Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.05.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.05.1997, Blaðsíða 5
4Dagur-®ímmn Laugardagur 17. maí 1997 - 5 Fiskiðjusamlag Húsavíkur Ferðamanna- frystihús Ákveðið hefur verið að opna frystihús FH fyrir ferðamönnum en hugmyndin er vel þekkt erlendis í verk- smiðjurekstri. tlunin er að tengja er- lenda ferðamenn við framleiðsluvörur FH í heimalandinu og kynna í leið- inni íslenskan sjávarútveg. Á næstu vikum verður fyrirtækið skráð á Verðbréfaþingi íslands en það hefur verið á Opna til- boðsmarkaðnum. Sigurjón Benediktsson, stjórnarformaður FH, segir að Húsavíkurbær muni minnka hlutdeild sína á næstu misserum, og skráningin sé því eðlilegt framhald til þess að opna leið fyrir nýja ijárfesta inn í félagið sem eykur ijöl- breytileika hluthafaflórunnar og styrkir félagið til framtíðar. Húsavíkurbær er stærsti hlut- hafinn með 42,6%, síðan kemur Kaupfélag Fingeyinga með 15,5%. Verulegur viðsnúningur hef- ur orðið í rekstri Fiskiðjusam- lags Húsavíkur á fyrstu sex Rekstrartap fyrstu sex mánuði rekstrar- ársins nemur 36 milljónum króna. mánuðum rekstrarársins, sem hófst 1. september. Hagnaður fyrir afskriftir og ijármagns- kostnað nemur 138 milljónum króna, sem er um 182 milljón- um króna betri afkoma en allt árið í fyrra. Fjármagnskostnað- ur nam 95 milljónum króna og vegur þar þyngst 34 milljóna króna gengishækkun en um 23% af skuldum félagsins er í sterlingspundum en pundið hækkaði um 11% á tímabilinu. Tap tímabilsins nemur 36 millj- ónum króna þegar tekið hefur verið tillit til hlutdeildar í 8 milljóna króna tapi dótturfé- lags. Gert er ráð fyrir áframhaldandi bata í rekstrin- um á þessu ári og að reksturinn verði réttu megin við strikið í lok rekstrarárs. GG Síðbúið vor Vorið hefur látið bíða eftir sér að undanförnu, sérstaklega norðanlands og austan. Þær Árný Ósk Árnadóttir og íris Hlín Vignisdóttir í Ólafsfirði hafa ekki aflagt vetrarklæðnaðinn enda snjór á gangstéttum og götum. Knatt- spyrnuvöllur þeirra Ólafsfirðinga var einnig klæddur snjóteppi, enda þegar búið að fresta fyrsta heimaleik þeirra á sumrinu, gegn sjálfum íslandsmeisturum Skagamanna 22. maí, og verður hann á Akranesi en Skaginn kemur í staðinn til Ólafsfjarðar 16. júlí. GG/Myrd: jhf Ólafsfjörður Verkfall boðað á Hvannabergi Sjómannafélag Ólafsfjarðar hefur boðað verkfall á tog- aranum Hvannabergi ÓF þann 6. júní nk., eign Sæbergs hf. í Ólafsfirði, þar sem útgerð- in hefur ekki fallist á að fulln- usta dóm Félagsdóms og greiða samkvæmt kjarasamningum. Gunnar R. Kristinsson, varafor- maður Sjómannafélagsins, seg- ir að sjómenn hafi verið látnir taka þátt í kvótakaupum og engin merki um það að því linni. Engar viðræður eru hafn- ar milli deiluaðila. Hvannaberg ÓF er á rækjuveiðum á Flæm- ingjagrunni í fyrstu veiðiferð- inni og þarf samkvæmt kjara- samningum að fara í land komi til verkfalls. Skipið kann hvort heldur sem er að sigla t.d. til Harbour Grace á Nýfundna- landi eða sigla í 5 sólarhringa til íslands. Veiði hefur verið treg en hefur heldur verið að glæðast. Sævar Gunnarsson, formað- ur Sjómannasambands íslands, segir að það