Ford Coppola.
r
k f-A lr
f gerðir
hljómflutningstækja
WVunið giafak°rt»
Teitur Þorkelsson
skrifar
Saman á
haus
Það segir sig sjálft að best
er fyrir konuna að standa
á haus eftir samfarir ef
ætlunin er að eignast barn. Við
vitum að eymingja litlu sáð-
frumurnar þurfa að synda upp
löng og dimm göng, finna eggið
eina og komast inn til þess að
getnaður sé tryggður. Sáðfrum-
urnar verða að gera svo vel að
sætta sig við ómanneskjulegar
vinnuaðstæður æðisgenginnar
samkeppni þar sem aðeins er
um einn sigurvegara að ræða.
Og ef við hugsum til þeirra
hundruða þúsunda, jafnvel
milljóna blásaklausra og bráð-
feigra sáðfruma sem enda í lak-
inu, er þá til of mikils mælst að
konan leggi lóð á vogskálarnar,
standi á haus og leyfi þyngdar-
aflinu þannig að hjálpa þessum
greyjum við sundið.
Þetta þarf alls ekki að vera
neyðarlegt, sérstaklega ekki ef
hár eiginmannsins er farið að
þynnast. Of lítil blóðrás til hár-
sekkjanna er nefnilega talin
vera ein af veigameiri ástæðum
fyrir ótímabærum skalla og
kynlíf bæði hressir upp á blóð-
rásina almennt og hefur þar að
auki víkkandi áhrif á þynnstu
æðar líkamans, háræðarnar.
Þannig er ekki nóg með að kyn-
líflð sjálft myndi hafa góð áhrif
á skallann heldur gæti eigin-
maðurinn staðið á haus konu
sinni til samlætis á eftir. Það
þykir víst vera einn besti skalla-
bani sem vitað er um.
fró kr. - / ^
j2.Ð0t)j
vinnandi menn