Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Blaðsíða 5
IDagur-Œmttim Fimmtudagur 3. apríl 1997 -17 VIPTAl PAGSINS Á ofsalega sætan kærasta Katrín Árnadóttir var kosinn Ungfrú Norðurland á dög- unum. Kata sem er 19 ára stundar nám á félagsfræðibraut í Verkmenntaskólan- um á Akureyri, vinnur í keramik- verslun og þrífur teiknistofu á kvöldin. 12 stúlkur tóku þátt í keppninni Ungfrú Norðurland og munu þær sem lentu í þremur efstu sætunum taka þátt í keppninni um Ungfrú ísland sem fram fer í maí. „Við áttum allar jafna mögu- leika og ég tók þessu ósköp ró- lega. Fegurð er svo afstætt hugtak og margt sem kemur þar til. Það sem einum finnst fallegt fmnst öðrum ljótt. Ég var al- veg óvön því ég hef aldrei áður tekið þátt, en það var yndis- legt að vinna.“ Eftir hverju erfarið? „Það er framkoman, dóm- nefndin tekur við okkur viðtal um morguninn og síðan horfir hún á generalprufuna og mynd- ar sér skoðanir en endanleg úr- slit ráðast síðan þegar keppnin fer fram.“ Af hveriu ákvaðstu að taka þátt? „Það var bara til að gera eitthvað nýtt og spennandi en ég var líka hvött. Ég lét annað ganga fyrir í fyrra þegar ég var beðin um vera með og hugsaði þá með mér að ég gæti bara verið með næst.“ Hverju þurftirðu að breyta eða „bœta"? „Ég þurfti að styrkja rass og læri og gerði það en annars var það ósköp lítið.“ Aðspurð finnst Katrínu feg- urðarsamkeppnir að sjálfsögðu eiga rétt á sér en dregur í efa að keppni sé réttnefni. Eitt af því sem er gaman að segja útendingum er að hver einasti maður á íslandi þekki stúlku sem einhvern tíma hefur tekið þátt í fegurðasamkeppni, finnst þér við ekkert biluð í sambandi við fegurðarsam- keppnir? „Ég upplifi það ekki sem bil- un heldur sem keppnisanda, það er alltaf gaman að taka þátt og sigra. Eru íslendingar ekki keppnis- fólk?“ Ertufalleg? »Ég er bara svona ósköp venjuleg og tel mig ekkert fal- legri en margar aðrar stelpur en hef greini- lega einhverja fegurð til að bera annars hefði ég ekki unnið. - En ég myndast ekki vel.“ Ertu Ijóshœrð? „Ég er með þennan íslenska sauðalit á hárinu en það er lýst og það verður yfirleitt ljóst í sólinni á sumrin." Katrín hefur eytt síðustu dögum í að ganga um bæinn að þakka fyrir þær gjafir og verð- laun sem titillinn hafði í för með sér. Þátttökurétturinn í Ungfrú ísland er samt stóra lukkan en þær sem voru í þremur efstu sætunum á Akur- eyri fara allar suður í þá keppni. „Ég er mjög fegin að við fáum að fara allar þrjár." Áttu kœrasta? „Já ég á ofsalega sætan kær- asta og góðan. Hann var voða stoltur." -mar „Ég er bara svona ósköp venjuleg og tel mig ekkert fal- legri en margar aÖrar stelpur. “ BREF FRÁ AKRANESI Frægðarsólin yfir mér Sigurbjörg Þrastardóttir skrifar Eg bý á útnára á skeri sem nánast er í eyði. Þetta fæ ég í það minnsta kosti á tilfinninguna þegar ég sný hnattlíkani og þarf stækkunar- gler til að koma auga á heima- hagana. Og samt eygi ég þá ekki því auðvitað er Akranes hvergi merkt inn á hnattlíkan sem framleitt er í útlöndum. Því hlýt ég að horfast í augu við staðreyndir. í mannhafi jarðkringlunnar eru þeir hlut- fallslega fáir sem þekkja ísland og enn færri kunna skil á Skipaskaga sem eitt