komi honum ekk- ert á óvart að útvegsmenn vé- fengi rétt sjómanna til þess að ná fram rétti sínum, og allt eins megi búast við að útgerðar- menn Hvannabergsins, Sæ- bergsmenn, vísi málinu til Fé- lagsdóms. Hann segir ekki ótt- ast þá niðurstöðu komi til kasta Félagsdóms. GG Stutt & laggott R-listinn heldur hátíð Borgarstjóri og borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans bjóða stuðningsmönnum sínum til hvítasunnuhátíðar á Hótel Borg annan í Hvítasunnu. Tilefnið er að nú eru 3 ár síðan listinn sigraði í borgarstjórnarkosningum. Rétt ár er til næstu kosninga og er undirbrúningur þeirra þegar hafinn. Veislu- stjóri verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgastjóri, ræðu- maður kvöldsins verður Einar Már Guðmundsson, rithöf- undur og Jóhannes Kristjánsson, eftirherma, bregður á leik, svo nokkuð sé nefnt. Vorhátíð æfingaskólans Fjölmennt var á vorhátíð sem foreldafélag Æfingaskólans hélt í síðustu viku. Hátíðin hófst með skrúðgöngu, lúðra- sveit og ölllu tilheyrandi. Farið var í ýmsa leiki, m.a. hjól- reiðakeppni og á myndinni má sjá nokkra keppendur. Þá sáu börn og foreldrar um veitingasölu og settu upp lítið notalegt kafiishús. Einnig var stutt menningardagskrá, þar sem nemendur léku á hljóðfæri og lásu frumsamin Ijóð. Njörður stórmeistari Njörður P. Njarðvík, prófessor, var kjörinn stórmeistari al- þjóðlegu Sam-Frímúrarareglunnar á ráðstefnu reglunnar í París á dögunum. Njörður gegnir þessu virðulega embætti næstu fimm árin og er þetta í fyrsta skipti í 104 ára sögu reglunnar, sem kosinn er stórmeistari, sem ekki hefur frönsku að móðurmáli. Sam-Frímúrarareglan, „Mannlegt réttlæti“ eða „Le Droit Humain“, starfar í 58 löndum, en aðalstöðvar hennar eru í Frakklandi. Reglan hefur starfað hér á landi frá 1921. Njörður hefur verið yfirmaður ís- landssambandsins frá 1985. Hrukkurnar burt Nú er hægt að nota leisertækni til að sjóða burt hrukkurnar úr andliti fólks. Læknastöðin í Álfheimum hefur keypt tæki sem hægt er að nota við húðlýtaaðgerðir og á myndinni má sjá læknana Einar Thoroddsen og Páll M. Stefánsson og Þor- stein Hjaltason, ráðgjafa hjá Glitni, sem fjármagnar kaupin. Andlitshúðin lætur á sjá með aldrinum og reykingar, streita, sólböð og mengun geta einnig sett mark sitt á hana. Með þessari nýju leisertækni á að vera hægt að minnka hrukkur eða jafnvel eyða þeim alveg. Einnig á að vera hægt að lagfæra ör eftir bólur og íleira. Einnig kann að vera mögulegt að eyða húðflúri af vissum húðsvæðum. Leiser- geislum er beint að húðini og ysta lag hennar þannig soðið burt. Við það strekkist á bandvef húðarinnar og nýtt jafnara yfirborð vex aftur. Tækið ræður við allar venjulegar hrukk- ur, segir í fréttatilkynningu en ekki ef þörf er á gagngerri andlitslyftingu. Merki kristnihátíðar AIls bárust rúmlega 180 tillögur í samkeppni um merki kristnihátíðarinnar, sem efnt var til nýlega. Sýning á tillög- unum sem bárust verður opnuð almenningi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 17. maí. Úrslit verða tilkynnt og verðlaun afhent í Ráðhúsi Reykjavíkur næstkom- andi föstudag. -ab

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.