Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Síða 15
(®ítgur-'2ImTÍrat
Lcttíghrdagur 14. júní 1997-27
Þó að Poppsíða Dags-Tímans sé
ekki og haíl ekki verið vett-
vangur fyrir umíjöllun um út-
varpsefni, þá er það í góðu lagi
að minnast á slíkt hvað tónlist
varðar og hrósa því sem vel er
gert, ef svo ber undir. Það á
einmitt ágætlega við nú varð-
andi Rás 2 ríkisútvarpsins okk-
ar, en sumardagskrá hennar
ber með sér nokkrar ánægju-
legar áherslubreytingar. Rásin
hefur nokkuð í seinni tíð verið
gagnrýnd fyrir ýmislegt (eins og
raunar vera ber þegar útvarp
og fjölmiðlar almennt eiga í
hlut), meðal annars fyrir að
gefa ekki ungu fólki tækifæri á
að spreyta sig í dagskrárgerð
með sínum áherslum og áhuga-
málum. Gerði t.d. kappinn góð-
kunni Einar Örn Benediksson
þetta að umtalsefni í spjallþætti
á rásinni í vetur og taldi raunar
að pottur væri víðar brotinn í
þessum efnum. Nú hefur það
hins vegar gerst, að eigi færri
en þrír nýir þættir hafa hafið
göngu sína á Rás 2, þar sem
þar sem ungt fólk, áhugamál
þess og tónlist, ræður ríkjum.
Eru þetta þættirnir, Lovísa á
dagskrá á sunnudögum frá 5-7,
Fjör við fóninn á laugardögum
frá 13 til 15 og „Gott bít“, sem
heyra má á laugardagskvöldum
frá 22 til miðnættis. Er það
hinn góðkunni plötusali með
meiru, Kristinn Sæmundsson,
Kiddi kanína, sem hefur veg og
vanda að síðasttalda þættinum
er fór af stað um síðustu helgi.
Koma forráðamenn rásarinnar
þarna vel til móts við gagnrýn-
ina og má segja að hún rísi
hærra fyrir vikið.
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
a Rásinni
Útgáfa og tón-
leikar hjá „Gimp(l
Akureyrska rokkhljómsveitin
Gimp, mynduð af íjórum skóla-
piltum úr MA og VMA, er
hvorki gömul né lífsreynd, hef-
ur aðeins verið til í um fimm
mánuði, en er nú samt farin að
skapa sér nafn og það með
krafti. Þegar þetta birtist hefur
sveitin væntanlega þegar lokið
við að koma fram á Ingólfstorgi
í Reykjavík, síðdegis í gær, þar
sem strákarnir kynntu fyrstu
geislaplötuna sína, Crippled
plaything, sem einmitt líka kom
út í gær. (já, á föstudeginum
13., þið sem hjátrúarfull eruð.
Ekkert svoleiðis rugl hér á
ferð).
í kvöld verða svo formlegir
útgáfutónleikar hér á Akureyri
og verða þeir á Smíðaverkstæð-
inu svokallaða við Strandgötu,
þar sem Leikfélag Akureyrar
hefur verið með tvær leiksýn-
ingar í vetur, Undir berum
himni og Vefarann mikla frá
Kasmír. Fyrir þá sem ekki vita
er Smíðaverkstæðið á nánast
sama stað og veitingastaðurinn,
Við pollinn. Er inngangurinn
frá götunni sá sami, en þegar
inn er komið er annar sérstak-
ur inngangur að verkstæðishús-
inu baka til við veitingastaðinn.
Plötuna, sem nánar verður
íjallað um hér á síðunni innan
tíðar, gefa félagarnir íjórir út
sjálfir með góðra manna hjálp,
en um dreifingu hennar mun
væntanlega Hljómalind sjá,
Kiddi kanína og Co.
Blur virðist nú allavega í nokkrum mæli, hafa náð að slá í gegn í Banda-
ríkjunum.
Blur
brýtur fsinn
Þrátt fyrir að ekki svo ýkja mik-
ið hafi borið á Blur að undan-
förnu, Damon Albarn og félög-
um, hefur sveitin ekki setið
auðum höndum heldur verið á
linnulitlu tónleikaferðalagi um
Evrópu, Ameríku og nú síðast
Japan. Það sem meira er um
vert, er að flest hefur gengið í
haginn og þá ekki hvað síst í
Bandaríkjunum. Þegar sam-
nefnda platan Blur kom út í
vetur með öllum breytingunum,
voru væntingarnar hjá sveitinni
ekki svo miklar á gengi hennar.
Damon hefur hins vegar sagt
frá því margsinnis í viðtölum,
að hvernig sem gengi hefðu
þeir félagarnir þurft að snúa
blaðinu svona við. Annars hefði
stöðnun og síðan endalok í kjöl-
farið blasað við. Það ætlar líka
að borga sig, því ekki aðeins
hefur platan verið að ganga
vonum framar, selst jafnt og
þétt, heldur hefur hún líka orð-
ið til þess að brjóta ný lönd fyr-
ir Blur. Þar stendur einna helst
upp úr, að samhliða góðum við-
tökum á tónleikum, hefur smá-
skífulagið, Song 2, slegið í gegn.
