Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.03.1997, Blaðsíða 15

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.03.1997, Blaðsíða 15
JJagur-®mtmn Þriðjudagur 25. mars 1997 - 27 Úrvalið lítið Kolbrún Jónsdóttir prófarkalesari og ritari Eg sakna þess að úrvalið á sjónvarpsstöðvunum sé ekki meira,“ segir Kolbrún Jónsdóttir, prófarka- lesari og ritari. „Það vantar líka alveg virkilega góða skemmti- og fræðsluþætti." Kolla horfir annars lítið á sjónvarp þar sem hún vinnur til tíu eða ellefu öll virk kvöld. „Þegar ég horfi á sjónvarp þá eru það aðallega amerískir gamanþættir, mér finnst Steinfeld góður á Stöð 2 en á RÚV er samt uppáhalds þátt- urinn minn, Bráðavaktin, sem ég læt taka upp fyrir mig.“ Hvað með jréttir? „Ég missi alltaf af átta fréttum en reyni að sjá ellefu fréttir annað slagið á kvöldin og svo heyri ég fréttir í út- varpi, aðallega þó í bílnum þar sem öll mín útvarpshlust- un fer fram. Ætli ég hlusti ekki helst á Bylgjuna." Af íslensku efni nefnir Kolla að hún hafi alltaf horft á Dagsljós áður fyrr, enda ánægð með þá þætti, en kvöldvinna hamlar því að hún geti veitt sér það áhorf nú. „Spaugstofan er líka alltaf í uppáhaldi hjá mér, ég er ekki búin að fá leið á þeim félög- um ennþá.“ ÁHUGAVERT f F JÖLMIÐLUNUM Stöð 2 kl. 20.35 Iþróttafólk á öllum aldri s Iþrótta- og tómstundaþátturinn Fjörefnið er á sínum stað í dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Umsjónarmaður að þessu sinni er Guðjón Guðmundsson og óhætt er að lofa fjölbreyttum og skemmtilegum þætti. Litið verður í heimsókn í „Litla íþrótta- skólann" í Mosfellsbæ en þar læra 2-4 ára börn léttar íþróttir og leiki. Strákarnir í 4. flokki Þróttar koma líka við sögu en þeir hafa leikið saman frá 6-7 ára aldri. Þá mun Lisa Johnson sýna áhorfendum hvernig koma á jafnvægi á líkamann og síðast en ekki síst ætla „gamlar" fimleikastjörnur úr Ármanni að leika listir sínar. Fimleikafólkið, sem komið er á miðjan aldur og þar yfir, ætlar að sýna okkur á eftirminnilegan hátt að það hefur engu gleymt. Sjónvarpið kl. 22.00 Sérsveitin Innan lögreglunnar í London er starfandi sérsveit sem hefur þann starfa að kljást við vopnaða ræningja og beitir við það nýjustu tækni og bestu vopnum sem völ er á. Sveitin hefur orð á sér fyrir að vera hörð í horn að taka og víst er að ræningjarnir hata hana meira en flest annað. Nú er að heíjast í Sjónvarpinu ný níu þátta syrpa úr þessum breska spennumyndaflokki, þar sem fylgst er með sérsveitarmönnum í baráttunni við bófana en þar er oft um Iíf og dauða að tefla. Aðalhlutverk leika Brendan Coyle, Lynda Steadman og Reece Dinsdale. Handbolti og fermingar Ekki hefur Ríkissjónvarpið séð ástæðu til að þjóna þeim áhorfendum sem búa á landsbyggðinni til jafns við höfðuðborgarbúa þegar um út- sendingar frá leikjum í úrslita- keppninni í handbolta er að ræða. Þessir ágætu stjórnendur íþróttadeildar þurfa að fara að gera sér grein fyrir því að þús- undir áhorfenda vilja fylgjast