Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Blaðsíða 11
J)agurJ®mrám
Fimmtudagur 3. apríl 1997 - 23
FINA OG FRÆ6A FOLKIÐ
Skoran er til einkanota
(Xótwííífið
Teitur Þorkelsson
skrifar
Hingað og
þangað
Ef kossafræði kennslubók-
arinnar minnar eru í
raun klassísk er það
stundum rétt að kyssa fólk í
krókinn við nasavængina:
Enginn sannur elskhugi læt-
ur sér nægja að kyssa stúlkuna
á munninn. Hugsum okkur að
þér hafið kysst ástmey yðar
óhóílega langan og unaðsríkan
koss. Allt í einu takið þér eftir
því að hún lokar augunum eins
og hún sé þreytt. Losið þá gæti-
lega varir yðar frá munni henn-
ar og kyssið lokuð augnlokin.
Kyssið annað þeirra fyrst laust
og síðan hitt. Finnið hvernig
augað titrar undan vörum yðar.
Að svo búnu skuluð þér færa
varirnar niður með nefinu á
henni, stöðva þær öðru hvoru
og kyssa hana laust. Þegar þér
eruð kominn niður í krókinn við
nasavængina skuluð þér þrýsta
vörunum fast inn í bugðuna og
kyssa hana þannig smákossa
beggja megin. Séu augu hennar
enn lokuð þegar þetta er búið
skuluð þér byrja aftur og halda
áfram á sama hátt. En gleymið
aldrei þessu heilræði: Komið
aftur að vörunum, því þær fá
aldrei nóg af eldheitum ástar-
kossum. Smákossarnir sem þér
hafið verið að kyssa hana á
augun, nefið og hingað og
þangað á andlitið eru aðeins til
þess að gera matseðil ástarinn-
ar fjölbreyttari. Þeir eru ekkert
annað en krydd í aðalrétt ástar-
innar sem alltaf verður sjálfur
varakossinn.
Það er ekki nóg
að reka barminn
upp að höku
með fyrirferðar-
litlum hjálpar-
flíkum þótt
brjóstin eigi að
vera stinn og út
í loft samkvæmt
formúlunni. Því
Madonna klikk-
aði á því grund-
vallaratriði að
sýna ekki nema
lítinn hluta skor-
unnar. (Forvitni-
legt væri að vita
hve margir milii-
metrar eru niður
á geirvörtur.
Þetta orkubúnt
má varla hreyfa
sig mjög snögg-
lega til að lím-
bandið losni frá
þrýstilegu hold-
inu).
Gillian Anderson var ein hinna dæmdu og þótti
fordæmi hennar ekki til fyrirmyndar þar sem
kjóllinn klessti niður brjóstin og gerði þau te-
pokalaga.
Auðvitað gætu konur, sem finnst gott að vera í fötum með flegnu háls-
máli, farið þessa leiðina. En óvíst er að tískuspekúlantarnir yrðu miklu
sáttari við útkomuna. Brjóstin eru nú skemmtilegri tilsýndar heldur en
brúnn rúskinnstoppur með indverskri og fjólublárri bómullarpjötlu til
að skýla brjóstunum.
Bústnir kvenbarmar eru vissulega nán-
ast hvers manns yndi og þykja þeir jafn-
an til fyrirmyndar á stjörnunum. Tísku-
spekúlantar hafa þó orðið fyrir töluverð-
um vonbrigðum með þörf kvenna af
þeirri tegund fyrir að sýna óþarflega
mikið af flatarmáli brjósta sinna og ekki
síst þóttu þœr hafa brotið gegn óskráðum
reglum um að hylja brjóstaskoruna....
Drew Barry-
more var undir
sömu sök seld
og Gillian en
hún hélt þó ör-
litlu meira af
flatarmáli (en
kannski ekki
rúmmáli)
brjóstanna fyr-
ir sjálfa sig.