Hefur útbreiðsla þess reyndar
verið með sérstökum hætti, það
verið notað af ísknattleikssam-
tökum Bandaríkjanna í auglýs-
ingum á deildarkeppninni til
dæmis og myndbandið við það
sýnt í leikhléum. Má því segja
að Blur hafi í vissum skilningi
og eftir þó nokkrar tilraunir
„brotið ísinn“ í átt til viður-
kenningar vestanhafs með lag-
inu.
ÍttjylkJl ií áli L. t Jk i ti.i.i, iA . íJ ÉiiH li iii i i ii káá 1 A , L.ll.i . .1 lit.4 i |U
if ' I W" 1 P P lill i >iá ' F . 1 M, " r1 .. .i i i M' L k. "1 i í i i t í t' li i i ri ií á » I i ■_ ,■hí A i ||iyL| Ávýv; i . . . 1r ' t f f r I kii i , i i 1 i A §
I*! f r n" w rr ▼r r P! H'nr'Mn * irwnrrviTi’
• Það hefur væntanlega ekki
farið framhjá mörgum, að á
mánudagskvöldið verður
mikil veisla í Kaplakrikanum
í Hafnarfirði. Þar treður
nefnilega upp ein af helstu
fánaberum trip hopsins,
Massive Atttack, frá Bristol,
upp ásamt svo allavega
tveimur meðlimum úr sýru-
dansgoðunum úr Under-
world. Massive Attack, sem
verið hefur á ferðinni í nær
áratug og skartaði um tíma
öðrum trip hop frumherja,
Tricky, mun áreiðanlega
verða dansfíklum landsins til
ómældrar gleði auk Under-
worldspíranna, þannig að
um góða stund verður ef-
laust að ræða.
• Ronnie Lane, bassaleikari og
einn stofnenda Small Faces
árið 1965, lést nú fyrir
skömmu eftir langvarandi
veikindi, 52 ára að aldri. Átti
Lane m.a. við hrörnunar- og
lömunarsjúkdóm að stríða
og hafði hann verið bundinn
við hjólastól um nokkurra
ára skeið þegar hann lést.
• Fyrir þá rokkaðdáendur sem
svo vel eru í sveit settir að
hafa aðgang að gervihnatta-
sjónvarpi, nánar tiltekið að
MTV tónlistarstöðinni, hafa
væntanlega tekið eftir því
síðustu vikurnar, að rokk-
þættir af framsæknara tag-
inu hafa ekki verið á dag-
skrá. Nú hefur hins vegar
orðið bragarbót á með þætt-
inum Superrock, sem kemur
í staðinn fyrir Headbangers
ball, sem áður var lengi á
dagskrá. Er þátturinn á dag-
skrá kl. 11 á mánudags-
kvöldum og á að spanna
nokkuð vítt svið.
• Nú þegar hjólabretti virðast
á ný vera komin í tísku, hér-
lendis sem víða erlendis,
með öllu sem þeim fylgir
lifnar líka við ýmis tónlist
sem tengd hefur verið fyrir-
bærinu. Þar á meðal er hið
svokallaða „skatecore" rokk.
Ein af þekktari boðberum
þess var Suicidal Tnedencies
með söngvarann Mike Muir í
fararbroddi. Hún hætti fyrir
um tveimur árum, en hefur
nú verið endurreist. Kemur
ný plata í haust frá sveitinni.
• Á markað er nú að koma
enn ein platan í hinni mjög
svo vinsælu röð, Pottþétt. Er
þarna sem kunnugt er á
ferðinni tvöföld útgáfa þar
sem blandað er saman nýj-
ustu danstónlistinni og ýmsu
öðru nýmeti í rokki og poppi.
Platan nú er sú áttunda í
röðinni.
• Það vita það e.t.v. ekki
margir, að gítarleikari dans-
rokkfyrirbærisins geysivin-
sæla og „íslandsvinanna" í
Prodigy, Gizz/Graham Butt, á
sér mun lengri söngu í tón-
listinni en í þeirri sveit.
Hann hefur nefnilega um
langt árabil verið meðlimur
hinnar sérstöku harð-
rokks/pönksveitar English
dogs, sem nú hefur öðlast
byr undir báða vængi. Hafa
Gizz og fólagar nælt sér í
samning við Earache Rec-
ords, sem nær yfir heims-
byggðina alla. Er ætlunin að
ný plata verði hljóðrituð í
sumar, sem komi svo út í
haust.
Gizz, gítarplokkari Prodigy (t.h.), gerir samning með hinni sveitinni sinni,
English dogs.