með „sfnum mönnum', sama dag og leikur fer fram og það STRAX í beinni útsendingu. Ríkissjónvarpið hugðist koma til móts við þennan fjölmenna hóp sem vildi sjá leik KA gegn Haukum, úrslitaliðanna í bik- arkeppninni, í beinni en ætluðu að sýna leikinn klukkan 15.00 á skírdag. Bæði í Hafnarfirði og á Akureyri er þetta fermingar- dagur og því var ekki orðið við þessari vanhugsuðu beiðni. Til gamans má geta þess að sonur Alfreðs Gfslasonar, þjálfara KA, verður fermdur þennan dag og það hefði verið skarð fyrir skyldi að hafa Alla á kirkju- bekk en ekki í vörninni. Það var ansi fróðlegt að fá frekari staðfestingu á því á sunnudagskvöldið í þættinum „60 mínútur“ á Stöð 2 hversu niðurlægjandi almenningur í Bandaríkjunum telur ósigurinn í Vfetnamstríðinu vera. Rætt var við höfuðsmann í banda- ríska flughernum sem var skot- inn niöur í þáverandi Norður- Víetnam árið 1966 og komst ekki aftur heim fyrr en 1969. Þetta efni var matreitt í áhorf- endur eins og þessi styrjöld væri einhver ný sannindi sem skyndlega hefðu komið úr myrkurn fylgsnum frumskóg- anna og sjálfsagt hafa einhverj- ar meyrar sálir komist við af lýsingum um að maðurinn hefði verið bundinn á ijöl og pyntaður. S JON (t svn © 989 BYLGJAN t&s 16.20 Helgarsportið. 16.45 Leiðarljós 17.30 Fréttir. 17.35 Sjónvarpskringlan. 17.50 Táknmálsfréttir. 18.00 Barnagull. 18.25 Mozart-sveitin 18.55 Gallagripur 19.20 Ferðaleiöir. 19.50 Veöur. 20.00 Fréttir. 20.30 Dagsljós. 21.05 Perla 21.30 Ó. Að þessu sinni verður meðal annars fjallaö um framhalds- nám. Ritstjóri erÁsdis Ólsen, um- sjónarmenn Markús Þór Andrésson og Selma Björnsdóttir og stjórn upp- töku annast Arnar Þór Þórisson og Kristln Björg Þorsteinsdóttir. 22.00 Sérsveitin (1:8) (Thief Takers II). Breskur sakamálaflokkur um sér- sveit lögreglumanna í London sem hefur þann starfa að elta uppi þjófa. 23.00 Ellefufréttir. 23.15 Viðskiptahorniö. 23.30 Handbolti. Sýnt verður úr leik i úrslitakeppni íslandsmótsins. 23.55 Dagskrárlok. 09.00 Línurnar í lag. 09.15 Sjónvarpsmarkaðurinn. 13.00 Blanche (7:11) (e). 13.45 Chicago-sjúkrahúsið 14.30 Engir englar 15.05 Mörk dagsins (e). 15.30 Preston (5:12) (e). 16.00 Ferö án fyrirheits. 16.25 Stefnþursar. Nýr og spenn- andi teiknimyndaflokkur úr smiðju Walts Disneys. Annar hluti verður sýndur á morgun á Stöö 2. 16.50 Lísa í Undralandi. 17.15 Glæstar vonir. 17.40 Línurnar í lag. 18.00 Fréttir. 18.05 Nágrannar. 18.30 Sjónvarpsmarkaöurinn. 19.00 19 20. 20.00 í annan stað. 20.35 Fjörefniö. 21.05 Barnfóstran 21.35 Þorpslæknirinn 22.30 Fréttir. 22.50 Eiríkur. 23.10 Yfir brúna (e) (The Bridge). Spennumynd sem gerist á 7. ára- tugnum og fjallar um unglinga sem glepjast til þess að smygla fíkniefn- um til Kanada. Bönnuð börnum. 00.50 Dagskrárlok. 17.00 Spítalalíf (MASH). 17.30 Beavis og Butthead. Ómót- stæðilegir grínistar sem skopast jafnt aö sjálfum sér sem öðrum en ekkert er þeim heilagt. Tónlist kem- ur jafnframt mikið við sögu í þáttum „tvímenninganna". 