sinn var þó frægur fyrir kvenfólk, kartöflur og knattspyrnu. f besta falli er bærinn þúst í hugarlendum höf- uðborgarbúa sem stytta sér leið með Akraborginni á hraðferð sinni norður í land. Því er það óneitanlega til- breyting þegar kastljósi íjöl- miðla er beint hingað uppeftir sem snöggvast og athygli al- mennings fylgir í kjölfarið. Þá sést að sú sæta trú að maður sé loks hluti af einhverju sem skiptir máli. Að maður búi ekki bara á litlausu nesi. Og þegar ljósvakageislinn líður hjá reynir maður að brosa ef svo ólíklega vildi til að maður lenti á mynd. Þó ekki væri nema loftmynd. Helst er von þegar sundfé- lagskrakkarnir synda árlegt Faxaflóasund eða þegar gulu gleðipjakkarnir í takkaskónum vinna leik. Ekki er fréttagildið minna þegar flytja á hingað op- inberar stofnanir í heilum skrokkum. Minni von er hins- vegar til að Skagakvartettinn gefi út disk eða Kútter Haraldur kaupi kvóta þó það myndu út af fyrir sig vera forsíðufréttir. Undanfarið hafa þó verið hér á ferð fleiri fréttasnápar en í meðalári sem þakka ber djúp- hugsuðum göngum undir Hval- ljörð og úthugsuðu álveri á Grundartanga. Rætt hefur verið við innfædda allt í kringum Akrafjall vegna þessa, myndir teknar af undir- skriftasöfnun- um og sent út frá kynningar- fundum. Það þykir fréttnæmt að við eigum bændur á bæj- um hér í kring sem þora að standa upp og segja sína meiningu. Þeir vilja hafa hönd í bagga þegar göng eru grafin og verksmiðjur reistar enda eru þeir vanir að hafa hendur í heyböggum á sínum eigin tún- um. Svo eigum við aðra bændur sem jánka og standa utan við andspyrnuhreyfingar og það er ekki síður frétt. Og þegar Ijósvaka- geislinn líÓur hjd reynir maÖur aÖ brosa ef svo ólík- lega vildi til aÖ maÖur lenti a mynd. (Þó ekki vceri nema loftmynd.) Skyndilega er Borgarijarðar- sýsla þannig orðin gósen- land í gúrkutíð fróttaflórunn- ar. í verkfall- inu um daginn fréttist líka að hér væru bens- ínbirgðir næg- ar þannig að sjoppurnar á Skaganum fylltust í snatri. Svo seldist knattspyrnu- kappinn Bjarni sem þýddi ríf- lega umfjöllun í blöðum. Við búum sem sagt í augnablikinu á heitum reit sem nánast er í beinni út- sendingu vikulega og því eins gott að haga sér á meðan þessi alda gengur yfir. Allir skandalar rata nefnilega fljótt í fréltirnar. Ég er þannig ekki lengur svo viss um að ég búi á útnára. í fyrsta lagi er ísland víst á allra vörum í útlöndum út af Björk, Bláa lóninu, Blur, Skeiðarár- hlaupinu og öllu því. í öðru lagi sé ég út um eldhúsgluggann flest það sem fréttnæmast þykir í íslenskum ljölmiðlum um þessar mundir. Ég sit í miðju kastljósleiftrinu en veit af fyrri reynslu hversu hverfult það er. Það sem er „hot news“ í dag er úrelt á morgun svo að bráðum man enginn eftir okkur lengur. Göngin verða gömul tugga, ál- verið hluti af landslaginu og enginn stríðleiki lengux í lofti. Það er ekki nema eitthvað spennandi haldi áfram að ger- ast hér í grenndinni að frægð- arsólin hafi möguleika á að tóra. En hvað getur svo sem ný- stárlegt gerst þegar maður býr á litlausu skeri á afskekktum útnára? Svo sem ekkert, og þó... Akrafjallið gæti jú alltaf gosið!

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.