Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Page 1
JDctgur-SItmmn
Góða helgi!
VJ
m ím
tyrir kl. ao:ao I kuölii
Blað
Laugardagur 3. maí 1997 - 80. og 81. árgangur - 82 tbl.
Konan í verkinu tekur hvern krók og kima fegrunarmeðferðar til að koma sér í árshátíðarformið. Það eitt angrar Önnu ekki. Það er konan sem gengst undir kröfur umhverfisins án þess að vita
af hverju sem hún vill hreyfa við. Vitirðu af hverju þú varalitar þig - þá ertu ekki lengur skynlaust fórnarlamb umhverfisins.
Karlmenn eru
fómarlömb framtíðarinnar
Konur nota sjálfa
sig, með hjálp
meiks og lita, sem
stöðutákn. Karlar
nota utanaðkom-
andi hluti, bíla,
grœjur o.s.frv. Svo
hljóðar klisjan en
klisjan er sjaldnast
úr lausu lofti grip-
in. Anna Líndal er
að velta þvífyrir
sér afhverju konur
nota þessa
leiðina...
Karlmenn eru fórnarlömb
framtíðarlnnar," segir
Anna Líndal, myndlistar-
maður, sem er búin að hengja
upp verk samansett úr mörgum
ljósmyndum í Galleríinu Ing-
ólfsstræti 8. Ljósmyndirnar
fylgja konu (Önnu sjálfri) ná-
kvæmlega eftir þar sem hún er
að breytast úr hversdagskonu í
velpassandi árshátíðarkonu.
Framtíðin er sem sagt enn
handan við hornið því fegurðar-
fórnarlömb nútíðarinnar eru
enn að mestu leyti konur. En
hvað er fegurðarfórnarlamb?
Jú, þegar þú ert t.d. hætt að
þora að skreppa ómáluð út í
sjoppu.
Það eru kannski fáar konur
sem raunverulega fara í gegn-
um alla fegrunarmeðferðina
sem lýst er á myndunum henn-
ar Önnu þar sem allt er tekið í
gegn; húð- og handsnyrting,
hár- og augnaháralitun, vax-
meðferð á fótleggi og nára
o.s.frv. En óneitanlega eru
ómálaðar konur með hárið í
óreiðu og blettóttum fötum fá-
tíðar á hátíðlegum samkomum.
„Mér finnst allt í lagi að mála
sig en ég held að það sé nauð-
synlegt að vita hvers vegna
maður gerir það. Þá er maður
orðinn gerandi en ekki þolandi.
Þetta er auðvitað aUsherjar
skrípaleikur en það er betra að
vita hvert maður er að hlaupa
og af hverju.“
milli þess að eiga dýrðlegt kyn-
Kf ævina á enda eða verða
milljónamær-
ingur. „Ég fann
það út að hver
tiUaga tæmdi
mann,“ segir
Anna um þess-
ar ráðlegging-
ar sem lesnar
eru upp til
agna af konum
um allan heim
enda inntak
þeirra ekki að
breyta lífi sínu
heldur leyfa sér einu sinni að
lifa í veröld miUjónamæringsins
um stund (kaupa 100 rósir, fok-
dýra dragt o.s.frv.)
við það passa inn í þjóðfélagið.
Að vera með. Konur hætta
þessu ekkert þó
þær séu örugg-
ar um eigin-
manninn. Ég
held að konur
haldi sig alveg
jafn mikið til
fyrir aðrar kon-
ur.“
Blair og
Major
Tímarnir breyt-
ast og eiginkon-
urnar með. Þegar stjórnmála-
menn þurftu á því að halda var
hamingjusama húsmóðirin
markaðssett sem hin ídeala eig-
inkona. „En nú er það ekki inn
fyrir stjórnmálamenn að eiga
eiginkonur sem húsmæður.
Konan hans Tony Blair er t.d.
karríer-kona og það er bara
lásí fyrir Major að eiga eigin-
konu sem er heima og straujar
skyrturnar hans.“
Ástæðurnar fyrir skreytiþörf
kvenna og stöðutáknaleik
beggja kynja eru auðvitað óá-
þreifanlegar en Anna telur að
þarna fari saman þörf fólks til
að lifa af, standa sig í samfélag-
inu og passa inn í það. Full-
kominn gerandi óháður öllu er
auðvitað ekki til en þá spyr
Anna: „Hvernig er ég orginal?
Maður veit það ekki svo vel
lengur. En með því að hafna
öllu, öllum þessum reglum, þá
verðurðu utangarðs." lóa
Kvennablöðin
Anna bjó sig vel undir verkið,
las stóru erlendu kvennablöðin
og svaraði samviskusamlega
krossaprófunum um:
með 6
ailtaf eldn og missi p
farða.“
Hvernig verð ég full-
komin..., 180 aðferðir til að
vera hamingjusöm til æviloka
o.s.frv. þar sem valið stóð t.d. á
Ekki
mökunarlöngunin
-Nú hafa konur skreytt sig með
ýmsum leiðum frá ör-
ófi alda. Er þetta ekki
okkur bara eðlislægt?
„Að einhverju leyti
er þetta manninum
eiginlegt," segir Anna
en finnst kröfurnar
líka samfélagslegar.
„Það er líka mannin-
um eðlilegt að gera
sér skjól en ekki
endilega að búa í
350 fermetrum."
-Aðferðir til að
vekja athygli hins
kynsins eru líka
þekktar í dýraríkinu. Tengir þú
þessa skreytiþörf við kynferðis-
legar langanir?
„Auðvitað er það einn þátt-
urinn en ég tengi þetta meira
En hvað er fegurð-
arfórnarlamb? Jú,
þegar þú ert t.d.
hœtt að þora að
skreppa ómdluð út
í sjoppu.
MAÐUR
VIKUNNAR
...er Sigursteinn Másson,
ritstjóri og fyrrverandi
fréttamaður á Stöð 2. Hann
sýndi djörfung og hug svo
að um munaði við að kafa
ofan í Guðmundar-og Geir-
finnsmál og búa til heila
tvo sjónvarpsþætti þar sem
flett er upp viðkvæmum
vinklum á þessu sakamáli
aldarinnar á íslandi og
jafnvel fyrr og síðar. Eng-
inn vafi leikur á því að Sig-
ursteinn hefur verið undir
miklum þrýstingi við
vinnslu sjónvarpsþáttanna
og orðið að beita útsjónar-
semi og lagni við að afla
sér upplýsinga. Stjórnkerfið
er jú ekíd beinh'nis vinveitt
blaðamanni sem er að
snuðra í viðkvæmum mál-
um og koma með nýjar
staðreyndir fram í dags-
ljósið. -GHS