Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Page 17

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.06.1997, Page 17
|0agúr-'3Iímimt táhgardagur 14. júní 1997 - 29 LIF OG LAND Seljavallalaug. í hvaða kvikmynd kemur hún við sögu. Spurning nr. fimmtán. Mynd: Páll Jónsson, Akureyri. Sigurður Bogi §• Sævarsson skrifar 9. 1. Á sjötta áratugnum var að hluta til tekin upp í Grindavík kvikmynd, byggð á sögu eftir Halldór Laxnes. Hver er sagan? 2. Myndin hér neðst á síðunni er úr byggðarlagi á höfuðborgarsvæð- inu, sem á sér ekki nema óraun- verulega stoð í tilverunni. Hvar er myndin tekin? 3. Það fólk, sem hér er á eftir nefnt, er allt úr sama kaupstað á Vestur- landi. Hvaðan eru Helgi Daníels- son, yfirlögregluþjónn í RLR, Pétur Pétursson, fv. knattspyrnumaður og ljósmyndari, Inga Jóna Þórðar- dóttir, borgarfulltrúi, og Ólafur Páll Gunnarsson, stjórnandi Rokklands á Rás 2? 4. Hamar er bær í Þverárhlíð í Borg- arfirði. Þaðan er eitt af þekktari skáldum þjóðarinnar og kennir sig jafnan við bæinn. Hver er maður- inn? 5. í Sauðlauksdal við Patreksljörð voru gerðar merkar landbúnaðar- tilraunir á átjándu öld, sem sr. Björn Halldórsson stóð að. Fyrstur manna ræktaði hann hérlendis grænmetistegund, sem í dag er ómissandi, og fyrstur manna hóf Björn landgræðslustörf hérlendis, með hleðslu grjótgarðs sem enn sést. Hver er grænmetistegundin og hvað heitir grjótgarðurinn, sem enn sést? 6. Ein af radarstöðvum Atlantshafs- bandalagsins er á fjalli ofan við Bolungarvík. Hvert er fjallið? 7. Þegar ekið er norður í land er farið um Línakradal, þegar komið er úr Miðfirði. Af hverju dregur dalurinn nafn sitt? Fyrir nokkrum árum kom út bók eftir Ómar Ragnarsson sem íjallaði um sérstæða konu í Hvammi í Langadal. Hvað hét konan fullu nafni og hvað hét bókin? Við Aðalstræti á Akureyri er versl- un sem selur vöru sem sérstakra vinsælda nýtur í heitri sumarsól. Hvað heitir verslunin og hver er varan? 10. Af hverju draga Þingeyjarsýslur nafn sitt? 11. Um þessar mundir er minnst tíma- móta í sögu Egilsstaðabæjar. Hver eru þau? 12. Þegar ekið er upp úr Hornafirði og yfir í Lón er farið um veg þann sem er brattasti hluti hringvegar- ins. Hvað heitir þessi vegarkafii og hve brattur er hann í gráðum tal- ið? 13. Hver er þjóðgarðsvörður í Skafta- felli? 14. Austast á Mýrdalssandi er fjöldi lít- illa steinvarða, en siður ferða- manna á fyrri tíð var að merkja för sín yfir sandinn með vörðuhleðslu. Ilvað heitir vörðuþyrpingin? 15. Myndin efst á síðunni er af Selja- vallalaug undir Eyjafjöllum. Hún var gerð snemma á öldinni og markar bergstál vinstri hlið henn- ar. í hvaða íslensku kvikmynd kemur laugin við sögu, í harm- sögulegu atriði? 16. Árið 1940 var á Suðurlandi gerð fyrsta loftárásin á íslandi. Hvar átti hún sér stað? -)S8[ jnQBra uu;a issoj[as y Q!|Jai[ JBjajg nQjoq uinunjESQijjs B ua ‘jE|OAgn[jnjSu0jds jnj5|sXtj uinuuoui3n[| jb njqjysnjiQ b Qjag jba issotj SBJBjjoq yj SnB[B|[BA -Bf[0S I !SB[EQJ0JB|p>[S J E5[|njs JBU5[5injp 5pjjs Buio5j ‘jnj5|und ‘jnj5[unj jUUjpu.Áui j c [ jnQJOAB[B5[Sjmr| pj uossj5|!pauaa Sérstakt byggðarlag á höfuðborgarsvæðinu. Eða hvað. Spurning nr. tvö. UBjajs Ja !