Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Blaðsíða 12
■24 —4iitnmtudafmr.3^wuhl(A97
JDagvf'®áftWú
330]
Ný atvimra-
tækifæri
Seinnipart mánað-
arins verður nám-
skeið fyrir fólk til
sveita sem er að
reyna að hasla sér
völl á nýjum vett-
vangi.
Nú eru að minnka svolítið
umsvifin hjá okkur en á
döíinni er námskeið sem
heitir Tímamót - ný atvinnu-
tækifæri. Pað er námskeið sem
við skipulögðum í samstarfi við
Hansínu B. Einarsdóttur, sem
er með fyrirtækið Skref fyrir
skref. Hún er framúrskarandi
fyririesari og þetta fyrirtæki
hennar er eingöngu með nám-
skeið fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir,“ segir Haukur Gunnarsson,
endurmenntunarstjóri Bænda-
skólans á Hvanneyri. Petta um-
rædda námskeið er þriggja
daga og verður 20.-22. maí.
„Petta er fyrir fólk til sveita
sem er að reyna að hasia sér
völl á nýjum vettvangi, finna
nýjar leiðir,“ segir Haukur.
Hann segir námskeiðið byggjast
á fyrirlestrum um breytingar á
búsetuháttum, búskaparháttum
og mannQöldaþróun. Bæði sé
litið á fortíðina og framtíðina til
að menn verði ekki hræddir við
breytingarnar heldur reyni að
sjá þær fyrir og átti sig á því
hvernig þeir geti fært sér þær í
nyt.
„Svo er kynnt úrvinnsla á
hugmyndum til atvinnusköpun-
ar. Ef fólk gengur með hug-
mynd í maganum þá er til
markviss leið til að fara í gegn-
um ferli sem er unnið í hópum
til að kanna hvort hugmyndin
er raunhæf eða ekki. Það eru til
vinnublöð sem leiða menn í
gegnum þá vinnu. Það eru tveir
eða þrír saman í hópi. Peir
verða að sannfæra hina um
hvort hugmyndin er tæk eða
ekki. Þetta er mjög lærdómsríkt
ferli sem nýtist mönnum
seinna. Þó þeir séu ekki með
eigin hugmyndir á námskeiðinu
þá geta þeir notað eyðublöðin
og hugsunarháttinn til að vinsa
úr og kannski undirbúa sig að
því að leita aðstoðar t.d. at-
vinnuráðgjafa." Eitt viðfangs-
efni námskeiðsins eru mögu-
leikar til aðstoðar, bæði sjóða-
kerfi, stoðkerfi landbúnaðarins
VARAHLUTÍR
í LAND ROVER
OG RANGE ROVER
HAGSTÆTT VERÐ
SENDUM HVERT
Á LAND SEM ER
V
Höldur
VARAHLUTAVERSLUN - SÍMl 461 3016
Haukur Gunnarsson, endurmenntunarstjóri Bændaskólans, við Landrover bifreið sína. Gamla skólahúsið í bak-
sýn.
og hvaða faglegu aðstoð sé
hægt að fá eins og t.d. hjá at-
vinnuþróunarfélögum.
Haukur segir að þarna sé
skipulega unnið í gegnum efni
sem virðist óyfirstíganlegt fyrir-
fram. „Menn sitja kannski með
einhverja hugmynd og eru að
velta fyrir sér: „Er þetta svo góð
hugmynd hjá mér?“ Þetta er
skipulögð leið til að fara í gegn-
um það og þrengja hringinn."
Þetta er byggt á eldra nám-
skeiði sem hét Auðlindir í dreif-
býli sem var ætlað konum. En
það er búið að þróa það upp í
þetta námskeið sem er ætlað
báðum kynjum og byggt á fyrri
reynslu. „Þetta er mjög mótað
og gott námskeið," segir Hauk-
ur. „Það er samdóma álit þeirra
sem hafa tekið þátt í námskeið-
inu að það virki uppörvandi og
hvetjandi.“ -ohr
Gömlu húsin á Hvanneyri.
Landbúnaðurí
eðlilegu ranhverfí
Bændaskólinn á
Hvanneyri stendur
fyrir landbúnaðar-
sýningu í sumar í
tengslum við lands-
mót UMFÍ í Borgar-
nesi.
Við erum að undirbúa það
sem við köllum landbún-
aðarsýningu, sem er í
raun og veru samstarf milli
bændaskólans og Ungmenna-
sambands Borgartjarðar. Við
ætlum í tengslum við landsmót
ungmennafélaganna að vera
hér með litla landbúnaðarsýn-
ingu, kynningu á starfsemi
skólans, kynningu á systur-
stofnunum landbúnaðarins;
svolítið um húsdýr og svolítið
um vélar,“ segir Magnús B.
Jónsson, skólastjóri Bændaskól-
ans. Það á að gefa fólki tækifæri
til að skoða skólann og land-
búnaðinn í sínum einfaldleika í
þrjá daga, föstudag til sunnu-
dags.
„Við ætlum í raun og veru
með þessu að gera landsmóts-
gestum og öðrum þeim sem
eiga leið um héraðið þessa
helgi auðveldara með að eyða
hluta af sínum tíma til að skoða
það sem við höfum upp á að
bjóða hér, Vesturland," segir
Magnús.
Á Hvanneyri verða kynnt
borgfirsk fyrirtæki og hvað
rannsókna- og kennslustofnanir
landbúnaðarins eru að bjóða
því fólki sem vill sækja þær
heim. „Það er nú svona hug-
myndin. Þetta á ekki að vera
stórkostleg sýning en fyrst og
fremst á að reyna að sýna land-
búnaðinn í sínu eðlilega um-
hverfi." -ohr