Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.04.1997, Blaðsíða 9
ílagur-ÍEfenmn Fimmtudagur 3. apríl 1997 - 21 FOLK Pylsudrottning Djúpavogs Berglind Heiður Andrésdóttir er pylsudrottning Djúpavogs. Hana hitti tíðindamaður Dags- Tímans í Essó-sjoppunni, sem stendur skammt frá bryggj- unni. Ég var að vinna hér í fyrrasumar og kem síðan hing- að og vinn þegar ég á frí frá skólanum. í vetur hef ég verið í skólanum á Eiðum, en ætli ég fari ekki í Menntaskólann á Eg- ilsstöðum næsta vetur. Við er- um ekki nema fjörutíu nemend- xu- á Eiðum í vetur og það er eiginlega of fátt, segir Berglind Heiður. - Hún segist kunna býsna vel við að vinna í sjopp- unni á Djúpavogi. í það minnsta finnst henni allt vera skárra en að vera í fyrstihúsinu, en þar var hún í tvö sumur að plokka orma úr þorski og annað á svipuðum nótum. Texti og myndir: Sigurður Bogi Sævarsson. Fjárbændur í Ijarðarbotni Á bænum Óseyri, í botni Stöðv- arfjarðar, búa bræðurnir Sig- urður, Þórir og Jón Bjarnasyn- ir. Við hittum þá tvo fyrstnefndu þegar þeir voru að bjástra í íjárhúsum sínum við að bera inn hey. Þeir eru með á fóðrum um 120 fjár, en áður en riða gerði skráveifu í búskap þeirra fyrir nokkrum árum voru þeir með mun stærra ijárbú. Það er léleg eftirtekja af sauðíjárbú- skap í dag, en okkar sauðfé skilar engu að síður mjög góð- um afurðum. En kjötið má ekki heldur vera of feitt - þá fer það í C-flokk, segja þeir bræður. Þeir viðurkenna fúslega að lífið sé síðan fleira en saltfiskur og sauðfé. Ég veit nú ekki hvort ég á að upplýsa það - jú það er reyndar allt í lagi - en ég hef alla tíð haft gaman af steina- söfnun, segir Sigurður, að- spurður um áhugamál. Þórir segist alla tíð hafa verið mikill áhugamaður um frjálsar íþrótt- ir, og stundaði þær á sínum yngri árum. í dag lætur hann sér að mestu nægja að fylgjast með þeim í sjónvarpinu og þar á meðal er Jón Arnar Magnús- son, frjálsíþróttamaður, í miklu eftirlæti hjá Þóri. Gjörvulegur puttalmgur Það fylgir ferðalögum að taka upp puttalinga. Fyrst er tékkað á gjörvuleikanum og keyrt spottakorn framhjá þeirn. Ef allt er í þessu fína með putta- linginn er í góðu lagi að taka þá uppí, svona rétt til þess að halda manni selskap með kjaftagangi hluta leiðar. Það vantar ekki að Friðgeir Fjalar Víðisson er málgefinn maður. Hann hefur búið eystra í tvö ár við að skapa listaverk úr stein- um. Steinarnir tala sagði meist- ari Þórbergur - og ljóst er að steinar, unnir af Friðgeir Fjal- ari, segja sitthvað um hagar hendur hans. Hann hefur tröllatrú á því að það geti orðið gildur atvinnuvegur að vinna úr austfirsku fjallagrjóti, enda seg- ir hann að það séu gimsteinar sem glói. Friðgeir Fjalar fer úr bflnum á Nesjum. Hann ætlar að húkka sér far áleiðis til Reykjavíkur en blaðamaður hyggst hafa viðdvöl um stund á Höfn. Þar við situr og leiðir skilja.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.