||3JBJJB5(S i jnyjpAsyjiiHyplVj g; BipajjjBjq qb jn -qbjS 9X jo qje5[SBUUBUI|v uin uinjnSaA '7.1 •jnQBpuÁui jba jnddajq -BQBjsspSg jac| bjj jb OS JJ?J njo UJQH 'll !Jpf[JBpUBJIBr>[S nQJOAUBQau i 'A’aíiupj juuA'a je jjjs ujbu BgBjp jn|sAsjBf,ío3ui<| ox uiníipp.iB|ps b Bp[æsmA jn -jáu jbc| uujsi 80 BfuÁja Jijiaq ujuiqsjaA (, bSuba iibjjbas qoui b3ub[\ m>[pq ua - ‘jpjppjBQjngjs lpJjiJjaq ubuojj 'p BjSas Jjpquuaq JO lAtj qb ‘bujoj [;j ynpunjs jqæjjoq jba mnssatj pip i qb jAtj jb yuSojp ja qijbn i |[BÖB[oa '9 jn)p|Sui?a uuunQJuSn[SQæjS -pui?T ipui?i i? J9i[ jn[jo;jí?>i buubui jnjSjXj iQT?i>jæj ii?ps5[m?iQnBS i ujofg JS ’S UIU1?H BJJ UUIOjSJOcI IS8UBJ51Y 1?JJ J0 ^JOJ 1?Q03 1?H0C( JllV £ •uBr^uofa ji?uuui?puXiu -5[!A>i buSoa ji?a qjoS ui0S ‘íduiB^uioduj, ju puXuDjioi nunqpi ujiocj jb jo ujpuÁj^ z •i?>ui?A i?5iii?s i uoas Fluguveiðar að sumri Í231 Hvað er í maganum? Stefán Jón Hafstein skrifar Astóru stöðuvatni í Bretlandi fara menn á stórfiska- veiðar með flugu sem heitir „dauður fugl“. Það er hún. Dauður fugl. Stóru urriðarnir í vatninu halda sig á miklu dýpi. Þeir vilja mat. Fugla til dæmis. Þess vegna trolla menn með sökklínu og fluguna „dauðan fugl“. Eru það fluguveiðar? Frekar fuglaveiðar! Við erum auðvitað komin nokkuð langt frá hinni eðlu íþrótt og list: flugu- veiðunum, þegar við drög- um á eftir okkur á mótor- báti eftirlíkingu af dauð- urn fugli. En allt á þetta sér skýringuna í því að þeir stóru vilja alvöru mat og eru stórir vegna þess að þeir kunna að varast klæki veiðimanna. Svarið við því er að hnýta fugla, mýs, froska... ferming- ardrengi? Margir veiði- menn hafa fyrir sið að spretta upp maga silunga til að skoða hvað þeir eru að eta í það skiptið - svona til að velja þá flugu sem líklegust er. Þetta er auðvitað bráðnauðsynlegt nema maður þekki veiði- vatnið þeim mun betur. Það getur verið ári erfitt að ná þeim fyrsta, en þeg- ar hann er kominn á land ætti veiðimaðurinn að skoða í hann. í maganum sjálfum er venjulega allt komið í graut, en í vélind- anu og kokinu er oft að finna það sem hann var einmitt að éta þá stund- ina. (Ristið fiskinn á kvið, skerið þvert á slönguna sem liggur frá munni og niður í maga. Þetta kreist- ir maður varlega, setur í grunna skál með vatni eða vætir lófa sinn og leysir sundur skordýra- leifarnar.) Flugur, púpur, lirfur - þetta kemur oftast í ljós. Stundum klekjast þessár púpur út í lófa manns og fljúga upp! Ég man þegar ég heyrði fyrst að urriðarnir í Laxá í Þingeyjarsýslu tækju andarunga að mér fannst það frekar ótrú- legt. En þetta vita bændur vel og hlógu mikið að breska aðalsmanninum hér fyrr á öldinni sem safnaði straumandarung- um í vik í ánni, sem hann tjaldaði yfir með neti. Þeir hurfu! Teknir neðan frá. Nú hef ég séð hverng andarungi lítur út frá sjónarhóli urriða. Það var í fyrra að við tókum myndir með sjónvarpsvél sem lögð var á árbotninn til að fylgjast með lífinu. Fyndið var að sjá litlu hnoðrana blaka sér áfram á yfirborðinu, eins og vél- in sá þá neðan frá. Fynd- ið, þangað til við fundum einn slíkan í urriðamaga. í heilu lagi. Þá skildum við samhengið: þessar litlu blöðkur, andarungalappir, og fiðurhnoðrinn sem knýr þær áfram, eru ein- faldlega alltof spennandi fyrir gráðugan urriða. Fiskurinn sem við sprett- um upp á fyrsta degi veiðiferðar var með unga í heilu lagi í maganum, gogg og lappir og stél; það var enginn stórfiskur sem gæddi sér á: 4 pimd. Margir hafa séð síli í mögum fiska, og þessi sem ég sýni með pistli dagsins, hafði fengið sér ærlega að éta í hornsíla- torfu. (Banamein: muddl- er.) Vinur hans var með níu svona munnbita inni í sér! í