18.00 Taumlaus tónlist. 19.00 Ofurhugar 19.30 Ruðningur. 20.00 Walker (Walker Texas Ranger). 21.00 Eitraöa Ivy 2 (Poison Ivy 2). Magnþrungin mynd um unga stúlku, Lily, sem kemst yfir dagbók Ivy. Upp frá því tekur líf hennar miklum breyt- ingum en í dagbókinni er að finna djarfar lýsingar af kynferðislegri reynslu og Lily veröur gagntekin af frásögnunum. Leikstjóri er Anne Go- ursaud en í helstu hlutverkum eru Alyssa Milano, Xander Berkley og Jonathan Scaech. 1995. Stranglega bönnuð börnum. 22.30 NBA-körfuboltinn. 23.25 Lögmál Burkes (e) (Burke's Law). Spennumyndaflokkur um feðga sem fást við lausn sakamála. 00.10 Spítalalíf (e) (MASH). 00.35 Dagskrárlok. 9.00 Fréttir. 9.03 Laufskálinn. 9.38 Segðu mér sögu. 9.50 Morgunleik- fimi 10.00 Fréttlr. 10.03 Veður- fregnir. 10.15 Árdegistónar. 11.00 Fréttir. 11.03 Byggöaiínan. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.01 Daglegt mál. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.50 Auölind. 12.57 Dánarfregnir og auglýsingar. 13.05 Hvað segir kirkjan? Lokaþáttur: Hvers vegna kristindómur? 13.40 Litla djasshorniö. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan. Lygarinn 14.30 Miðdegístónar. 15.00 Fréttir. 15.03 Fimmtíu mínútur. 15.53 Dag- bók. 16.00 Fréttir. 16.05 Tónstig- inn. 17.00 Fréttir. 17.03 Víðsjá. 18.00 Fréttir. 18.30 Lesið fyrir þjóö- ina: 18.45 Ljóð dagsins endurflutt frá morgni. 18.48 Dánarfregnir og auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og veöurfregnir. 19.40 Morgunsaga barnanna endur- flutt. 20.00 Tónlistarkvöld í dymbil- viku. 21.25 Á kvöldvökunni. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. 22.15 Orö kvöldsins 22.25 ísskápur meö öðrum. Sjötti þáttur um íslenskar fjölskyldur í öllum sínum fjölbreyti- leika. 23.10 Flugsaga Akureyrar. Þriöji þáttur af fjórum: Flugskóli Akur- eyrar. 24.00 Fréttir. BYLGJAN 09.05 Hressandi morgunþáttur með Valdísi. Fréttir kl. 10.00 og 11.00. 12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunn- ar. 12.10 Gullmolar Bylgjunnar í há- deginu. 13.00 íþróttafréttir. 13.10 Gulli Helga - hress að vanda. Fréttir kl. 14.00, 15.00 og 16.00. 16.00 Þjóöbrautin. Fréttir kl. 17.00. 18.00 Gullmolar. 19.00 19 20. Samtengd- ar fréttir Stöðvar 2 og Bylgjunnar. 20.00 Kristófer Helgason. 24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. RÁS 2 9.03 Lísuhóll. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Hvítir máfar. 14.03 Brot úr degi. Umsjón Eva Ásrún Albertsdóttir. 16.00 Fréttir. 16.05 Dagskrá Dæg- urmálaútvarp og fréttir. 17.00 Frétt- ir. Dagskrá heldur áfram. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóöarsálin. Síminn er 568 60 90. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Milli steins og sleggju. 19.55 íþróttarásin. Fjögurra liða úr- slit í handbolta. 22.00 Fréttir. 22.10 Vinyl-kvöld. 24.00 Fréttir. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Noröurlands.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.