Vatnsdalsá sá ég einu sinni að stóru fisk- arnir eru frakkir. Ég hafði ekki orðið var. Leitaði lengi að fiski með vinsælli straumflugu, þegar loks tók fiskur. Innan við pund, en ekkert seiði. Sem ég dró fiskinn inn lét hann öllum illum látum - og dró að sér annan fisk sem ég vildi hafa haft á færinu! Risastór! Sá var ekki dónalegur þar sem hann réðist gegn fiskinum litla og hófst nú tryllingslegur eltingaleikur fyrir framan mig. Sá stóri elti með gap- andi kjaft, en hinn barðist við stöngina sem ég hélt í annars vegar, og hins veg- ar að komast burt frá rán- dýrinu! Þetta kallar mað- ur að lifa áhættusömu lífi hugsaði ég um leið og sá litli þaut undir bakkann þar sem ég stóð; svo komu þeir báðir út eftir andartak og þá náði ég að kippa þeim litla upp - en stóri drjólinn sem ég vonaðist til að héngi á hinum synti burt! „Dauður fugl“ þarf ekki að vera vitlaus fluga hér á landi. í fyrra fékk veiði- maður í Laxárdal fisk sem hafði að geyma skógar- þröst í maganum! Skóg- arþröst! Og margir luma á hnýttum músum í boxinu sínu. Þetta með mýsnar er auðvitað ekkert grín. Ég hef sjálfur séð urriða elta mús! Það bar þannig til að við félagi minn, Óskar Páll, höfðum verið við merkingar á silungum í Laxá í Mývatnssveit allan vorkaldan daginn, lúnir og veðurbarðir vorum við að tygja okkur burt. Þetta var þar sem stíflan er við skurðinn í Geirastaða- landi, þar er hátt niður í útfallið undan stíflunni og klettaveggir á báða vegu. Þegar stíflan var gerð var sprengdur hellir inn í klöppina og þar er gegn- umstreymi og þar búa stærstu urriðar sem ég hef séð; þar heitir DAS: Dvalarheimili aldraðra silunga. Drekarnir búa í hellin- um og láta sig berast stöku sinnum niður í pytt- inn þar sem útfafiið er; uppi standa veiðimenn og horfa löngunarugum á tröllin, en ná sjaldnast að kasta þarna upp í þrengslin og enn sjaldnar að setja í fisk. Nú stóðum við Óskar á stíflunni í kvöldgarranum og horfð- um á þetta líka tröll sem svifaði að og frá klettinum beint fyrir neðan okkur, þarna langt niðri. Til að gera langa sögu stutta ákváðum við (í nafni vísindanna) að kasta mús fyrir tröllið - sem er strangt til tekið ósiðlegt þar sem við stóðum, og óleyfilegt, og það myndi vera tveggja manna verk að landa hon- um og merkja, en við ákváðum samt að láta slag standa - í þágu vís- indanna. Við vildum reyna músatilgátuna. Ósk- ar var nýkominn frá út- löndum, með ekta sænska mús. Þessi ósköp settum við á og slökuðum línunni út. Vindurinn greip loðið nagdýrið og feykti því yfir pyttinum, svo lenti það á vatninu og flaut. I djúpinu sveimaði drekinn. I næstu atrennu lenti músin beint ofaní pyttinn, og nú orðin vot, sökk hún undir yfirborð. Þetta var stund sannleik- ans. Stóri skugginn lyftist tignarlega með fögrum sveig; hann lét strauminn bera sig upp mót músinni sem dinglaði, við sáum hvernig ginið opnaðist og við horfðum þráðbeint niður í hvítt kokið- hann kom rólega upp að kvik- indinu. Þá stöðvaðist hjartsláttur okkar og blóðið fraus. Músin dillaði skottinu. En. Eitthvað var að. Hvort hann sá að þetta var sænsk mús, eða hvort hann sá hvít andlit okkar uppi á stíflunni þar sem við góndum stjarfir niður veit ég ekki. Urrið- inn lokaði kjaftinum upp við litla dýrið og hvarf í myrkrið; lét hellinn gleypa sig. Síðan hef ég ekki haft ástæðu til að efast um mýs í mögum silunga.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.